Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2009, Blaðsíða 53

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2009, Blaðsíða 53
lífsstíll 24. júlí 2009 föstudagur 53 stuttklippt forsetafrú Forsetafrú Bandaríkjanna, Michelle Obama, kemst í fréttirnir í hverri einustu viku fyrir klæðnað sinn en þessi merkilega kona þykar afar smekk- leg og er ávallt vel til höfð. Frú Obama efndi á dögunum til veislu í Hvíta húsinu til að vekja athygli á listum og menningu í Bandaríkjunum og að þessu sinni vakti hún ekki athygli fyrir klæðaburð heldur nýju hárgreiðsluna sína, en forsetafrúin er búin að klippa hár sitt stutt. Forsetafrúin virðist það vinsæl að það er spurning hvort konur eigi eftir að taka hana sér til fyrirmyndar og klippa sig eins. Tíminn mun leiða það í ljós á næstu misserum. Kannski er Michelle Obama hin nýja Jennifer Aniston. Við leitum að duglegu og kraftmiklu fólki í kvöldsölu! Nánari upplýsingar fást hjá Ingu Huld Hermóðsdóttur, starfsmannastjóra í síma 515 5500 eða í töluvpósti ingahuld@birtingur.is. GÓÐ LAUN! ATVINNA - ATVINNA l Vinnutíminn er frá 18:00 til 22:00 l Unnið 2-4 kvöld í viku l Góð árangurstengd laun í boði Hunangið nærir líkamann Hippaball á Ketilási Heljarinnar hippaball og mark- aður verður á Ketilási í Fljótum laugardaginn 25. júlí. Hljóm- sveitin Stormar mun leika fyrir dansi og verða öll helstu hippalögin spiluð í bak og fyrir. Siglfirðingar og Ólafsfirðingar eru hvattir til að mæta og gera sér glaðan dag. Ballið byrjar klukkan 22 og stendur til 2 um nóttina. Í tilefni ballsins verður einnig haldinn sveitamarkaður á Ketilási þennan saman dag. Markaðurinn byrjar klukkan 14 og stendur til 17. Haldið verður málverkauppboð til styrktar Þuríði Hörpu og til sölu verður margs kyns varningur, hippa- mussur, handverk, harðfiskur, hákarl og margt fleira skemmti- legt. Flestar konur þekkja það að eiga stundum í erfiðleikum með maskarann, sérstaklega þegar verið er að setja hann á neðri augnhárin. Hann virðist oft klessast sem lítur ekki allt of vel út og það er erfitt að ná klessun- um í burtu. Trix förðunarmeist- ara er að nota mjóa enda mask- aranns, eða broddinn á neðri augnhárinn. Einnig ættu allar konur að fjárfesta í augnhára- greiðu. Þannig að þegar búið er að setja maskara á augnhárin er gott að greiða í burtu klessur sem eiga það til að myndast. MasKara- leyndarMál Byrjaðu á því að kíkja á Facebook- síður vina þinna. Ef þú sérð mann þar sem þér líst vel á, biddu þá þann vinn sem þekkir ykkur bæði að kynna ykkur. Þið getið þá kannski byrjað að spjalla á Facebook og síð- an tekið sambandið lengra ef áhugi er fyrir hendi. Fylgstu vel með því sem er að ger- ast í kringum þig, lestu dagblöðin og horfðu á sjónvarpsfréttirnar. Þú veist aldrei hvern þú hittir og þá er alltaf gott að geta hafið samræður við ein- hvern sem þú myndir annars ekki tala við. Þá er alltaf gott að geta not- að fréttirnar til að brjóta ísinn. Notaðu samskiptasíður eins og Twitter til þess að auðvelda þér að kynnast nýju fólki. Tvítaðu á föstu- dagseftirmiðdegi að þú ætlir að fá þér drykk eftir vinnu á uppáhalds- staðnum þínum og biddu þá sem hafa áhuga á að koma að taka vini sína með. Þetta er djarft en svona kynnist maður nýju fólki og nýjum karlmönnum. Prófaðu að gera hluti eins og að fara í bíó ein eða fá þér sushi og hvítvín ein. Sumir halda því fram að karlmenn séu ólíklegri til að ganga upp að konu sem þeir hafa áhuga á ef hún er í hópi kvenna, jafnvel þótt vinkonurnar séu bara þrjár saman. Farðu á kaffihús, pantaðu þér góð- an kaffibolla og sjáðu hvort þú hittir ekki einn myndarlegan. Þegar þú ert búin að vera ein- hleyp lengi er rútínan oft orðin svo þægileg. Manni hættir til að velja að vera frekar heima í letikasti að horfa á uppáhaldssjónvarpsþáttinn en að fara í partí. Það er nauðsynlegt að hafa það í huga hversu mikilvægt það getur verið að fara út, taka boð- inu og kíkja í teiti annað slagið. Það er endurnærandi að vera í kringum annað fólk og það skemmtilega við það er að hitta nýtt fólk. Einnig er mikilvægt að gleyma ekki að gefa karlmönnum séns. Þannig hafa kynni margra byrjað. Karlmaður sýnir þér áhuga en þú lokar strax á hann því hann er ekki „þín týpa“. Gefðu honum tækifæri, eitt stefnumót, og kannski sérðu hann í allt öðru ljósi. Ekki leyfa for- dómunum að stjórna ferðinni. Nú, ef kappinn er síðan ekki það sem þú ert að leita að fórstu allavega á stefnumót og það er ekki hægt að sjá eftir því. Það eiga allar stelpur þennan strákavin sem er ekki sá rétti fyrir þær. Hvernig væri að efna til lítill- ar veislu þar sem allar vinkonurnar koma með þennan vin sem ekki er sá rétti fyrir þær. Það er aldrei að vita nema einhver önnur falli fyrir hon- um – kannski þú. Farðu í ræktina eða komdu þér í skemmtilegan gönguhóp. Þar áttu pottþétt eftir að hitta einhvern myndarlegan og heilbrigðan mann. Vertu óhrædd við að spjalla við þann sem þér líst vel á og þú getur stungið upp á því að þið gangið á Esjuna eða eitthvað slíkt. Næst þegar þér er boðið í partí, ekki byrja á því að skanna íbúðina eftir sætu strákunum. Ekki í þetta sinn. Finndu hressustu og fyndn- ustu stúlkuna í veislunni og spjall- aðu við hana. Ef þið náið vel saman er tilvalið að hitta hana í kaffi einn daginn. Hressu týpurnar eiga allt- af aragrúa af vinum, þar á meðal karlkyns vinum á lausu. Konur hafa einnig gaman af því að koma fólki saman og nýja vinkonan gæti verið ástarengillinn þinn. Hvar finnur þú góða Manninn? Þú ert búin að reyna barina og skemmtistaðina og hefur ekki enn hitt manninn sem kveik- ir í þér. DV tók saman nokkrar skemmtilegar leiðir til þess að hitta draumaprinsinn. Skemmtilegt stefnumót Vertu opin fyrir nýjum möguleikum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.