Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Blaðsíða 14
Föstudagur 3. júlí 200914 Helgarblað Einnig hætti Hafliði Kristjánsson, framkvæmdastjóri lífeyris- og trygg- ingasviðs, í bankanum sumarið 2006. Hafliði segist aðspurður hafa gert upp lán sín í bankanum 2007. „Ég borgaði þetta allt saman í ársbyrjun 2007,“ seg- ir Hafliði sem vill ekki láta hafa annað eftir sér um málið. Lánin til hans eru skráð 344 milljónir króna í lánabók- inni. Annar starfsmaður sem hætti í bankanum er Friðrik Stefán Halldórs- son sem var framkvæmdastjóri við- skiptabankasviðs. Hann hafði fengið rúmlega 300 milljónir króna að láni frá bankanum sumarið 2006. Friðrik hætti í Kaupþingi í mars árið 2008. Hann segir að hann hafi þá greitt lán- ið upp. „Eftir á að hyggja er alltaf hægt að ræða um hvort þetta hafi verið of há lán eða ekki. En þetta var nú bara tíðarandinn á þessum tíma. Þetta var bara hluti af því að hvetja fólk til dáða,“ segir Friðrik. Að mati hans er það gott að það fari saman: ávinningur hluthafa og hvati til starfsmanna, en að svo sé spurning hvernig eigi að framkvæma þá hugmynd. „Það er erfitt þegar mað- ur horfir um öxl núna. Auðvitað vildu menn ekki að þetta færi svona. Þetta er pínulítið eins og að hafa lent í slysi. Það hefði mátt gera margt öðruvísi,“ segir Friðrik. Að sama skapi hætti Kristín Pét- ursdóttir, sem var aðstoðarforstjóri hjá Singer & Friedlander í London, hjá bankanum í árslok 2006 og seldi hluti sína í bankanum. Af einhverjum ástæðum er Kristín hins vegar ekki skráð fyrir lánum á listanum úr lána- bókinni frá því í júní 2006. Í flöggunum frá Kauphöllinni frá þessum tíma er Kristín hins vegar skráð fyrir umtals- verðum fjölda hluta í bankanum. Þeir sem DV hefur rætt við um mál- ið segja að starfsmennirnir sem hættu þetta löngu fyrir efnahagshrunið hafi að mörgu leyti verið heppnir að hafa hætt í bankanum á þessum tíma því þá hafi þeir bæði grætt á viðskiptun- um með bréfin í bankanum og eins hafi þeir losnað við þá umræðu sem fylgt hefur lánunum til starfsmanna Kaupþings eftir efnahagshrunið. Lánum forðað inn í einkahlutafélög Aðrir sem eru á listanum forðuðu hlutabréfaeigninni og lánunum inn í einkahlutafélög skömmu fyrir efna- hagshrunið. Þetta á við um þá Frosta Rey Rúnarsson og Ingvar Vilhjálmsson sem eru skráðir með tæplega 1700 og rúmlega 470 milljóna króna lán í lána- bókinni frá 2006. Ingvar átti hins vegar rúmlega hálfrar prósentu hlut í Kaupþingi við fall bankans og viku fyrir fall bankans var hlut- urinn kominn í eigu Ingvars Vil- hjálmssonar ehf. Frosti stofnaði einkahlutafélagið FRR ehf. í sömu viku og Kaupþing var þjóðnýtt. Hvorugur þeirra var því skráð- ur fyrir láninu persónulega þegar bankinn féll. Enn óvíst með lánin Um þessar mundir er enn óvíst hvernig fer með lánin til starfs- manna Kaupþings sem hér um ræðir. Líkt og áður segir er verið að skoða lánveitingarnar hjá embætti sérstaks saksóknara og hjá ríkis- skattstjóra. Ekki liggur ljóst fyrir hverjar niðurstöður þeirra verða í málinu. Því er ekki loku fyrir það skotið að lánveitingarnar til starfs- manna Kaupþings sem og niður- felling ábyrgða þeirra fyrir lán- unum muni draga einhvern dilk á eftir sér. Margir telja að þessar lánveitingar hafi verið ólögmætar og til þess gerðar að hækka verð á hlutabréfum í bankanum og auka tiltrú markaðarins. Slíkt myndi flokkast sem markaðsmisnotkun samkvæmt lögum. Tveir lögfræðingar, þeir Hörð- ur Felix Harðarson og Viðar Már Matthíasson, hafa hins vegar komist að því varðandi niður- fellingu ábyrgðanna að hún hafi verið lögmæt. Ljóst er að þeir starfsmenn Kaupþings sem áttu útistandandi lán við fall hans í haust bíða á milli vonar og ótta eftir niðurstöðum sérstaks sak- sóknara og ríkisskattstjóra um hvort niðurfellingin hafi verið lögmæt og hvort starfsmennirnir þurfi að greiða skatt af lánunum. 