Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Síða 6
Föstudagur 3. júlí 20096 Fréttir Sandkorn n Eitthvað virðist þeim hjá samskiptasíðunni Facebook vera illa við fræga Íslendinga. Skemmst er að minnast þess þegar hin geðþekka fyrrver- andi sjónvarpsþula Ragn- heiður Elín Clausen var lögð í rafrænt einelti af notendum Facebook og aðgangi henn- ar lokað. En Ragnheiður er ekki ein í heiminum því nú á dögunum var Facebook-síðu stjörnu- lögfræðingsins Sveins Andra Sveinssonar eytt út. Hann var ekki lengi að stofna nýja síðu til að safna bæði gömlum vin- um sem nýjum. Einn af vinum hans er einmitt Ragnheið- ur og gantast þau mikið með óheppni sína á síðunni. Þá heldur Ragnheiður því fram að notendur Facebook séu grænir af öfund út af skamm- stöfunum nafna þeirra sem eru vægast sagt eitthvað til að öfunda þau af - REC og SAS. Þeir hjá Facebook í Bandaríkj- unum mega líklega prísa sig sæla að Sveinn Andri sé með húmorinn í lagi því stjörnu- lögmanninum væri sjálfsagt í lófa lagið að höfða á hendur þeim hressilegt skaðabóta- mál. n Uppljóstranir DV úr lána- bók Kaupþings um stórt kúlu- lán til Kristjáns Arasonar hafa skekið þingsæti Þorgerð- ar Katrínar Gunnarsdótt- ur, vara- formanns Sjálfstæðis- flokksins og eiginkonu Kristjáns, og þær radd- ir heyrast nú á þingi og víðar að Þorgerði sé vart vært á Al- þingi. Sjálfstæðisfólk í kjör- dæmi Þorgerðar er margt hvert með böggum hildar yfir óförum varaformannsins og þá ekki aðeins Þorgerðar þar sem einhverjir geta vart hugsað þá hugsun til enda að Óli Björn Kárason taki sæti á þingi en hann er varamaður og næstur inn detti Þorgerð- ur úr skaftinu. Veruleikaskyn Óla Björns þykir nefnilega oft býsna brogað en nú síðast mærir hann rekstur Viðskipta- blaðsins, sem hann ritstýrði í eina tíð, á öfgahægrivef sínum amx.is. Blaðinu var haldið á floti með eftirminni- legu kennitöluhoppi nýlega og vandséð að rekstur þess sé jafnglæsilegur og Óli Björn vill vera láta. Jafnréttisstofa auglýsir nú lausa til umsóknar stöðu lögfræðings. Ingi- björg Elíasdóttir sinnir starfinu nú en hún var ráðin tímabundið og án auglýsingar til Jafnréttisstofu fyrir hálfu öðru ári. Hæfniskröfur í aug- lýsingu Jafnréttisstofu vekja athygli en þar segir: „Algjörlega nauðsyn- legt er að viðkomandi hafi þekkingu og reynslu af jafnréttismálum og hafi stundað nám í kynjafræðum þar með talinn kvennaréttur.“ Rígskorðuð auglýsing Sigurði Líndal lagaprófessor þykja skilyrðin of þröng. „Mér finnst þetta of rígskorðað. Mér finnst að hugs- anlega mætti túlka þetta þannig að þarna væri verið að miða á einhverj- ar örfáar manneskjur eða jafnvel einn umsækjanda. Það er þannig keim- ur af þessu. Mér finnst þessi auglýs- ing of þröng og spurning hvort hún stenst jafnréttislög. Ég ætla ekkert að fullyrða um það en finnst eðlilegt að spurt sé. Þetta er á gráu svæði,“ segir Sigurður. DV hafði samband við Ingibjörgu Elíasdóttur og spurði hana hvort þarna væri hennar starf auglýst eða starf lögfræðings við hlið hennar en Ingibjörg sagðist ekki vita það og benti á að yfir stæðu skipulagsbreyt- ingar hjá Jafnréttisstofu. Spurð hvort henni finnist hæfiskröfur óhæfilega þröngt skilgreindar í auglýsingunni segir hún: „Ég hef ekki einu sinni séð auglýsinguna.