Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2009, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2009, Blaðsíða 25
Hver er maðurinn? „Ingólfur Þórarinsson, tónlistar- og knatt- spyrnumaður frá Selfossi.“ Hvað drífur þig áfram? „Sólin svona yfirleitt.“ Hvar ertu uppalinn? „Ég er uppalinn á Selfossi.“ Manstu eftir fyrsta kossinum? „Ég man eftir svona fyrstu þremur allavega.“ Hver er uppáhaldskvikmyndin þín? „Þær eru tvær. Scarface og Good Will Hunting.“ Hvar leitar þú eftir innblæstri þegar þú ert að semja? „Ég leita kannski ekki beint. Meira að hann komi til mín. Ég sem af því að ég fæ einhverja hugmynd en sest ekki niður til þess að leita að þeim.“ Hver er lykillinn að vinsældum Veðurguðanna? „Við erum þokkalega heiðarlegir í því sem við erum að gera. Stöndum og föllum með því og trúum á það sem við erum að gera.“ Hvernig gengur að sameina tónlistina og fótboltann? „Það gengur upp og ofan. Kemur í bylgjum en fótboltinn er meira og meira að verða ofan á núna seinnipart sumars.“ Hvort er skemmtilegra að spila leik eða spila á tónleikum? „Bestu augnablikin í fótboltanum slá nú tónleikum við. En böll eru yfirleitt skemmtileg en leikirnir geta verið bæði súrir og sætir.“ Ef annað þyrfti að víkja, hvort yrði það? „Ef annað ætti að víkja það sem eftir lifði sumars þá yrði það tónlistin en sem betur fer hefur þetta farið vel saman.“ Hvert er markmið þitt í tónlist- inni? „Þetta hefur verið skemmtilegt hingað til og bara gaman að geta gefið af sér. Markmiðið er að reyna bara að njóta þess meðan maður getur.“ En í boltanum? „Markmiðið er alltaf bara að vinna næsta leik.“ Saknar þú kananS? (Spurt í reykjaneSbæ) „Nei, eiginlega ekki.“ Yrsa Brá HEiðarsdóttir 24 ára NEMI í fæðINGarorlofI „Ég bara veit það ekki.“ irMa rán HEiðarsdóttir 24 ára NEMI „Bæði og bara.“ sigurður óskar sigurðsson 33 ára NEMI „Nei, alls ekki.“ ÞórHallur guðMundsson 45 ára SMIður Dómstóll götunnar ingólfur Þórarinsson fer fyrir hljómsveitinni Veðurguðirnir sem á vinsælustu plötu landsins um þessar mundir. Sveitin hefur sent frá sér hvern smellinn á fætur öðrum en Ingó leikur einnig með toppliði Selfoss í 1. deild. Hann segir fótboltann hafa forgang það sem eftir lifir sumars. Man þrjá fyrstu kossana „Nei, ég get nú ekki sagt það.“ stEinar frEYr sigurðsson 27 ára VÉlaMaður maður Dagsins Á víð og dreif um Danmörku standa tómir kassar Nyhedsavisen sem eru, líkt og tómu háhýsin í úthverf- um Reykjavíkur, minnisvarðar um íslensku útrásina og góðærið. Frí- blöðin virðast almennt vera í lægð þar í landi, og í sjoppum eru gef- in upp símanúmer sem fólk get- ur hringt í ef það vill vera laust við að fá þau send heim. Þó er nóg til af æsifréttum í Danmörku, eins og áhorfendur Önnu Pihl og Arnar- ins geta getið sér til um. Á Jótlandi stakk maður annan til bana fyrir að fylgja kærustu hans heim og meig síðan á líkið. Í Kjellerup skaut mað- ur á 18 ára ungling með haglabyssu eftir að hafa rifist við föður drengs- ins. Í Kaupmannahöfn heldur stríð- ið á milli Hells Angels og Bandidos áfram, á meðan Scientology-hreyf- ingin opnar nýjar höfuðstöðvar við Nytorv og hefur það sem markmið að vera búnir að heilaþvo alla Dani eftir nokkur ár. Eurovision eftirhermur Í fyrirmyndarríkinu Noregi er hins vegar lítið um slíkar