Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2009, Síða 29
m
æ
li
r
m
eð
...
Fight Night RouNd 4
Ef þú kaupir einn
leik í kreppunni
láttu það vera
þennan. Fullkomn-
asti hnefaleikaleikur
sem komið hefur út.
ÁRstíðum með
samNeFNdRi plötu
Frábær
fyrsta
breiðskífa.
hvítu bókiNNi eFtiR
eiNaR mÁ guðmuNdssoN
„Einar hittir oft
naglann á höfuðið
með greiningu sinni
í bókinni,“ segir
gagnrýnandi.
bRüNo
„Meðal við
homma-
fóbíu,“ segir
gagnrýn-
andi.
b13-ultimatum
Yfirnáttúrulegur hasar byggður
á reyfara-
kenndu
handriti
Luc
Besson.
tRaNsFoRmeRs
Of mikið af öllu.
m
æ
li
r
eK
Ki
m
eð
...
fóKus 24. júlí 2009 föstudagur 29
Áhugaleikhús atvinnumanna frumsýnir í Verksmiðjunni á Hjalteyri:
Ódauðlegt verk í verksmiðju
föstudagur
n magnificent og co.
Árstíðir, Jónas
Sigurðsson
& B. Sig og
Magni spila í
Fjarðarborg
á Borgarfirði
eystri. Tónleik-
arnir eru hluti
af tónlist-
arhátíðinni
Bræðslunni
sem fram fer
um helgina
í fimmta sinn. Fyrstu tónarnir verða
slegnir klukkan 22.
n dj símon á vegamótum
Símon segir ... vippaðu þér á Vega-
mót á föstudagskvöldið. Og þá erum
við ekki að meina pappakassa eins
og Simon Cowell eða Simon le Bon
heldur Dj Símon því plötusnúðurinn
og markmaðurinn magnaði mun þá
halda partíinu gangandi.
n Fastir liðir á prikinu
Húsbandið hefur leikinn á Prikinu
í kvöld klukkan 22.17.33. Dj Danni
Deluxx fylgir fólki svo inn í nóttina
með nístandi tónum og bölsóttu bíti.
n Þursaflokkurinn á
græna hattinum
Það er dýrari týpan af skemmtun
sem boðið verður upp á á Græna
hattinum á Akureyri í kvöld. Þar
ætlar nefnilega Þursaflokkurinn að
þramma á svið og taka öll sín bestu
lög. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.
n aríur í Reykholti
Auður Gunnarsdóttir sópran flytur
ljóð og aríur ásamt Steinunni Birnu
Ragnarsdóttur píanóleikara á
Reykholtshátíð. Tónleikarnir hefjast
klukkan 20.
laugardagur
n stórskotalið á bræðslunni
Hinn íslenzki Þursaflokkur, Páll Óskar
og Monika ásamt strengjasveit, B. Sig
og Jónas Sig og nýkrýndir sigurveg-
arar Músíktilrauna, Bróðir Svartúlfs,
spila í Bræðslunni á Borgarfirði eystri.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20. Á
miðnætti hefst svo tónlistardagskrá
í Fjarðarborg þar sem DJ Kiddi Vid-
eófluga og hljómsveitin Svartasker
ásamt góðum gestum halda uppi
stuðinu.
n egó í Ýdölum
Egó og Paparnir munu troða upp í
Ýdölum í kvöld en böndin hafa verið
á heljarinnar ferð um landið í sumar.
Forsala er á midi.is, miðaverð er 2000
krónur og er 18 ára aldurstakmark.
n Útifatamarkaður, streetball
og dans
Útifatamarkaður Priksins og Q bar
stendur frá klukkan 12 til 18 á laug-
ardaginn auk þess sem streetball-
keppni fer þar fram. Dj Gísli Galdur
spilar á Prikinu um kvöldið.
n tónleikar í Norræna húsinu
Guðrún Gunnarsdóttir syngur vísna-
lög eftir Cornelis Vreeswijk í þýðingu
Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar í
Norræna húsinu. Tónlistin er flutt af
sænsku tónlistarmönnunum Tomas
Lindberg, Magnus „Storis“ Holm-
ström og Dan Berglund. Tónleikarnir
hefjast klukkan 17.
n markaður í mosfellsdal
Hinn árlegi sveitamarkaður að
Mosskógum í Mosfellsdal er byrjaður
og verður alla laugardaga í sumar.
