Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Blaðsíða 56
Föstudagur 3. júlí 200956 Sport
Önnur ferð fH til eyja VIsa-bikarinn heldur áfram um helgina á sunnu-
dag og mánudag þegar sextán liða úrslitin fara fram. tveir Pepsi-deildar slagir eru
á dagskrá, annar á laugardalsvelli þar sem Framarar taka á móti grindvíkingum
og hinn í Eyjum þar sem íslandsmeistarar FH koma í heimsókn í annað skiptið
á stuttum tíma. FH fór létt með íBV í þar síðustu umferð Pepsi-deildarinnar,
3-0, í Eyjum. Bikarmeistarar Kr mæta fallkandídötum Víðis í annarri deildinni
á meðan Keflavík fær Þór frá akureyri í heimsókn. Þá mætast HK og reynir
sandgerði á Kópavogsvelli, Breiðablik tekur á móti Hetti, Fjarðabyggð heim-
sækir Fylki og Valur og Ka mætast á Vodafone-vellinum.
umsjón: tómas Þór Þórðarson, tomas@dv.is
Lokakeppni Evrópumóts U21 árs landsliða lauk um síðastliðna helgi þar sem Þýskaland hafði sigur á Eng-
landi í úrslitaleik, 4–0. Á þessu móti, sem haldið er annað hvert ár, koma nýjar stjörnur á sjónarsviðið og
fylgjast útsendarar og þjálfarar um allan heim með því. Aðrir sem eiga þó frábært mót hverfa inn í nóttina
og verður aldrei neitt úr þeim.
Stjörnur framtíðar
Skinu Skært í Svíþjóð
Lokakeppni Evrópumóts U21 árs
landsliða er eins og hlaðborð fullt af
kræsingum fyrir útsendara og þjálf-
ara liða um allan heim til þess að sjá
næstu stórstjörnur og reyna að grípa
þær áður en þær verða of stórar. Á
mótinu hafa skotist fram á sjónar-
sviðið leikmenn eins og Davor Su-
ker, Francesco Totti, Raúl og ein sú
nýjasta, Klaas-Jan Huntelaar. Fyrir
hverja stórstjörnu sem verður þó til
eru leikmenn sem ekkert verður úr
þótt þeir hafi verið frábærir á mót-
inu og keyptir til stærri liða í Evrópu
út á frammistöðu sína með U21 árs
landsliðinu sínu. Þýskaland hamp-
aði Evrópumeistaratitlinum að þessu
sinni eftir að rúlla yfir Englendinga í
úrslitum en margir leikmenn sýndu
að þeir eru nöfn framtíðarinnar í Sví-
þjóð þar sem mótið var haldið, meira
að segja tveir heimamenn og einn
Finni.
Hverjir eru Maceo Ritgers og
Renato Buso?
Þótt þú standir þig vel á Evrópumóti
U21 árs landsliða þýðir það ekki að
ferlinum sé bjargað. Langt því frá.
Margir hafa staðið sig þar vel en ekk-
ert orðið úr. Ein stærsta dæmisagan
er frá árinu 1992. Þá var það ung-
ur piltur frá Ítalíu að nafni Renato
Buso sem stal senunni. Hann fór
gjörsamlega á kostum í keppninni,
lagði meðal annars upp mark í und-
anúrslitunum og skoraði annað í úr-
slitaleiknum gegn Svíþjóð. Barist var
um undirskrift kappans og fór hann
á endanum til AC Milan. Eftir það
heyrðist ekki meira frá honum. Hann
lék með nokkrum liðum á Ítalíu áður
en hann lagði skóna á hilluna árið
2004 án þess að nokkur tæki eftir því.
Hann þjálfar nú skólakrakka í Flór-
ens.
Annar Ítali sem unnendur enska
boltans kannast eflaust við, Massimo
Maccarone, var stjarna lokakeppn-
innar árið 2002. Steve McLaren, þá
þjálfari Middlesbrough, gat ekki beð-
ið eftir því að kaupa Maccarone, sem
hann og gerði. Það er vægt til orða
tekið þegar sagt er að framtíð hans
varð ekki jafnglæst og búist var við.
Fyrir tveimur árum í lokakeppn-
inni 2007 var það ungur Hollend-
ingur sem stal senunni, drengur að
nafni Maceo Ritgers. Hann var ösku-
buskusaga keppninnar því hann var
upphaflega ekki valinn í hópinn fyr-
ir mótið en komst inn vegna meiðsla
annarra. Eins manns dauði er annars
brauð og fór Ritgers á kostum á mót-
inu og var Blackburn ekki lengi að
kaupa hann frá NAC Breda þar sem
hann lék. Síðan hefur hins vegar ekki
spurst til hans. Hann hefur farið á lán
síðustu tvö tímabilin hjá Norwich
og Barnsley en vart tekist að skora í
næstefstu deildinni á Englandi.
Þjóðverjar og Ítalir sterkir
Þýskaland hampaði sigri á mótinu
og þurfti það ekki að koma neinum á
óvart með jafnsterka einstaklinga og
það hefur innanborðs. Með markvörð
á borð við Manuel Neuer, sem hefur
verið aðalmarkvörður Schalke und-
anfarin ár, ungan miðvörð úr sama
liði og tyrkneskættaðan framherja frá
Werder Bremen innanborðs var ljóst
að Þjóðverjarirnir yrðu sterkir.
Þá slógu nokkrir Ítalir í gegn, þá
sérstaklega framherjinn Roberto
Acquafresca sem skoraði fjórtán
mörk fyrir Cagliari á síðasta tímabili
með Cagliari. Ítalíumeistarar Inter
eiga helminginn í honum og mun
Jose Mourinho eflaust fara betur yfir
þá samninga eftir frammistöðu pilt-
sins sem skoraði fjögur mörk á mót-
inu.
