Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Blaðsíða 62
Föstudagur 3. júlí 200962 Helgarblað
Arnar Guðjónsson er söngvari hljómsveitarinnar Leaves
sem heldur bráðlega tvenna tónleika í tilefni útkomu nýrrar
breiðskífu. Arnar getur horft á C-myndina In to the Night
aftur og aftur og myndi vilja læra á fiðlu, selló, horn og óbó.
SkammaSt Sín fyrir kokomo
nafn og aldur?
„Arnar Guðjónsson, 31 árs.“
atvinna?
„Tónlistarmaður.“
HjúSkaparStaða?
„Í sambúð.“
fjöldi barna?
„Tvö.“
Hefur þú átt gæludýr?
„Ég átti páfagaukinn Putta þegar ég var 8 ára.“
Hvaða tónleika fórSt þú á SíðaSt?
„Síðast fór ég á Eberg á Sódómu.“
Hefur þú komiSt í kaSt við lögin?
„Jamm.“
Hver er uppáHaldSflíkin þín og af Hverju?
„Ætli það séu ekki skórnir mínir sem skósmiður-
inn minn er búinn að endurlífga nokkuð oft.“
Hefur þú farið í megrun?
„Aldrei.“
Hefur þú tekið þátt í
Skipulögðum mótmælum?
„Já.“
trúir þú á framHaldSlíf?
„Eigum við ekki bara að bíða og sjá.“
Hvaða lag SkammaSt þú þín
meSt fyrir að Hafa Haldið upp á?
„Kokomo með the Beach Boys.“
Hvaða lag kveikir í þér?
„Þessa dagana er það Don’t
Stop ’Til You Get Enough
með Michael Jackson.“
til HverS
Hlakkar þú núna?
„Tónleika hljómsveitarinnar minnar, Leaves,
á Græna hattinum 8. júlí og Nasa 9. júlí. Það er
skyldumæting fyrir alla sem vilja sjá okkur á tón-
leikum. Aðeins 500 krónur inn.“
Hvaða mynd getur þú
Horft á aftur og aftur?
„Into the Night frá 1985. C-mynd eins og þær ger-
ast bestar.“
afrek vikunnar?
„Byrjaði í feðraorlofi, mjög ljúft.“
Hefur þú látið Spá fyrir þér?
„Já, í partíi.“
Spilar þú á Hljóðfæri?
„Já, gítar, og glamra á píanó en væri til í að læra á
fiðlu, selló, horn og óbó.“
viltu að íSland gangi í evrópuSambandið?
„Ekki viss.“
Hvað er mikilvægaSt í lífinu?
„Að njóta þess.“
Hvaða íSlenSka ráðamann mundir þú vilja
Hella fullan og fara á trúnó með?
„Ég myndi vilja hella Árna Johnsen fullan í þings-
al og fara á trúnó með Þór Saari.“
Hvaða fræga einStakling myndir
þú HelSt vilja Hitta og af Hverju?
„Ég myndi vilja hitta Gustav Mahler og fá hann til
að útsetja nokkur Leaves-lög fyrir sinfóníuhljóm-
sveit.“
Hefur þú ort ljóð?
„Já.“
nýlegt prakkaraStrik?
„Pass.“
Hvaða fræga einStaklingi líkiSt þú meSt?
„Ekki hugmynd, kannski Woody Allen.“
ertu með einHverja leynda Hæfileika?
„Magnetic forehead.“
á að leyfa önnur vímuefni en áfengi?
„Ég veit ekki hvort það er mikill ávinningur í
því að refsa einstaklingum fyrir að neyta fíkni-
efna. Fíkniefnin eru nú þegar til staðar og það
að þau séu ólögleg gerir þau kannski bara meira
spennandi fyrir krakka. Það þarf meiri fræðslu
bæði í skólum og inni á heimilum til þess að börn
geti mótað sér sterka skoðun á þessum hlutum,
þannig gætu þau hugsanlega tekið skynsamlega
ákvörðun á ögurstundu.“
Hver er uppáHaldSStaðurinn þinn?
„Heimilið mitt.“
Hvað er það SíðaSta Sem þú
gerir áður en þú ferð að Sofa?
„Ég fer með drenginn minn á klóið.“
Hver er leið íSlandS út úr kreppunni?
„Í fyrsta lagi sanngjarn samningur um Icesave-
skuldirnar, ekki samningurinn sem er nú á borð-
inu.“
30 days
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla verðinu.
30 days
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því
að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30
days saman.
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkilauf
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
NICOLAI
Véla- og hjólastillingar
Tímareimar - Viðgerðir
BIFREIÐASTILLINGAR
Faxafeni 12 Sími 588-2455
Oxy tarm
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla genginu.
Oxy tarm
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama oxy tarmið
... á Dalveg 16a
Sími: 554 3430
Erum fluttir...