Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Blaðsíða 6
Föstudagur 3. júlí 20096 Fréttir
Sandkorn
n Eitthvað virðist þeim hjá
samskiptasíðunni Facebook
vera illa við fræga Íslendinga.
Skemmst er að minnast þess
þegar hin geðþekka fyrrver-
andi sjónvarpsþula Ragn-
heiður Elín
Clausen
var lögð
í rafrænt
einelti af
notendum
Facebook
og aðgangi
henn-
ar lokað.
En Ragnheiður er ekki ein í
heiminum því nú á dögunum
var Facebook-síðu stjörnu-
lögfræðingsins Sveins Andra
Sveinssonar eytt út. Hann var
ekki lengi að stofna nýja síðu
til að safna bæði gömlum vin-
um sem nýjum. Einn af vinum
hans er einmitt Ragnheið-
ur og gantast þau mikið með
óheppni sína á síðunni. Þá
heldur Ragnheiður því fram
að notendur Facebook séu
grænir af öfund út af skamm-
stöfunum nafna þeirra sem
eru vægast sagt eitthvað til að
öfunda þau af - REC og SAS.
Þeir hjá Facebook í Bandaríkj-
unum mega líklega prísa sig
sæla að Sveinn Andri sé með
húmorinn í lagi því stjörnu-
lögmanninum væri sjálfsagt í
lófa lagið að höfða á hendur
þeim hressilegt skaðabóta-
mál.
n Uppljóstranir DV úr lána-
bók Kaupþings um stórt kúlu-
lán til Kristjáns Arasonar
hafa skekið þingsæti Þorgerð-
ar Katrínar Gunnarsdótt-
ur, vara-
formanns
Sjálfstæðis-
flokksins og
eiginkonu
Kristjáns, og
þær radd-
ir heyrast
nú á þingi
og víðar
að Þorgerði sé vart vært á Al-
þingi. Sjálfstæðisfólk í kjör-
dæmi Þorgerðar er margt
hvert með böggum hildar
yfir óförum varaformannsins
og þá ekki aðeins Þorgerðar
þar sem einhverjir geta vart
hugsað þá hugsun til enda að
Óli Björn Kárason taki sæti á
þingi en hann er varamaður
og næstur inn detti Þorgerð-
ur úr skaftinu. Veruleikaskyn
Óla Björns þykir nefnilega
oft býsna brogað en nú síðast
mærir hann rekstur Viðskipta-
blaðsins, sem hann ritstýrði
í eina tíð, á öfgahægrivef
sínum amx.is. Blaðinu var
haldið á floti með eftirminni-
legu kennitöluhoppi nýlega
og vandséð að rekstur þess
sé jafnglæsilegur og Óli Björn
vill vera láta.
Jafnréttisstofa auglýsir nú lausa til
umsóknar stöðu lögfræðings. Ingi-
björg Elíasdóttir sinnir starfinu nú
en hún var ráðin tímabundið og án
auglýsingar til Jafnréttisstofu fyrir
hálfu öðru ári. Hæfniskröfur í aug-
lýsingu Jafnréttisstofu vekja athygli
en þar segir: „Algjörlega nauðsyn-
legt er að viðkomandi hafi þekkingu
og reynslu af jafnréttismálum og hafi
stundað nám í kynjafræðum þar með
talinn kvennaréttur.“
Rígskorðuð auglýsing
Sigurði Líndal lagaprófessor þykja
skilyrðin of þröng. „Mér finnst þetta
of rígskorðað. Mér finnst að hugs-
anlega mætti túlka þetta þannig að
þarna væri verið að miða á einhverj-
ar örfáar manneskjur eða jafnvel einn
umsækjanda. Það er þannig keim-
ur af þessu. Mér finnst þessi auglýs-
ing of þröng og spurning hvort hún
stenst jafnréttislög. Ég ætla ekkert að
fullyrða um það en finnst eðlilegt að
spurt sé. Þetta er á gráu svæði,“ segir
Sigurður.
DV hafði samband við Ingibjörgu
Elíasdóttur og spurði hana hvort
þarna væri hennar starf auglýst eða
starf lögfræðings við hlið hennar en
Ingibjörg sagðist ekki vita það og
benti á að yfir stæðu skipulagsbreyt-
ingar hjá Jafnréttisstofu. Spurð hvort
henni finnist hæfiskröfur óhæfilega
þröngt skilgreindar í auglýsingunni
segir hún: „Ég hef ekki einu sinni séð
auglýsinguna.“
Ingibjörg vildi ekki svara þegar
blaðamaður spurði hvort hún hygð-
ist sækja um stöðuna ef það er í raun
hennar staða sem er þarna auglýst,
og sagði: „Ég átta mig ekki á því af
hverju þú ert að spyrja einu sinni,“
og vísaði á Kristínu Ástgeirsdóttur,
framkvæmdastýru Jafnréttisstofu.
Ekki auglýst áður
Kristín staðfesti að þarna væri laust
til umsóknar starf Ingibjargar. „Hér
starfar lögfræðingur sem var ráðinn
í afleysingar til að byrja með. Síðan
hefur dregist von úr viti að auglýsa
stöðuna eins og skylda ber til. Það er
því verið að auglýsa stöðu sem hefur
ekki áður verið auglýst,“ segir Krist-
ín.
