Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2009, Blaðsíða 45
Umsjón: tómas þór þórðarson, tomas@dv.is
Barátta um 2. sæti Á sunnudag og mánudag fer
fram heil umferð í Pepsi-deild karla. aðalspennan er í
botnbaráttunni þar sem Grindavík, Fjölnir, þróttur og ÍBV
takast á og svo aftur barátta Fylkis og Kr um annað sætið
en FH er með örugga forystu á toppi deildarinnar sem fyrr. Á
sunnudag mætast stjarnan og ÍBV og svo FH og Breiðablik. Á
mánudag mætast svo Grindavík-Fjölnir, þróttur r.-Kr, Valur-
Keflavík og Fylkir-Fram.
Eftirsóttur í Evrópu tottenham er komið aftur í
baráttuna um að krækja í hollenska framherjann Klaas-jan
Huntelaar frá real madrid. svo virtist sem stuttgart væri að
landa samningi við Huntelaar en hann hafnaði honum á síð-
ustu stundu. Harry redknapp segir Hollendinginn efstan á lista
tottenham um þessar mundir en arsenal og Villarreal hafi bæði
sýnt leikmanninum knáa athygli. Huntelaar gekk til liðs við real
í janúar en eftir stórinnkaup liðsins í sumar er lítið fyrir hann að
gera þar lengur.
sport 24. júlí 2009 föstudagur 45
Íslandsmótið í höggleik hófst á Graf-
arholtsvelli í gærmorgun en 152 kylf-
ingar taka þátt í mótinu. Umgjörðin
að þessu sinni er einstaklega glæsi-
leg en Golfklúbbur Reykjavíkur er
með eina bestu aðstöðu á landinu
auk þess sem klúbburinn fagnar um
þessar mundir 75 ára afmæli sínu.
Það er því lítið til sparað og völlurinn
lítur vel út eftir gott sumar. Í fyrsta
skipti eru settir upp áhorfendapall-
ar hjá völdum holum. Allir eru vel-
komnir til þess að fylgjast með mót-
inu með eigin augum en ekkert
kostar á svæðið.
Spilað alla daginn
„Mótið var sett í morgun (fimmtudag)
klukkan átta þegar Viðar Þorsteins-
son, 78 ára kylfingur, sló upphafs-
höggið,“ segir Hörður Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri Golfsambands Ís-
lands. „Stelpurnar voru svo fyrstar út
á völl og strákarnir fylgdu svo á eft-
ir.“ 152 kylfingar taka þátt í mótinu
en Hörður segir að samkvæmt reglu-
gerðum sambandsins sé gert ráð fyr-
ir 150 kylfingum á Íslandsmótinu
í höggleik. „Venjulegur völlur ber í
kringum 160 kylfinga á svona móti.“
Af þeim 152 kylfingum sem mæta
til leiks að þessu sinni eru 28 kon-
ur og 124 karlar. „Fyrstu tvo dagana
er spilað stíft frá átta á morgnana til
svona níu á kvöldin. Síðan er skorið
niður og seinni tvo dagana eru það
72 kylfingar sem halda áfram. Þar af
eru tíu konur.“
Áhorfendapallar
eins og erlendis
Á 18. flöt er stærðarinnar stigatafla
þar sem hægt að fylgjast með gangi
mála á mótinu en á völdum holum
er einnig að finna áhorfendapalla
líkt og þekkist á stórmótum erlendis.
„Landslagið á svona völlum er mjög
fjölbreytt og gerir það að verkum að
auðvelt er að fylgjast vel með en nú
er búið að setja upp áhorfendapalla
til að fólk geti fylgst enn betur með.“
Pallarnir eru á síðustu holum hrings-
ins þar sem mestar líkur eru á því að
spenna myndist þegar líða tekur á
mótið.
Hörður hvetur alla kylfinga og
annað áhugafólk um golf til þess að
láta sjá sig en ýmislegt verður um að
vera. „Það er frír aðgangur að svæð-
inu og það verður ýmislegt á dagskrá
alla helgina. Kylfingar geta tekið þátt
í hinum ýmsu þrautum svo eitthvað
sé nefnt og það er hægt að læra mik-
ið af okkar bestu kylfingum bara með
því að fylgjast með.“
Kylfingum fjölgar
Þrátt fyrir bágt efnahagsástand fjölg-
ar iðkendum innan Golfsambands-
ins frá því á sama tíma í fyrra. „Við
bjuggumst við því að iðkendafjöldi
myndi dragast saman svona í bein-
um tengslum við efnahagsástand-
ið en sú varð ekki raunin. Þegar
við tókum saman tölurnar í síðasta
mánuði kom í ljós að iðkendum
hafði fjölgað um fimm prósent frá
því á sama tíma í fyrra.“ Í kringum
15.000 kylfingar eru skráðir í sam-
bandið úr hinum ýmsu klúbbum
um allt land en þeim hafði fjölgað
um 700 frá því á sama tíma í fyrra.
En það er langt því frá að allir
sem stunda golf séu skráðir í klúbba
og þar af leiðandi Golfsamband Ís-
lands. „Samkvæmt skoðanakönn-
unum sem við höfum látið gera fyr-
ir okkur eru um það bil aðrir 15.000
kylfingar sem stunda sportið reglu-
lega og því mikið líf í þessu.“ 65 golf-
vellir eru um allt land og nokkuð
auðvelt fyrir fólk að mæta og reyna
fyrir sér. „Það er reyndar svolít-
ið þétt setið hérna á höfuðborgar-
svæðinu en auðveldara að komast
að á flestum öðrum stöðum.“
Fyrir þá sem vilja fylgjast vel
með gangi mótsins um helgina eru
nýjustu tölur uppfærðar á vef sam-
bandsins, golf.is, reglulega alla
helgina. „Fyrri tvo dagana eru töl-
urnar uppfærðar eftir hverjar þrjár
holur en seinni tvo eftir hverja ein-
ustu holu.“
Í fyrsta skipti á Íslandsmótinu í höggleik hafa verið settir upp áhorfendapallar við valdar holur. Mikil dag-
skrá er í kringum mótið sem er haldið á Grafarholtsvelli. Vallaraðstæður eru frábærar og umgjörðin sérlega
flott þar sem Golfklúbbur Reykjavíkur fagnar um þessar mundir 75 ára afmæli.
Flottasta
ÁSgeir jónSSon
blaðamaður skrifar: asgeir@dv.is
Íslandsmótið
Hörður Þorsteinsson Framkvæmda-
stjóri Golfsambands Íslands.
mynd Heiða Helgadóttir
Áhorfendapallar í frysta skipti
Umgjörðin hefur sennilega sjaldan
verið flottari en núna.
mynd Heiða Helgadóttir
Hörð samkeppni 152
kylfingar taka þátt á mótinu.
mynd Heiða HelgadóttirRauðu nautin
nálgast Button