Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2009, Síða 2
Landsbanki Íslands á einungis 12. og
13. veðrétt í eitt af þremur fiskiskip-
um útgerðarfélags Magnúsar Krist-
inssonar, Bergs-Hugins, og þann
fiskveiðikvóta sem þeim fylgir. Ís-
landsbanki á hina veðréttina. Þetta
kemur fram á veðbókarvottorðum
skipanna þriggja, Smáeyjar, Vest-
mannaeyjar og Bergeyjar. Skipin eru
veðsett upp fyrir haus út frá veðbók-
arvottorðunum að dæma og má ætla
að veðin hafi rýrnað til muna sökum
lækkunar á kvótaverði.
DV greindi frá því í gær að Magn-
ús ætti í samningaviðræðum við
skilanefnd Landsbankans um af-
skriftir um 50 milljarða króna skulda
eignarhaldsfélaga sinna við Lands-
bankann. Blaðið fullyrti að búið væri
að ganga frá samkomulaginu um af-
skriftirnar við Magnús. Páll Bene-
diktsson, upplýsingafulltrúi Lands-
bankans, bar það hins vegar til baka
í gær að búið væri að ganga frá sam-
komulaginu um afskriftirnar. Hann
sagði hins vegar að viðræður ættu
sér stað við Magnús um uppgjör
skulda hans við bankann.
Græða meira á að
setja Magnús ekki í þrot
Samkvæmt heimildum DV eru þess-
ar viðræður hins vegar langt á veg
komnar og fela þær meðal annars
í sér að Magnús standi í skilum við
bankann á þeim lánum sem hann
er í persónulegum ábyrgðum fyrir
á meðan meirihluti annarra skulda
Magnúsar og eignarhaldsfélaga hans
verði afskrifaðar. Skilanefndin þarf
að afskrifa þessi lán vegna þess að
veðin fyrir lánunum eru verðlaus og
skilanefndin getur ekki náð fénu inn
í þrotabúið og neyðist til að afskrifa
hluta skuldanna því eignir Magnúsar
duga hvergi nærri fyrir þeim.
Frétt DV frá því í gær stendur því
nema að því leyti að ekki er búið að
ganga endanlega frá samkomulag-
inu við Magnús og ekki er því búið
að afskrifa hluta skulda hans endan-
lega, þó nærri óhjákvæmilegt sé að
það gerist á endanum.
Geta ekki leyst útgerðina til sín
Yfirlitið yfir veðböndin á útgerð
Magnúsar sýna fram á að skilanefnd-
in getur tæplega gengið að veðum
sínum upp á rúmlega 80 milljónir
króna í skipinu Smáey í útgerð Magn-
úsar þar sem Íslandsbanki á veðrétti
á undan þeim. Skilanefnd Lands-
bankans er því í þeirri stöðu að veðin
sem þrotabú gamla Landsbankans á
í eignum Magnúsar eru ekki nema
að litlu leyti í verðmætustu eignum
Magnúsar: skipunum og kvótanum,
og geta því ekki leyst þær til sín.
Samkvæmt heimildum blaðsins
felur samkomulagið meðal annars
í sér að skilanefnd Landsbankans
muni ekki ganga að veðum sínum í
útgerð Magnúsar og að hann muni
endurgreiða þær skuldir sem hann
er í persónulegum ábyrgðum fyr-
ir á næstu árum. Skilanefndin mun
einnig leysa til sín allar aðrar eignir
Magnúsar sem hún getur til að eiga
upp í kröfur sínar gegn honum, að
sögn Páls Benediktssonar, upplýs-
ingafulltrúa Landsbankans. Líklegt
er að þar sé meðal annars um að
ræða Toyota-umboðið á Íslandi og
eins Toyota-umboðið í Danmörku,
sem er í eigu Magnúsar.
Tapa á því að setja Magnús í
þrot
Því má segja að skilanefndin geti
tapað meiru á því að gera veðkall hjá
Magnúsi og setja hann í þrot frekar
en að komast að samkomulagi við
hann um að láta hann borga hluta
skuldanna til baka á næstu árum í
gegnum eignarhluta hans í útgerðar-
félaginu. Ef skilanefndin setti Magn-
ús í þrot myndu eignir Bergs-Hugins
fara til Íslandsbanka að mestu leyti
þar sem bankinn á veðrétti í þær
eignir á undan Landsbankanum auk
þess sem þessar eignir hafa rýrnað
mikið í verði. Skilanefndin myndi
því sennilega ekki fá neitt upp í kröf-
ur sínar á hendur Magnúsi því skila-
nefndin bindur mestar vonir við að
fá upp í kröfur sínar út úr útgerðarfé-
laginu á næstu árum.
Slíkt samkomulag, eins og unn-
ið er að við Magnús, þjónar því bet-
ur hagsmunum og hlutverki skila-
nefndarinnar: Að hámarka eignir
bankans og reyna að fá eins mikið og
mögulegt er fyrir útistandandi kröf-
ur sínar. Því er líklegt að skilanefnd-
in meti það sem svo að hún væri að
vinna gegn hagsmunum kröfuhaf-
anna og væri að kasta fjármunum á
glæ með því að setja hann í þrot.
2 miðvikudagur 19. ágúst 2009 fréttir
ÚTGERÐ MAGNÚSAR ER
VEÐSETT ÍSLANDSBANKA
InGI F. VIlhjálMsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
„Það þarf að afskrifa
kröfuna af því að þú
færð hana hvergi ann-
ars staðar.“
Veðbandavottorð fyrir útgerð Magnúsar Kristinssonar sýnir fram á að Landsbankinn á 12. og 13. veðrétt í
skipum hans og kvóta. Útgerðin er veðsett Íslandsbanka að mestu. Skilanefnd Landsbankans getur því ekki
hirt til sín útgerðina til að eiga upp í tugmilljarða króna kröfur á hendur Magnúsi. Skilanefndin mun leysa
til sín þær eignir Magnúsar sem hún getur. Viðskiptasaga Magnúsar við Landsbankann segir meira en mörg
orð um lánastefnuna í bankanum á liðnum árum.
Veðsett Íslandsbanka Eignir útgerðarfyrirtækis Magnúsar,
Bergs-Hugins, eru veðsettar Íslandsbanka að mestu en ekki
Landsbankanum. Skilanefnd Landsbankans getur því ekki
gert veðkall í eignum útgerðarfyrirtæksins til að ná upp í
tugmilljarða króna útistandandi kröfur á hendur Magnúsi og
félögum tengdum honum.