Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Side 14
Fimmtudagur 30. apríl 200914 Fréttir
Besti kjúklingaborgarinn í bænum?
Opnunartími :
Alla daga frá 11:00-21:30
Allta
f góð
ur!
Stjórnarflokkarnir fara sér engu óðs-
lega í tilraunum til þess að ná sáttum
um ágreiningsmál, en helsti ásteyt-
ingarsteinninn krafa Samfylkingar-
innar um tafarlausa aðildarumsókn
að Evrópusambandinu.
Jóhanna Sigurðardóttir, formað-
ur Samfylkingarinnar, býst við því að
viðræðurnar taki nokkra daga enn.
Þótt þær gangi vel sjáist ekki enn til
lands.
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur VG, sagði á miðvikudagskvöld að
lengsta biliið væri milli flokkanna í
ESB-málinu, en farið væri yfir marga
aðra málaflokka.
Vinstri græn leggja áherslu á að
þjóðin verði spurð um það fyrst hvort
hún vilji sækja um aðild. Hluti þing-
flokks VG telur tvöfalda atkvæða-
greiðslu óþarfa, þjóðin geti tekið af-
stöðu til niðurstöðu samninga við
Evrópusambandið í fyllingu tímans í
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Formenn og varaformenn stjórn-
arflokkanna hittust á fundi í Norræna
húsinu á miðvikudag ásamt Ögmundi
Jónassyni og Össuri Skarphéðinssyni
til þess að meta stöðuna en þing-
flokkarnir komu saman til fundar eft-
ir það.
Óvissu í stjórnmálum verði eytt
Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins
leggur áherslu á að óvissu stjórn-
málanna verði eytt sem fyrst og
að stefna landsins verði mót-
uð til framtíðar. Á fyrsta fundi
sínum ályktaði hún að veru-
legur árangur í niðurskurði
ríkisútgjalda sé forsenda þess
að landið komist hratt upp
úr öldudalnum. Stjórnin hefur
áhyggjur af því að staða atvinnu-
lífsins kunni að vera verri en áður
hefur komið fram og hvet-
ur til þess að fyrir-
liggjandi upplýs-
ingar verði lagðar
fram sem fyrst.
Atvinnulífið sé í
gríðarlegri óvissu í fjötrum ofurvaxta
og áform um hægfara vaxtalækkan-
ir séu óviðunandi. Ákvörðunarfælni
og sífelld frestun mikilvægra ákvarð-
ana skapi enn frekari vandamál. Þá sé
mikilvægt að vinna að sáttmála sam-
taka launamanna, atvinnurekenda og
ríkisins um stöðugleika til framtíðar.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir að niðurstaða þingkosninganna
leggi skyldur á herðar
stjórnarflokkanna að
vinna að tveimur mál-
um í senn; ESB-aðild-
arumsókn og velferð
í anda norrænnar
fyrirmyndar. „Þeir
sem hafa verið á
móti umsókn um
aðild að ESB hafa
ekki bent á aðrar
betri leiðir til stöð-
ugleika. Þess
vegna krefjumst við þess að gengið
verði til viðræðna við ESB. Við ráðum
ekki fram úr vandanum á grundvelli
hafta. Slíkt hefur skelfilegar afleiðing-
ar í för með sér fyrir heimilin í land-
inu. Við teljum að að með aðildarum-
sókn gefist færi á að telja lánardrottna
okkar á að fara í þessa vegferð með
okkur.“
Dökkar skammtímahorfur
Könnun Capacent meðal 500 stærstu
fyrirtækja landsins sýnir að aðstæð-
ur í atvinnulífinu eru afleitar og bera
margvísleg einkenni banka- og gjald-
miðilskreppunnar.
Stjórnendur eiga almennt ekki
von á að breyting verði til batnaðar á
næstu sex mánuðum en öll einkenni
eftirspurnar- og verðbólguþrýstings
eru horfin úr hagkerfinu. Samtök at-
vinnulífsins leggja út af þessu og segja
að ástandið hafi aldei verið jafn slæmt
og það sem fram kemur í umræddri
könnun. Þó búast atvinnurekendur
við að úr uppsögnum dragi á næstu
mánuðum miðað við undangengna
mánuði.
Samtök atvinnurekenda og launamanna gagnrýna hægagang stjórnvalda og krefjast þess að sest verði að
samningaborði um stöðugleika. Höft og hægfara vaxtalækkanir séu óviðunandi. Ástandið hafi aldei verið
jafn dökkt og nú þótt menn eygi von um bata í framtíðinni. Stjórnvöld taka sér nokkra daga enn til að leysa
ágreiningsmál um ESB-aðildarumsókn og leggja drög að stefnuyfirlýsingu.
Vinnumarkaðurinn
krefst stöðugleika
Formaður Samtaka atvinnulífsins
Könnun meðal 500 stærstu atvinnu-
rekendanna sýnir að ástandið hefur
aldrei fyrr verið jafn slæmt.
JÓhann haukSSon
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Í bankahruninu „Þeir sem hafa verið á
móti umsókn um aðild að ESB hafa ekki
bent á aðrar betri leiðir til stöðugleika,“
segir gylfi arnbjörnsson (t.h.) forseti aSí.