“ Ingibjörg vildi ekki svara þegar blaðamaður spurði hvort hún hygð- ist sækja um stöðuna ef það er í raun hennar staða sem er þarna auglýst, og sagði: „Ég átta mig ekki á því af hverju þú ert að spyrja einu sinni,“ og vísaði á Kristínu Ástgeirsdóttur, framkvæmdastýru Jafnréttisstofu. Ekki auglýst áður Kristín staðfesti að þarna væri laust til umsóknar starf Ingibjargar. „Hér starfar lögfræðingur sem var ráðinn í afleysingar til að byrja með. Síðan hefur dregist von úr viti að auglýsa stöðuna eins og skylda ber til. Það er því verið að auglýsa stöðu sem hefur ekki áður verið auglýst,“ segir Krist- ín. Hún bendir á að Ingibjörg hafi þegar aflað sér verulegrar reynslu í starfinu. „Það þarf að koma einhver rosalega frábær umsókn til þess að einhver geti bolað henni út,“ segir Kristín. Hún neitar því þó að tiltekinn ein- staklingur hafi verið hafður í huga við gerð auglýsingarinnar. „Nei. Þarna er kona í starfi sem lögfræðingur sem hefur aflað sér mikillar reynslu og hefur mjög mikla kosti og er góð reynsla af. En ef það kemur umsókn sem stendur henni framar þá víkur hún, samkvæmt lögum og reglum,“ segir Kristín. Stuttur umsóknarfrestur Að mati Kristínar er orðalag auglýs- ingarinnar ekki óheppilegt og alls ekki skynsamlegra að tala þar um „æskilega“ reynslu og þekkingu í stað „algerrar nauðsynjar“. „Nei, þetta eru bara kröfurnar,“ segir hún. Auglýst var eftir sviðsstjóra Jafn- réttisstofu í árslok 2006. Um þekk- ingu og reynslu af jafnréttismál- um sagði í auglýsingunni: „Þekking á kynjafræði mikilvæg. Þekking og reynsla á sviði jafnréttismála og al- þjóðasamstarfs æskileg.“ Auglýsingin nú birtist á Starfatorgi 30. júní. Umsóknarfrestur er heldur stuttur, 19 dagar, þar af 13 virkir dag- ar. Auk þess er krafist að umsækjandi geti hafið störf „nú þegar“. Spurð hvort hún eigi von á mörg- um umsóknum segir Kristin: „Það eru nokkrir búnir að hafa samband og spyrjast fyrir. Það er bara komin ein skrifleg umsókn,“ segir hún. Sigurður setur einnig spurninga- merki við þennan stutta umsóknar- frest og bendir enn fremur á að nú séu margir mögulega áhugasamir lögfræðingar í sumarfríi. Hann bendir á að hann sé ekki nógu hæfur til að sækja um en tek- ur þó fram að hann hafi ekki áhuga á stöðunni „Ég hefði nú aldrei fengið starfið, miðað við auglýsinguna. Nei, nei. Og þó er ég með tvö háskólapróf. Það dugir ekki til,“ segir Sigurður. „Það þarf að koma einhver rosalega frábær umsókn til þess að einhver geti bolað henni út.“ JAFNRÉTTISSTOFA „Á GRÁU SVÆÐI“ Ingibjörg Elíasdóttir var ráðin tímabundið sem lögfræðingur hjá Jafnréttisstofu fyrir hálfu öðru ári án auglýsingar. Nú er staða hennar auglýst með þröngum skilyrðum sem Ingibjörg uppfyllir þó fullkomlega. Sigurður Líndal segir auglýsingu Jafnréttis- stofu á gráu svæði og vekja spurningar um hvort hún miði að einum umsækjenda öðrum fremur. Kvennaréttur og Kynjafræði „Algjörlega nauðsynlegt er að viðkomandi hafi þekkingu og reynslu af jafnréttismál- um og hafi stundað nám í kynjafræðum þar með talinn kvennaréttur.“ - Úr auglýsingunni n Kvennaréttur er ekki skylda í grunnnámi í lögfræði við Háskóla íslands heldur ein fjölda valgreina í meistaranáminu. n Haustið 1996 var í fyrsta sinn boðið upp á 30 eininga grunnnám í kvennafræð- um við félagsvísindadeild Hí. tveimur árum síðar var nafninu breytt í kynjafræði. Við Hí er boðið upp á meistaranám í kynjafræði. ERLa HLynSdóttIR blaðamaður skrifar: erla@dv.is Kröfur í auglýsingu Á við Ingibjörgu Embættispróf í lögfræði reynsla af lögfræðistörfum Þekking og reynsla af jafnréttismálum Nám í kynjafræði að baki Nám í kvennarétti að baki góð kunnátta í ensku og norðurlandamálum getur hafið störf „nú þegar“ n Ingibjörg Elíasdóttir uppfyllir þröngt skilgreindar hæfniskröfur jafnréttisstofu og býr að því að hafa starfað þar síðustu misseri. Mynd JafnRéttISStofa uppfyllir öll sKilyrði Ekki nógu hæfur sigurður líndal lagaprófessor yrði aldrei ráðinn lögfræðingur hjá jafnréttisstofu þar sem hann uppfyllir ekki hæfniskröfur. „Og þó hef ég tvö háskóla- próf,“ segir hann en sækist þó ekki eftir stöðunni. Mynd HEIða HELgadóttIR Ánægð með Ingibjörgu Kristín Ástgeirsdóttir segir þá reynslu sem Ingibjörg Elíasdóttir hefur aflað sér með störfum fyrir jafnréttisstofu dýrmæta og vega þungt. Ingibjörg fékk starfið án auglýsingar. Mynd 365 / gVa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.