Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Blaðsíða 66

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Blaðsíða 66
Föstudagur 3. júlí 200966 Lífsstíll Stafganga í Viðey Spennandi göngur hafa verið á boð- stólum í Viðey í allt sumar og næsta þriðjudag er engin breyting á. Að þessu sinni er það Guðný Aradótt- ir stafgönguleiðbeinandi sem mun leiða gönguna en Guðný er leiðandi í kennslu á þessari göngutækni hér á landi sem nýtur vaxandi vinsælda. Kennsla fer fram í upphafi göngunn- ar við Viðeyjarstofu og síðan verður gengið um eyjuna. Á áningarstöð- um frá göngugarpar síðan fróðleiks- mola um það sem helst ber fyrir augu í Viðey. Áhugasömum er bent á að taka stafi sína með en einnig verður hægt að fá lánaðan staf frá leiðbein- anda. Siglt er frá Skarfabakka klukkan 19.15 og er miðað við að gangan taki um tvær klukkustundir. Gjald í ferjuna er 1.000 krónur fyrir fullorðna og 500 krónur fyrir börn frá sex til 18 ára. Frítt er fyrir börn undir sex ára. KOMDU Í ÁSKRIFT Hringdu í síma 515 5555 eða sendu tölvupóst á askrift@birtingur.is eða farðu inn á www.birtingur.is 1. Pilates til þess að gera magasvæðið og lendarnar stinnari er um að gera að taka upp Pilates og þá sérstaklega æfinguna 100 sem er þekkt Pilates- æfing. Þessi æfing er sögð virka betur en aðrar magaæfingar samkvæmt nýjustu rannsókn hjá auburn-háskólanum í Bandaríkjunum. Hægt er að kynna sér æfinguna á google. til þess að ná sem bestum árangri er gott að gera æfinguna hundrað sinnum og muna að anda rétt. 2. Boltinn er góður Konur sem nota jafnvægisbolta þegar þær gera magaæfingar fá meira út úr æfingunum heldur en ella. Þjálfarinn sutart Mcgill mælir þó ekki með því að byrja strax að nota jafnvægisboltann. Hann mælir með því að konur byrji á því að gera einfaldar magaæfingar eins og að að láta andspænis olnboga og hné mætast og telja upp að þremur. Byrjaðu á því að gera þessa æfingu 10 sínum. síðan er gott að gera hana 20 sinnum, þrisvar sinnum í viku. Eftir þrjár vikur af þessu er sniðugt að byrja að æfa með jafnvægisbolta. 3. Passaðu bakið Þegar þú liggur á bakinu með hnén beygð áttu að geta smeygt fingrum þínum undir neðra bakið. Það auðveldar æfingarnar að liggja rétt og kemur í veg fyrir áreynslu á bakið sjálft. Einnig er gott að muna að kreppa saman magavöðv- ana – rétt eins og að einhver væri að fara að kýla þig í magann. Haltu vöðvunum hertum á meðan þú gerir æfingar með hvíld inn á milli. 4. Bættu við lóðum Magavöðvarnir eru eins og bíseparnir. til þess að styrkja þá er ekkert alltaf best að gera æfingarnar fimm hundruð sinnum eða eins oft og þú getur. Bættu frekar við lóðum og settu þau ofan á bringuna eða haltu þeim fyrir aftan hnakkann og gerðu átta til 15 magaæfingar. Þjálfaðu þig upp í að gera fleiri magaæfingar með tímanum ásamt lóðum. Þannig nærð þú árangri. 5. Taktu því rólega Það er alltaf betra að gera 10 hægar æfingar heldur en 20 hraðar. að fara hægt upp og telja upp að tveimur og síðan niður örvar vöðvana betur og gerir þá sterkari. 