Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Blaðsíða 12
Föstudagur 3. júlí 200912 Fréttir Heildarlánveitingar Kaupþings til starfsmanna bankans námu 23,5 milljörðum króna í lok júní árið 2006, samkvæmt lánabók bankans sem DV hefur undir höndum. Lánveitingarn- ar voru veittar til starfsmannanna til að fjármagna hlutabréfakaup þeirra í bankanum. Um var að ræða lánveit- ingar til 22 af stjórnendum og helstu starfsmönnum bankans. Við banka- hrunið í haust námu lánveitingarnar til 130 starfsmanna Kaupþings hins veg- ar rúmum 47 milljörðum og voru per- sónulegar ábyrgðir starfsmannanna felldar niður á stjórnarfundi í bank- anum þann 25. september. Persónu- legar ábyrgðir starfsmannanna námu rúmum 10 milljörðum af þessum 47 og hefur hluthafi í gamla Kaupþingi kært ákvörðunina um niðurfelling- una til sérstaks saksóknara sem mun úrskurða hvort hún hafi verið lög- mæt. Enginn af þessum 22 starfsmönn- um sem eru skráðir fyrir lánum er ennþá starfandi í bankanum. Sá síð- asti til að hætta í bankanum, Helgi Sigurðsson, lét af störfum á þriðju- daginn að eigin ósk, samkvæmt frétta- tilkynningu frá Kaupþingi, eftir að DV hafði greint frá þeim lánveitingum til hans sem koma fram í lánabókinni. Helgi fékk tæplega 445 milljóna lán frá Kaupþingi til að kaupa hlutabréf í bankanum. DV hefur haft samband við flesta þá fyrrverandi starfsmenn Kaup- þings sem fengu lán frá bankanum til að kaupa hlutabréf í honum en fæstir þeirra vilja tjá sig um málið. Of há en lögleg lán, segir Kristján Kristján Arason, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Kaupþings, segir að lánin sem starfs- mennirnir fengu hafi verið of há. DV greindi frá því á þriðjudaginn að Kristj- án hefði fengið 893 milljóna króna lán frá Kaupþingi samkvæmt lánabókinni frá því í lok júní 2006. Leiða má líkur að því að lánveitingarnar til Kristjáns hafi hækkað umtalsvert á næstu tveimur árum þar á eftir. „Að einhverju leyti voru þetta of háar fjárhæðir eftir á að hyggja, það er ekki spurning,“ segir Kristján sem hætti í bankanum í árs- byrjun 2009 . Hann segir aðspurður að að ein- hverju leyti séu slíkar lánveitingar til hlutabréfakaupa þó góðar. „Að ein- hverju leyti getur þetta ýtt undir öfl- ugra atvinnulíf. Það þótti gott fyrir fyr- irtækið að starfsmenn félagsins ættu hlutabréf í því. En eftir á að hyggja, eft- ir að bankinn stækkaði svona mikið, var kannski ekki gott að starfsmenn- irnir ættu allt að heilum 9 prósentum í bankanum. Eftir á að hyggja var bank- inn orðinn of stór til að starfsmennirn- ir héldu þessu hlutfalli. Þetta var samt allt saman gert af fullum heilindum, til að efla fyrirtækið og menn höfðu trú á því að þetta væri góð fjárfesting,“ segir Kristján. Aðspurður hvort hann telji að ís- lensk fjármálafyrirtæki eigi að halda áfram að veita starfsmönnum sínum slíka lánafyrirgreiðslu segist Kristján ekki vilja leggja mat sitt á það. Hann segir að lánveitingarnar hafi verið lög- legar og samkvæmt reglum og að lán hans hafi ekki verið felld niður með stjórnarsamþykktinni í september því hlutabréfin og lánin hafi verið í eign- arhaldsfélagi: „Ég hef ekki gert neitt ólöglegt en mér finnst eins og það sé verið að gera því skóna.