Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Síða 44
fimmtudagur 30. apríl 200944 Sport
Meðalmennska hefur einkennt enska úrvalsdeildarliðið Newcastle síð-ustu ár. Þetta lið sem var á meðal efstu liða bæði frá 94-97 og svo aftur
frá 2002-2004 hefur látið sér nægja að enda
fyrir neðan miðja töflu undanfarin tímabil.
Newcastle hefur daðrað við botninn síð-
ustu tvö tímabil en í bæði skiptin tekið góð-
an endasprett og bjargað sér frá falli. Í ár, eins
og allir áhugamenn um enska boltann vita,
er sagan önnur.
Endaspretturinn sem Newcastle hefur
treyst svo mikið á hefur hvergi verið sjáan-
legur og er liðið nú í þriðja neðsta sæti þeg-
ar aðeins fjórir leikir eru eftir. Það er þremur
stigum frá næsta liði, Hull, þannig að vonin
er ekki úti enn. Liðið gerði jafntefli í gífurlega
mikilvægum heimaleik síðastliðinn mánu-
dag gegn Portsmouth en sigur þar hefði
heldur betur gefið liðinu innblástur. Alan
Shearer stýrir nú liðinu en undir hans stjórn
hefur Newcastle ekki enn unnið leik. Aðeins
náð í tvö stig og það versta er að Newcastle
hefur aðeins skorað eitt mark.
Af sem áður var
Newcastle hefur alltaf verið þekkt fyrir að
spila góðan fótbolta þó minna hafi farið fyrir
því á síðustu árum. Eftir að Alan Shearer tók
við liðinu hefur það leikið fjóra leiki. Gert tvö
jafntefli, tapað tveimur og skorað aðeins eitt
mark. Það er af sem áður var þegar Shear-
er var sjálfur í fremstu víglínu en hann er
markahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar
frá upphafi með heil 260 mörk.
Þegar Shearer tók við biðlaði hann til
markahróksins Michaels Owen að finna
markaskóna uppi í hillu, reima þá á sig og
bjarga liðinu frá falli. Hann hefur ekki enn
fundið netmöskvana frekar en aðrir fram-
herjar Newcastle og þar liggur rót vandans.
Á meðan hin hripleka og ömurlega vörn liðs-
ins asnast til að standa vaktina almennilega
fer ekkert inn hinum megin. Eina markið
undir stjórn Shearers skoraði heimalning-
urinn Andy Carroll á útivelli gegn Stoke sem
tryggði liðinu mikilvægt stig.
Þrátt fyrir markaleysið hefur Newcastle
töluvert betri markatölu en Hull sem er fyrir
ofan það í töflunni en eins og áður segir skilja
aðeins þrjú stig liðin að. Það gæti talið drjúgt
þegar á hólminn er komið.
Þokkalegir leikir eftir
Þótt Hull sé ekki eina liðið sem Newcastle á í
baráttu við er gott fyrir það að horfa til leikj-
anna sem liðin eiga eftir. Það er auðvelt að
segja að leikir Newcastle sem eftir eru séu
erfiðir og réttilega. Newcastle er ekki í öf-
undsverðu hlutverki um helgina þegar það
sækir Liverpool heim. Stig þar væri stórsig-
ur fyrir Newcastle en miðað við hvernig lið-
in spila þessa dagana verður stuðullinn ekki
hár á Newcastle
Eftir það taka við tveir heimaleikir gegn
Middlesbrough og Fulham. Sjaldan hafa sést
jafnmiklir sex stiga leikir og gegn Middles-
brough en fyrir utan það að liðin séu saman
í fallsætum eru þau nágrannar og líka ekkert
of vel við hvort annað. Fulham sækir nú hart
að sæti í Evrópukeppni á næsta ári og mæt-
ir því eflaust tvíeflt til leiks á St James´s park.
Það breytir því ekki að þarna fær Newcastle-
liðið tvo heimaleiki í röð til að rétta sinn hlut
og nýti það ekki þessi tækifæri á það auðvitað
ekki skilið að halda sér í deildinni. Lokaleik-
urinn er svo útileikur gegn Aston Villa sem
mun ekki hafa að neinu að keppa og spilar
alltaf illa þegar lítið er undir.
Á móti á Hull mjög erfiða leiki eftir. Hull
heimsækir Aston Villa um helgina, fær sterkt
lið Stoke í heimsókn þar á eftir og spilar svo
við Bolton úti og Manchester United heima.
Nær allir heilir
Newcastle hefur lengi þurft að glíma við
það sem getur ekki flokkast undir annað en
óeðlilega mörg meiðsli. Sjaldan eru færri en
sex byrjunarliðsmenn meiddir á sama tíma
og getur heildartalan verið um og yfir tuginn
heilu og hálfu tímabilin. Á því hefur ekki ver-
ið skortur í ár. Svo virðist sem það sé einfald-
lega nóg að fara í æfingagallann og reima á
sig takkaskóna á æfingasvæði Newcastle til
þess að meiðast. Oftar en ekki vilja menn
tengja lélegan æfingavöll Newcastle við þessi
meiðsli.
Fréttirnar eru þó betri hjá Newcastle fyr-
ir lokasprettinn í deildinni í ár. „Ekki nema“
fjórir leikmenn eru á meiðslalista félagsins
og þar af „aðeins“ tveir byrjunarliðsmenn. X-
faktorar eins og Mark Viduka og Alan Smith
eru að detta inn í liðið aftur en báðir hafa sýnt
að þeir geta skorað. Það er bara eins gott fyrir
Newcastle að einhver finni markaskóna ætli
það ekki að taka á móti stórliðum á borð við
Bristol og Peterbrough á næsta keppnistíma-
bili. Það er ekki öll nótt úti enn hjá Newcastle
en útlitið er svart. Það er nokkuð ljóst.
tomas@dv.is
Fall í
næstefstu
deild blas-
ir nú við Newcastle en liðið
hefur verið í úrvalsdeildinni
ensku samfleytt frá árinu 1994.
Liðið virðist dæmt til þess að
falla en ekki er svartnættið
orðið algjört enn sem komið
er. Aðeins þrjú stig skilja New-
castle og Hull að í töflunni en
Newcastle verður að fara að
vinna leiki undir stjórn Alans
Shearer. Til þess þarf það fyrst
að skora mark.
Ekki Er öll
nótt úti Enn
Verður að fara að skora michael Owen
þarf að finna markaskóna og það strax.
myNd AFP
Goðsögnin alan Shearer fer
úr goðsögn í dýrðling bjargi
hann Newcastle frá falli.
myNd AFP