Rósir, grænmeti, rabarbarar, reyktur
Þingvallasilingur, sultur og margt fleira.
Hvað er að
GERAST?
Þurfti að finna
skrímslið
innra með sér
ur aldrei knésetja sig. Mér finnst það
fallegt og hún er mjög sérstök,“ segir
Noomi og hlær.
Noomi lagði ýmislegt á sig til þess
að laða Lisbeth fram en gerir þó lítið úr
erfiðinu. „Ég undirbjó mig ágætlega.
Æfði thai-box í um það bil sjö mán-
uði fyrir tökur og tók mótorhjólapróf
enda þeysist ég um á hjóli í myndinni.
Ég breytti líka mataræðinu vegna þess
að ég vildi breyta líkama mínum að-
eins og verða meira eins og strák-
ur. Gera mig mjórri,“ segir Noomi en
Lisbeth er í bókunum grindhoruð og
sögð líta út eins og anorexíu-sjúkling-
ur. „Svo var bara eins og hún færi að
vaxa innra með mér. Ég er ekki mikið
fyrir að reyna að finna eitthvað upp í
persónusköpun og leggja einhverjar
sérstakar línur um hvernig persón-
an er og hegðar sér. Ég vil nota sjálfa
mig eins mikið og ég get, finna hluti
í eigin fari sem gagnast persónunni.
Lisbeth er til dæmis full af hatri og þá
þarf ég að nota allt mitt hatur. Nota
það sem ég hef og laga það að henni.
Hún er líka mjög ein og einangruð og
þá þurfti ég að grafa eftir tilfinningum
tengdum einsemd hjá sjálfri mér.“
lokaði augunum fyrir
vinsældum bókanna
Noomi hreifst af Lisbeth þegar hún
las bækurnar og segist hafa fengið
smá sjokk en um leið glaðst ákaflega
þegar Niels Arden Oplev sagði henni
að hann vildi fá hana sem Lisbeth.
„Þetta gekk mjög hratt fyrir sig og viku
eftir að við hittumst fyrst var hann bú-
inn að ákveða sig. Ég vissi ekki alveg
hvað ég ætti að gera en var mjög glöð.“
Varla þarf að fjölyrða um þá pressu
sem Noomi fann fyrir þegar ákveðið
var að hún ætti að vera Lisbeth þar
sem nánast hver einn og einasti les-
andi bóka Larssons er með sínar eigin
hugmyndir um persónuna og hvernig
hún á að vera.
„Ég gerði mér strax grein fyrir að
ég mætti ekki hugsa of mikið um hvað
öðrum fyndist. Það voru auðvitað all-
ir í Svíþjóð með skoðanir á því hver
ætti að leika Lisbeth og hver ætti að
leika Mikael. Þessar vangaveltur voru
úti um allt í blöðunum og á inter-
netinu.“ Noomi var sett undir þessa
smásjá og mæld út frá öllum hliðum
og fólk spurði sig hvort hún væri rétt
fyrir Lisbeth, hvort útlitið passaði og
svo framvegis. „Maður getur auðvitað
aldrei gert öllum til hæfis þannig að
ég ákvað bara að hlusta ekki á neitt,
loka mig af og einhenda mér í það
verkefni að gera þessa bíómynd. Ég
reyndi að hverfa inn í sjálfa mig og fría
mig allri ábyrgð á hvað öðrum kynni
að finnast. Líta alveg fram hjá vin-
sældum bókanna og einbeita mér að
myndinni. Það var ekki svo erfitt en
stundum tók það á að hafa Lisbeth
inni í mér. Þetta var alveg eitt ár vegna
þess að allar myndirnar þrjár voru
teknar í einni lotu. Þetta var langur
tími og svolítið erfitt en líka æðislega
skemmtilegt.“
Noomi segist alltaf eiga mjög erf-
itt með að horfa á sjálfa sig í bíó. „Mér
finnst mjög erfitt að horfa á myndirn-
ar þegar ég er búin með þær og reyni
að sjá þær bara einu sinni og gleyma
þeim svo.“
segir skilið við salander
Þrátt fyrir gríðarlegar vinsældir Mill-
enium-þríleiks Larssons segir Noomi
að hinar miklu vinsældir bíómynd-
anna hafi komið sér í opna skjöldu.
