Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Page 35

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Page 35
Föstudagur 3. júlí 2009 35Fókus Gunnar Gunnarsson, sjóntækja- fræðingur og hönnuður hjá Reykjavík Eyes, hlaut á mánu- daginn evrópsku Red Dot Des- ign verðlaunin. Gunnar hlaut verðlaunin fyrir hönnun og þró- un gleraugnaumgjarða sem fram- leiddar eru undir merki Reykjavík Eyes. Hátíðin fór fram í Þýska- landi, nánar tiltekið í handbolta- bænum Essen, en verðlaunahafar í ár voru hönnuðir sem vinna fyrir heimsþekkt vörumerki á borð við BMW, Sony, Tag Heuer, Apple og Dell. Red Dot Design verðlaun hafa verið veitt árlega frá árinu 1955 og er keppt í þremur meginflokk- um. Í ár barst 3.231 tilnefning frá 49 löndum. Gleraugnaumgjarðir Reykjavík Eyes hafa hlotið lof fyr- ir hönnun formsins en ekki síður fyrir það hversu léttar þær eru og einfaldar. Umgjörðin er skorin úr örþunnri títanplötu og þar er ekki að finna neinar samsetningar, skrúfur eða aðra aukahluti. Þetta eru ekki fyrstu verðlaun- in sem Gunnar fær fyrir hönnun sína en í vor hlaut hann verðlaun- in Universial Design Awards fyrir þá tækni sem liggur að baki fram- leiðslu Reykjavík Eyes umgjarð- anna. Gunnar Gunnarsson sópar að sér verðlaunum: Margverðlaunaður hönnuður m æ li r m eð ... Tölvuleikurinn BomB- erman BlasT Bomberman Blast er fínasta skemmtun og allt þetta Wii-shop- dæmi er snilld Tölvuleikur- inn uFC 2009 „skugga- og sudda-rudda- mudda-tudda- legur,“ segir gagnrýnandi dV. GhosTBusT- ers Kemur skemmti- lega á óvart og grafíkin er það sem gerir leikinn góðan. TransFormers „Of mikið af öllu,“ segir gagnrýn- andi. lesBian vampire killers Fínasta mynd en engin tímamót. unnendur gavin og stacey þáttanna gætu þó verið hrifnari en aðrir. TerminaTor salvaTion „Christian Bale er fínn í hlutverki johns Connor en myndin ekki jafngóð,“ segir gagnrýnandi. m æ li r eK Ki m eð ... föstudagur n Jackson-helgi á prikinu Helgin verður tileinkuð poppgoðinu Michael jackson á skemmtistaðnum Prikinu um helgina. Á föstudaginn byrjar djassbandið Húsbandið leikinn áður en meistari dj danni deluxxx klárar kvöldið eins og honum er svo sannarlega einum lagið. n Tónleikar á Bókasafni Hljómsveitin reginafirra verður með tónleika í Borgarbókasafninu í hádeginu í dag. Þeir sem vilja nýta hádegismatinn til að hlýða á góða tónleika geta hlýtt á reginufirru milli 12:30 og 13:15 í dag. n langi seli á rósenberg langi seli og skuggarnir verða með tónleika á föstudaginn á Kaffi rósenberg. Má búast við hörkufjöri enda ekki við neinu öðru að búast þegar þeir félagar mæta á svæðið. n Tríóið á sigló tríu andrésar Þórs leikur í allanum á Þjóðlagahátíðinni á siglufirði á föstudaginn og hefjast tónleikarnir klukkan 23.00. Þeir verða svo í landnámssetrinu í Borgarnesi laugardaginn fjórða júli. laugardagur n eiki fimmtugur Ofurrokkarinn Eiríkur Hauksson verður fimmtugur á laugardaginn og ætlar af því tilefni að að halda stórtónleika í austurbæ. Margir stórsöngvarar syngja með honum en dagurinn er þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna og bera tónleikarnir þess nafn. Miða er hægt að fá á midi. is en 3.900 krónur kostar stykkið. n egó í pöpum stórhljómsveitirnar Egó og Paparnir hafa verið að leiða saman hesta sína í sumar, sannarlega baneitruð samsetning. Á laugardaginn spila þessar tvær ofursveitir í Hvíta húsinu á selfossi. Hefst gleðin klukkan 23.00 kostar 2.500 krónur inn. n moonshine á prikinu jackson-helgin heldur áfram á Prikinu á laugardaginn en þessi mikli snillingur féll sviplega frá fyrir stuttu. dj Moonshine verður að þeyta skífum á Prikinu á laugardaginn og má fastlega búast við nokkrum vel völdum slögurum með Michael