Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2009, Side 23
Hver er maðurinn? „Plötuspilari hins
opinbera og þriggja barna faðir frá
Akranesi.“
Hvað drífur þig áfram? „Trúin á að
dagurinn á morgun verði aðeins betri
en dagurinn í dag.“
Hvar ertu uppalinn? „Á Akranesi og
hjá Ríkisútvarpinu.“
Uppáhaldshljómsveit í æsku? „Þær
voru svo margar. Ætli fyrsta hafi ekki
bara verið Kiss, síðan kom Iron Maiden
og svo Utangarðsmenn. Þetta var alltaf
að breytast.“
Enn í dag? „Sá er færi síðastur úr
plötusafninu er sennilega Neil Young.“
Hefði ekki verið sorglegt ef
tónleikar Rásar 2 hefðu dottið upp
fyrir? „Þeir duttu upp fyrir þarna eitt ár,
2006. Þetta er kannski ekki lífsnauðsyn-
legt en gerir lífið aðeins skemmtilegra.“
Hvað hefur Rás 2 oft staðið fyrir
tónleikum á Menningarnótt? „Þetta
er í sjötta skipti.“
Hvað gerið þið ráð fyrir því að
Hljómskálagarðurinn rúmi marga?
„Þeir segja að 15.000 geti auðveldlega
verið þar. En þetta er góður og
skemmtilegur staður í hjarta borgarinn-
ar.“
Sérðu fyrir þér að tónleikarnir
verði þarna í framtíðinni? „Það
verður eiginlega bara að koma í ljós á
laugardaginn.“
Hvað finnst þér um þetta
fyrirkomulag að hafa ekki eina
risatónleika eins og venjan er? „Ég
eiginlega veit það ekki heldur fyrr en á
laugardaginn. Mér hefur alltaf fundist
Menningarnótt stórskemmtileg og hún
verður það örugglega áfram.
Persónulega finnst mér þó að halda eigi
eina risatónleika á Arnarhóli eða þar í
kring þar sem öll hugsanleg tæki og tól
eru notuð og fólk getur komið saman
eitt kvöld á ári. Það myndast einhver
sérstök stemning að standa í svona
mannhafi þar sem nokkrir einstaklingar
eru fókuspunkturinn.“
Hver kostar tónleikana í ár
„Höfuðborgarstofa leggur sitthvað til,
Síminn styrkir þetta og svo Rás 2. Það er
samt algert kraftaverk að hafa komið
þessu á laggirnar með þessu fjármagni.
Þetta er aðeins brot af því sem hefur
verið. Þetta er bara gert á hjartanu og
viljanum. Og tónlistarmennirnir
samþykktu að koma fram á 2009-
forsendum.“
Ætlar þú að fylgjast með kvennalandsliðinu á em?
„Já, örugglega.“
Oddný Blöndal MagnúSdóttiR,
18 ÁRA NEMI.
„Já, þokkalega.“
gUðMUndUR BiRgiR HalldóRS-
SOn,
34 ÁRA TóNlISTARMAðUR.
„Þarf maður ekki að gera það?“
MagdalEna BiRgiSdóttiR,
18 ÁRA NEMI.
„Ég geri ekki ráð fyrir því. Ég er ekki
mikið í íþróttum.“
HallgRíMUR ÁSgEiRSSOn,
68 ÁRA gAMlINgI.
Dómstóll götunnar
ólafUR pÁll gUnnaRSSOn
Allt útlit var fyrir að engir stórtónleik-
ar yrði á Menningarnótt í ár þar sem
markmiðið var að dreifa frekar
mannfjöldanum á þrjú minni svið.
Rás 2 fékk svo það verkefni að
skipuleggja tónleika í Hljómskála-
garðinum á síðustu stundu og settu
ólafur Páll gunnarsson og hans fólk
flotta tónleika á laggirnar eins og
venjan er.
gert á hjartanu
og viljanum
„Ég hugsa ekki, nei. Hef ekkert
brjálaðan áhuga á þessu.“
BiRna ORRadóttiR,
15 ÁRA NEMI
maður Dagsins
Ekkert verður sagt með neinni ná-
kvæmni hvenær halla tók undan
fæti hjá Landsbankanum. Þó var svo
komið snemma árs 2008 að alþjóð-
lega matsfyrirtækið Moody‘s hafði
dauðans áhyggjur af Icesave-reikn-
ingunum og lét ekki segjast þótt
Davíð Oddsson, þá seðlabanka-
stjóri, legði á sig að verja vini sína í
bankanum á fundi með hátt settum
bankamönnum í London.
Í trúnaðarplaggi Seðlabank-
ans frá 12. febrúar í fyrra, sem ber
merki þess að vara samið af Davíð
og hugsanlega nánum samverka-
manni hans í bankanum, stendur
orðrétt: „Moody‘s hafði með sama
hætti áhyggjur af öllum bönkunum,
en þó einna mest af einum þætti,
sem snýr að Landsbanka Íslands,
en þar er um að ræða hve hinn mikli
innlánsreikningur Icesave kunni að
vera kvikur og háður trausti og trún-
aði á markaði og ekki aðeins trausti
á Landsbanka Íslands, heldur Ís-
landi og íslenska bankakerfinu, og
jafnframt hve samkeppni á þessum
markaði færi nú mjög harðnandi
vegna lokunar annarra markaða.“
Og hverju skyldi nú Davíð og
samverkamenn hans í Seðlabank-
anum hafa svarað ofangreindri
gagnrýni og áhyggjum manna
frá Moody‘s? „Seðlabanka-
menn fóru yfir þau rök sem
væru gegn því að þessi inn-
lánsreikningur væri jafn
ótraustur og Moody‘s hefðu
áhyggjur af, en ekki er lík-
legt að öllum efasemdum
þeirra hafi verið eytt.“
Orðhengilsháttur og lagastagl
Nú stendur Davíð á Austurvelli
og mótmælir hverju? Að
þjóðinni sé ætlað að bera
ábyrgð á innistæðum í
útlöndum?
