Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Page 10
Fimmtudagur 30. apríl 200910 Fréttir Upphaf svínaflensunnar hefur að öllum líkindum verið rakið til La Gloria, þorps norður af Mexíkóborg, höfuðborg Mexíkó. Þar býr fimm ára drengur, Edgar Hernandez, sem staðfest hefur verið að hafi fengið svínaflensuna og náð sér að fullu. Enn sem komið er er flest staðfest tilfelli sýkingar að finna í Mexíkó. „Sjúklingur núll“ Stjórnvöld í Mexíkó telja sig hafa komist að því hvar svínaflensan hóf ferð sína um heimsbyggðina. Edgar Hernandez , fimm ára drengur í La Gloria, smáþorpi í Mexíkó, veiktist hastarlega í marslok og var rúm- liggjandi þrjá daga, svitnaði mikið og var með háan hita. 3. apríl tók hjúkrunarfólk sýni úr hálsi Edgars sem tveimur vik- um síðar rataði í forvarnamiðstöð sjúkdóma í Atlanta í Georgíufylki í Bandaríkjunum. Þegar hér var komið sögu voru stjórnvöld í Mex- íkó orðin afar áhyggjufull vegna fjölgunar flensutilfella sem jafnvel drógu fólk til dauða og ekki leið á löngu áður en þeim var tilkynnt að í mörgum þeirra sýna sem rann- sökuð höfðu verið hefði fundist stofn svínaflensu og að sýnið úr Edgari væri það elsta. „Mjög veikur“ Fréttamaður BBC fór til La Gloria og ræddi við Edgar sem sagði að- spurður að hann hefði verið „mjög veikur“, en liði nú vel. Edgar gæti að mati sérfræðinga geymt lykilinn í baráttunni við svínaflensuna sem hefur lamað Mexíkó og valdið því að embættismenn heilbrigðismála á heimsvísu sitja á tíðum neyðar- fundum. Á sama tíma og tala staðfestra smita fer yfir hundraðið í fjórum álfum og ótti grípur um sig í öllum heimshornum virðist sem Edgar Hernandez hafi náð sér að fullu. Aldrei fyrr hefur þorpið La Glor- ia fengið viðlíka athygli og Edgar hefur staðið í ströngu við að svara spurningum fréttamanna sem leggja leið sína í þorpið með grímu fyrir vitum og latexhanska. „Mér var mjög illt í höfðinu... ég gat ekki andað,“ sagði Edgar við fréttamann breska dagblaðsins The Guardian. Fjöldi þorpsbúa fékk flensu Edgar Hernandez, sem læknar kalla „sjúkling núll“, er einn fjölda ann- arra í La Gloria sem fengu flensu í lok mars. La Gloria er í Veracruz- fylki, í um tveggja klukkustunda akstursfjarlægð frá Mexíkóborg, og eru íbúar þess um 3.000 manns, en þrátt fyrir að sýni hafi verið tekin úr tugum sjúklinga fannst svína- flensuveiran eingöngu úr sýninu úr Edgar, aðrir höfðu fengið venju- lega flensu. Þrátt fyrir að almennt sé talið að fyrsta tilfelli svínaflensunnar í Mexíkó megi rekja til ungs drengs í La Gloria, hafa stjórnvöld þar í landi ekki skýringar þar að lútandi á reiðum höndum. Skella skuldinni á svínabú En sömu sögu er ekki að segja um þorpsbúa, sem sumir hverjir telja að þeir hafi fengið svínaflensuna á undan Edgari. Þeir skella skuld- inni á svínabú í grenndinni, í eigu bandarísks fyrirtækis, Smithfield Foods. „Við erum ekki læknar, en okk- ur finnst erfitt að tengja svína- búin hér í kring ekki við hana [svínaflensuna],“ sagði Anselma Anador, einn þorpsbúa í viðtali við The Guardian. „Flensan hefur svínaefni (e. pig material) í sér og við erum manneskjur, ekki svín.“ Í sama streng tók viðmælandi BBC, Jose Benitez Valencia geita- hirðir sem gætir hjarðar sinn- ar skammt frá einu svínabúanna. „Veran hérna er slæm því fnykur- inn er afar mikill, við getum ekki búið við þetta. Úrgangurinn í þess- um þróm situr bara þarna,“ sagði Valencia. Þrærnar sem um ræðir eru úr- gangsþrær svínabúanna og telja margir íbúa að innihald þeirra hafi komist í drykkjarvatn. Að sögn Val- encia glíma margir starfsmanna svínabúanna við heilsufarsvanda- mál. Stjórnvöld vantrúuð Larry Pope, forstjóri Smithfield Foods, gefur ekki mikið fyrir skoð- un þorpsbúa og sagði fyrr í