jackson. n mono á players Það verður sko alvöru partí á skemmtistaðnum Players á laugardaginn, Mono-partí. Hægt er að ná sér í partí-jesús frítt á mono. bloggar.is til að vera klár fyrir ballið. Það kostar þúsund krónur inn þannig komdu og dansaðu með. n sumarjazz á Jómfrúnni Kvartett brasislíku söngkonunnar jussanam da svila kemur fram á fjórðu sumartónleikum veitingastað- arins jómfrúarinnar við lækjargötu á laugardaginn. Áhugaverðir tónleikar sem enginn má láta framhjá sér fara. Hvað er að GERAST? Gunnar Gunnarsson tekur við evr- ópsku red dot design-verðlaununum. Ungmennin sem sækja listasmiðj- urnar ár hvert koma hvaðanæva úr heiminum að sögn Bjartar. „Við höf- um fengið krakka frá Ítalíu, Spáni, Portúgal, Danmörku og Finnlandi svo eitthvað sé nefnt. Við höfum tek- ið þátt í ungmennaskiptaverkefninu og fengið þess vegna hópa frá hinum og þessum löndum. Í ár tókum við þó ekki þátt í þessu verkefni, í fyrsta skipti í langan tíma og samt sem áður er nánast uppselt í listasmiðjurnar,“ segir Björt. Þess í stað eru það ís- lensk ungmenni sem ráða ríkjum. „Langflest fólkið sem kemur til Seyðisfjarðar kemur til að fara á við- burðina. Yfir vikuna erum fáum við fjögur til fimm þúsund manns í bæ- inn - í sjö hundruð manna bæ. Það er svolítið mikil mannfjölgun. Þannig að það er hellingur af fólki sem hef- ur áhuga á hátíðinni þó að það geti ekki tekið beinan þátt í smiðjum og öðru.“ Ástríða alltaf til staðar Björt segir forsvarsmenn hátíðarinn- ar berjast gegn útihátíðarstimplin- um til hins ítrasta því ungir krakkar taka þátt í listasmiðjunum. „Við vilj- um líka meina að unglingar séu ekk- ert hættulegri en aðrir og ekkert verri með víni heldur en fullorðið fólk. Við gerum hins vegar allt sem við getum til þess að koma í veg fyrir unglinga- drykkju og verður góð gæsla á staðn- um meðal annars frá Veraldarvinum og allar björgunarsveitir Austurlands á staðnum,“ útskýrir Björt. En ungu krakkarnir fá einnig að taka þátt í tónlistarveislunni sem fer fram í bækistöð LungA. Tónlistarmenn sem fram koma þetta árið eru Mugison, GusGus, B. Sig, Jagúar, Skakkam- anage og á föstudeginum verður sér- stakt Kimi Records-kvöld. Mannfjöldinn er mikill á Seyð- isfirði í þessa einu viku en að sögn Bjartar dreifist fjöldinn yfir vikuna sem hátíðin stendur yfir. Þó seg- ir Björt ávallt vera stappað í bænum frá fimmtudegi til sunnudags. „Sem er líka frábært því það færir þjón- ustufyrirtækjum í bænum auknar tekjur,“ segir Björt og viðurkennir að hátíðin finni fyrir breyttu efnahags- ástandi. „Við fundum aðallega fyr- ir því við styrkjaleit. Við fengum til dæmis ekki þennan stóra styrk til þess að taka þátt í ungmennaskipta- verkefninu en á móti kemur að við höfum fengið mikið af töluvert lægri styrkjum,“ segir Björt. „Ég hugsa líka að atvinnuleysi og efnahagsástandið geri það að verkum að fleiri skrái sig í smiðjur,“ bætir hún við, en níutíu manns hafa skráð sig í listasmiðjur þetta árið. Mikil vinna og undirbúningur fer í LungA ár hvert og þegar hátíðinni lýkur á sunnudagskvöldið 19. júlí, hefst fyrst undirbúningsfundur fyr- ir næsta ár. „Þetta er vinna allt árið. Ef það væru til peningar, gætum við verið með tvo í fullri vinnu allt árið,“ segir Björt sem segir undrbúning- inn og vinnu á bak við LungA jafn- skemmtileg í dag og fyrir 10 árum. „Það þarf að vera skemmtilegt. Það fer mikil sjálfboðavinna í þessa há- tíð og maður myndi aldrei meika þá vinnu ef ástríðan væri ekki til staðar.“ Nánari upplýsingar um LungA má finna á lunga.is. hanna@dv.is mikið um að vera Á seyðisfirði á meðan hátíðin stendur yfir. lunga spennandi menningar- og listahátíð á seyðisfirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.