Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Side 60
Föstudagur 3. júlí 200960 Ættfræði
umsjón: Kjartan gunnar Kjartansson, kgk@dv.is
Fjóla Bjarnadóttir
starfsmaður hjá sP - fjármögnun
Fjóla fæddist í Reykjavík en ólst
upp í Hafnarfirði. Hún var Öldu-
túnsskóla, lauk stúdentsprófi frá
Kvennaskólanum í Reykjavík 1999
og lauk BA-prófi í félagsfræði við
HÍ 2009.
Fjóla starfaði á Svæðisskrif-
stofu málefna fatlaðra á Reykjanesi
1999-2001, starfaði hjá Fangelsis-
málastofnun ríkisins 2001-2007 og
hefur starfað hjá SP Fjámögnun frá
2007.
Fjóla söng í kirkjukór Hafnar-
fjarðarkirkju. Hún er afar áhuga-
söm um útiveru. Matargerð og vín
sem og samverustundir með fjöl-
skyldu og vinum.
Fjölskylda
Unnusti Fjólu er Ingi Þór Rúnarsson,
f. 15.3. 1973, starfsmaður Íslands-
banka.
Eldri dóttir Fjólu er Rebekka Rós
Bjarkadóttir, f. 31.1. 2001.
Dóttir Fjólu og Inga Þórs er Inga
Lea Ingadóttir,
f. 26.4. 2009.
Stjúpbörn
Fjólu og börn
Inga Þórs eru
Rakel Heba
Ingadóttir, f.
4.11. 1998; Jó-
hannes Rún-
ar Ingason, f.
14.6. 2004.
Systur Fjólu eru Hulda Guð-
björg Gunnarsdóttir, f. 28.11.
1969, tollvörður, búsett í Njarð-
vík; Þyri Gunnarsdóttir, f. 9.6.
1971, sölustjóri hjá Heimsferð-
um, búsett í Reykjavík; Birna Dís
Bjarnadóttir, f. 2.8. 1977, leik-
skólakennari á Víðivöllum, bú-
sett í Hafnarfirði.
Foreldrar Fjólu eru Bjarni
Hauksson, f. 3.10. 1944, húsa-
smíðameistari í Hafnarfirði, og
Kristín Guðmundsdóttir, f. 31.1.
1949, húsmóðir í Hafnarfirði.
30 ára á föstudag 80 ára á sunnudag
Guðrún Sigríður
Jakobsdóttir
hjúkrunarfræðingur og cand.Phil. í írönskum fræðum
Guðrún fæddist í Reykjavík og ólst
upp á Norðfirði, Wynyard í Sask-
atchewan í Kanada og í Reykjavík.
Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1949,
hjúkrunarnámi í Köbenhavns Gen-
tofte Amts Sygehus, 1953, lauk exam.
art. prófi í írönskum fræðum við
Kaupmannahafnarháskóla 1978 og
cand.phil.-prófi í írönskum fræðum
frá sama skóla 2006.
Guðrún var hjúkrunarkona á
læknastofu í Kaupmannahöfn 1953
og við læknastofu héraðslæknis í
Sunne Varmalandi í Svíþjóð 1960-
1962, aðstoðaði við stofnun og rekst-
ur lítils spítala sem verkfræðistofan
Kampsax starfrækti fyrir persneska
verkamenn sína og fjölskyldur þeirra
í Sanandadj í Kúrdistan í Íran. Hún
var læknaritari við De Gamles By í
Kaupmannahöfn 1965 og var síð-
an hjúkrunarfræðingur og læknarit-
ari hjá manni sínum frá 1970. Þá var
hún við nám og störf við stofnun fyr-
ir austurlensk mál við Kaupmanna-
hafnarháskóla.
Fjölskylda
Guðrún giftist 8.11. 1952 Hans Walt-
er Rothenborg, f. 8.5. 1927, húðsjúk-
dómalækni í Kaupmannahöfn. For-
eldrar Hans voru Aage Rothenborg,
verkfræðingur í Kaupmannahöfn, og
k.h., Sofie Elisabet Rothenborg hús-
móðir.
Börn Guðrúnar og Hans eru Jak-
ob, f. 4.7. 1957, búsettur í Kaup-
mannahöfn; Jórunn, f. 16.10. 1962,
markaðsfræðingur, búsett í Reykja-
vík, gift Erlendi Sturlu Birgissyni
verkfræðingi og eiga þau tvo syni, Al-
exander og Daníel Hans; Jens Aage,
f. 27.1. 1967, japönskufræðingur og
hönnuður, búsettur í Kaupmanna-
höfn.
Systkini Guðrúnar: Svava, f.
4.10. 1930, d. 21.2. 2004, rithöf-
undur og alþm. í Reykjavík, var gift
Jóni Hnefli Aðalsteinssyni, doktor
í þjóðháttafræðum; Jökull, f. 14.9.
