Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2009, Qupperneq 22
„Við erum í ágætu sambandi ég og
barnsmóðir mín. Það eru engin
átök í þessu. Þetta er meira spurn-
ing um hvort það sé ekki eðlilegt
að ég hafi forræði á Íslandi og hún
á Kúbu og þá hvernig þetta lítur út
lagalega. Það er það sem verið er
að skoða. Þetta er allt í góðu,“ segir
kvikmyndaleikstjórinn Hrafn Gunn-
laugsson.
Hrafn er með fullt forræði yfir
fimm ára syni sínum, Aron Daníel,
sem hann eignaðist með kúbverskri
konu. Nú skoða þau hvernig þau
geti lagalega skipt forræðinu sín á
milli með hjálp dómstóla.
Fleiri tækifæri á Íslandi
Aron hefur verið með íslenskan ríkis-
borgararétt og lögheimili hjá Hrafni
síðan hann var tveggja ára. Hrafn
segir barnsmóður sína hafa leitast
eftir því á sínum tíma að Hrafn fengi
forræði yfir drengnum.
„Það hafa aldrei verið nokkrar
deilur um það okkar á milli hvernig
við hefðum hann, hvort hann væri
hjá mér eða henni. Við höfum allt-
af náð góðu samkomulagi um það
og skipst á því að vera með hann.
Staðan var þannig að hún óskaði
eftir því að hann fengi að vera á Ís-
landi. Ég held að það séu fleiri tæki-
færi fyrir ungan ofurhuga eins og
hann hér á Íslandi en á Kúbu. Hún
vildi líka, og við bæði, að hann lærði
íslensku. Þegar hann kom hingað
var hann orðinn nánast altalandi á
spænskuna. Þess vegna hefur hann
verið mikið hjá mér. Ég var meira
og minna með hann einn í heilt ár á
meðan hún var á Kúbu og svo ósk-
aði hún eftir því að koma til Íslands.
Hún átti þá möguleika á því að hann
færi aftur til Kúbu eða hún kæmi til
Íslands. Hún vildi frekar koma aftur
til Íslands og að hann væri áfram hér
og þá auðvitað hjálpaði ég henni til
þess.“
Hennar ósk
Hrafn segir barnsmóður sína ekki
vilja fara aftur til Kúbu með dreng-
inn og segir þetta ekki spurningu um
fullt eða deilt forræði heldur túlkun.
„Þetta er spurning um hvern-
ig eigi að túlka forræðið. Það hefur
samt aldrei neitt reynt á það því þetta
hefur alltaf verið í góðu. Við höfum
alltaf fundið ágæta fleti á þessu máli.
Hún hefur sýnt honum mikla ástúð
og ætli við höfum ekki verið með
hann jafnt. Það er bara ágætt að fá
þetta lagalega á hreint. Ég er með
gjafvörn og hún er með gjafsókn
þannig að það er vilji stjórnvaldsins
að fá einhverja prinsippniðurstöðu
í þessu. Þetta er í raun og veru ekk-
ert merkilegt mál að öðru leyti en
því að þetta er pínulítið sérstakt og
spurningin er hvernig eigi að taka á
þessu því hann er með íslenskan rík-
isborgararétt. Hann hefði náttúrlega
aldrei fengið íslenskan ríkisborgara-
rétt nema hún hefði líka óskað eftir
því. Það var hennar ósk. Hann verð-
ur síðan að velja þegar hann verður
sextán ára.“
Mikill hæfileikakarl
Hrafn segir ekki aðeins barnsmóður
sína hafa viljað að drengurinn byggi
á Íslandi heldur einnig fjölskylda
hennar. Þá helst út af aðstæðum í
landinu.
