Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Blaðsíða 24
Föstudagur 3. júlí 200924 Helgarblað Vegfarendur sem aka frá Reykjavík til Hafn- ar í Hornafirði þurfa að fara yfir 23 hættu- legar einbreiðar brýr á leiðinni. Sigurður Helgason hjá Umferðarstofu segir þennan kafla vera þann versta á landinu. Lítið fé er þó til hjá Vegagerðinni sem finnur vel fyrir kreppunni. brýrnar í skaftafellssýslu Valur Zophoníasson lenti í um- ferðaróhappi árið 2007 á ein- breiðri brú yfir Jökulsárlón. Hann var á leið til Reykjavíkur ásamt vinum og var farþegi í aft- ursæti þegar jeppi fyrir framan þau snarstoppaði á miðri brú í grenjandi rigningu og þoku. „Við sjáum að hann er fyrir framan okkur og svo stoppar hann mjög skyndilega. Við erum á sirka 40 til 50 kílómetra hraða og brems- um að minnsta kosti 10 metr- um áður en við lendum aftan á jeppanum.“ Hann segir að sex útlendingar hafi verið í bílnum og hafi stoppað í þeim tilgangi að skoða ísjakana í grenndinni. „Þeir voru bara að skoða vatn- ið og gerðu sér ekki grein fyrir því að hætta gæti skapast af að stoppa á miðri brú.“ Valur segir að þetta óhapp hefði ekki gerst ef tvíbreið brú hefði verið yfir ána. „Það er í rauninni óhugnanlegt að hugsa til þess hvað hefði gerst ef við hefðum verið á meiri hraða. Við hefðum getað endað úti í ánni með miklu verri afleiðingum, hugsanlega. Ef brúin væri tví- breið hefðum við getað sveigt frá og jafnvel komið í veg fyrir aftanákeyrslu.“ Ekki urðu alvar- leg slys á fólki í þessu óhappi en þó fundu vinir Vals fyrir örlitlum eymslum í baki og útlending- arnir kvörtuðu undan verkjum í baki. „Við vorum rosalega hepp- in að ekki fór verr og við slös- uðumst ekki meira en raun bar vitni.“ Valur ólst upp á Höfn í Horna- firði en er nú búsettur í Reykja- vík og keyrir oft þessa leið til að heimsækja vini og vandamenn. Hann hefur komið að þó nokkr- um árekstrum við einbreiðar brýr en sem betur engum al- varlegum. „Það er mjög erfitt, þá sérstaklega fyrir útlendinga, að koma á miklum hraða að svona brúm. Það hefur kom- ið fyrir að ég hef verið kominn inn á brú og þurft að stoppa og bakka vegna þess að ökumenn sem koma á móti mér eru frek- ir og vilja fara á undan. En sem betur fer hefur það verið undir kringumstæðum þar sem báð- ir ökumenn keyra hægt.“ Hann segir að þessi kafli til Hafnar frá Reykjavík sé sérlega hættulegur því ökumenn keyra oft á mikl- um hraða yfir þessar brýr. Val- ur biðlar til ökumanna að keyra sérstaklega varlega yfir brýrnar á þessari leið. „Slysin gera ekki boð á undan sér,“ segir hann að lokum. „við vorum rosalega heppin“ MOSFELLSBÆR AKRANES VESTMANNAEYJAR KEFLAVÍK NJARÐVÍK HAFNARFJÖRÐUR BORGARNES STYKKISHÓLMUR ÓLAFSVÍK SELFOSS HVERAGERÐI SELTJARNARNES Borðeyri Búðardalur Grundarfjörður Hellissandur Rif Hella Hvolsvöllu Vík Eyrarbakki Hafnir Flateyri Suðureyri Skagaströnd Drangsne Laugarbakki Varmahlíð Hofsós Grenivík ÍSAFJÖRÐUR BLÖNDUÓS SIGLUFJÖRÐUR ÓLAFSFJÖRÐUR AKUREYRI SEYÐISFJÖRÐUR HÖFN Grímsey Kópaske Raufarhöfn Þórshöfn Bakkafjörður Vopnafjörður Reyðarfjörður Fáskrúðsfjörðu Breiðdalsvík Djúpivogur Kirkjubæjarklaustu Kjölur Trölladyngja Askja Ásbyrgi Lakagígar Hekla Landmannalaugar Eld gjá Heimaey