Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2009, Blaðsíða 64
n Fótboltamanninum knáa Arnari
Gunnlaugssyni gengur ekkert allt-
of vel í boltanum. Hann gekk ný-
lega til liðs við Valsmenn sem hafa
ekki gert gott mót í Pepsi-deildinni
þrátt fyrir að vera með stútfullt lið
af stjörnum. En Arnar virðist svo
sannarlega hafa heppnina með
sér í ástum í staðinn þessa dagana.
Sást til kappans á stefnumóti með
ljóshærðri þokkadís á Vegamótum
þar sem þau létu vel að hvort öðru
yfir drykkjum - Arnar með óáfeng-
an. Stúlkan hló dátt að
kímnigáfu Skaga-
mannsins enda á
hann það til að reita af
sér brandarana. Ekki
er langt síðan leiðir
Arnars og leikkon-
unnar Pöttru Sri-
yanonge skildu
en þau höfðu
verið saman um
dágott skeið.
Þingmaður segir: Já!
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
ArnAr á deiti
n Rúmlega eitt þúsund manns eru
skráðir í aðdáendaklúbb góðkunn-
ingja lögreglunnar, Lárusar Bjarna
Svavarssonar, betur þekktur sem
Lalli Johns, á Facebook. Athygli vekur
að bróðurpartur aðdáendanna er í
yngri kantinum og margir á grunn-
skólaaldri. Einn af aldursforsetum
klúbbsins er sjálfur Ásgeir Þór Dav-
íðsson sem gengur yfirleitt undir við-
urnefninu Geiri á Goldfinger. Hann
fer fögrum orðum um Lalla á síðunni.
„Ef Lalli yrði forseti gætum við mætt
á Bessastaði á brunaútsölu því ÁTVR
færi fyrst á haus-
inn og húsgögnin á
Bessastöðum seld
en Lalli færi aldrei
úr landi né segði af
sér,“ skrifar Geiri og
bætir við: „Lalli er
töffari lífs og dauða.“
„töffAri lífs
og dAuðA“
n Anna Kristine Magnúsdóttir er
ein þeirra sem taka þátt í jólabóka-
flóðinu í ár. Hún leggur nú lokahönd
á viðtalsbók sína sem ber sama nafn
og vinsælir útvarpsþættir hennar hér
áður fyrr, Milli
mjalta og
messu. Þeir
sem Anna
ræðir við
eru Ragn-
ar Axelsson
ljósmynd-
ari, Erla Jó-
hannesdótt-
ir, sem missti
fjölskyldu sína í snjóflóði, Skúli Lór-
enzson miðill, Hjörtur Magni Jó-
hannsson fríkirkjuprestur og Unnur
Berglind Guðmundsdóttir, strúta-
bóndi í Suður-Afríku. Anna hélt mikla
veislu með hátt í hundrað manns á
dögunum þegar öll viðtölin voru til-
búin. Veisluhöldin þykja mikið þrek-
virki, enda greindist Anna Kristine
með parkinsonsveikina í vor en hún
naut aðstoðar vina sinna við undir-
búning og matargerð fyrir gleðina sem
var sannkallað kreppupartí, vinirnir
lögðu til matinn og gestir komu sjálfir
með drykkina.
KreppupArtí og
bóKAútgáfA
„Þessi dagsetning var ákveðin síðast-
liðinn vetur og þá sáum við að sjálf-
sögðu ekki fyrir að enn væri starfandi
þing og við værum í þessu máli. En
það er með þetta eins og annað að
lífið heldur áfram, hvort sem það er
Icesave eða annað. Þetta mál skyggir
ekkert á daginn. Alls ekki,“ segir Illugi
Gunnarsson þingmaður. Hann geng-
ur að eiga sína heittelskuðu Brynhildi
Einarsdóttur á Flateyri um helgina.
Mikill undirbúningur liggur að baki
fögnuði sem þessum en sökum anna
hefur Illugi ekki getað tekið virkan
þátt í honum. „Nei, það væri lygi ef ég
segði að ég hefði gert það. Það er aug-
ljóst að það eru aðrir sem gera meira
en ég,“ segir Illugi hlæjandi.
Illugi segir tilvonandi hjónin stefna á
brúðkaupsferð þó mikið mæði á þing-
mönnum. „Við finnum út úr því. Ég
get lofað þér því að við förum hvorki
til Hollands né Englands. Það verður
ekkert Icesave-þema í þeirri ferð.“
Ekkert Icesave-þema verður í brúðkaupsferð Illuga Gunnarssonar þingmanns:
hvorKi til hollAnds né englAnds