1933, d. 25.4. 1978, rithöfundur og
leikritaskáld í Reykjavík, fyrri kona
hans var Jóhanna Kristjónsdóttir
rithöfundur en seinni kona hans
var Ásta Beck; Þór, f. 5.10. 1936,
fyrrv. deildarstjóri hafísrannsókna-
deildar Veðurstofunnar, kvæntur
Jóhönnu Jóhannesdóttur tækni-
fræðingi; Jón Einar, f. 16.12. 1937,
hrl. og stórkaupmaður í Garðabæ,
kvæntur Gudrun Jakobsson versl-
unarstjóra.
Foreldrar Guðrúnar: Jakob Jóns-
son, f. 20.1. 1904, d. 17.6. 1989, dokt-
or í guðfræði og prestur í Hallgrím-
sprestakalli í Reykjavík, og k.h., Þóra
Einarsdóttir, f. 12.9. 1901, d. 9.1. 1994,
húsfreyja.
Ætt
Föðurbróðir Guðrúnar var Eysteinn,
fyrrv. ráðherra. Jakob var sonur Jóns,
pr. á Hofi í Álftafirði Finnssonar, pr.
á Klyppstað, bróður Jóhönnu, móð-
ur Sigfúsar Sigfússonar þjóðsagna-
safnara. Finnur var sonur Þorsteins,
skálds í Mjóanesi Mikaelssonar,
skipstjóra Mathiesen eða Mathias,
sem var sænsk-norskur í föðurætt en
enskur í móðurætt. Móðir Jóns var
Ólöf Einarsdóttir, b. í Hellisfirði Er-
lendssonar, b. í Hellisfirði Árnason-
ar, ættföður Hellisfjarðarættar, föður
Þórarins, langafa Guðnýjar, móður
Vals Arnþórssonar, og langafa Odds,
föður Davíðs, fyrrv. forsætisráðherra.
Móðir Jakobs var Sigríður Hansdótt-
ir Beck, hreppstjóra á Sómastöðum
í Reyðarfirði Christiansonar Beck,
verslunarmanns á Eskifirði, af dönsk-
um ættum. Móðir Hans var María,
systir Þórarins, afa Finns Jónssonar
listmálara. María var dóttir Richards
Long, verslunarstjóra á Eskifirði, af
enskum ættum.
Þóra var dóttir Einars, múrara
í Reykjavík Ólafssonar, sjómanns í
Hliði á Álftanesi Guðmundssonar.
Móðir Ólafs var Sigríður Guðmunds-
dóttir, b. í Krýsuvík Bjarnasonar.
Móðir Sigríðar var Dagbjört Tjörv-
adóttir, b. á Fjarðarhorni í Helga-
fellssveit Oddssonar, b. á Fjarðar-
horni Runólfssonar. Móðir Odds var
Katrín Jónsdóttir, sýslumanns á Sól-
heimum, bróður Árna Magnússonar
handritasafnara.
Móðir Þóru var Guðrún Jónas-
dóttir, b. á Görðum í Landsveit, bróð-
ur Jóhanns, langafa Ingólfs Margeirs-
sonar rithöfundar. Jónas var sonur
Jóns, b. í Mörk á Landi Finnboga-
sonar, b. á Reynifelli á Rangárvöll-
um Þorgilssonar, föður Árna, langafa
Júlíusar Sólnes, fyrrum alþm., Sig-
urðar, afa Þórðar Friðjónssonar, for-
stjóra Kauphallarinnar, og Guðnýjar,
móður Guðlaugs Tryggva Karlsson-
ar hagfræðings. Þá var Árni langafi
Guðna, föður Margrétar prófessors
og Kristins, föður Guðna, b. í Skarði,
og Vilborgar, langömmu Þorgerðar
söngstjóra og Rutar fiðluleikara, Ing-
ólfsdætra.
Jóhanna Torfhildur fæddist á Ísafirði
og ólst þar upp. Hún var í Barnaskóla
Ísafjarðar og starfaði á unglingsár-
unum m.a. við skóverslun föður síns
á Ísafirði.
Eftir að Jóhanna gifti sig var hún
húsmóðir, fyrst á Ísafirði en lengst af
í Reykjavík.
Fjölskylda
Jóhanna giftist 3.7. 1953 Garðari Þor-
steinssyni, f. 12.2. 1910, d. 22.9. 1994,
fiskiðnfræðingi og stórkaupmanni.
Hann var sonur Þorsteins Eyfirðings,
skipstjóra á Ísafirði og síðar í Reykja-
vík, og Þórlaugar Benediktsdóttur
húsfreyju.
Sonur Jóhönnu og kjörsonur
Garðars er Ólafur Garð-
arsson, f. 12.7. 1950, hús-
gagnasmiður í Reykjavík og
eru synir hans Jóhann Torfi
Ólafsson, f. 1985, og Kjart-
an Ólafsson, f. 1985.
Synir Jóhönnu og Garð-
ars eru Þórir Garðarsson,
f. 21.11. 1952, tæknifræð-
ingur í Reykjavík og eru
synir hans Garðar Þórisson, f. 1980,
og Davíð Örn Þórisson, f. 1992;
Þorsteinn Garðarsson, f. 19.11.
