Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Blaðsíða 23
Fimmtudagur 30. apríl 2009 23Umræða
Hver er maðurinn? „Haraldur Briem
sóttvarnalæknir.“
Hvað drífur þig áfram? „Það er góð
spurning.“
Hvar ertu uppalinn? „í reykjavík.“
Hver er skemmtilegasti staðurinn
sem þú hefur heimsótt? „Nú er ég
alveg mát. Ég hef farið á svo marga
staði að það erfitt að velja þar á milli.“
Við hvað lékstu þér helst í æsku?
„Bara það sem strákar gera yfirleitt.
Sjálfsagt bara einhvern bófahasar.“
Er svínaflensan alvarlegri en
fuglaflensan? „Já, ef hún hefur þessa
möguleika að smitast á meðal manna
og er eins skæð og hún virðist vera í
mexíkó.“
Eru Íslendingar í betri aðstöðu
en aðrar þjóðir til að verjast
flensunni? „Ég myndi segja að við
værum í nokkuð góðri aðstöðu og
ekki síðri en nágrannalöndin.“
Hver er lykillinn að því að finna
mótefni eða bóluefni? „Hann er
þekktur. Þetta er bara spurning um
afkastagetu iðnaðarins.“
Hvað ráðleggur þú fólki sem
finnur fyrir hefðbundnum flensu-
einkennum? „almennt geta menn
verið rólegir með það hér á landi.“
Hvað heldur þú að líði langur
tími þar til búið er að vinna bug á
henni? „Það er ómögulegt að segja.
Hún gæti fjarað út eða magnast. Ef
hún verður eins og hún hefur verið í
Bandaríkjunum er þetta væg inflúensa
en ef hún verður eins og í mexíkó er
um mjög alvarlegt mál að ræða.“
Hvaða aðgerðir verður ráðist í
hér á landi? „Við erum með heilmikla
viðbragðsáætlun sem við erum að
virkja. Þar byrjum við að reyna að
hefta útbreiðsluna, sjá svo til þess
að sjúkir fái meðferð og halda svo
samfélaginu gangandi.“
Er það algengara nú en áður að
veirur stökkbreytist og verði
illvígar? „Það hefur borið aðeins á því
á undanförnum árum. t.d. alnæmis-
veiran og svo bráðalungnabólgan.
Virkar alþjóðlegar sóttvarnir komu
í veg fyrir frekari útbreiðslu hennar.
Verði svínaflensan eins og í mexíkó
gæti verið um heimsfaraldur að ræða
en það gerðist síðast fyrir 40 árum.“
Ferð þú í kröFugöngu 1. maí?
„Nei, ég fer á fjöll 1. maí.“
Kristján Ólafsson
49 ára FramkVæmdaStJóri.
„Nei, ég er að vinna.“
arnÓr Bogason
26 ára NEmi.
„Nei.“
alExandra jÓnasdÓttir
16 ára NEmi.
„auðvitað.“
Kristinn alfrEðsson
18 ára atViNNulauS.
Dómstóll götunnar
Haraldur BriEm sóttvarnalækn-
ir hefur verið mikið í sviðsljósinu
undanfarið vegna svínaflensunnar.
Óhætt að ferðast
„Nei.“
ingÓlfur guðlaugsson
65 ára SkipStJóri.
maður Dagsins
Halldór Hermannsson, útvegsbóndi
á Ísafirði, hefur stutt aðild að ESB í
þrjá áratugi.
Þegar Ísland öðlaðist aðild að EES-
samningnum vildi hann ganga í ESB.
Með því taldi hann að hægt væri að
losna undan geðþóttavaldi íslenskra
stjórnmálamanna. Taka mætti við
byggðastyrkjum ESB sem hann taldi
vænlegri, til dæmis fyrir heimabyggð
formanns VG á Norðausturlandi, en
fálmkennd byggðastefna íslenskra
stjórnvalda. Honum fannst ekkert að
því þótt evrópskt fyrirtæki setti upp
fiskréttaverksmiðju á Ísafirði.
Þetta var á árunum sem Finnar og
Svíar gengu í ESB um miðjan síðasta
áratug, varla búnir að ná sér á strik
eftir kreppu.