„Það var ósk hennar og hennar
fjölskyldu vegna þess að þau búa við
þannig aðstæður. Þau töldu að það
væri barninu fyrir bestu að flytja til
Íslands. Það er erfitt ástand þar núna
þegar Fídel er kominn á grafarbakk-
ann. Það veit enginn hvað gerist,
það gætu orðið blóðug átök og kerf-
ið gæti hrunið þegar hann deyr. Það
er ekki mjög gáfulegt að vera með
fimm ára gaur í þeirri stöðu. Í svona
tilfelli reynir maður að gera það sem
er barninu fyrir bestu. Maður er ekk-
ert mikið í eigingjörnum hugleiðing-
um,“ segir Hrafn. Hann hefur einn-
ig fóstrað listgenin sem Aron hefur í
blóðinu.
„Ég hef passað að fara með hann
í píanótíma, komið honum til lækn-
is og séð um allt sem snýr að þessu
íslenska kerfi. Þetta er mikill hæfi-
leikakarl. Við förum saman í píanó-
tíma hjá Önnu Valdísi. Svo hefur
hann þetta yndislega kúbanska blóð.
Hann er mikill dansari. Mamma
hans er búin að kenna honum eigni-
lega alla suður-amerísku dansana á
einu bretti. Hann á það til að dansa
salsa og lambada og merengue. Ég
er búin að læra þetta allt saman líka.
Ég er orðinn ægilegur merengue-
dansari.“
Öryggisatriði
Að sögn Hrafns er barnsmóðir hans
búin að vera hér á annað ár og vann
lengi á hamborgarabúllu Tómasar.
Hann segir þau hafa skipst á að fara
med Aron í leikskóla og að barns-
móðir hans vilji búa áfram á Íslandi
þar sem atvinnutækifæri eru fleiri
en á Kúbu. Hrafn segir þetta forræð-
ismál líka mikið öryggisatriði fyrir
drenginn ef annað þeirra skyldi falla
frá.
„Ef annað okkar yrði fyrir slysi
og myndi hverfa af jarðríki er þetta
spurning um hvernig þessu forræði
er skipt. Það er ágætt að hafa það
á hreinu. Maður veit aldrei. Fað-
ir minn lenti í bílslysi og var allt í
einu horfinn. Þá hugsaði ég „Guð
minn góður ef ég hefði haft einn dag
í viðbót til að fara yfir nokkra hluti“.
Þetta verður svo mikið auðveldara
og í ljósi þess held ég að það sé mjög
gott að fá mjög skýrar línur í svona
mál. Þannig er engin spurning þegar
kemur upp neyðarstaða hver réttur
barnsins er. Þetta er í fínum farvegi
og mun enda allt saman vel.“
22 föstudagur 14. ágúst 2009 helgarblað
Hrafn Gunnlaugsson og kúbversk barnsmóðir hans fara nú dómstólaleiðina til að skipta með sér forræði
yfir fimm ára syni þeirra. Drengurinn er með íslenskan ríkisborgararétt og hefur búið á Íslandi síðan hann
var tveggja ára. Hrafn segir barnsmóður sína ekki vilja fara með drenginn aftur til Kúbu enda meiri mögu-
leikar fyrir hann hér. Hann segir málið í fínum farvegi og það muni enda vel að lokum.
BARNSMÓÐIR VILL
DEILA FORRÆÐINU
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
LiLja KatrÍn Gunnarsdóttir
„Ég held að það séu
fleiri tækifæri fyrir ung-
an ofurhuga eins og
hann hér á Íslandi en á
Kúbu.“
Feðgarnir saman Aron hefur verið hjá
Hrafni síðan hann var tveggja ára. Nú vill
móðir hans deila forræðinu.
LjósMyndari: EGGErt jóHannEsson
Með mömmu Hér er barnsmóðir
Hrafns með Aroni og leikkonunni
Herdísi Þorvaldsdóttur á frumsýningu
Kardemommubæjarins.
LjósMyndari: BjÖrn BLÖndaL
Lærir af syninum Aron hefur lært
alla helstu suður-amerísku dansana
af móður sinni og Hrafn er líka orðinn
sleipur á dansgólfinu.
LjósMyndari: HEiða HELGadóttir