Skandinavarnir skinu skært
Stjarna mótsins var Svíinn með snotra
andlitið, Marcus Berg. Framherjinn
varð markahæsti maður mótsins og
fóru sögur í gang strax eftir mótið að
stórliðin vildu fá hann í sínar raðir.
Fyrstu fregnir voru að Tottenham ætl-
aði að greiða hollenska liðinu Gron-
igen, þar sem hann leikur, tíu millj-
ónir punda fyrir hann. Makker hans
í framlínunni, Ola Toivonen, var líka
frábær ásamt finnska miðjumannin-
um Tim Sparv sem kom hvað mest á
óvart á mótinu.
Englendingar komust í úrslitaleik-
inn og fylgdist því breska pressan afar
vel með mótinu. Það sem kom henni
hvað mest á óvart var frammistaða
miðjumannsins Fabrice Muamba.
Þessi leikmaður sem hefur vægast
sagt verið farþegi í ensku úrvalsdeild-
inni var með bestu mönnum Eng-
lands og ekki lítil ástæða þess að lið-
ið komst eins langt og það gerði. Þó
verður að segjast að miðað við aldur
og fyrri störf er hann afar líklegur til
þess að hverfa inn í nóttina eins og
svo margir hafa gert eftir mótið.
STJÖRNUR MÓTSINS
Robert Acquafresca
framherji frá Ítalíu
ítalíumeistarar Inter eiga helminginn í
þessum unga framherja sem fór bæði
á kostum í deildinni heima fyrir þar
sem hann skoraði fjórtán mörk með
miðlungsliðinu Cagliari ásamt því að
vera besti maður ítala í lokakeppninni.
Sergio Asenjo
markvörður frá Spáni
spánverjar þurfa litlu að kvíða þó Iker
Casillas verði eitthvað eldri. asenjo hef-
ur leikið með öllum yngri landsliðum
spánar og vakið verðskuldaða athygli
með þeim öllum. Frábær markvörður
og mikill vítabani.
Marcus Berg
framherji frá Svíþjóð
Það vantar ekki hæfileikana fram á
við þegar það kemur að svíum. Þessi
drengur sem fær ekki minni athygli út
á fallegt útlit sitt var skærasta stjarna
mótsins og markakóngur þess. stóru
liðin bíða í röðum eftir honum.
Sebastian Giovinco
miðjumaður frá Ítalíu
uppalinn hjá juventus, giovinco er ekki
hæstur á vellinum en afar harður og
minnir hvað helst á gennaro gattuso.
Var með bestu mönnum ítalíu og sýndi
að það er vel hægt að vera knár þó
maður sé smár.
Benedikt Hoewedes
miðvörður frá Þýskalandi
Þýska úrvalsdeildarliðið schalke bindur
svo miklar vonir við þennan strák
að hann er samningsbundinn því til
2014. Var eins og klettur í meistaraliði
Þjóðverja og klárlega einn af mönnum
mótsins.
Fabrice Muamba
miðjumaður frá Englandi
leikmaður sem unnendur enska bolt-
ans þekkja eflaust aðeins. Hefur ekki
skinið skært í ensku úrvalsdeildinni en
fór algjörlega á kostum á lokamótinu
og öllum að óvörum, þó engum meira
en bresku pressunni.
Manuel Neuer
markvörður frá Þýskalandi
Kom kannski lítið á óvart að neuer
myndi slá í gegn. ungur að árum
en með miklar reynslu frá schalke,
meðal annars úr meistaradeildinni. Var
langbesti markvörður mótsins og ekki
lítil ástæða þess að Þýskaland vann
mótið.
Mesut Ozil
framherji frá Þýskalandi
Hinn tyrkneskættaði ozil leikur með
Werder Bremen og skoraði meðal
annars sigurmarkið í bikarúrslitaleikn-
um í Þýskalandi á síðasta tímabili. getur
leikið sem fremsti maður, undir fremsta
manni og á vængnum.
Jack Rodwell
miðjumaður frá Englandi
rodwell brást ekki enskum sem binda
miklar vonir við undrabarnið hjá Evert-
on. getur leikið sem miðjumaður og
miðvörður og gerði hvort tveggja með
landsliðinu á mótinu. Framtíðarmaður
Englands, svo sannarlega.
Tim Sparv
miðjumaður frá Finnlandi
Kom hvað mest á óvart af öllum á
mótinu. Er talinn geta náð mjög langt
verði smá heppni með honum. Fór gjör-
samlega á kostum með liði Finna sem
reið nú ekki feitum hesti frá mótinu.
sterkur og útsjónarsamur miðjumaður.
Ola Toivonen
framherji frá Svíþjóð
lék með markakónginum marcus Berg í
framlínunni. Er nú þegar kominn aðeins
lengra en hann en hann leikur með PsV.
Er almennt talinn betri að klára færin
en Berg og verður mikið fylgst með
honum á komandi tímabili.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Sigurvegarar
Þýskaland varð Evrópumeist-
ari u21 árs landsliða í svíþjóð.
Robert Acquafresca
Framherji frá ítalíu
sem fór á kostum.
leikur með Cagliari
en er í helmingseign
Inter.
Mesut Ozil
tyrkneskættaði
Þjóðverjinn var
framherji í sigurliði
Þýskalands. skor-
aði sigurmarkið í
bikarúrslitaleikn-
um með Werder
Bremen í ár.
Marcus Berg
skærasta stjarna mótsins.
svíinn varð markahæstur
og bíða stórliðin í röðum
eftir honum.