7 milljarðar til smáfyrirtækis Með þessari grein lýkur um- fjöllun DV um þann þátt lána- bókar Kaupþings sem snýr að lánum til starfsmanna bankans en blaðið hóf umfjöllunina á þriðjudaginn með því að segja frá lánunum til Kristjáns Ara- sonar. Í næstu viku mun blaðið hins vegar halda áfram að skrifa fréttir upp úr lánabókinni. Þá verða teknar fyrir lánveiting- ar til fyrirtækja sem líta út fyrir að vera óeðlilegar eða orka tví- mælis. Til að byrja með mun DV segja frá dularfullum tæplega 9 milljarða króna lánveitingum til smáfyrirtækis í fataiðnaði og ríflega 7 milljarða fyrirgreiðslu til íslenskrar ferðaskrifstofu. Blaðið vill þó undirstrika það sem áður hefur komið fram varðandi fréttaskrif DV upp úr lánabókinni að ein- göngu verða sagðar fréttir upp úr lánabókinni sem varða al- mannahagsmuni og sem geta hjálpað til við að útskýra að- draganda íslenska efnahags- hrunsins. 2007 2008 sigurður Einarsson 90 milljónir 144 milljónir Hreiðar Már sigurðsson 61 milljón 124 milljónir Magnús guðmundsson 50 milljónir 72 milljónir Ingólfur Helgason 38 milljónir 74 milljónir Ingvar Vilhjálmsson 37 milljónir 83 milljónir Þorvaldur lúðvík sigurjónsson 36 milljónir Ármann Þorvaldsson 32 milljónir 46 milljónir steingrímur Kárason 23 milljónir 32 milljónir Kristján arason 20 milljónir 28 milljónir Þórarinn sveinsson 17 milljónir 24 milljónir Bjarki H. diego 14 milljónir 20 milljónir guðný arna sveinsdóttir 13 milljónir 18 milljónir Frosti reyr rúnarsson 11 milljónir 15 milljónir Helgi sigurðsson 10 milljónir 14 milljónir guðni Níels aðalsteinsson 9 milljónir 13 milljónir Hannes Frímann Hrólfsson 9 milljónir 13 milljónir svali Björgvinsson 8 milljónir 12 milljónir samtals hjá þessum 17: 477 milljónir 732 milljónir Meira en Milljarður í arðgreiðslur ArðgrEiðsLur KAupþings tiL noKKurrA stArfsmAnnA á ListAnum úr LánAbóKinni árin 2007 og 2008: *tölur fyrir árið 2007 voru áætlaðar út frá lánabókinni 2006. Fyrirvari í tölum fyrir 2008 er að flestir hafi ekki aukið hlut sinn frá 2006. Vitað var út frá hluthafalista frá Kauphöllinni 2008 hverjir höfðu aukið hlut sinn. Þeir voru: sigurður Einarsson, Hreiðar Már sigurðsson og Ingvar Vilhjálmsson þar sem þeir voru á lista yfir 20 stærstu hluthafa Kaupþings. Á aðra er áætlaður sami eignar- hlutur og 2006 að undanskildum Þorvaldi lúðvík sigurjónssyni. tafla unnin af: as@dv.is tæpir 23,5 milljarðar 22 starfsmenn Kaupþings fengu samtals 23,5 milljarða að láni frá bankanum samkvæmt lánabókinni frá sumrinu 2006. lánveit-ingarnar eru til rannsóknar hjá eftirlitsaðilum. Afar óheppilegt svali Björgvinsson, fyrr- verandi framkvæmdastjóri starfsmanna- sviðs hjá Kaupþingi, segir að lánveiting- arnar hafi verið afar óheppilegar. lánabókin sjálf Hátíðarmatseðill Forréttur Koniaksbætt humarsúpa Aðalréttur Steikt Lúðufiðrildi með hvítlauksristuðum humarhölum og humarsósu Dessert Hátíðardessert Forréttur Súpa dagsins Aðalréttur Hunangsgljáð andabringa „Orange” með rusty kartöflum og ristuðu grænmeti Dessert Hátíðardessert Forréttur Koniaksbætt humarsúpa Aðalréttur 200 gr. ristaðir humarhalar með mangó-chilli cous cous, salat og kartöflubátar Dessert Hátíðardessert Forréttur Súpa dagsins Aðalréttur Glóðuð Nautalundarpiparsteik, ristaðir humarhalar, grænmeti og rjómalöguð piparsósa Dessert Hátíðardessert Laugaás 30 ára 25. júní
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.