Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Side 2
Föstudagur 3. júlí 20092 Fréttir
Þetta helst
- þessar fréttir bar hæst í vikunni
Með lífverði í brúðkaupinu
Fótboltastjarnan Grétar Rafn
Steinsson og fegurðardrottning-
in Manuela Ósk Steinsson gengu
í það heilaga í annað sinn í
Dómkirkjunni um síðustu helgi.
Öryggið í brúðkaupinu var mikið
og pössuðu hjónin vel upp á að ljós-
myndarar næðu ekki myndum af þeim
að ganga inn og út úr kirkjunni. Heimild-
ir DV herma að turtildúfurnar hafi ráðið
lífverði til að halda uppi stórum regnhlíf-
um til að hylja brúðhjónin er þau stigu
úr og inn í bíl sinn. Fyrir stóra daginn
hafði parið boðið Séð og heyrt réttinn á
myndunum úr brúðkaupinu en ritstjóri
blaðsins ku hafa afþakkað pent. Brúðhjónin voru glæsileg á þessum
merkisdegi. Hún í hlýralausum kjól skreyttum perlum og með kórónu
á höfði. Hann í hvítum jakkafötum í stíl við sína heittelskuðu.
Dv opnar lánabók
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrr-
verandi forstjóri Kaupþings, og
Sigurður Einarsson, fyrrverandi
stjórnarformaður bankans, eru
samtals skráðir fyrir tæplega 5,4
milljarða lánum í lánabók Kaupþings
frá sumrinu 2006 sem DV hefur undir
höndum. Eru þeir á lista sem merktur
er „Stærsta áhættutaka gagnvart lög-
aðilum“. Lánin voru veitt til að kaupa
hlutabréf í bankanum. Stærsti lántak-
andinn á listanum er útgerðarfélag
sem að hluta til er í eigu Samherja og
fékk rúma 4,5 milljarða króna. Fjórði
stærsti lántakinn er starfandi forstjóri
Kaupþings í Lúxemborg, Magnús Guð-
mundsson. Meirihluti nafnanna á listanum er nöfn þáverandi starfs-
manna Kaupþings og veitir listinn yfirlit yfir lántökur til þeirra.
2
1 dv.isF r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ðþriðjUdagUr 30. júní 2009 dagblaðið vísir 94. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347
fólk
grétar rafn og ManUela ósk giftU sig UM helgina
Með lífVerði í
BrúðkaUPinU
nennir ekki
að Vera
í fÁfni
sVeddi tattú snýr sér að traktorUM
DV ER MEÐ LÁNABÓK KAUPÞINGS:
Kúlulán
Kristjáns
var 893
milljónir
leyni-
gögn
n „fÖlsUn Á eigin fé Bankans“
nþorgerðUr katrín segist
ekki Vita hVersU hÁtt lÁnið Var
lÖGFrÆÐinGurinn sEm úrsKurÐaÐium niÐurFEllinGu áBYrGÐa varsjálFur mEÐ 450 milljóna Kúlulán
MEÐ ÆÐI
FYRIR
FISKI GRILLBLAÐFYLGIR
F r j á l s t , ó h á
ð d a g b l a ð
IcESAvE-
SKjöLIn
FRéttIR
dv.is
MIÐvIKudAGuR oG FIMMtu
dAGuR 1. – 2. júlí 2009
dagblaðið vísir 95. tbl.
99. árg. – verð kr. 347
STJÓRARNIR
TÓKU FIMM
MILLJARÐA
ÁN ÁBYRGÐAR
ÚR LÁNABÓK KAUPÞINGS:
nHREIÐAR MÁR oG SIGuRÐ
uR FELLdu
nIÐuR ÁBYRGÐIR AF EIGIn K
ÚLuLÁnuM
nKAuPÞInG tÓK „StÆRStu
“ ÁHÆttunA
MEÐ LÁnuM tIL ÞEIRRA
n MEÐ LÁnunuM vÆRI HÆ
Gt AÐ GREIÐA
ÁRLEGAn LíFEYRI ALLRA öR
YRKjA
n EÞíÓPíSKuR SjEIK FéKK 3
,5 MILLjARÐA
LÖGMAÐURINN SEM KVITTAÐI UPP
Á NIÐURFELLINGUNA VINNUR
FYRIR HREIÐAR MÁ SIGURÐSSON
mynd sigtryggur ari jóhannsson
grillblað
Með æði
fyrir fisk
Friðrika hjördís geirsdóttir
„Mér finnst grillaður fiskur æðislegur,“ segir
matgæðingurinn og sjónvarpskonan Friðrika
Hjördís Geirsdóttir sem stjórnar matreiðslu-
þáttunum Léttir réttir Rikku á Stöð 2. „Það er
hægt að gera svo ótrúlega mikið með fisk og
hann tekur vel við maríneringu.“
Friðrika er sannfærð um að Íslendingar
séu sífellt að verða duglegri við að skella fisk
á grillið. „Við mættum þó gera meira af því að
prófa nýjar og meira spennandi tegundir. Það
er svo ótrúlega margt gómsætt til. Ekki bara
lax og þorskur.“
Friðrika telur ástæðulaust fyrir reynslulitla
kokka að óttast það að mistakast með fisk-
inn á grillinu. „Mér finnst best að setja hann
í álpappír og leyfa honum að krauma vel með
maríneringunni. Svo er líka hægt að setja
hann í álbakka eða í grind en það borgar sig
að hafa roðið á ef það á að skella honum beint
á grillið,“ segir Friðrika að lokum og bætir við:
„Svo er um að gera að taka þetta á jákvæðn-
inni og þá tekst þetta allt saman.“
asgeir@dv.is
ÞuRFtI HjÁLP
LíFvARÐA
GLAnnI GLÆPuR ÞuRFtI vE
Rnd
FYRIR AÐdÁEnduM í MExíK
Ó FÓLK
m
yn
d
r
ó
b
er
t
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, stendur í byggingar-
framkvæmdum við hús sitt á Bakka-
flöt í Garðabæ. Hann sótti í maí í
fyrra um leyfi til þess að byggja arin-
stofu, stækka og gera kjallara undir
bílskúr, ásamt öðrum breytingum á
stofu hússins. Viðbyggingin við hús
Bjarna er tæplega 150 fermetrar.