Á sama tíma ryðst
fram á ritvöllinn
Kjartan Gunn-
arsson, helsti
útsendari sér-
hagsmunanna í
Landsbankan-
um og bankaráðs-
maður þar fram
að hruni og fram-
kvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokks-
ins í aldarfjórð-
ung. Hann heldur
því fram
að ekki hafi verið nein ríkisábyrgð á
Landsbankanum, að ekki hafi verið
nein ríkisábyrgð á innlánsreikning-
um hans erlendis og að ríkið beri
enga ábyrgð á Tryggingarsjóði inni-
stæðueigenda.
Allt er þetta orðhengilsháttur
manns sem reynir að koma sér und-
an ábyrgð og ætti að biðja þjóðina
afsökunar eins og fjármálaráðherra
nefndi í Hólaræðu sinni um síðustu
helgi.
Eftir að Davíð og hans menn sáu
með eigin augum rauðblikkandi
ljósin í London var stórkostlegt
og vítavert gáleysi af hálfu
stjórnvalda að leyfa
Landsbankamönn-
um að halda áfram
að gera strandhögg
á sparifjármark-
aði í Bretlandi og
Hollandi. Fram-
vindan var öll með
leyfi, vitund og vilja
stjórnvalda löngu
eftir að þeim varð
ljóst hvert stefndi og
hver þjóðarhættan var.
Þetta tómlæti var svo al-
varlegt að mikil hætta var
á fullri sök fyrir dómi
sem leitt hefði
til
skaðabóta og kröfu um að Íslend-
ingar bæru allan kostnað.
Hundurinn sagði ekki ég...
Það er hreint bull hjá Kjartani að
Davíð og önnur stjórnvöld hafi
enga ábyrgð borið á athæfi hans í
Landsbankanum. Í fyrsta lagi er
Tryggingarsjóður innstæðueigenda
sjálfseignarstofnun í skjóli ríkisins.
Viðskiptaráðherra velur í öðru lagi 3
fulltrúa í stjórn sjóðsins. Í þriðja lagi
ber ráðherra lögum samkvæmt að
setja reglugerð um sjóðinn, meðal
annars um tryggingu á innistæðu.
Auk þess hlutaðist ríkið til um
að gera Icesave-samning við full-
trúa innistæðueigenda í Hollandi
og Bretlandi sem í raun höfðu
sama rétt og innistæðueigendur hjá
Landsbankanum á Selfossi. Samn-
ingurinn felur í sér lán sem Hol-
lendingar og Bretar veita Trygg-
ingarsjóði innstæðueigenda sem
notað er til að endurgreiða bresk-
um og hollenskum sparifjáreigend-
um það sem þeim bar að lögum.
Lánið þurfu nágrannar okkar að
veita vegna þess að íslensk stjórn-
völd höfðu sýnt vítavert gáleysi og
forsómað að fjármagna sjóðinn eða
grípa til sérstakra annarra ráðstaf-
ana meðan inn í landið streymdu
1.000 milljarðar króna frá breskum
og hollenskum sparifjáreigendum.
Lánin fengust aðeins gegn ríkisá-
byrgð.
Kjartan og Davíð rísa upp til
þess eins að segja: Við berum
enga ábyrgð, við þurfum ekki að
borga.
Þeir vita betur og bera mikla
ábyrgð sem þeir reyna nú að
koma sér undan.
Á flótta undan ábyrgðinni
kjallari
1 Stofnaði auði með kúluláns-
gróða
Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar
Capital, var ein þeirra sem innleystu
mikinn kúlulánsgróða í góðærinu. Síðan
lagði hún fé í stofnun Auðar Capital.
2 tugmilljarða skuldir Magnús-
ar afskrifaðar
Magnús Kristinsson hefur samið við
landsbankann um afskriftir stórs hluta 50
milljarða króna skuldar hans.
3 Höfnuðu hæfasta umsækj-
andanum
Meirihluti sveitarstjórnar Rangárþings
eystra klofnaði vegna ráðningar
skólastjóra grunnskólans á Hvolsvelli.
4 Jessica of full fyrir Romo
Slúðurmiðlar halda því nú fram að
ástæðan fyrir sambandsslitum Tony
Romos og Jessicu Simpson hafi verið
drykkja söngkonunnar.
5 Hvalurinn sprakk á planinu
Sprengja úr veiðiskutli sprakk ekki fyrr en
hvalskurðarmenn voru að vinna við
hvalinn í hvalstöðinni í Hvalfirði.
6 Hornsteinar davíðs og afmæli
foreldranna
Davíð Oddsson lagði sitt hvorn
hornsteininn að byggingum á
afmælisdögum foreldra sinna.
7 Samstarfskonur giftar sama
manninum
Tvær konur í kínverskri verksmiðju áttu
fleira sameiginlegt en þær töldu í fyrstu,
enda giftar sama manninum.
mest lesið á DV.is
JóHann
HaUkSSOn
útvarpsmaður skrifar
„Það er hreint bull hjá
Kjartani að Davíð og
önnur stjórnvöld hafi
enga ábyrgð borið á
athæfi hans í Lands-
bankanum.“
umrÆða 19. ágúst 2009 miðvikudagur 23
mynDin
Mikil umferð síðdegis Þótt Reykjavík sé ekki ýkja fjölmenn borg hvað íbúa varðar getur umferðin verið þétt og hæg á háanna-
tímum. Mynd RóBERt REyniSSOn