“ Eignarhaldsfélag Kristjáns heitir 7 hægri ehf. Kristján segist aðspurður ekki vera í neinum persónu- legum ábyrgð- um fyrir láninu sem falli á eign- arhaldsfélagið ef svo ber undir. Eign- arhaldsfélagið verður þá gjaldþrota en ekki Kristján persónulega. Hand- boltamaðurinn fyrrverandi virðist því vera sloppinn fyrir horn með lánið og mun að öllum líkindum ekki þurfa að standa skil á því eða tekjuskattgreiðsl- um af því. Skúli Eggert Þórðarson rík- isskattstjóri athugar nú hvort skylda eigi þá starfsmenn bankans sem fengu lán frá honum til hlutabréfakaupa til að greiða tekjuskatt af lánveitingunni. Kristján Arason lét af störfum í Kaupþingi í ársbyrjun 2009. Lánveitingarnar óheppilegar Fyrrverandi framkvæmdastjóri starfs- mannasviðs Kaupþings, Svali Björg- vinsson, segir að hægt sé að draga þann lærdóm af þessum lánveiting- um til starfsmanna Kaupþings að þær eigi ekki rétt á sér. Svali fékk rúmlega 375 milljóna króna kúlu- lán frá Kaupþingi til að kaupa hlutabréf í bankanum og var persónulega ábyrg- ur fyrir láninu að fullu; setti það ekki inn í eignarhaldsfélag líkt og Kristján Arason. „Ég kann eigin- lega ekki nægilega sterk lýsingarorð til að lýsa því hvað mér finnst um þetta. Auðvitað var þetta afar óheppilegt, það er alveg augljóst... Ég vona bara að svona lagað endurtaki sig aldrei aftur, það væri best fyrir alla aðila. Það er al- veg ljóst að þetta fyrirkomulag er ekki gott. Það bara blasir við. Þetta var sér- staklega óheppilegt fyrir þennan hóp sem fékk lánin,“ segir Svali. „Ég get ekkert gert annað en beð- ið og séð hvað kemur út úr umfjöllun allra þessara manna um þessi mál,“ segir Svali og á hann þar við athuganir sérstaks saksóknara og ríkisskattstjóra á málinu. „Þessi óvissa er mjög óþægi- leg,“ segir hann. Ekki liggur ljóst fyrir hvað verður um lánveitinguna til Svala; hvort hann þarf að greiða lánið til baka eða ekki eða hvort hann þarft að greiða skatt af því. Lánið var ennþá skráð á hann við bankahrunið í haust. Svali hætti hjá Kaupþingi í lok janúar og segir hann aðspurður að lánveitingin til hans hafi ekki verið ástæðan fyrir því að hann hætti í bankanum; honum hafi ein- faldlega verið boðið annað starf. STARFSMENN KAUPÞINGS FENGU 23,5 MILLJARÐA Í lánabók Kaupþings frá sumrinu 2006 kem- ur fram að 22 af stjórnendum og lykilstarfs- mönnum bankans fengu samtals um 23,5 milljarða að láni frá bankanum til að kaupa hlutabréf í honum. Persónulegar ábyrgðir þessara starfsmanna fyrir lánunum voru felldar niður á stjórnarfundi hjá Kaupþingi í lok september í fyrra. Enginn af starfsmönn- unum er ennþá starfandi í Nýja Kaupþingi. Þeir starfsmenn sem vilja tjá sig telja sumir að lánveitingarnar hafi verið of háar. IngI F. VILhjáLmssOn blaðamaður skrifar ingi@dv.is MEÐ ÆÐI FYRIR FISKI GRILLBLAÐFYLGIR F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð IcESAvE- SKjöLIn FRéttIR dv.isMIÐvIKudAGuR oG FIMMtudAGuR 1. – 2. júlí 2009 dagblaðið vísir 95. tbl.99. árg. – verð kr. 347 STJÓRARNIR TÓKU FIMM MILLJARÐA ÁN ÁBYRGÐAR ÚR LÁNABÓK KAUPÞINGS: nHREIÐAR MÁR oG SIGuRÐuR FELLdunIÐuR ÁBYRGÐIR AF EIGIn KÚLuLÁnuMnKAuPÞInG tÓK „StÆRStu“ ÁHÆttunA MEÐ LÁnuM tIL ÞEIRRA n MEÐ LÁnunuM vÆRI HÆGt AÐ GREIÐAÁRLEGAn LíFEYRI ALLRA öRYRKjAn EÞíÓPíSKuR SjEIK FéKK 3,5 MILLjARÐA LÖGMAÐURINN SEM KVITTAÐI UPPÁ NIÐURFELLINGUNA VINNURFYRIR HREIÐAR MÁ SIGURÐSSON mynd sigtryggur ari jóhannsson grillblað Með æðifyrir fiskFriðrika hjördís geirsdóttir „Mér finnst grillaður fiskur æðislegur,“ segir matgæðingurinn og sjónvarpskonan Friðrika Hjördís Geirsdóttir sem stjórnar matreiðslu- þáttunum Léttir réttir Rikku á Stöð 2. „Það er hægt að gera svo ótrúlega mikið með fisk og hann tekur vel við maríneringu.