fréttir. Á for- síðum blaðana er sagt frá því hvern- ig maður eigi að haga mataræði sínu eða sofa vel og almennt hvern- ig maður eigi að láta sér líða sem best. Helsta þjóðfélagsmeinið virð- ist vera miðaldra menn sem þykjast vera Eurovision-vinningshafinn Al- exander Ryback á Facebook til þess að kynnast ungum stúlkum. Ekki er þó vitað til þess að neinn hafi kom- ist svo langt ennþá. Umsókn Íslands hefur þó vak- ið talsverða athygli í fjölmiðlum hér. Í leiðara menningarhluta Aft- enposten dáist höfundur að þeirri ákvörðun íslensku ríkisstjórnarinn- ar að leyfa þingmönnum sínum að kjósa um aðildarviðræður eftir eig- in sannfæringu frekar en flokkslín- um. Segir hann þetta áhugaverða andstæðu við stefnu norsku ríkis- stjórnarinnar, sem sé einnig saman- sett af bandalagi rauðra og grænna en hefur ekkert aðhafst í Evrópu- málum undanfarin tvö kjörtímabil. Höfundur vill meina að fordæmi Ís- lands hvað umræðuna sjálfa varðar hafi meiri áhrif á Noreg en væntan- leg innganga landsins. noregur einn utan EsB? Í fréttahluta blaðsins velta menn því fyrir sér hvaða áhrif innganga Íslands í Evrópusambandið muni hafa á EES-samninginn. Evrópu- fræðingurinn Ulf Sverdrup segir að eftirlitsstofnunin ESA, sem fylg- ist með framkvæmd samningsins, missi trúverðugleika sinn ef aðeins Noregur og Liechtenstein séu eftir. Enginn treysti þeim til þess að fylgj- ast með sjálfum sér. Formaður Evrópuhreyfingar- innar segir að stjórnmálaflokkarnir eigi nú að hefja heiðarlegar umræð- ur um framtíð EES-samningsins, en bætir því við að það mikilvæg- asta fyrir Ísland sé hvort landið nái hagstæðum samningum um fisk- veiðar. Talsmaður Höyre flokksins segir að Norðmenn eigi nú aftur að fara að íhuga aðildarviðræður, með- an talsmaður Kristelig Folkeparti segir að þetta breyti engu um and- stöðu flokksins við aðild. Utanrík- isráðherrann Jonas Gahr Störe seg- ir þetta engin áhrif hafa í bráð, en þó þurfi að skoða hvaða áhrif þetta muni hafa á EES. Formaður norskra sjávarútvegs- manna, Reidar Nilsen segir að inn- ganga Íslands í ESB hafi lítil áhrif á sig, rétt álíka mikil og ef bærinn Bergen myndi einn og sér ganga í ESB. Þó er hann bjartsýnn um að innganga í Evrópusambandið muni neyða Íslendinga til þess að fylgja alþjóðareglum um hafrétt. Segir hann Íslendinga veiða makríl ólög- lega í Norðursjó, og hæpið að Evr- ópusambandið myndi leyfa þeim að komast upp með slíkt. Sjálfur er hann þó mótfallinn aðild Noregs að ESB og telur hæpið að sambandið muni gera undantekningu frá stefnu sinni um sameiginlegar fiskveiði- reglur í öllum löndum. Segir hann mjög róttækar breytingar þurfa að verða á stefnu sambandsins áður en hann breyti um skoðun. Áhyggjur Norðmanna mynDin ferðafært fyrir framara framarar féllu úr leik í Evrópudeild uEfa á fimmtudagskvöld. ferðaglaðir stuðningsmenn liðsins geta þó glatt sig við að þeir geta þá farið út úr bænum um verslunarmannahelgina. Hefði fram komist áfram hefði liðið þurft að spila deildarleik um verslunarmannahelgina. MYnd róBErt rEYnisson kjallari umræða 24. júlí 2009 föStudagur 25 „Þó er hann bjartsýnn um að innganga í Evrópu­ sambandið muni neyða Íslendinga til þess að fylgja alþjóðareglum.“ Valur gunnarsson rithöfundur skrifar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.