Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2009, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2009, Blaðsíða 46
46 föstudagur 24. júlí 2009 helgarblað Mikið hefur verið rætt um það hvað muni gerast ef Íslendingar semja ekki um Icesave. Þeir sem verja samninginn segja að Íslendingar verði útskúfaðir úr alþjóðasamfélaginu og andstæðingar hans vilja herða sultarólina og þrauka í gegnum þetta. En hvað gerðist ef vinaþjóðir okkar myndu yfirgefa okkur og Ísland yrði Kúba norðursins? EyðiEyjan Ísland OlÍulaus vélaflOti Ísland fengi enga olíu lengur. Ekki nema að sú veika von rætist að olía finnist í kringum landið. Svarta gullið væri horfið fyrir fullt og allt og eftir stæði einn myndarlegasti skipa-, tækja- og bílafloti Evrópu óhreyfður. Einn og einn bíll gæti gengið fyrir steikingarfeitinni frá Hamborgara- búllunni en restin af okkur þyrfti að labba eða ríða sína leið. Við eigum þó þennan eina vetnis- strætó. Vá, hvað hann yrði vinsæll. Reyndar eigum við fullt af raforku og spurning hvort við séum nógu klár til þess að framleiða rafmagnsbíla. Nei, auðvitað, við eigum ekki stál. Gætum svo sem brætt bensínlausa vélaflotann. GruGGuGt rósa- OG rúsÍnuvÍn Allar erlendar lúxusvörur sem eru að drepa okkur úr offitu og óhollustu væri horfnar á braut. Enginn Ben&Jerry´s ís á sunnudögum og svo sannarlega ekkert kaffi. Ekki nema Kúbumenn myndu sýna okkur skilning og senda nokkrar baunir. Ekkert Cheerios og Cocoa Puffs handa börnunum og enginn Kapteinn í kók handa pöbbunum. Gæða rauð- og hvítvín myndi fljótlega klárast og gruggugt rósa- og rúsínuvín tæki við. Maður fær vatn í munninn við tilhugsunina. Íslenskt brennivín og ostar. Hljómar það ekki bara ágætlega? Á endanum klárast svo allar getn- aðarvarnir. Bæði smokkar og pillur. Barneignum fjölgar til muna en þá verður í það minnsta nægur mannauð- ur til að byggja aftur upp stórveldið Ísland. Barneignum fjölgar kannski ekki það mikið þar sem Viagra-birgðir munu þrjóta líka en það nota margir í dag eins og B-vítamín. EndurkOma tEiknilEikni Það væri ekkert meira Lost og ekkert meira America’s Next Top Model í sjónvarpi landsmanna. Reyndar er það á við að sleppa við eina kreppu að þurfa ekki að horfa á stúlkurnar þar öskra „TYRA MAIL“. Skjár einn myndi bara endursýna Nonna sprengju og Teiknileikni. Ef við erum heppin þá myndu þeir kannski leyfa Landsins snjallasta að fljóta með. Á RÚV væru það Mannaveiðar og á Stöð 2 Pressa sem er nú búið að endursýna sirka 18 sinnum nú þegar. Nýjustu kvikmyndirnar frá Hollywood kæmu ekki lengur til landsins fyrr en eftir sirka níu ár og því væri bara boðið upp á endursýningar og íslenskar myndir. Vonandi að þær íslensku væru eins góðar og Opinberun Hannesar eða jafnvel betri. EkkErt framapOt Það sem er einna verst er að Ísland fengi ekki að taka þátt í neinum alþjóðlegum íþróttamótum. Mögu- leikinn fyrir alla framapotara og stjórn- málamenn landsins til þess að troða sér upp á svið á Arnarhóli þegar verið er að taka á móti íslenska landsliðinu í handbolta eftir að hafa lent í öðru sæti á ólympíuleikum væri hreinlega úti. Þvílík hneisa. Hvað gerir Ólafur Ragnar Grímsson þá? Engir útrásarvíkingar til að mæra og engar íþróttastjörnur til að sæma fálkaorðu. Fálkaorðan yrði í staðinn veitt fólki sem kæmist af með að éta minnst allra á einu ári eða þeim sem kæmust upp með að þvo nærbuxurnar sínar sjaldn- ast. Við höfum þó alltaf möppudýrin og baunateljarana til að halda áfram að verðlauna fyrir að mæta í vinnuna. Ekki öll vOn úti En þó að Ísland sé algjörlega háð umheiminum í nútímanum er ekki endilega öll von úti. Það er vonarglæta að Rússarnir myndu kannski hjálpa okkur. Jafnvel Kúba og Norður-Kórea líka. Rússarnir myndu kannski hleypa okkur á netið svona af og til gegn því að þeir fengju að svívirða auðlindir okkar í staðinn. Það eru kannski bara sanngjörn skipti til þess að svala neysluþorsta okkar sem virðist ólæknandi. Eða ættum við kannski bara að vera þakklát meðan við erum ekki að deyja úr hungursneyð, sjúkdómum vegna lyfjaskorts eða af sárum okkar vegna stríðs? umsjón Ásgeir jónsson ErótÍk Í minna mæli Það fyrsta sem færi væri internetið. Bretarnir yrðu ekki lengi að skipa Skotunum að skera á sæstreng- ina sem eru fyrir okkur upplýsingaæð nútímans. Ekkert meira Youtube, ekkert Facebook, engin háskerpu erótík fyrir einmana karlmenn og engar fréttir beint í æð. Stærsta tenging Íslands við um- heiminn væri farin. Niðurhal á tónlist, kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og öðru sem margir hafa tamið sér sem part af sinni neyslu heyrði fortíðinni til. Skotarnir þyrftu ekki einu sinni að skera á streng- inn. Þeir myndu bara sleppa því að gera við hann eftir að rotturnar væru búnar að naga sig í gegn líkt og þær gera reglulega. Það hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum að Ísland er eyja. Ein og yfirgefin norður í Atlantshafi. Alla tíð höfum við verið harðgert fólk sem hefur kom- ist lífs af vegna nægjusemi og vegna hinna gjöfulu auðlinda sem eyjan fagra hefur upp á að bjóða. En á und- anförnum áratugum hefur hagsæld- in aukist hratt og Ísland var orðið eitt þróaðasta og „ríkasta“ land í heimi. Í staðinn fyrir sparsemi og hóf tók við ofneysla á nánast öllu sem í boði var. Íslendingar urðu vanir einhverj- um bestu og mestu lífsgæðum sem þekkjast í heiminum og hinn gróf- gerði Íslendingur er kannski ekki jafn- harður af sér og hann var. Eða hvað? Erum við tilbúin að fórna öllu því sem við þyrftum að fórna ef við ein- angruðumst frá alþjóðasamfélag- inu? Hvernig væri lífið á Íslandi ef við þyrftum að standa algjörlega ein og óstudd?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.