Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Blaðsíða 27
Föstudagur 3. júlí 2009 27Helgarblað
þór og Hrafnhildur tekur undir.
„Ég hef átt mjög erfitt eftir þetta
slys og þarf á hjálp að halda til að
komast yfir þetta áfall. Að mínu mati
hefði bærinn átt að stíga inn í og
bjóða okkur áfallahjálp en enginn
frá bænum hefur athugað hvernig
við höfum það. Ég ætla að leita mér
hjálpar og mun ekki biðja Grindavík-
urbæ um hana. Það er á hreinu,“ seg-
ir Hrafnhildur sem er afar ósátt við
bæjarfélagið.
Safna fyrir rafskutlu og
hægindastól
Hafþór segir læknana sem sinntu
honum og sonunum á heimsmæli-
kvarða og vill koma á framfæri þakk-
læti til þeirra allra, sér í lagi þeirra á
Landspítalanum og á endurhæfing-
ardeild Grensáss. Hrafnhildur vill
einnig bæta við þakklæti til þeirra
sem stóðu með þeim í gegnum alla
erfiðleikana. „Sérstaklega langar
mig að nefna vinkonu mína, hana
Guðbjörgu Hermannsdóttur, því án
hennar hefði ég aldrei komist í gegn-
um þetta allt saman.“
Hafþór og Hrafnhildur hafa opn-
að Facebook-síðu til styrktar Haf-
þóri í von um að safna pening til að
geta keypt rafskutlu og hæginda-
stól. „Ég væri rosalega þakklátur öll-
um sem gætu lagt hönd á plóg svo
þetta verði að veruleika en rafskutl-
an myndi hjálpa mér mjög mikið við
að komast á milli staða. Stóllinn er
svo hugsaður hér heima við svo ég
þurfi ekki alltaf að sitja í hjólastóln-
um en þetta kostar peninga og þá er
ekki að finna á þessu heimili,“ seg-
ir Hafþór. Hrafnhildur bætir við að
fólk þurfi ekki að gefa mikinn pen-
ing en safnist þegar saman komi.
„Það er kreppa og fólk hefur ekki
mikinn pening á milli handanna en
þetta eru hlutir sem Hafþór þarfnast
og við höfum ekki efni á þeim,“ segir
hún og bætir við að hún ætli einn-
ig að leita til fyrirtækjanna í bænum
eftir aðstoð.
Enn sami maðurinn
Þrátt fyrir hlutskipti sitt er Hafþór ekki
reiður út í lífið og tilveruna. Hann
segist ákveðinn í að fá sem mest út úr
lífinu og segist aldrei hafa lifað sam-
kvæmt þeirri lífsspeki að ekkert ætti
eftir að koma fyrir hann. „Eins skrítið
og það hljómar þá gaf ég alltaf fólki
á hjólastólum sérstakan gaum áður
en ég slasaðist. Ég veit ekki hvernig
ég á að útskýra það en einhvern veg-
inn vissi ég að ég ætti eftir að takast
á við eitthvert erfitt verkefni í lífinu.
Það að lenda í hjólastjól er mitt verk-
efni,“ segir hann.
Aðspurður hvernig honum lítist
á ástandið í efnahagsmálum þjóðar-
innar segist Hafþór viss um að Íslend-
ingar eigi eftir að jafna sig á þessari
efnahagsdýfu. „Ef ég á að líkja ástand-
inu við slysið mitt þá veit ég að þetta
tekur tíma en við munum ná að jafna
okkur á þessu. Þótt það taki mörg ár.
Íslendingar eru bara þannig gerðir,
við látum ekki bugast,“ segir Hafþór
og bætir við að eins ætli hann ekki að
láta bugast þótt á móti blási.
„Ég er enn sami maðurinn og er
smám saman að jafna mig meira á
mínu hlutskipti og er líka alltaf að
verða betri og betri á hjólastjólnum.
Auðvitað hef ég verið þungur og
reiður en þetta er allt að koma,“ seg-
ir Hafþór og bætir við að hann fylgist
vongóður með framförum í lækna-
vísindunum. „Eðlilega vonar maður
að einhvern tímann verði hægt að
laga mænuskaða og það fyrsta sem
ég myndi gera ef ég fengi kraft í fæt-
urna væri að fara með alla fjölskyld-
una upp á Arnarvatnsheiði í veiði.
Það væri æðislegt,“ segir hann bros-
andi að lokum.
Þeim sem vilja leggja Hafþóri lið
er bent á reikningsnúmerið 1193-
05-2800 kt. 150967-5899.
Indíana Ása Hreinsdóttir
„Nú er Nóg komið af áföllum“
„Ég er enn sami maðurinn og er
smám saman að jafna mig.“
Sættir sig við hlutskipti sitt
Hafþór ætlar að kappkosta að
fá sem mest út úr lífinu.