Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Page 27
Fimmtudagur 30. apríl 2009 27Helgarblað
Fyrstu
morðin
í Ameríku
Landnemar kasta grímunni
Þrátt fyrir fyrrnefndar tilraunir Williams Brad-
ford landstjóra í nýlendu Breta í Massachusetts
til að sýna Indíánum fram á að þeir nytu sama
réttlætis og hvítir landnemar, stóð sú dýrð ekki
lengi. Strax og nýlendan var orðin svo öflug að
henni stóð ekki bein hætta af Indíánum, köst-
uðu landnemar grímunni og tóku að kúga Indí-
ána á allan hátt. Reyndar voru Indíánar ekki
einu fórnarlömb þess harðneskjulega land-
nemaréttlætis sem brátt var tekið að útdeila í
nýlendunum vestan hafs.
Sérstaklega þóttu menn harðir í horn að
taka í Virginíu en þar máttu jafnt Indíánar sem
þrælar af öllu öðru kyni gæta sín að gera ekk-
ert til að styggja landnemana. Ánauðugir smá-
bændur í þjónustu stórbændanna flokkuðust í
raun og veru sem þrælar um þær slóðir, og þótt
þeir væru hvítir sættu þeir engu skárri meðferð
en Indíánarnir ef þeir voguðu sér að gera eitt-
hvað á hlut húsbænda sinna.
Í Virginíu var vinsælt að höggva hendur af
misyndismönnum og afbrotamönnum af öllu
tagi, en einnig eyru, og voru eyrun síðan gjarn-
an fest upp á staura á almannafæri, öðrum til
viðvörunar. Og menn voru ekkert að flýta sér
að taka niður slíkar líkamsleifar, hvað þá veita
þeim kristilega greftrun.
Lík hangir við tré í mörg ár
Þegar ánauðugur bóndi að nafni Thomas Helli-
er réðst með öxi að húsbónda sínum, sem hann
taldi hafa leikið sig grátt, og drap hann, þá var
Hellier að sjálfsögðu eltur uppi og hengdur, en
síðan var lík hans hlekkjað við tré á fjölfarinni
slóð til þess að þrælar og annað undirmálsfólk
gleymdi ekki hversu hart væri hér réttlætið.
Þar hékk lík Helliers síðan í mörg ár eða þar
til það varð beinlínis að engu.
Rétt skal vera rétt, sögðu landnemar, og
það fékk Mary nokkur Dyer líka að reyna. Hún
kom frá Englandi með fjölskyldu sinni og sett-
ist að í Boston, þar sem púrítanar af mótmæla-
slekti réðu öllu sem þeir vildu ráða. Mary Dyer
sneri síðan aftur til Englands og þar tók hún trú
Kvekara. Það hefði hún ekki átt að gera. Enda
þótt ókunnugir kunni lítt að greina milli hinna
fínni blæbrigða í trú Kvekara annars vegar og
þessara púrítana hins vegar, voru púrítanarnir
í Boston með þann mun öldungis á hreinu og
vildu ekkert með Kvekara hafa.
Þegar Mary Dyer tók til óspilltra málanna
að boða sína Kvekaratrú ýfðust kirkjufeðurnir í
Boston og stungu henni í steininn fyrir trúboð-
ið og gerðu hana síðar burtræka frá bænum.
Nokkru seinna, eða 1657, var Mary Dyer líka
dæmd burtræk frá New Haven af sömu ástæðu.
Brottrekstri af þessu tagi var beitt gegn mörg-
um afbrotamönnum, sem nýlendumenn vildu
losa sig við en gátu ekki almennilega fundið
nógu stóra sök hjá til að láta taka af lífi.
Dauðarefsing fyrir að snúa heim
Um þetta leyti höfðu þeir í Boston sett ný lög
þar sem dauðarefsing var lögð við því að snúa til
baka ef maður hafði verið lögformlega dæmdur
á brott. Þessum lögum var að sjálfsögðu helst
stefnt gegn alvarlegum brotamönnum, en svo
fór að trúboðinn Mary Dyer var sú fyrsta sem
varð fyrir barðinu á þeim. Hún lét sér nefnilega
ekki segjast, þó hún hefði verið rekin burt bæði
frá Boston og New Haven, heldur sneri aftur til
að boða trú. Sérstaklega var henni þó umhugað
um að líkna trúarsystkinum sínum sem hneppt
höfðu verið í fangelsi vegna trúar sinnar.
Ekki leið á löngu þar til Mary Dyer var tek-
in höndum og leidd fyrir rétt, sökuð um brot
á lögum um brottrekstur frá nýlendunni. Hún
var dæmd til dauða, samkvæmt laganna hljóð-
an, en sonur hennar einn hélt uppi miklu mál-
þófi til bjargar móður sinni. Að endingu var
hún náðuð en að sjálfsögðu gerð burtræk frá
Boston öðru sinni. En hún lét sér ekki segjast;
1650 sneri hún enn aftur og boðaði sína trú
sem fyrr.
Heimildum ber ekki saman um hvað vakti
fyrir Mary Dyer. Sumir telja að hún hafi bein-
línis ætlað sér að fórna lífinu fyrir trúna og
verða píslarvottur Kvekara, sem þeir gætu síð-
an flykkt sér um, rétt eins og píslarvottar frum-
kristninnar létu lífið en stöppuðu mjög stál-
inu í trúarsystkini sín. Fleiri hallast hins vegar
að því að Mary Dyer hafi verið þess fullviss að
hinir virðulegu borgarar Boston myndu þeg-
ar til kæmi heykjast á því að taka hana af lífi.
Hún hafi sem sé ætlað sér að ögra þeim þannig
að þeir neyddust til að fella lög sín úr gildi, að
minnsta kosti hvað hana varðaði.
Píslarvottur Kvekara
Hinir virðulegu borgarar í Boston stóðu líka
frammi fyrir nokkrum vanda. Þeir munu í
rauninni ekki hafa haft minnstu löngun til þess
að taka Mary Dyer af lífi, enda var þetta kona
á virðulegum aldri sem aldrei hafði gert flugu
mein og var ekki líkleg til þess, þótt hún boð-
aði Kvekaratrú af fullmiklum ákafa fyrir þeirra
smekk. En borgarar og valdamenn í Boston
lásu lagasafnið sitt og gátu ekki fundið neina
leið framhjá dauðadóminum sem þeir hlutu að
kveða upp yfir henni, enda hafði hún í tvígang
gengið blákalt gegn lögunum. Til þess að sanna
fyrir sjálfum sér og öðrum að lög skyldu standa,
þá drógu valdamenn Mary Dyer því í gálga og
hengdu hana.
Í röðum Kvekara er vissulega litið á hana
sem píslarvott en í dómsmálasögu Banda-
ríkjanna er Mary Dyer aftur á móti talin eina
hreinræktaða dæmið um manneskju sem var
tekin af lífi bara til þess eins að framfylgja og
staðfesta bókstaf laganna.
En ekki af því hún hafi í rauninni neitt veru-
legt til saka unnið.
Nýja Amsterdam Stríð braust út milli indíána og landnema
þegar þeir síðarnefndu vildu fá einn indíánann framseldan
fyrir morð á hvítum manni. Fimmtán árum áður höfðu þeir
þverneitað að framselja hvíta menn fyrir morð á indíána.
Sögulegir farþegar Hið
sögufræga skip mayflower flutti
bæði fyrsta morðingjann og fyrsta
fórnarlambið úr röðum hvítra
manna í Vesturheimi.