Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2009, Qupperneq 10
„Ég er algjörlega þeirrar skoðunar að
það verði að fara í skuldaleiðréttingu
hjá heimilum og fyrirtækjum. Fyrr
störtum við ekki íslensku efnahags-
lífi. Það er algjörlega ljóst að það mun
verða kostnaður af því en það er kostn-
aður sem við verðum að taka á okk-
ur af hruninu,“ segir Tryggvi Þór Her-
bertsson, hagfræðingur og þingmaður
Sjálfstæðisflokksins á Alþingi.
20 prósenta niðurfelling húsnæð-
isskulda myndi kosta jafnmikið og rík-
ið lagði í endurfjármögnun nýju rík-
isbankanna þriggja; um 285 milljarða
króna.
Peningarnir hverfa ekki
Árni Páll Árnason, félags- og trygginga-
málaráðherra, sagði í samtal við RÚV í
ágústbyrjun að ekki væri hægt að ráð-
ast í almenna niðurfellingu skulda.
Það myndi þýða að fólk sem ekki hafi
stofnað til skulda myndi þurfa greiða
lánin fyrir þá sem stofnuðu til þeirra.
Peningarnir hverfi ekki.
Tryggvi Þór er alls ekki sammála
Árna Páli. Ástandið sé orðið þannig
að óhjákvæmilegt sé að einhvers kon-
ar niðurfelling á skuldum almennings
eigi sér stað.
Samkvæmt skýrslu Seðlabank-
ans frá því í byrjun sumars myndi 20
prósent niðurfelling húsnæðisskulda
almennings kosta um 285 milljarða
króna. Í því samhengi má þess geta að
heildarskuld íslenska ríkisins vegna
Icesave er talin vera um 365 milljarðar
króna á núvirði. Fyrsta afborgun ríkis-
ins mun, að öllu óbreyttu, nema um
89 milljörðum króna.
Óvíst að 20% dugi
Spurður hvernig Íslendingar geti bætt
skuldbindingum af 20 prósent niður-
fellingu á sig svarar Tryggvi: „Höfum
við efni á því að gera það ekki? Ástand-
inu núna má líkja við spíral sem dreg-
ur efnahagslífið niður ef ekkert verður
að gert. Bæði heimili og fyrirtæki eru
að kikna undan skuldabyrðinni núna.
Það virðist engin von í sjónmáli um að
gengi og annað slíkt styrkist þannig að
hlutirnir horfi til betri vegar. Það ein-
faldlega verður einhvern veginn að
starta hagkerfinu,“ segir Tryggvi Þór og
bætir við að almenn leiðrétting skulda
heimilanna sé góð leið til þess en að
slíka leið þyrfti vitanlega að útfæra vel
og nákvæmlega.
Tryggvi segir enn fremur ljóst að
virkni 20 prósent niðurfellingar skulda
heimilanna yrði allt önnur nú en hún
hefði orðið í vor, hefði verið gripið til
hennar þá. „Það er ekkert víst að þessi
leið sé fær núna. Ástæðan er sú að hér
hefur ekki verið tekið á hlutunum.
Það er ekki víst að 20 prósent leiðin
dygði,“ segir hann en viðurkennir að
starfskraftar hans síðustu vikurnarar
hafi allir farið í málefni tengd Icesa-
ve. „Stjórnvöld mega hins vegar ekki
stinga hausnum í sandinn. Þau verða
að gera eitthvað í þessum hlutum.“
Á við endurfjár-
mögnun ríkisbankanna
Til að setja 285 milljarða króna í sam-
hengi má þess geta að landsfram-
leiðsla Íslendinga árið 2008 var fimm-
föld á við þann kostnað sem myndi
hljótast af 20 prósent niðurfellingu. Þá
sagði Morgunblaðið frá því í mars að
Kaupþing hefði lánað stærstu eigend-
um sínum 478 milljarða króna í júní í
fyrra, á þávirði. Þau lán eru umtalsvert
hærri en kostnaður vegna 20% niður-
fellingar á húsnæðisskuldum almenn-
ings á íslandi, yrði slíkt ákveðið. Þá má
geta þess að 285 milljarðar eru nánast
sama upphæð og ríkið lagði í endur-
fjármögnun nýju bankanna þriggja í
sumar.
Erfiður vetur fram undan
Tryggvi telur að haustið geti orðið
mjög erfitt fyrir marga. Sumarið hafi
verið mjög gott hér sunnanlands og
mörgum sem hann þekki hafi tek-
ist að gleyma áhyggjunum um stund.
„Nú er fólk að vakna til veruleikans
aftur. Fólk er byrjað að vinna og vet-
urinn er fram undan. Ég held að þetta
sé að verða mjög þungt,“ segir hann.
Aðspurður segir hann að niðurfelling
skulda sé líka að hluta réttlætismál fyr-
ir almennig. Gjaldþrot stakra heimila
rati sjaldnast í fjölmiðla og margir séu
í vandræðum.
Tryggvi segir enn fremur að stjórn-
málamönnum á Íslandi hafi ekki tek-
ist að gefa þjóðinni neina framtíðar-
sýn. „Valdhafarnir segja að það sé búið
að gera svo mikið. Það
er ekki rétt. Það
er ekki fyrr
en fólk finn-
ur fyrir að-
gerðun-
um, sem
búið er
að gera
nógu
mik-
ið,“ segir
Tryggvi
Þór.
Umsjón: BaldUr GUðmUndsson, baldur@dv.is / neytendur@dv.is
10 miðvikudagur 19. ágúst 2009 neytendur
Kammakarlo Barnaföt
Bæjarlind 12 Kópavogi
s.554-5410
www.kammakarlo.is
ÚTSALAN
í fullum gangi!
„Það er ekki fyrr en fólk
finnur fyrir aðgerðun-
um sem búið er að gera
nógu mikið.“
Tryggvi Þór Herbertsson, hagfræðingur og alþingismaður, segir
að stjórnvöld megi ekki stinga hausnum í sandinn þegar kemur
að skuldavanda heimilanna. Ráðast verði í almenna niðurfell-
ingu húsnæðisskulda. Hann segir bæði fyrirtæki og heimili vera
að kikna undan skuldabyrðinni og hefur áhyggjur af komandi
vetri. Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra segir ekki hægt að
ráðast í almenna niðurfellingu skulda.
LÁNAAFSKRIFTIR
NAUÐSYNLEGAR
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
KoSTNAÐUR vIÐ ýmSAR AÐGERÐIR
- í milljörðum króna -
20% niðurfelling húsnæðislána 285 milljarðar kr.
landsframleiðsla 2008 1.465 milljarðar kr.
lán Kaupþings í fyrra til eigenda bankans 478 milljarðar kr.
Kostnaður vegna Icesave 356 milljarðar kr.
Endurfjármögnun nýju bankanna 280 milljarðar kr.
Peningarnir hverfa ekki Árni Páll
Árnason félagsmálaráðherra segir
almenna skuldaniðurfærslu ekki koma
til greina.
Enn sömu skoðunar Tryggvi
Þór Herbertsson þingmaður segir
nauðsynlegt að ráðast í skulda-
niðurfellingu hjá almenningi.
Mótmæli við Landsbankann
Þingmaður óttast að veturinn
verði mörgum þungur.