Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Side 17
Fimmtudagur 30. apríl 2009 17Fréttir Nú þegar Alþingi þarf að finna lausnir á einhverjum mesta ef ekki mesta efnahagsvanda sem Íslendingar hafa nokkurn tíma tekist á við taka 27 nýir þingmenn sæti á Alþingi í fyrsta sinn. DV fýsti því að komast að því hvernig nýir þingmenn standa sig í efnahagsmálum og lagði próf fyrir nokkra þeirra. HVAÐ VITA NÝLIÐARNIR Á ÞINGI UM HAGFRÆÐI? PRóFIÐ oG RéTTU sVöRIN 1. Hvað er bindiskylda? Bindiskylda er eitt af stjórntækjum Seðlabanka, ásamt lausafjárskyldu og stýrivöxtum, til að hafa stjórn á magni lausafjár í umferð. í stuttu máli er bindiskylda sett á lánastofnanir eins og viðskiptabanka og segir að ákveðið hlutfall af innlánum þeirra skuli fara á reikning hjá Seðlabank- anum. 2. Hvað er jafnvirðisgildi (Purchasing Power Parity)? Jafnvirðisgildi er notað til að færa landsframleiðslutölur til sambærilegs verðlags í ýmsum ríkjum. mcdonalds-vísitalan er dæmi um jafnvirðis- gildi. 3. Hvað er hagvöxtur? Hagvöxtur er vöxtur þjóðarframleiðslu frá ári til árs og er hann mældur í hundraðshlutum (prósentum). Ef þjóðarframleiðsla dregst saman er stundum talað um neikvæðan hagvöxt. 4. Hvað er CAD-hlutfall? Cad-hlutfall (Capital adequacy directive ratio) er mælikvarði á eiginfjár- hlutfall fyrirtækja samkvæmt stöðlum Evrópusambandsins. 5. Hvað er skuldatryggingarálag (Credit default swap)? Skuldatryggingaálag er álag ofan á grunnvexti skuldabréfs sem mælir hvað það kostar fyrir fjárfesta að kaupa vátryggingu gegn því að útgefandi viðkomandi skuldabréfs geti ekki staðið við skuldbindingar sínar. mælikvarði á markaðskjör sem bönkum bjóðast á alþjóðlegum skuldabréfamörkuðum. LAUsNIR NÝjU ÞINGMANNANNA Guðmundur Steingrímsson þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi 1. Bindiskylda er notuð til að binda ákveðið hlutfall af innistæðum banka. 2. Ekki hugmynd um jafnvirðisgildi. 3. Hagvöxtur er vöxtur þjóðarfram- leiðslu frá ári til árs. 4. Cad-hlutfall er eiginfjárhlutfall 5. Skuldatryggingarálag segir til um líkurnar á því að bankar verði gjaldþrota. Ef það er mjög hátt er mjög líklegt að bankinn fari á hausinn. Björn Valur Gíslason þingmaður vinstri grænna í Norðausturkjördæmi 1. Bindiskylda er hlutfall sem þarf að vera bundið í sjóðum til þess að banki eða sparisjóður fái starfsleyfi. Ákveðið hlutfall af eigið fé þarf að vera klárt. 2. Jafnvirðisgildi er eitthvað svipað og hjá okkur á sjónum. Þú færð eitt kíló af þorski fyrir ákveðið margar ýsur. Eitthvað er sama virði í einhverju öðru en því sem þú ert með í höndunum. Þú færð ákveðið magn af íslenskum krónum fyrir einhvern fjölda af dollurum. 3. Hagvöxtur er vöxtur í samfélaginu. Vöxtur í efnahagslegu tilliti. Efnahagur vex á milli ára. 4. Cad-hlutfall er lágmarkskröfur sem eru gerðar til lánastofnana um eigið fé þeirra. 5. Skuldatryggingarálag segir til um það þegar taka þarf lán í banka. Það leggst ofan á þá vexti sem þú borgar fyrir lánið. Ákveðið álag segir til um hvernig bankinn stendur. mælitæki á fjárhagslega stöðu. Birgitta Jónsdóttir þingmaður Borgarahreyfingarinnar í Reykjavík suður 1. Bindiskylda er lágmark sem þarf að vera í banka. Ef 100 krónur eru í banka má hann lána út 1.000 krónur. 2. Jafnvirðisgildi þýðir að hlutir séu jafnverðmætir. Ef ég væri með gull og demanta væri hægt að finna eitthvað ákveðið gildi á milli þeirra. 3. Hagvöxtur er hugtak sem getur bæði verið gott og vont. Oft er ekki betra að vera með of mikinn hagvöxt því þá er þensla. 4. Cad-hlutfall veit ég ekkert um. Verð að viðurkenna að ég veit ekki betur en norski seðlabankastjórinn. 5. Skuldatryggingarálag snýst um það að bankar geti ekki borgað skuldir. Ef menn eru með hátt svona hlutfall er bankinn í slæmum málum. Þýðir að hann geti ekki staðið við skuldbind- ingar sínar. Ólína Þorvarðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi 1. Bindiskylda er þeir fjármunir sem bankarnir eru skyldugir til að halda eftir. Þeir mega ekki lána út meira en þeir hafa höfuðstól fyrir. 2. Það er eitthvað sem er jafnt að verðgildi og það sem þú ert með annars staðar. 3. Hagvöxtur er sama og jákvæð afkoma og notað til dæmis þegar hagur þjóða eða tiltekinna svæða vex. 4. Ég fletti þessu upp þegar norski seðlabankastjórinn klikkaði á þessu en ég er búinn að gleyma þessu. 5. Það er álag á skuldatryggingar. Ásbjörn Óttarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi 1. Það er sem sagt bindiskylda bankanna gagnvart Seðlabankanum. Það sem þeir verða að hafa fast í innlánum. 2. Ég verð að viðurkenna að ég veit ekki hvað þetta er. 3. Hann getur verið jákvæður og neikvæður hjá þjóðum. Það má líkja þessu við heimilisbókhaldið og því hver greiðslugetan er og hvort það er afgangur eða ekki. 4. Cad-hlutfall er eiginfjárhlutfall bankanna. 5. Skuldatryggingarálag er álagið á það þegar þú tekur lán. Hvernig greiðslugeta, til dæmis bankanna eða ríkisins, er metin. Ef það eru litlar líkur á að þú getir borgað hækkar það. 8,0 10,0 8,0 7,0 7,0

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.