„Öll vissum við að bækurnar væru
frægar og umtalaðar í Evrópu og víð-
ar en þetta er orðið miklu stærra en
nokkur sem kom að myndunum gat
séð fyrir. Þetta vex líka svo hratt að ég
held að okkur sé öllum dálítið brugð-
ið. Nú er verið að tala um að sýna
fyrstu myndina í 28 löndum til viðbót-
ar. Þetta er eins og skrýtinn sjúkdóm-
ur sem dreifist á ógnarhraða.“
Noomi hefur verið á haus við að
kynna myndirnar en segist nú loks
geta farið að snúa sér að öðru. „Ég er
búin að vera að leika á sviði í Stokk-
hólmi í allt vor. Ég byrja í tökum á
nýrri mynd, sem heitir Svinalangorna,
í Svíþjóð í október. Ég þarf að læra að
synda mjög vel fyrir þessa mynd en ég
syndi hrikalega illa. Þannig að nú er
ég að æfa sund á fullu og vinna með
handritið. Ég er svo líka að fara að
leika í nýrri mynd í Frakklandi. Þetta
er fjölþjóðleg mynd, frönsk, banda-
rísk og kanadísk. Þannig að til að byrja
með eru tvær myndir á dagskrá í vet-
ur. Ég er að reyna að skilja Lisbeth eft-
ir og stefna fram á veginn. Mér finnst
það alls ekki erfitt og þvert á móti bara
æðislegt að halda áfram. Ég er ekki
svo væmin að ég muni sakna Lisbeth.
Mér finnst þetta bara gott.“
Andlit Noomi er sjálfsagt með
þeim þekktari á Norðurlöndunum
um þessar mundir enda er frammi-
staða hennar í hlutverki Lisbethar á
allra vörum. Þetta veldur henni þó
ekki miklum óþægindum og heima í
Svíþjóð fær hún að vera Noomi í friði.
„Fólk glápir svolítið mikið á mann en
það er allt og sumt. Svíar eru feimn-
ir og frekar mikið til baka þannig að
það er mikið glápt en lítið sagt. Í Dan-
mörku er þetta öðruvísi og þar hikar
fólk ekki við að svífa á mann og tala
við mann vegna þess að maður er
Lisbeth. Síðast þegar ég fór í gegnum
Kastrup-flugvöll til dæmis þá vildu
tollverðirnir alls ekki sjá vegabréfið
mitt og sögðu að þetta væri sko allt í
lagi. Þeir vissu alveg hver ég væri og ég
mætti bara fara beint í gegn.“
svolítið ógeðslegt
Sögur Larssons eru ofbeldisfullar og á
köflum býsna hrottalegar og sjálf hik-
ar Lisbeth ekki við að beita harkalegu
ofbeldi þegar henni er ógnað. Í einu
erfiðasta og eftirminnilegasta atrið-
inu í Karlar sem hata konur lendir Lis-
beth í klónum á einu karlógeðinu sem
hatar konur. Sá nauðgar henni hrotta-
lega. Noomi segist hafa verið fullmeð-
vituð um að þetta atriði myndi taka á.