BREIÐAFJÖRÐUR FAXAFLÓI Blanda Hóp Mývatn Lö gu rin n Papey Hrísey Reykjahlí Öræfajökull Snæfells-? jökull Eyjafjalla- jökull Þórsmörk Skaftafell Hvannadalshnúkur Snæfell Herðubreið Hallormsstaður Melrakkaslétta Tjörnes Flatey Hólar Kerlingarfjöll Hveravellir Arnarvatnsheiði Húsafell Reykholt Ka ldi da lur Reykjanes Eldey E ja Hornstrandir Dranga-? jökull Borgarfjörður Hvalfjörður Kleifarvatn Ölfus á Þjór sá Þórisvatn Hornafjörður EYJAFJÖRÐUR Goðafoss SKAGAFJÖRÐURHÚNAFLÓI Þjó rsá HOFS-?J Hvítárvatn Gullfoss Eiríks-?j ökull Geysir Hv ítá Skálhol MÝRDALS-J ÖKULL Skógafoss Skeiðarársandur Ingólfshöfði Jöku lsá á Brú La ga rfl jó t EGILSSTAÐIR NESKAUPSTAÐUR Gerpir Stöðvarfjörðu Eystrahorn Dyngjufjöll Ódáðahraun Skjálfandafljót HÚSAVÍK Dettifoss DALVÍK SvalbarðseyriSAUÐÁRKRÓKUR Eyvindarstaðaheiði Hvammstangi Hornbjarg BOLUNGARVÍK Arnarstapi Hvammsfjörður Sp ren gis an du r StokkseyriGRINDAVÍK Þingvallavatn Þin vellir Laugarvatn DyrhólaeySurtsey REYKJAVÍK Gjögur Borgarfjörðu ÁlftanesGarður Þorlákshöfn Súðavík Litli- Árskógssandur Grímsstaðir Möðrudalur Hraunhafnartangi LA NG JÖ KU LL SANDGERÐI Voga GARÐABÆR Vesturhorn Fontur Hauganes SKJÁLFANDI ÖXARFJÖRÐUR ÞISTILFJÖRÐUR BAKKAFLÓI VOPNAFJÖRÐUR HÉRAÐSFLÓI ÍSAFJARÐARDJÚP VATNAJÖKULL Tungnafells- jökull KÓPAVOGUR Laugarás Flúðir Búrfell Hlíðarendi Skaga-h eiði Ok Hvanneyri Fellabær Jökulsá á Fjöllum Útgáfu- og höfundarréttur © LANDMÆLINGAR ÍSLANDS f.h.íslenska ríkisins. Eftirgerð bönnuð BREIÐABALAKVÍSL FOSSÁLAR HVERFISFLJÓT BRUNNÁ LEIRUR NÚPSVÖTN SVÍNAFELLSÁ GLJÚFURSÁ STEINAVÖTN HORNAFJARÐARFLJÓT KOLGRÍMA HOFFELLSÁ HOLTAKÍLL FELLSÁ JÖKULSÁRLÓN HÓLÁSTIGÁ KOTÁ SKAFTAFELLSÁ SKEIÐARÁ VIRKISÁ KVÍÁ JÖKULSÁ - SÓLHEIMASANDI Lítil meiðsl:1 Mikil meiðsl:1 Eignatjón:1 Eignatjón:1 Eignatjón:5 Lítil meiðsl:1 Eignatjón: 3 Eignatjón:2 Eignatjón 1 Eignatjón: 2 Eignatjón:1 Lítil meiðsl:2 Eignatjón:1 Brunná: Eignatjón: 1 BOÐI LOGASON blaðamaður skrifar bodi@dv.is Ferðamenn snarstoppuðu Valur Zophoníasson var farþegi í bifreið sem ekið var aftan á jeppa ferðamanna sem höfðu stoppað á einbreiðri brú til að skoða ísjaka. „Þetta er sá kafli landsins sem er hvað verstur, það liggur alveg ljóst fyrir,“ segir Sigurður Helgason, verk- efnastjóri hjá Umferðarstofu Ís- lands. Kaflinn frá Reykjavík að Höfn í Hornafirði er sérlega hættulegur fyrir þær sakir að á þessum kafla eru mjög margar einbreiðar brýr. Mik- il slysahætta getur skapast þar sem einbreiðar brýr liggja yfir ár og hafa mörg alvarlega bílslys orðið á þessum kafla í gegnum tíðina. Vegalengdin á milli Reykjavíkur og Hafnar í Horna- firði er 452 kílómetrar og eru 23 ein- breiðar brýr á þeim kafla. Kostar peninga „Það hefur heilmikið verið gert í því að breikka brýrnar og gera nýjar brýr. Það hefur náðst mikill árangur, leyfi ég mér að fullyrða, á vissum hlutum landsins,“ segir Sigurður. Þó svo að ekki hafi verið hrundið í framkvæmd að breikka allar brýrnar undanfarin ár hefur markvist verið unnið að því að breikka sem flestar brýr. Þá hefur verið reynt að koma í veg fyrir slys með ýmsum aðferðum. „Það sem gert hefur verið meðal annars til að vekja athygli þar sem flest slys hafa orðið er að setja upp viðvörunarljós til að fólk sýni aukna aðgæslu þegar það kemur að brúnni.