Hún bendir á að Ingibjörg hafi
þegar aflað sér verulegrar reynslu í
starfinu. „Það þarf að koma einhver
rosalega frábær umsókn til þess að
einhver geti bolað henni út,“ segir
Kristín.
Hún neitar því þó að tiltekinn ein-
staklingur hafi verið hafður í huga við
gerð auglýsingarinnar. „Nei. Þarna
er kona í starfi sem lögfræðingur
sem hefur aflað sér mikillar reynslu
og hefur mjög mikla kosti og er góð
reynsla af. En ef það kemur umsókn
sem stendur henni framar þá víkur
hún, samkvæmt lögum og reglum,“
segir Kristín.
Stuttur umsóknarfrestur
Að mati Kristínar er orðalag auglýs-
ingarinnar ekki óheppilegt og alls
ekki skynsamlegra að tala þar um
„æskilega“ reynslu og þekkingu í stað
„algerrar nauðsynjar“. „Nei, þetta eru
bara kröfurnar,“ segir hún.
Auglýst var eftir sviðsstjóra Jafn-
réttisstofu í árslok 2006. Um þekk-
ingu og reynslu af jafnréttismál-
um sagði í auglýsingunni: „Þekking
á kynjafræði mikilvæg. Þekking og
reynsla á sviði jafnréttismála og al-
þjóðasamstarfs æskileg.“
Auglýsingin nú birtist á Starfatorgi
30. júní. Umsóknarfrestur er heldur
stuttur, 19 dagar, þar af 13 virkir dag-
ar. Auk þess er krafist að umsækjandi
geti hafið störf „nú þegar“.
Spurð hvort hún eigi von á mörg-
um umsóknum segir Kristin: „Það
eru nokkrir búnir að hafa samband
og spyrjast fyrir. Það er bara komin
ein skrifleg umsókn,“ segir hún.
Sigurður setur einnig spurninga-
merki við þennan stutta umsóknar-
frest og bendir enn fremur á að nú
séu margir mögulega áhugasamir
lögfræðingar í sumarfríi.
Hann bendir á að hann sé ekki
nógu hæfur til að sækja um en tek-
ur þó fram að hann hafi ekki áhuga
á stöðunni „Ég hefði nú aldrei fengið
starfið, miðað við auglýsinguna. Nei,
nei. Og þó er ég með tvö háskólapróf.
Það dugir ekki til,“ segir Sigurður.
„Það þarf að koma
einhver rosalega
frábær umsókn til þess
að einhver geti bolað
henni út.“
JAFNRÉTTISSTOFA
„Á GRÁU SVÆÐI“
Ingibjörg Elíasdóttir var ráðin tímabundið sem lögfræðingur hjá Jafnréttisstofu fyrir
hálfu öðru ári án auglýsingar. Nú er staða hennar auglýst með þröngum skilyrðum
sem Ingibjörg uppfyllir þó fullkomlega. Sigurður Líndal segir auglýsingu Jafnréttis-
stofu á gráu svæði og vekja spurningar um hvort hún miði að einum umsækjenda
öðrum fremur.
Kvennaréttur og Kynjafræði
„Algjörlega nauðsynlegt er að viðkomandi hafi þekkingu og reynslu af jafnréttismál-
um og hafi stundað nám í kynjafræðum þar með talinn kvennaréttur.“
- Úr auglýsingunni
n Kvennaréttur er ekki skylda í grunnnámi í lögfræði við Háskóla íslands heldur
ein fjölda valgreina í meistaranáminu.
n Haustið 1996 var í fyrsta sinn boðið upp á 30 eininga grunnnám í kvennafræð-
um við félagsvísindadeild Hí. tveimur árum síðar var nafninu breytt í kynjafræði.
Við Hí er boðið upp á meistaranám í kynjafræði.
ERLa HLynSdóttIR
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Kröfur í auglýsingu Á við Ingibjörgu
Embættispróf í lögfræði
reynsla af lögfræðistörfum
Þekking og reynsla af jafnréttismálum
Nám í kynjafræði að baki
Nám í kvennarétti að baki
góð kunnátta í ensku og norðurlandamálum
getur hafið störf „nú þegar“
n Ingibjörg Elíasdóttir uppfyllir þröngt skilgreindar
hæfniskröfur jafnréttisstofu og býr að því að hafa
starfað þar síðustu misseri. Mynd JafnRéttISStofa
uppfyllir öll sKilyrði
Ekki nógu hæfur sigurður líndal lagaprófessor yrði aldrei ráðinn lögfræðingur hjá
jafnréttisstofu þar sem hann uppfyllir ekki hæfniskröfur. „Og þó hef ég tvö háskóla-
próf,“ segir hann en sækist þó ekki eftir stöðunni.
Mynd HEIða HELgadóttIR
Ánægð með Ingibjörgu Kristín Ástgeirsdóttir segir þá reynslu sem Ingibjörg Elíasdóttir hefur aflað sér með störfum fyrir
jafnréttisstofu dýrmæta og vega þungt. Ingibjörg fékk starfið án auglýsingar. Mynd 365 / gVa