„Ég vissi að þetta yrði erfitt en þetta
var samt aðeins erfiðara en ég hélt að
það myndi vera. Bæði nauðgunarsen-
an og ekki síður þegar ég kem til baka,
hefni mín á honum og pynta hann.
Það er dálítið skrýtið að finna að mað-
ur eigi þetta til innra með sér, ein-
hvers konar skrímsli sem ég varð að
finna og nota. Það var mjög skrýtið að
upplifa þá tilfinningu, þegar við vor-
um að vinna með þetta atriði þegar
ég pynta hann, að mér fannst gott að
gera þetta. Að mér fyndist að það væri
rétt að gera þetta. Þegar ég var búin
með myndina sagði ég við sjálfa mig:
„Öhh, þetta var svolítið ógeðslegt,“ og
þurfti að spyrja mig að því hvað þetta
eiginlega var sem ég var með þarna
inni í mér. Þetta var bæði erfitt en líka
mjög yndislegt að opna fyrir þessar
tilfinningar og finna nýjar og óvæntar
hliðar á sjálfum sér.“
Eins og margir vita standa yfir
harðvítugar deilur á milli kærustu
Stiegs Larsson til margra ára og föður
hans og bróður sem eru í dag auðugir
menn sem lögerfingjar höfundarins á
meðan unnustan stendur eftir nánast
með tvær hendur tómar. Þessar deilur
virðast ætla að verða þess valdandi að
hálfklárað handrit Larssons að fjórðu
bókinni um Salander komi ekki nokk-
urn tíma fyrir augu almennings. En ef
svo færi, væri Noomi þá til í að skella
sér aftur í leðrið og leika Lisbeth í
fjórðu myndinni?
„Nei, ég held ekki. Þetta er búið
núna. Ef hann hefði skrifað þetta allt
og fullkláruð skáldsaga lægi fyrir þá
myndi ég kannski íhuga þetta. Ég held
að það vanti of mikið í þessa sögu og
mér fyndist það frekar nöturlegt og
eigingjarnt að kvikmynda hana. Ég
veit að það eru ofsalega miklir pen-
ingar í þessu og í kringum allt þetta
Millenium-æði. Þessar myndir eru að
skila gríðarlegum tekjum en ef mað-
ur myndi halda áfram og gera fjórðu
myndina þá myndi ég gera það með
óbragð í munni. Mér finnst líka að
maður verði að halda áfram. Þetta er
búið og það skiptir ekki máli hvort þetta
slær í gegn eða ekki. Það er samt alltaf
þannig í Svíþjóð að ef eitthvað geng-
ur vel vill fólk endilega halda áfram og
gera meira. Æi, ég veit það ekki. Mér
finnst það ekki skemmtilegt.“
byrjaði í skugga hrafnsins
Noomi var ung að árum þegar hún lék
í sinni fyrstu kvikmynd og það var ein-
mitt á Íslandi undir stjórn sjálfs Hrafns
Gunnlaugssonar í myndinni Í skugga
hrafnsins frá árinu 1988. „Í skugga
hrafnsins er fyrsta myndin sem ég tók
þátt í og ég varð bara ástfangin. Þarna
opnaðist nýr heimur fyrir mér og ég
vissi að ég vildi tilheyra þessari veröld.
Ég var þarna í svona um það bil þrjár
vikur með pínulítið hlutverk. Ég man
að Hrafn Gunnlaugsson var þarna
öskrandi mjög ákafur og ástríðufull-
ur og ég bara elskaði þetta og ósk-
aði þess að þessu myndi aldrei ljúka.
