Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Blaðsíða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Blaðsíða 60
Föstudagur 3. júlí 200960 Ættfræði umsjón: Kjartan gunnar Kjartansson, kgk@dv.is Fjóla Bjarnadóttir starfsmaður hjá sP - fjármögnun Fjóla fæddist í Reykjavík en ólst upp í Hafnarfirði. Hún var Öldu- túnsskóla, lauk stúdentsprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1999 og lauk BA-prófi í félagsfræði við HÍ 2009. Fjóla starfaði á Svæðisskrif- stofu málefna fatlaðra á Reykjanesi 1999-2001, starfaði hjá Fangelsis- málastofnun ríkisins 2001-2007 og hefur starfað hjá SP Fjámögnun frá 2007. Fjóla söng í kirkjukór Hafnar- fjarðarkirkju. Hún er afar áhuga- söm um útiveru. Matargerð og vín sem og samverustundir með fjöl- skyldu og vinum. Fjölskylda Unnusti Fjólu er Ingi Þór Rúnarsson, f. 15.3. 1973, starfsmaður Íslands- banka. Eldri dóttir Fjólu er Rebekka Rós Bjarkadóttir, f. 31.1. 2001. Dóttir Fjólu og Inga Þórs er Inga Lea Ingadóttir, f. 26.4. 2009. Stjúpbörn Fjólu og börn Inga Þórs eru Rakel Heba Ingadóttir, f. 4.11. 1998; Jó- hannes Rún- ar Ingason, f. 14.6. 2004. Systur Fjólu eru Hulda Guð- björg Gunnarsdóttir, f. 28.11. 1969, tollvörður, búsett í Njarð- vík; Þyri Gunnarsdóttir, f. 9.6. 1971, sölustjóri hjá Heimsferð- um, búsett í Reykjavík; Birna Dís Bjarnadóttir, f. 2.8. 1977, leik- skólakennari á Víðivöllum, bú- sett í Hafnarfirði. Foreldrar Fjólu eru Bjarni Hauksson, f. 3.10. 1944, húsa- smíðameistari í Hafnarfirði, og Kristín Guðmundsdóttir, f. 31.1. 1949, húsmóðir í Hafnarfirði. 30 ára á föstudag 80 ára á sunnudag Guðrún Sigríður Jakobsdóttir hjúkrunarfræðingur og cand.Phil. í írönskum fræðum Guðrún fæddist í Reykjavík og ólst upp á Norðfirði, Wynyard í Sask- atchewan í Kanada og í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1949, hjúkrunarnámi í Köbenhavns Gen- tofte Amts Sygehus, 1953, lauk exam. art. prófi í írönskum fræðum við Kaupmannahafnarháskóla 1978 og cand.phil.-prófi í írönskum fræðum frá sama skóla 2006. Guðrún var hjúkrunarkona á læknastofu í Kaupmannahöfn 1953 og við læknastofu héraðslæknis í Sunne Varmalandi í Svíþjóð 1960- 1962, aðstoðaði við stofnun og rekst- ur lítils spítala sem verkfræðistofan Kampsax starfrækti fyrir persneska verkamenn sína og fjölskyldur þeirra í Sanandadj í Kúrdistan í Íran. Hún var læknaritari við De Gamles By í Kaupmannahöfn 1965 og var síð- an hjúkrunarfræðingur og læknarit- ari hjá manni sínum frá 1970. Þá var hún við nám og störf við stofnun fyr- ir austurlensk mál við Kaupmanna- hafnarháskóla. Fjölskylda Guðrún giftist 8.11. 1952 Hans Walt- er Rothenborg, f. 8.5. 1927, húðsjúk- dómalækni í Kaupmannahöfn. For- eldrar Hans voru Aage Rothenborg, verkfræðingur í Kaupmannahöfn, og k.h., Sofie Elisabet Rothenborg hús- móðir. Börn Guðrúnar og Hans eru Jak- ob, f. 4.7. 1957, búsettur í Kaup- mannahöfn; Jórunn, f. 16.10. 1962, markaðsfræðingur, búsett í Reykja- vík, gift Erlendi Sturlu Birgissyni verkfræðingi og eiga þau tvo syni, Al- exander og Daníel Hans; Jens Aage, f. 27.1. 1967, japönskufræðingur og hönnuður, búsettur í Kaupmanna- höfn. Systkini Guðrúnar: Svava, f. 4.10. 1930, d. 21.2. 2004, rithöf- undur og alþm. í Reykjavík, var gift Jóni Hnefli Aðalsteinssyni, doktor í þjóðháttafræðum; Jökull, f. 14.9. 1933, d. 25.4. 1978, rithöfundur og leikritaskáld í Reykjavík, fyrri kona hans var Jóhanna Kristjónsdóttir rithöfundur en seinni kona hans var Ásta Beck; Þór, f. 5.10. 