Halldór segir nú að ESB-sinnar
þurfi ekki að láta sig dreyma um að
íslensk stjórnmál nái einhverjum ár-
angri eða nýjum hæðum í skynsam-
legum ákvörðunum eftir kosning-
arnar síðastliðinn laugardag. Jafnvel
þó svo þingmeirihluti sé fyrir tafar-
lausri aðildarumsókn að ESB eftir
kosningarnar. „Ég þekki hugarfarið,“
segir Halldór. „Framsóknarmönnum
er aldrei að treysta. Það verður aldrei
hægt að fá VG til að sækja nærtækan
stöðugleika og nýjan gjaldmiðil inn í
ESB. Sjálfstæðisflokkurinn sleikir sár-
in. Einangrunarhyggja leiðtoga þess-
ara flokka ræður ferðinni. Þeir breiða
upp fyrir haus eins og fyrri daginn.
Hér fljóta allir sofandi að feigðarósi
sem endranær. Hér verður beðið eft-
ir að Noregur taki af skarið og gangi í
ESB sem verður seint og illa.“
rökstudd bölsýni?
Eiga menn að deila þessari bölsýni
með Halldóri skipstjóra á Ísafirði?
Sjálfstæðisflokkurinn er á harða-
hlaupum undan landsfundarsam-
þykkt sinni um tvöfalda þjóðarat-
kvæðagreiðsu og hægfara skref á
næstu árum í átt að ESB og evrunni.
Alþýðusamband Íslands, Samtök
atvinnulífsins, Viðskiptaráð og Sam-
tök iðnaðarins og fleiri eru hlynnt
aðildarumsókn.
Við völd er ríkisstjórn sem hefur
lýðræðisumbætur á sinni dagskrá,
vill knésetja íslenska ráðherraræðið
og efla veg þingsins þar sem nú er
meirihluti fyrir milliliðalausri um-
sókn um aðild að ESB.
Þrettán þúsund manns hafa
skráð sig á vefinn sammala.is þar
sem fólk með ólíkar skoðanir lýs-
ir þeirri sameiginlegu sýn að okkur
eyjaskeggjum sé best borgið innan
Evrópusambandsins.
sundurþykkjan tæki völdin
Gegn þessu þurfa nú andstæðing-
ar ESB að beita sér. Þeir vita sem
er að þetta er ekkert mál „elítunn-
ar“ eins og formaður VG sagði úr-
illur um daginn. Hann veit að enn
stendur krónan í vegi fyrir end-
urreisninni, gjaldeyrishöftin eru
sem dragbítur á vilja hans til góðra
verka. Samt ætlar hann - maðurinn
sem óskaði eftir norskri kónu - að
verja íslensku krónuna fram í þjóð-
argjaldþrot. Flestum ber saman um
að hvergi á byggðu bóli hafi heil
þjóð þurft að þola aðrar eins gjald-
eyrishremmingar ofan á lánsfjár-
kreppu. Fall krónunnar á skömm-
um tíma fram að bankahruni jók
skuldir þjóðarinnar um 1.000 millj-
arða í íslenskum krónum. Áfram-
haldandi fall hennar veldur vax-
andi böli. Útflutningsfyrirtæki þola
vart við lengur og íhuga að flytja
af landi brott vegna hafta. Eng-
inn stjórnlyndur ríkisafskiptamað-
ur getur boðið lausnir gegn þessu
þegar íslenska ríkið neyðist til að
brjóta fjórfrelsi EES-samningsins
ofan á allt annað til þess að verja
krónuna.
Hin þrasgjarna þjóð
Halldór Hermannsson þekkir sína
þrasgjörnu þjóð sem stolt ætlar að
þrauka í gegnum sjálfskaparvíti
þjóðernislegrar sjálfsþurftarhyggju,
sem hann kallar svo, án nánara
samneytis við aðrar þjóðir.
Hann treystir ekki þrasgjörnu
þinginu. Frekar en að láta reyna á
þingmeirihlutann í andstöðu við
VG biður hann Samfylkinguna um
að verða við beiðni samstarfsflokks-
ins um tvöfalda atkvæðagreiðslu.
„Þetta er kjánaleg krafa en best er að
biðja VG um að nefna dag sem fyrst
til að kanna þennan vilja þjóðarinn-
ar í atkvæðagreiðslu,“ segir Halldór.
„Í þinginu færi þetta hvort eð er í bál
og brand.“
Nefndu dag, Steingrímur!
mynDin
á köldum klaka
Þessi ungi maður hætti sér í göngu á ísflekum í Jökulsárlóni um helgina en lenti í nokkrum vandræðum þegar flekarnir færðust úr stað og erfitt varð að komast í land. mynd raKEl ÓsK
kjallari
jÓHann
HauKsson
útvarpsmaður skrifar
„Halldór þekkir sína
þrasgjörnu þjóð sem
stolt ætlar að þrauka
í gegnum sjálfska-
parvíti þjóðernislegrar
sjálfsþurftarhyggju.“