6. Lyftu lóðum með einni hendi í einu Vöðvarnir fá meira út úr æfingunum ef þú lyftir lóðum til dæmis á einum fæti. Vöðvarnir þurfa þá að taka meira á. Eins er gott, þegar verið er að æfa efri líkamann að skipta á höndum, lyfta með einni hendi og síðan hinni. Það hjálpar magavöðvunum sem og bakvöðvunum. 7. Ekki gleyma að brenna Ekki gleyma brennslutækjunum þó að þú sért að byggja upp flotta magavöðva. Það er mjög mikilvægt að skipta tím- anum vel upp í ræktinni. lyfta og gera magaæfingar og kíkja síðan í brennslu- tækin. Hlaupabrettið, róðrarvélin og hjólið í 30 mínútur, tvisvar, þrisvar í viku. 8. Kínverskur matur rannsóknir sýna að fólk sem borðar trefjar er oft með minna mitti en fólk sem borðar ekki mikið af trefjum. Chow mein með miklu af brokkolí og dökkum hrísgrjónum er með 10 grömmum af trefjum. 9. Borðaðu alvöru sykur Mikið úrval er að sykurlausu nammi og sætindum á boðstólum í dag en fólk skal varast sykurlausar vörur sem innihalda efni sem enda á „ol“ eins og sorbitol. Þessi efni geta valdið útþenslu og óþægindum. sykurlaus sætindi innihalda einnig oft fleiri kalóríur en sætindi með sykri. aspartam virðist ekki valda útþenslu eins og sorbitol. 10. Slepptu áfenginu Haltu þig frá áfenginu á meðan þú ert að koma þér í form. Þrír eplamartíní á viku innihalda 2.300 kalóríur. Það eru fjögur kíló af fitu á ári. 10 góð ráð til að fá flottari maga Pilates gerir undur fyrir magavöðvana. mynd Sigurjón ragnarSSon ódýrt SuShi Á veitingastaðnum Fiskmarkaðinum í Aðalstræti er hægt að fá frábært sushi á góðum díl. Tilboðið gildir alla virka daga milli 11.30 og 14.00. Fiskurinn er unninn eftir aldagamalli aðferð og ætti enginn að verða fyrir vonbrigðum, enda er konan í eldhúsinu landsliðskokkur. Á matseðlinum er meðal annars hægt að fá sushi og sashimi í bland, fjórtán bita á 1.200 krónur og spicy túna maki á 1.200 krónur svo eitthvað sé nefnt. Hægt er að kynna sér hádegisseðilinn nánar á fiskmarkadurinn.is uMsjón: Hanna EiríKsdóttir, hanna@dv.is öldrunarmerkjum Franska snyrtivöruverlsunin L´Occitane hefur bætt við nýjum vörum í Almond-Apple-línuna sem notið hefur gríðarlegra vin- sælda upp á síðkastið. Vörurnar eru sérstaklega hannaðar fyrir kon- ur á aldrinum 25 ára til 35 ára og eiga að auka fegurð húðarinnar og vernda hana gegn fyrstu merkjum öldrunar. Í línunni er meðal ann- ars flauelskennt andlitskrem sem er gætt þeim eiginleikum að mýkja húðina en gera hana á sama tíma stinna og slétta. Í línunni má einnig finna andlitskrem með sólarvörn, augnkrem, hreinsiolíu, tónik og „sweet peel“ sem bætir áferð húð- arinnar. Þessi bolli var handmálaður í Japan árið 1933 fyrir heldrafólk á Íslandi, sem drakk rjómakaffi á hátíðisdögum. Sparistellið fór um Kóreu, með Síberíu- hraðlestinni til Moskvu og gegnum Þýskaland á uppgangsárum Hitlers til Íslands. En þú getur séð það núna í Húsinu á Eyrarbakka. Opið alla daga frá 15. maí til 15. sept. milli kl 11 - 18. Á öðrum tímum eftir samkomulagi. sími 483 1504 | husid@husid.com | www.husid.com Byggð á tilfinningavinnu og slökunaröndun. Sjálfshjálparbók. Námskeið fyrir fagfólk og aðra. Þaulreynd og árangursrík sjálfstyrking! Sjá nánar www.baujan.is Sími 699 6934 Baujan, sjálfstyrking
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.