“ Sigurður seg- ist ekki geta svarað því af hverju ekki er búið að ráðast í framkvæmdirnar á þessum kafla þar sem umferðar- þunginn er mikill. „Ég hef ekki svör- in við því en ég veit að Vegagerðin hefur á undanförnum árum verið að vinna markvisst að því að uppræta þessar brýr eins og hægt er. En þetta kostar peninga og það sem ræð- ur kannski mestu um ákvarðanir varðandi framkvæmdir er umferð- in, hversu margir bílar fara um við- komandi veg. Það er mælt reglulega og eftir því sem umferðin er meiri eru meiri líkur á því að brýrnar verði tvöfaldaðar.“ Hættulegar brýr þar sem umferðin er mikil Sigurður segir að vissulega stafi mik- il hætta af þessum brúm en þó hafi slysum fækkað mikið síðustu ár. „Þær eru hættulegar einkum og sér í lagi þar sem umferðin er mjög mikil en hættan minnkar þar sem umferð- in minnkar, það er mín tilfinning að þessum slysum hafi fækkað á und- anförnum árum. En mitt mat er að ástandið hefur batnað, en betur má ef duga skal.“ Eins og fyrr segir eru margar einbreiðar brýr á kaflanum til Hafnar en stór hluti þeirra er aust- an við Hvolsvöll þegar heldur fer að draga úr bílafjöldanum að sögn Sig- urðar. „En þetta er hlutur sem hefur verið mönnum mikill þyrnir í augum og ég veit að norður í Skagafirði á leið til Akureyrar var tekið mjög myndar- lega á þessu og búið að leysa málið til frambúðar,“ segir Sigurður en að minnsta kosti þrjár einbreiðar brýr voru breikkaðar fyrir ekki löngu. Skipta gömlum brúm út Rögnvaldur Gunnarsson, forstöðu- maður framkvæmdadeildar Vega- gerðarinnar, segir að engar fram- kvæmdir séu í bígerð á þessum kafla á þessu ári. „En það sem er í undir- búningi er nýr vegur um Hornafjarð- arfljót þar sem munu detta út þrjár einbreiðar brýr þegar hann verður byggður,“ segir Rögnvaldur og tekur fram að þær framkvæmdir séu enn í undirbúningi. Einnig er í undirbún- ingi ný brú yfir Jökulsá á Sólheima- sandi, en það er verið að vinna að því að fækka þessum brúm. Rögnvald- ur segir til að mynda að breyting frá Skeiðará og austur að Hofi sé mjög skammt á veg komin en við þá breyt- ingu myndu detta út fjórar brýr. „Það eru tvö sjónarmið sem eru ráðandi í styttingu á vegakerfinu, það er að taka stakar einbreiðar brýr þar sem umferðin er mest án þess að þurfa að breyta vegi. Og hitt að taka út þær brýr sem hafa minnst burðarþol, elstu brýrnar.“ Vegagerðin finnur fyrir kreppunni Hann segir mikla óvissu vera um næstu ár í framkvæmdum á vegum og brúm landsins en Vegagerðin finnur vel fyrir kreppunni. „Það er óvissa um næstu ár. Framkvæmdaféð á þessu ári er verulega mikið af því að árið í fyrra var það mesta í framkvæmdum í sögu Vegagerðarinnar. Þá var fjöldi verk- efna boðinn út sem er ekki enn lokið og það er verið að greiða það að hluta til á þessu ári, en ný verkefni eru að hluta til minni en til stóð,“ segir Rögn- valdur og bendir á að árið í ár sé það næststærsta í framkvæmdum. „Þetta er sá hluti landsins sem er hvað verstur, það liggur alveg ljóst fyrir.“ Sigurður Helgason Kaflinn til Hafnar er sérlega hættulegur fyrir þær sakir að 23 einbreiðar brýr eru á leiðinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.