1936, fyrrv. deildarstjóri hafísrannsókna- deildar Veðurstofunnar, kvæntur Jóhönnu Jóhannesdóttur tækni- fræðingi; Jón Einar, f. 16.12. 1937, hrl. og stórkaupmaður í Garðabæ, kvæntur Gudrun Jakobsson versl- unarstjóra. Foreldrar Guðrúnar: Jakob Jóns- son, f. 20.1. 1904, d. 17.6. 1989, dokt- or í guðfræði og prestur í Hallgrím- sprestakalli í Reykjavík, og k.h., Þóra Einarsdóttir, f. 12.9. 1901, d. 9.1. 1994, húsfreyja. Ætt Föðurbróðir Guðrúnar var Eysteinn, fyrrv. ráðherra. Jakob var sonur Jóns, pr. á Hofi í Álftafirði Finnssonar, pr. á Klyppstað, bróður Jóhönnu, móð- ur Sigfúsar Sigfússonar þjóðsagna- safnara. Finnur var sonur Þorsteins, skálds í Mjóanesi Mikaelssonar, skipstjóra Mathiesen eða Mathias, sem var sænsk-norskur í föðurætt en enskur í móðurætt. Móðir Jóns var Ólöf Einarsdóttir, b. í Hellisfirði Er- lendssonar, b. í Hellisfirði Árnason- ar, ættföður Hellisfjarðarættar, föður Þórarins, langafa Guðnýjar, móður Vals Arnþórssonar, og langafa Odds, föður Davíðs, fyrrv. forsætisráðherra. Móðir Jakobs var Sigríður Hansdótt- ir Beck, hreppstjóra á Sómastöðum í Reyðarfirði Christiansonar Beck, verslunarmanns á Eskifirði, af dönsk- um ættum. Móðir Hans var María, systir Þórarins, afa Finns Jónssonar listmálara. María var dóttir Richards Long, verslunarstjóra á Eskifirði, af enskum ættum. Þóra var dóttir Einars, múrara í Reykjavík Ólafssonar, sjómanns í Hliði á Álftanesi Guðmundssonar. Móðir Ólafs var Sigríður Guðmunds- dóttir, b. í Krýsuvík Bjarnasonar. Móðir Sigríðar var Dagbjört Tjörv- adóttir, b. á Fjarðarhorni í Helga- fellssveit Oddssonar, b. á Fjarðar- horni Runólfssonar. Móðir Odds var Katrín Jónsdóttir, sýslumanns á Sól- heimum, bróður Árna Magnússonar handritasafnara. Móðir Þóru var Guðrún Jónas- dóttir, b. á Görðum í Landsveit, bróð- ur Jóhanns, langafa Ingólfs Margeirs- sonar rithöfundar. Jónas var sonur Jóns, b. í Mörk á Landi Finnboga- sonar, b. á Reynifelli á Rangárvöll- um Þorgilssonar, föður Árna, langafa Júlíusar Sólnes, fyrrum alþm., Sig- urðar, afa Þórðar Friðjónssonar, for- stjóra Kauphallarinnar, og Guðnýjar, móður Guðlaugs Tryggva Karlsson- ar hagfræðings. Þá var Árni langafi Guðna, föður Margrétar prófessors og Kristins, föður Guðna, b. í Skarði, og Vilborgar, langömmu Þorgerðar söngstjóra og Rutar fiðluleikara, Ing- ólfsdætra. Jóhanna Torfhildur fæddist á Ísafirði og ólst þar upp. Hún var í Barnaskóla Ísafjarðar og starfaði á unglingsár- unum m.a. við skóverslun föður síns á Ísafirði. Eftir að Jóhanna gifti sig var hún húsmóðir, fyrst á Ísafirði en lengst af í Reykjavík. Fjölskylda Jóhanna giftist 3.7. 1953 Garðari Þor- steinssyni, f. 12.2. 1910, d. 22.9. 1994, fiskiðnfræðingi og stórkaupmanni. Hann var sonur Þorsteins Eyfirðings, skipstjóra á Ísafirði og síðar í Reykja- vík, og Þórlaugar Benediktsdóttur húsfreyju. Sonur Jóhönnu og kjörsonur Garðars er Ólafur Garð- arsson, f. 12.7. 1950, hús- gagnasmiður í Reykjavík og eru synir hans Jóhann Torfi Ólafsson, f. 1985, og Kjart- an Ólafsson, f. 1985. Synir Jóhönnu og Garð- ars eru Þórir Garðarsson, f. 21.11. 1952, tæknifræð- ingur í Reykjavík og eru synir hans Garðar Þórisson, f. 1980, og Davíð Örn Þórisson, f. 1992; Þorsteinn Garðarsson, f. 19.11. 