Þetta voru tvær vikur á Íslandi og vika
í kvikmyndaveri í Svíþjóð og þarna
vissi ég strax að þetta væri það sem ég
vildi leggja fyrir mig þannig að frá því
ég var í kringum sjö ára vissi ég að ég
vildi verða leikkona.“
Noomi er leikur Tinnu Gunnlaugs-
dóttur og tragísk ástarsagan í myndinni
sérlega minnisstæð. „Mig dreymdi um
þetta og þetta tók allt yfir. Fólk er alltaf
að spyrja mig, hvar sem ég kem, hve-
nær ég hafi ákveðið að leggja leiklist-
ina fyrir mig og þá hverf ég alltaf aftur í
tíma að gerð Í skugga hrafnsins. Þarna
fékk ég innsýn í þennan heim og vissi
hvað ég vildi gera.“
vildi bara vera íslensk
Noomi ætlar sem fyrr segir að dvelja í
viku á Íslandi að þessu sinni en vonast
til að geta komið aftur sem fyrst. „Það
væri æðislegt að geta komið hingað
einhvern tíma til að vinna. Gera eitt-
hvað á Íslandi. Þegar ég kom hingað
í fyrsta skipti þegar ég var fimm ára
varð ég strax ástfangin af landinu.
Þetta var landið mitt og ég var svo sár
og leið þegar við fluttum aftur til Sví-
þjóðar. Ég vildi bara ekki búa í Svíþjóð
og vildi fara aftur til Íslands. Á sumrin
fór ég alltaf til Íslands um leið og skól-
inn kláraðist. Ég var svo allt sumarið
hjá ömmu og afa á Flúðum að tína
tómata og fara á hestbak með ömmu
og vildi bara vera íslensk.“
toti@dv.is
„Það var mjög skrýtið
að upplifa þá tilfinn-
ingu, þegar við vorum
að vinna með þetta
atriði þegar ég pynta
hann, að mér fannst
gott að gera þetta.“lisbeth salander Noomi þurfti að kafa ofan í skuggahliðar sálar sinnar til
að finna þann fítonskraft haturs og reiði
sem keyrir Salander.
Áhugaleikhús atvinnumanna flyt-
ur sjónleikinn Ódauðlegt verk um
samhengi hlutanna eftir Stein-
unni Knútsdóttur í Verksmiðjunni
á Hjalteyri á sunnudaginn. Verkið
er hluti af fimm verka röð „ódauð-
legra“ leikverka um hegðun og eðli
mannsins og er annað í röðinni.
Verkin eru rannsókn á áráttu-
hegðun mannkyns og ófullkom-
leika, segir í fréttatilkynningu. Þau
feti sig inn í augnablikið þar sem
maðurinn standi berskjaldaður
frammi fyrir guði og viðurkenni
vanmátt sinn. Verkin leita að sárs-
aukanum sem býr djúpt inni í sálu
mannsins og leitast við að skilja
hann. Fyrsta verkið í kvintólógí-
unni var Ódauðlegt verk um stjórn
og stjórnleysi og var sýnt við góðan
orðstír í Klink og Bank listasam-
steypunni vorið 2005. Þriðja verk-
ið er í smíðum og verður frumsýnt
í september.
Steinunn Knútsdóttir er leik-
stjóri verksins auk þess að vera
höfundur en um útlit sér Ilmur
Stefánsdóttir. Leikarar sýningar-
innar eru Aðalbjörg Árnadóttir,
Árni Pétur Guðjónsson, Hera Ei-
ríksdóttir, Jórunn Sigurðardóttir,
Lára Sveinsdóttir, Magnús Guð-
mundsson, Ólöf Ingólfsdóttir,
Steinunn Knútsdóttir og Sveinn
Ólafur Gunnarsson. Sýningin hefst
klukkan 22, aðgangur er ókeypis
og allir velkomnir.
lára sveinsdóttir Leikur í Ódauðlegu samhengi hlutanna. Lára hefur meðal annars
látið að sér kveða í hinum ódauðlega söngleik um Jesú Krist ofurstjörnu sem settur
var upp í Borgarleikhúsinu fyrir tæpum tveimur árum.
mYNd gunnar gunnarsson
mYNd oskaRpall.com