“Friðrika er sannfærð um að Íslendingar séu sífellt að verða duglegri við að skella fisk á grillið. „Við mættum þó gera meira af því að prófa nýjar og meira spennandi tegundir. Það er svo ótrúlega margt gómsætt til. Ekki bara lax og þorskur.“ Friðrika telur ástæðulaust fyrir reynslulitla kokka að óttast það að mistakast með fisk- inn á grillinu. „Mér finnst best að setja hann í álpappír og leyfa honum að krauma vel með maríneringunni. Svo er líka hægt að setja hann í álbakka eða í grind en það borgar sig að hafa roðið á ef það á að skella honum beint á grillið,“ segir Friðrika að lokum og bætir við: „Svo er um að gera að taka þetta á jákvæðn- inni og þá tekst þetta allt saman.“ asgeir@dv.is ÞuRFtI HjÁLPLíFvARÐA GLAnnI GLÆPuR ÞuRFtI vERndFYRIR AÐdÁEnduM í MExíKÓ FÓLK m yn d r ó b er t F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð dv.is besta rannsóknarblaðamennska ár sinsþriðjuda gur 4. nóvember 2008 dagblaðið vísi r 205. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295 fréttir Yfirmaður áhættustýringar vændur um að hafa fengið tveggja milljarða skuld strikaða ú t „Kemur engum við nema mér“ „Við eigum ÞÓ allaVega húsið“ Kristján ArAson og þorgerður KAtrín töpuðu á K aupþingi: Segir skuldir sínar ekki hafa verið afskrifaða r „Ævisparnaðurinn er farinn“ Setti skuldir og eignir í hlutafélag með Þorg ilsi Óttari fYrirgef oSS vorar SKuldir milljarðaskuldir bankamanna hverfa almenningur sleppur ekki við sjö milljónir á mann fréttir stal tveimur ferðatölvum og ipod Braust inn til eiganda Securitas dv.is F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð þriðjUdagUr 30. júní 2009 dagblaðið ví sir 94. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347 fólk grétar rafn og ManUela ósk giftU si g UM helgina Með lífVerði í BrúðkaUPinU nennir ekki að Vera í fÁfni sVeddi tattú snýr sér að traktorUM DV ER MEÐ LÁNABÓK KAUPÞINGS: Kúlulán Kristjáns var 893 milljónir leyni- gögn n „fÖlsUn Á eigin fé Bankans“ nþorgerðUr katrín segist ekki Vita hVersU hÁtt lÁnið Var lÖGFrÆÐinGurinn sEm úrsKurÐaÐi um niÐurFEllinGu áBYrGÐa var sjálFur mEÐ 450 milljóna Kúlulán KúLULáN: Eingreiðslulán þar sem lántakandinn borgar ekki af láninu fyrr en lánstímanum lýk- ur. Vextirnir geta verið greiddir reglulega af láninu en þeir geta líka verið endurlán- aðir og bætast þá við höfuðstólinn. „Ég borgaði þetta allt saman í ársbyrjun 2007.“ Þrýstingur á Þorgerði Eftir að dV greindi frá upphæð lánveitingarinnar til Kristjáns arasonar í vikunni hafa margir, meðal annars Þór saari, byrjað að efast um að Þorgerði sé sætt á alþingi. Hér sést Þorgerður ásamt Ingólfi Helgasyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings á íslandi. Fundað fyrir hrun Hreiðar Már sigurðsson og sigurður Einarsson sjást hér ganga á fund ríkisstjórnarinnar skömmu fyrir efnahagshrunið. Þeir fengu hæstu lánin af starfsmönnum Kaupþings samkvæmt lánabókinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.