1962, kerfisfræðingur í Hafnarfirði, kvæntur Guðrúnu Bryndísi Einars- dóttur bókara og eru synir þeirra Garðar Þorsteinsson, f. 1986, Bjarki Þorsteinsson, f. 1993, og Brynjar Þorsteinsson, f. 1993. Alsystkini Jóhönnu voru Kjartan Ólafsson, f. 1908, d. 1988; Eggert Ól- afsson, f. 1913, d. 1987; Hulda Sigurborg Ólafs- dóttir, f. 1918, d. 1993; Hörður Ólafsson, f. 1921, d. 1994. Hálfsystir Jóhönnu, samfeðra, var Svava Ólafsdóttir, f. 1912, d. 1988. Foreldrar Jóhönnu voru Ólafur Kárason, skipstjóri og kaupmaður á Ísafirði, og k.h., Fríða Torfadóttir húsmóðir. Jóhanna mun dvelja í sumarbú- stað í Brekkuskógi á afmælisdaginn. Kjartan Gunnar Kjartansson rekur ættir þjóðþekktra íslendinga sem hafa verið í fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma viðburði liðinna ára og minnist horfinna merkra íslendinga. lesendur geta sent inn tilkynningar um stórafmæli á netfangið kgk@dv.is 90 ára á föstudag Jóhanna T. Ólafsdóttir húsmóðir í reykjavík Valgerður Árnadóttir birgðastjóri hjá debenhams Valgerður fæddist í Reykjavík en ólst upp í Lundi í Svíþjóð til tíu ára aldurs og síðan í Reykjavík. Hún var í barnaskóla í Lundi, í Æfinga- deild KHÍ, stundaði nám við MS, lauk prófi á upplýsingabraut við Iðnskólann í Reykjavík, lærði ljós- myndun við Iðnskólann og hjá Sissu og lauk prófum í ljósmynd- un, stundaði síðan nám við Teko Center á Jótlandi í Danmörku og lauk þaðan prófum sem hönnun- artæknir og innkaupastjóri. Valgerður var fyrirsæta á menntaskólaárunum, m.a. í Míl- anó, München, London og New York. Hún starfaði við verslunina Next í Reykjavík 2004-2007 og hef- ur starfað hjá Högum frá 2007 þar sem hún er nú birgðastjóri hjá De- benhams. Valgerður hefur haldið tvær ljósmyndasýningar en hún tekur enn ljósmyndir, einkum sem tengj- ast hönnun og tísku. Fjölskylda Unnusti Val- gerðar er Guðmundur Marinó Ás- grímsson, f. 16.1. 1974, viðskipta- fræðingur hjá Kaupþingi. Sonur Valgerðar er Benjamín Árni Jóhannsson, f. 9.6. 2000. Dætur Guðmundar Marinós eru Marín Ósk Guðmundsdóttir, f. 10.11. 1998; Júlía Heiður Guð- mundsdóttir, f. 23.9. 2003. Systir Valgerðar er Þórunn Brandsdóttir, f. 27.3. 1968, versl- unarmaður í Reykjavík. Foreldrar Valgerðar eru Árni Ólason, f. 10.3. 1942, vélstjóri hjá Landhelgisgæslunni, og Lena Hákonardóttir, f. 30.10. 1946, frí- stunda- og félagsráðgjafi. 30 ára á föstudag Hilmir Þór Einarsson tölvuleikjahönnuður Hilmir fæddist í Hafnarfirði og ólst þar upp. Hann var í Lækjarskóla og lauk síðan meiraprófi bif- reiðaprófa. Hilm- ir vann hjá Löndun í Reykjavík í nokkur ár, sinnti síðan margvíslegum störf- um í Reykjavík og víðar en er núna tölvuleikjahönnuður hjá CCP. Hann starfar nú fyrir fyrirtækið í Atlanta í Bandaríkjunum. Fjölskylda Systkini Hilmis eru Katrín Ósk Ein- arsdóttir, f. 24.1. 1974, vörustjóri, búsett í Hafnarfirði; Birgir Örn Ein- arsson, f. 21.9. 1977, hönnuður, bú- settur í Hafnarfirði; Lilja Sif Einars- dóttir, f. 4.7. 1986, þjónustufulltrúi, búsett í Hafnarfirði; Guðrún Alma Einarsdóttir, f. 14.1. 1988, þjón- ustufulltrúi, búsett í Hafnarfirði. Foreldrar Hilmis eru Einar Kristján Jónsson, f. 19.10. 1950, húsasmiður í Hafnarfirði, og Val- dís Birna Guðjónsdóttir, f. 12.6. 1950, talmeinafræðingur í Hafn- arfirði. 30 ára á laugardag Nýr kostur í DV eru þjónustuauglýsingar. Það borgar sig að auglýsa í DV! ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR Hringdu í síma 515 5550 og byrjaðu strax í dag!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.