Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2009, Blaðsíða 48
Burke og Hare
Iðnbyltingin hafði sett mark sitt á Edinborg snemma á 19. öld og
auðlegð og velmegun einkenndi borgina. En borgin átti einnig
sínar dökku hliðar og í skuggum öngstræta hrærðust menn sem
enn er minnst sem alræmdustu raðmorðingja Skotlands. Burke
og Hare voru ekki iðjulausir menn, þvert á móti. Þeir stunduðu
báðir sína vinnu en höfðu aukastarf sem ekki þoldi dagsins ljós.
Lesið um Burke og Hare í næsta helgarblaði DV.
Madeleine SMith
– Sek eða SaklauS?
Madeleine Smith tilheyrði efri miðstéttinni í Glasgow. Hún fæddist 1835 og tvítug að aldri hóf hún
leynilegt ástarsamband við Pierre Emile L‘Angelier. Foreldrar Madeleine fundu henni mannsefni sem
tilheyrði sömu stétt og hún.
UmSjón: koLBEInn ÞorStEInSSon, kolbeinn@dv.is
44 föstudagur 24. júlí 2009 sakamál
SAnnAnir GEGn MAdEiLEnE
• Ástarbréf hennar gátu valdið hneyksli
• Sú krafa hennar að Pierre hitti hana
• Hún hafði keypt eitur fyrir dauða Pierres
• Hún hafði staðið í leynilegu ástarsambandi og var fær um að leika
tveimur skjöldum
• Hún trúði William minnoch fyrir því að hún hefði gert eitthvað
sem hún skammaðist sín fyrir
VíSbEndinGAr uM SAkLEySi MAdELEinE
• með því að myrða Pierre gat hún ekki forðast hneyksli því bréfin
voru enn til staðar
• Sannanir fyrir því að þau hafi hist er einungis að finna í dagbók
madeleine
• madeleine mun hafa keypt fyrsta arsenikskammtinn eftir að Pierre
fór að finna fyrir vanlíðan
• Eitrið sem madeleine keypti var litað, eitrið sem fannst í maga
Pierre var hvítt (arsenik sem selt var í lyfjabúðum var gjarna litað)
• Vinir Pierres vitnuðu um þekkingu hans á arseniki
• Pierre hafði sagt í heyranda hljóði að hann vildi hegna madeleine
Það var engin furða að mál Madel-
eine Smith vekti jafnmikla athygli
og raun bar vitni árið 1857. Inn í
málið blönduðust kynlíf, fjárkúg-
un, eitur og dauði og vart hægt að
biðja um fleira.
Við réttarhöldin fylltust góð-
borgarar Skotlands hneykslun við
lestur frásagna dagblaða af kynlífi
fyrir hjónaband og arsenikeitrun.
Engu að síður var hin unga
og aðlaðandi Madeleine Smith
sýknuð af morðinu á Pierre Emile
L‘Angelier. Enn eru skiptar skoð-
anir um hvort hún var saklaus eða
hvort hún komst upp með morð á
fyrrverandi elskhuga sínum.
Eldheit ástarbréf
Madeleine og Pierre Emile L‘Ang-
elier hittust fyrir tilstilli Mary Perry,
nágranna Madeleine, sem sjálf
hafði haft einhver kynni af honum.
Madeleine og Pierre hófu að hittast
á laun og þar sem þau voru bæði
ákafir bréfritarar tóku þau upp á
því skrifa hvort öðru eldheit ástar-
bréf. Bréfin báru vott um eldheitar
ástríður og Madeleine skírskotaði
til sjálfrar sín sem „ástkærrar eig-
inkonu“ Pierres sem þrýsti mjög
á hana að giftast sér. Þau áttu þess
ekki kost að hittast oft en í eitt slíkt
skipti missti Madeleine meydóm-
inn.
En þeim var ekki ætlað að eigast
og foreldrar Madeleine, sem ekki
höfðu hugmynd um ástarævitýri
hennar, fundu henni mannsefni,
William Minnoch, sem tilheyrði
þeirra stétt. Nú voru góð ráð dýr því
þótt samband Madeleine og Pierres
hefði farið leynt lágu eftir ótal bréf
sem hægt var að nota gegn henni.
Í febrúar 1857, í kjölfar trúlofun-
ar Madeilene og Williams, fór hún
þess á leit við Pierre að hann skilaði
henni bréfunum sem hún hafði rit-
að honum. Pierre brást hinn versti
við og hótaði að opinbera þau ef
hún gengi ekki í hjónaband með
honum.
Madeleine kaupir arsenik
Skömmu síðar sást til Madeleine
þar sem hún pantaði arsenik í lyfja-
verslun og kvittaði fyrir; M.H. Smith.
Madeleine bað Pierre þess lengstra
orða að gera ekkert fljótfærnislegt
en hitta hana og ræða málin.
Ekki löngu síðar skrifaði Pierre í
dagbók sína að honum hafi ekki lið-
ið vel eftir að hafa heimsótt Madel-
eine. Hann trúði vinum sínum fyrir
því að hann grunaði að honum hafi
verið byrlað eitur og sagði meðal
annars við Mary Perry: „Ég get ekki
skilið hví mér leið svo illa eftir að
hafa drukkið kaffi hjá henni...“
Árla morguns 23. mars 1857 lést
Pierre Emile L‘Angelier vegna ars-
enikeitrunar. Í kjölfarið fundust
ástarbréfin frá Madeleine á heimili
hans og hún var handtekin.
„Ekki sannað“
Einn besti lögfræðingur Skotlands,
John Inglis, var verjandi Madel-
eine við réttarhöldin og hélt uppi
frábærum vörnum fyrir konu sem
hann sennilega áleit seka. Þrátt fyr-
ir ákveðnar óbeinar sannanir fyrir
sekt Madeleine, til dæmis hafði hún
keypt arsenik áður en Pierre lést og
hún hafði ástæðu, kvað kviðdómur
upp þann úrskurð að sekt hennar
væri „ekki sönnuð“.
Með öðrum orðum voru kvið-
dómarar ekki sannfærðir um sak-
leysi hennar heldur álitu þeir að
sækjanda hefði ekki tekist að færa
sönnur á mál sitt.
Madeleine Smith gekk frjáls
manneskja út úr réttarsalnum, en
mál hennar hafði vakið svo mikla
athygli í Skotlandi að hún sá sinn
kost vænstan að flytja af landi
brott.
Síðustu ár Madeleine Smith eru
sveipuð óvissu en hún gekk að eiga
listamanninn George Wardle í júlí
1861 og almennt er talið að hún
hafi látist í hárri elli í New York árið
1928 undir nafninu Lena Wardle
Sheehy.
Í febrúar 1857, í kjölfar
trúlofunar Madeilene
og Williams, fór hún
þess á leit við Pierre
að hann skilaði
henni bréfunum
sem hún hafði
ritað honum. Madeleine Smith Skiptar
skoðanir voru um sekt hennar.
réttarhöldin yfir Madeleine
Verjandi hennar var einn sá besti
sem völ var á.