vikunni í viðtali við bandaríska blaðið The Wall Street Journal að fyrirtækið væri ánægt með að svínin væru heilbrigð. „Þetta er ekki svínamál- efni. Þetta er frá-manni-til-manns málefni,“ sagði Pope. Orð hans komu í kjölfar sýna- töku opinberra starfsmanna á býl- inu sem leiddu ekkert misjafnt í ljós. Yfirvöld styðja orð Larrys Pope og sagði José Ángel Córdova, heil- brigðisráðherra landsins, að land- búnaðarráðuneytið hefði reglulega rannsakað svínin og ekki fund- ið neitt sem tengja mætti svína- flensunni. „Ég tel slíka tengingu fljótfærnislega,“ sagði Córdova. Córdova fullyrti einnig að Edg- ar væri eina tilfelli svínaflensu í La Gloría, þrátt fyrir að þorpsbúar segi að hann hafi orðið veikur eftir að stór hluti þorpsbúa hafi fengið flensu. Munur á tilfellum í Mexíkó og Bandaríkjunum Enn er ósvarað þeirri spurningu hví fréttir af dauðsföllum vegna svínaflensunnar berast enn sem komið er eingöngu frá Mexíkó. Í Mexíkó er, sennilega eðli máls- ins samkvæmt, að finna flest tilfelli sýktra einstaklinga, sem og flest til- felli þar sem grunur leikur á sýk- ingu. Fjöldi þeirra sem látist hafa, með einkenni sem draga dám af svínaflensunni, er kominn yfir eitt hundrað og fimmtíu auk þess sem um 2.000 manns hafa verið lagð- ir inn á spítala með einkenni sem svipar til svínaflensu. Norðan landamæra Mexíkó, í Bandaríkjunum hafa verið staðfest á sjöunda tug sýkingartilfella og, þegar þetta er skrifað, hafa fimm verið lagðir á sjúkrahús. Fyrsta dauðsfallið í Bandaríkjunum vegna svínaflensu og það eina var stað- fest á fimmtudaginn. Þar var um að ræða tveggja ára barn í Texas. Hugsanlega verra ástand í Mexíkó Engin einhlít skýring hefur verið nefnd til sögunnar en ein sameig- inleg skoðun virðist vera að koma í ljós; að sjúkdómurinn hafi verið til staðar í Mexíkó og sýkt fleira fólk en rannsakendur geta staðfest. „Vitum við í raun um öll tilfellin sem tengjast Mexíkó eða er þetta toppurinn á ísjakanum,“ sagði Lou- is Sullivan læknir, sem stýrði ein- um heilbrigðismálaflokki í Banda- ríkjunum í forsetatíð Georges W. Bush. Maryn McKenna, höfundur bókar um sjúkdómastjórnun, Beat- ing Back the Devil, sagði að mögu- lega væru „mun fleiri flensutilfelli í Mexíkó en okkur er kunnugt um því þau hafa ekki verið talin enn“. Dauðsföll í La Gloria Í febrúar lést sjö mánaða barn í La Gloria úr lungnabólgu, og snemma í mars dó tveggja mánaða barn. Foreldrum beggja barna var tjáð að dánarorsök hefði verið lungna- bólga. Rétt fyrir miðjan mars fékk fjöldi fólks háan hita, mikla verki og særindi í hálsi sem leiddu til öndunarörðugleika. Þrátt fyrir að yfirvöld kölluðu til lækna sem komu færandi hendi með sýkla- og verkjalyf varð lítið lát á veikindum. „Okkur var sagt að þetta væri dæmigert kvef og ekkert til að hafa áhyggjur af, sennilega tilkomið vegna flugna frá svínabúunum, og þeir sendu lið til að losna við flug- urnar,“ sagði Bertha Crisostomo, samfélagsleiðtogi í La Gloria, sem sjálf tók pestina og var óvinnufær í viku. Hvort Edgar Hernandez kemur til með að spila veigamikið hlut- verk í kortlagningu veirunnar og aðgerðum gegn svínaflensunni verður tíminn að leiða í ljós. Hvað sem því líður virðist ljóst að hann lifði af veirusýkinguna og þakk- ar meðal annars rjómaísneyslu að hann náði heilsu á ný. Edgar Hernandez, sem læknar kalla „sjúkling núll“, er einn fjölda annarra í La Gloria sem fengu flensu í lok mars. KoLBeinn þorSteinSSon blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is „Sjúklingur núll“ Edgar Hernandez er talinn sá fyrsti sem fékk svínaflensuna. Svínabú í Mexíkó Stjórn- völd telja ekki sannað að svínaflensuna megi rekja til mexíkóskra svínabúa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.