1962, kerfisfræðingur í Hafnarfirði,
kvæntur Guðrúnu Bryndísi Einars-
dóttur bókara og eru synir þeirra
Garðar Þorsteinsson, f. 1986, Bjarki
Þorsteinsson, f. 1993, og Brynjar
Þorsteinsson, f. 1993.
Alsystkini Jóhönnu
voru Kjartan Ólafsson, f.
1908, d. 1988; Eggert Ól-
afsson, f. 1913, d. 1987;
Hulda Sigurborg Ólafs-
dóttir, f. 1918, d. 1993;
Hörður Ólafsson, f. 1921,
d. 1994.
Hálfsystir Jóhönnu,
samfeðra, var Svava Ólafsdóttir, f.
1912, d. 1988.
Foreldrar Jóhönnu voru Ólafur
Kárason, skipstjóri og kaupmaður
á Ísafirði, og k.h., Fríða Torfadóttir
húsmóðir.
Jóhanna mun dvelja í sumarbú-
stað í Brekkuskógi á afmælisdaginn.
Kjartan Gunnar Kjartansson rekur
ættir þjóðþekktra íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma
viðburði liðinna ára og minnist horfinna
merkra íslendinga. lesendur geta sent inn
tilkynningar um stórafmæli á netfangið
kgk@dv.is
90 ára á föstudag
Jóhanna T. Ólafsdóttir
húsmóðir í reykjavík
Valgerður Árnadóttir
birgðastjóri hjá debenhams
Valgerður fæddist í Reykjavík en
ólst upp í Lundi í Svíþjóð til tíu ára
aldurs og síðan í Reykjavík. Hún
var í barnaskóla í Lundi, í Æfinga-
deild KHÍ, stundaði nám við MS,
lauk prófi á upplýsingabraut við
Iðnskólann í Reykjavík, lærði ljós-
myndun við Iðnskólann og hjá
Sissu og lauk prófum í ljósmynd-
un, stundaði síðan nám við Teko
Center á Jótlandi í Danmörku og
lauk þaðan prófum sem hönnun-
artæknir og innkaupastjóri.
Valgerður var fyrirsæta á
menntaskólaárunum, m.a. í Míl-
anó, München, London og New
York. Hún starfaði við verslunina
Next í Reykjavík 2004-2007 og hef-
ur starfað hjá Högum frá 2007 þar
sem hún er nú birgðastjóri hjá De-
benhams.
Valgerður hefur haldið tvær
ljósmyndasýningar en hún tekur
enn ljósmyndir, einkum sem tengj-
ast hönnun og tísku.
Fjölskylda
Unnusti Val-
gerðar er
Guðmundur
Marinó Ás-
grímsson, f.
16.1. 1974,
viðskipta-
fræðingur hjá
Kaupþingi.
Sonur Valgerðar er Benjamín
Árni Jóhannsson, f. 9.6. 2000.
Dætur Guðmundar Marinós
eru Marín Ósk Guðmundsdóttir,
f. 10.11. 1998; Júlía Heiður Guð-
mundsdóttir, f. 23.9. 2003.
Systir Valgerðar er Þórunn
Brandsdóttir, f. 27.3. 1968, versl-
unarmaður í Reykjavík.
Foreldrar Valgerðar eru Árni
Ólason, f. 10.3. 1942, vélstjóri hjá
Landhelgisgæslunni, og Lena
Hákonardóttir, f. 30.10. 1946, frí-
stunda- og félagsráðgjafi.
30 ára á föstudag
Hilmir Þór Einarsson
tölvuleikjahönnuður
Hilmir fæddist
í Hafnarfirði
og ólst þar
upp. Hann var
í Lækjarskóla
og lauk síðan
meiraprófi bif-
reiðaprófa.
Hilm-
ir vann hjá
Löndun í Reykjavík í nokkur ár,
sinnti síðan margvíslegum störf-
um í Reykjavík og víðar en er núna
tölvuleikjahönnuður hjá CCP.
Hann starfar nú fyrir fyrirtækið í
Atlanta í Bandaríkjunum.
Fjölskylda
Systkini Hilmis eru Katrín Ósk Ein-
arsdóttir, f. 24.1. 1974, vörustjóri,
búsett í Hafnarfirði; Birgir Örn Ein-
arsson, f. 21.9. 1977, hönnuður, bú-
settur í Hafnarfirði; Lilja Sif Einars-
dóttir, f. 4.7. 1986, þjónustufulltrúi,
búsett í Hafnarfirði; Guðrún Alma
Einarsdóttir, f. 14.1. 1988, þjón-
ustufulltrúi, búsett í Hafnarfirði.
Foreldrar Hilmis eru Einar
Kristján Jónsson, f. 19.10. 1950,
húsasmiður í Hafnarfirði, og Val-
dís Birna Guðjónsdóttir, f. 12.6.
1950, talmeinafræðingur í Hafn-
arfirði.
30 ára á laugardag
Nýr kostur í DV eru
þjónustuauglýsingar.
Það borgar sig að
auglýsa í DV!
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR
Hringdu í síma 515 5550
og byrjaðu strax í dag!