Egill Jónsson, byggingarfulltrúi
Garðabæjar, segir að sótt hafi verið
um leyfi til að byggja við íbúðarhúsið
og framkvæmdir við bílskúr. Öll til-
skilin leyfi séu fyrir hendi og fram-
kvæmdirnar hafi farið í svokallaða
grenndarkynningu.
Grenndarkynning felst í því að
skipulagsnefnd í viðkomandi bæj-
arfélagi kynnir nágrönnum skriflega
fyrirhugaða framkvæmd eða deili-
skipulagsbreytingu og gefur þeim
kost á að tjá sig um málið. Frestur til
að gera athugasemdir má ekki vera
skemmri en fjórar vikur.
Í gögnum Skipulagsstofnunar
segir að grenndarkynning eigi eink-
um við um stakar, óverulegar fram-
kvæmdir í fullbyggðum hverfum í
þéttbýli. Þá þurfi framkvæmdin að
vera í samræmi við þá byggð sem
fyrir er.
Gata Engeyjarættarinnar
Bjarni er af Engeyjarætt, en margir
af þeim ættboga hafa komið sér fyr-
ir á Bakkaflöt í Garðabæ eins og DV
greindi frá seint í maí síðastliðnum.
Grenndarkynning á framkvæmdum
Bjarna felst því að nokkru leyti í því
að bera breytingarnar undir ætt-
ingja og venslafólk.
Sjálfur býr Bjarni ásamt Þóru
Margréti Baldvinsdóttur eigin-
konu sinni og börnum þeirra á
Bakkaflöt 2. Handan götunn-
ar, á Bakkaflöt 3, býr Bene-
dikt Einarsson og eiginkona
hans Birgitta Haukdal tónlistar-
kona. Benedikt er sonur Ein-
ars Sveinssonar forstjóra
og athafnamanns sem
einnig býr á Bakkaflöt.
Í næstu götu búa for-
eldrar Bjarna, Benedikt
Sveinsson kaupsýslu-
maður og Guðríður
Jónsdóttir kona hans.
Bræðurnir Benedikt
og Einar hafa um langt
skeið verið áberandi í ís-
lensku athafnalífi og voru
á árum áður einkum
tengdir fyrirtækjum
sem kennd voru
við Kol-
krabbann. Þetta voru fyrirtæki eins
og Eimskip áður en það skipti um
eigendur, Icelandair, Sjóvá
Almennar, Skeljungur
og fleiri félög. Bene-
dikt, faðir Bjarna, var
um tíma stjórnar-
formaður bæði Eim-
skips og Skeljungs.
Í nánasta nágrenni
við Bjarna og Þóru eru
því að minnsta kosti
fjórar fjölskyldur af Eng-
eyjar–ætt. Ekki er vitað
til þess að þær hafi gert
athugasemdir við fram-
kvæmdir Bjarna í
grenndarkynning-
unni.
Ekki er vitað til þess að þær
hafi gert athugasemdir
við framkvæmdir Bjarna í
grenndarkynningunni.
Formaðurinn
byggir við og
breytir
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, stendur í ströngu á lóð-
inni heima hjá sér í Garðabæ þar sem hann er að byggja við hús
sitt og skapa fjölskyldunni rýmri aðstöðu. Breytingarnar fóru
í grenndarkynningu eins og vera ber, þar sem nágrannar geta
gert athugasemdir og mótmælt. Margir nágrannanna eru af
Engeyjarætt eins og Bjarni.
hitt málið
Jóhann hauksson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Bakkaflöt Þannig var umhorfs fyrir skemmstu
í garði Bjarna Benediktssonar við Bakkaflöt í
garðabæ. Búið að hreinsa upp úr grunni, fylla
og þjappa undir nýbyggingu.
Formaðurinn Milli þess sem Bjarni
lemur á ríkisstjórninni vegna Icesave-
samninga og skattahækkana á alþingi
gefur hann sig að framkvæmdum
heima fyrir.
Engeyjarættin að minnsta kosti fimm
fjölskyldur af Engeyrjarættinni eiga
heima á sama blettinum í garðabæ og
grenndarkynning því nánast formsatriði.