Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2009, Síða 14
Miðvikudagur 19. ágúst 200914 heilsa
ÞRAUTAKÓNGUR
í hundafimi
TRX-þjálfunarkerfið á uppruna sinn
að rekja til bandaríska sjóhersins og
hefur slegið í gegn í Bandaríkjun-
um. Einar Carl Axelsson, nuddari og
einkaþjálfari, segir að í æfingunum
vinni fólk með eigin líkamsþyngd í
stað lóða og þurfi engin hjálpartæki
önnur en „strappa,“ eða nælonbönd
sem nýtt eru í hinum mismunandi
æfingum.
Einar Carl leiðbeinir á fyrsta TRX-
námskeiðinu sem haldið er á Íslandi
en það hefst i Heilsuakademíunni
í september og er þegar byrjað að
bóka í tímana.
TRX-æfingarnar byggja upp jafn-
vægis og djúpvöðvakerfi líkamans
ásamt því að auka liðleika, styrk og
sprengikraft. Þjálfunarkerfið býður
upp á allt að þrjú hundruð útfærslur
af æfingum fyrir alla vöðva líkamans,
eftir getu hvers og eins. Hversu erfið-
ar æfingarnar eru byggist á hvernig
fólk beitir líkamanum. Þannig geta
bæði byrjendur og lengra komnir
tekið þátt í sama tímanum þar sem
fólk aðlagar æfingarnar eigin getu.
Einar Carl er einn þeirra sem sótt
hafa leiðbeinendanámskeið TRX hjá
Hreysti en Heilsuakademían býður
ein upp á TRX. Einfaldleikinn er það
sem heillar við æfingarnar, segir Ein-
ar Carl.
Íris Huld Guðmundsdóttir, einn
eigenda Heilsuakademíunnar, segist
viss um að TRX verði nýja æðið á Ís-
landi. „Ég hef ekki prófað þetta enn-
þá en þetta lítur út fyrir að vera mjög
spennandi,“ segir hún.
erla@dv.is
Fjórir fyrrverandi starfsmenn
Kaupthing Singer & Friedland-
er (KSF) bankans í Bretlandi ætla
að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoni
Íslandsbanka næsta laugardag.
„Ástæðan er sú að vinur okkar Jam-
es Gribbles, sem vann með okkur í
KSF, lenti í hræðilegu slysi í nóvem-
ber 2008 á ferð sinni um Afríku og
lamaðist hann,“ segir Þóra Helga-
dóttir, hagfræðingur og fyrrver-
andi starfsmaður KSF. Ásamt henni
munu þeir Oliver, Richard og Henri
taka þátt í hlaupinu á laugardaginn.
Ætlunin er að safna áheitum fyrir
styrktarsamtök sem foreldrar James
stofnuðu fyrir hann og bera nafnið
Puffin Magic Foundation.
HlAUpA í lUNdAbúNiNGUm
„James sem er Ástrali kom til fyrst til
Íslands árið 2004 og fór þá á lunda-
veiðar. Veiddi hann lunda sem
hann skírði Pétur. Í kjölfarið keypti
hann lundabrúðu sem hefur fylgt
honum á ferðum um allan heim
síðan. Brúðan situr nú við hlið hans
á endurhæfingarstöðinni í Ástralíu,“
segir Þóra. Líklegt er að þau muni
vekja töluverða athygli í hlaupinu
á laugardaginn. Að sögn Þóru ætl-
ar Oliver að hlaupa heilt maraþon
en Þóra, Richard og Henri ætla að
hlaupa 10 kílómetra í lundabúning-
um. Hún segir að Bretarnir þrír sem
ætli að hlaupa með henni hafi allir
áður komið hingað til lands nokkr-
um sinnum vegna starfa sinna fyrir
KSF og þeir séu mjög hrifnir af landi
og þjóð.
ÓsKAR efTiR áHeiTUm
Reykjavíkurmaraþon hefur verið
þekkt fyrir það á síðustu árum að
bjóða hlaupurum upp á að styrkja
ýmis góðgerðarsamtök með áheit-
um. Framtak Þóru og félaga á því
vel heima í þessu hlaupi. Hafa þau
skorað á vini og vandamenn að
styrkja samtökin með áheitum.
„James lenti í hræðilegu slysi í lok
síðasta árs og lamaðist. Hann slas-
aðist þegar hann var að ferðast í
Sambíu. Það leið yfir James vegna
hita og hann féll aftur fyrir sig í harð-
an sandinn en við fallið brotnuðu
tveir hryggjarliðir og hann varð fyrir
mænuskaða. Í kjölfarið missti Jam-
es allan mátt fyrir fyrir neðan axlir.
James er nú búsettur í Sydney og er
í stífri endurhæfingu sem hefur skil-
að góðum árangri en hann hefur
endurheimt nokkurn mátt í hönd-
um og fótum. Það er einstakt að
fylgjast með framförum James sem
hefur tekist á við þessa miklu áskor-
un með ótrúlegum styrk,“ segir Þóra
sem vonast eftir dyggum stuðningi
við þetta góða framtak þeirra. Þeir
sem vilja styrkja samtökin er bent á
vefsíðuna puffinmagic.org.au.
as@dv.is
Þóra Helgadóttir hagfræðingur, ætlar ásamt þremur Bretum að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoni næsta laug-
ardag. Þrjú þeirra munu hlaupa í lundabúningum til styrktar samtökum fyrrum vinnufélaga þeirra sem
lamaðist í slysi í Afríku í vetur. James Gribbles var mikill aðdáandi íslenska lundans.
lundabúningum
Ætla að hlaupa í
Í TRX er unnið með eigin líkamsþyngd í stað lóða og lagar fólk æfingarnar að getu:
Einfaldar æfingar úr sjóhernum
DV0908189402 Nýtt æði Fyrstu námskeiðin á Íslandi
fara af stað í september en TRX hefur
slegið í gegn í Bandaríkjunum.
MyNd Hreysti
Lundaaðdáandi James
Gribbles með lunda þegar hann
kom fyrst til Íslands árið 2004.
Lamaðist James Gribbles lamaðist þegar það leið yfir hann vegna hita á
ferðalagi hans í Sambíu í Afríku. Hann féll aftur fyrir sig og við það brotnuðu tveir
hryggjarliðir og varð hann fyrir mænuskaða.