Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Qupperneq 4
Föstudagur 3. júlí 20094 Fréttir
Sandkorn
n Ólína Þorvarðardóttir, al-
þingismaður Samfylkingar,
hefur þegar látið að sér kveða
á Alþingi.
Að vanda er
hún óhrædd
við að synda
á móti
straumn-
um. Þannig
hefur hún
krafist þess
af hörku
að vegir á Vestfjörðum verði
lagfærðir og lagt í það fé. Með
þessu nær Ólína að styggja alla
þá íbúa á suðvesturhorninu
sem krefjast þess að vegabætur
eigi sér stað á þeirra svæði þar
sem hver slysagildran tekur við
af annarri.
n Óhætt er að segja að Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokks-
ins, rokki feitt þessa dagana.
Þess hafði verið beðið í eftir-
væntingu að skoðanakannan-
ir sýndu stöðu Framsóknar-
flokksins eftir að formaðurinn
hefur veitt IceSave-samningi
Svavars Gestssonar gríðar-
lega andstöðu. Greinilegt er
að fólkið í landinu er sammála
Sigmundi Davíð því Capasent
mældi Framsóknarflokkinn í
sögulegum hæðum.
n Kenningar eru uppi um að
Svavar Gestsson sendiherra
hafi tekið að
sér að stýra
samninga-
nefnd vegna
Icesave til
að styrkja
ímynd sína.
Hann hafi
séð fram á
að birtast
þjóðinni sem bjargvættur með
óumdeilda niðurstöðu. Þetta
ætti síðan að verða stökkpallur
að því markmiði að hann yrði
forseti Íslands þegar Ólafur
Ragnar Grímsson stendur upp
eftir kjörtímabilið. Heldur virð-
ist Svavar hafa veðjað á rangan
hest því langflestir hafa ýmigust
á samningi hans og ólíklegt að
hann komist á Bessastaði út á
þann gjörning.
n Ranghermt var í Sandkorni
að Pétur Blöndal, blaðamaður
Morgunblaðsins, hafi skrifað
hátíðarviðtal við Gunnar Birg-
isson, fyrrverandi bæjarstjóra, í
sunnudagsútgáfu blaðsins. Hið
rétta er að það var blaðamað-
urinn Orri Páll Ormarsson sem
skrifaði umrætt viðtal. Pétur er
að sjálfsögðu beðinn afsökunar
á því að hann skyldi vera bendl-
aður við skrifin. Orri Páll hefur
verið hvað mest áberandi í skrif-
um um sjávarútvegsmál og þá
sérstaklega hvað varðar ósann-
gjarnar álögur á sægreifa.
Davíð Oddsson, fyrrverandi seðla-
bankastjóri, á tvær bifreiðar sem
hann keypti af fyrrverandi vinnu-
veitendum sínum. Þegar Davíð tók
við embætti seðlabankastjóra um
haustið 2005 keypti Seðlabankinn
fyrir hann Subaru Tribeca-jeppa
og greiddi fyrir hann 4,6 milljónir
króna. Eins og kunnugt er lét Davíð
af embætti seðlabankastjóra í lok
febrúar og hinn norski Svein Harald
Øygard tók tímabundið við emb-
ættinu. Mánuði síðar gekk Davíð
frá kaupum á Subaru-jeppanum
og greiddi fyrir hann 4,1 milljón
króna. Bílasali sem DV ræddi við
taldi að Davíð hefði borgað held-
ur hátt verð fyrir jeppann. Hann
hefði átt að borga um 3,3 milljónir
króna og hefði því getað sparað sér
um 800 þúsund krónur. Hjá Ingvari
Helgasyni kostar nýr Subaru Trib-
eca nú 8,2 milljónir króna.
Keypti ráðherrabíl
Auk Subaru-jeppans gekk Dav-
íð líka frá kaupum á Audi A8-ráð-
herrabíl sínum árið 2004. Þá bifreið
keypti forsætisráðuneytið árið 1996
á 5,9 milljónir króna en seldi Davíð
bifreiðina árið 2004 á 1.100 þúsund
krónur. Þetta er svört Audi-bifreið
sem Davíð er sagður hafa keypt
handa eiginkonu sinni, Ástríði
Thorarensen. Ríkiskaup annaðist
söluna og mat verðgildi bifreiðar-
innar „... líkt og ávallt varðandi bif-
reiðamál hjá ráðuneytinu um kaup
og sölu,“ segir í svari frá forsætis-
ráðuneytinu við fyrirspurn DV um
sölu bifreiðarinnar.
Keypti ekki bimmann
Í byrjun árs 2005 fékk Davíð sér
BMW 730 Li en þá gegndi hann
embætti utanríkisráðherra. DV
birti þá frétt af honum og Halldóri
Ásgrímssyni, þáverandi forsætis-
ráðherra, sem báðir höfðu fengið
sér níu milljóna króna BMW 730 Li
bifreið. Forsætisráðuneytið þurfti
að kaupa nýja bifreið handa Hall-
dóri þar sem Davíð hafði keypt
Audi-bifreiðina sem embættið
hafði áður haft til afnota fyrir for-
sætisráðherra.
Á heimasíðu Bílabank-
ans er auglýst BMW 730 Li
bifreið og sérstaklega tekið
fram að um sé að ræða ráð-
herrabifreið. Er bifreiðin 2005 ár-
gerð líkt og bílarnir sem þeir Davíð
og Halldór fengu. Það vekur athygli
að auglýst verð bifreiðarinnar er
9,9 milljónir sem er nærri
einni milljón hærra
en borgað var
fyrir bíla
Davíðs
og Hall-
dórs árið
2005.
Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, keypti Subaru Tribeca af Seðlabank-
anum í byrjun apríl. Um er að ræða jeppa sem Seðlabankinn keypti fyrir hann þegar
hann hóf störf haustið 2005. Seðlabankinn keypti bílinn á 4,6 milljónir árið 2005 og
seldi Davíð hann á 4,1 milljón króna. Bílasali sem DV ræddi við segir að Davíð hafi
borgað um 800 þúsund krónum of mikið fyrir jeppann.
Borgaði
allt of
mikið
annas sigmunDssOn
blaðamaður skrifar: as@dv.is
Bílarnir Hér má sjá subaru tribeca-jeppa og audi a8 bifreið
fyrir utan heimili davíðs Oddssonar að Fáfnisnesi 12.
Hátt kaupverð Bílasali sem
dV ræddi við segir davíð
hafa borgað um 800 þúsund
krónum of mikið fyrir jeppann.
Ráðherrabifreið Hér má sjá BMW
730 li ráðherrabifreið árgerð 2005
sem er til sölu hjá Bílabankanum á 9,9
milljónir króna. svona bíll var keyptur
fyrir davíð Oddsson árið 2005 á níu
milljónir króna.