Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Qupperneq 8
8 miðvikudagur 30. september 2009 fréttir
Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor hefur ásamt fjölda annarra miklar efasemdir um trúverðugleika
þeirra rannsókna á bankahruninu sem senn er að ljúka. Of margir standi of nærri persónum og leikendum
hrunsins og í upphafi hefði átt að fá liðsinni hlutlausra, erlendra sérfræðinga. Páll Hreinsson, formaður
rannsóknarnefndar Alþingis, hefur unnið margvísleg verk fyrir forsætisráðuneytið í nærri tvo áratugi.
TrausTið í rúsT
eins og bankarnir
„... fólk segir að
gömlu helminga-
skiptaflokkarnir hafi
ráðið lögum og lof-
um í réttarkerfinu.“
„Innlendir rannsakendur gætu hafa
staðið of nærri þeim atburðum sem
urðu til þess að bankakerfið féll, sér-
staklega í landi þar sem stjórnmála-
stéttin hefur mótað réttarkerfið eftir
sínu höfði.“
Þannig tekur prófessor Þorvaldur
Gylfason hagfræðingur til orða í nýrri
grein á fjölþjóðlega vefnum voxEU
sem haldið er úti af hópi fræðimanna
af mismunandi þjóðerni sem reglu-
lega birta greinar á vefnum.
Þorvaldur segir í greininni að all-
ar götur frá falli bankanna fyrir ári
hafi raddir verið háværar um að er-
lendir aðilar yrðu fengnir til að rann-
saka ofan í kjölinn hvað fór úrskeiðis.
„Það er alvarlegt mál fyrir hvaða land
sem vera skal ef nýlega einkavædd-
ir bankar hrynja með þeim afleið-
ingum að erlendar kröfur sem nema
fjórfaldri eða fimmfaldri landsfram-
leiðslu tapast, einkum ef fjármála-
eftirlit og allur almenningur hefur
grunsemdir um að framin hafi verið
afbrot.“
Rýr trúverðugleiki
Þorvaldur vekur athygli lesendanna
á að krafan um að erlendir aðilar
rannsaki bankahrunið endurspegli
þá skoðun almennings að náin tengsl
milli stjórnmálastéttarinnar, bank-
anna og viðskiptajöfranna geti sett
rannsóknina í uppnám og rýrt trú-
verðugleika allra rannsókna á vegum
yfirvalda í augum þorra almennings.
„Í samfélagi sem einkennist af
veiku eftirliti og menningu sem ófær
er um að eyða tortryggni er þörf fyr-
ir óhlutdræga utanaðkomandi aðila
til verka – til dæmis virta embættis-
menn eða fræðimenn – til þess að
segja fólki hvað fór úrskeiðis og til
þess að setja saman trúverðuga lýs-
ingu á samtímasögunni.“
Þorvaldur telur að stjórnvöld
hafi stuðlað að tortryggni með mjög
ákveðinni andstöðu sinni við að fela
erlendum sérfræðingum rannsókn á
hruninu.
Hann hefur bent á að Olli Rehn,
stækkunarstjóri Evrópusambands-
ins, hafi lýst því í hátíðarsal Háskóla
Íslands snemma í september að
Evrópusambandið hygðist rann-
saka íslenska bankahrunið á eig-
in spýtur eftir að rannsóknarnefnd
Alþingis hafi skilað skýrslu sinni í
byrjun nóvember.
Réttarkerfi helmingaskiptanna
„Ég verð þess var hvar sem ég kem að
fólk segir að gömlu helmingaskipta-
flokkarnir hafi ráðið lögum og lof-
um í réttarkerfinu. Þeir hafa skipað
nánast hvern einasta dómara sem
starfar á Íslandi. Og fólk spyr sig: Er
þessum dómurum treystandi til
þess að fjalla um þau dóms-
mál sem þegar eru komin í
farveg inni í dómskerfinu?
Ég skil þessar áhyggjur
mæta vel en ég reyni að
hugga þessa viðmæl-
endur mína með því að
benda þeim á að sum
þessara mála munu
einnig koma til kasta
erlendra dómstóla,“ sagði Þorvaldur
í Vikulokaþætti Rásar 1 um síðustu
helgi.
Hver er vanhæfur?
Rannsóknarnefnd Alþingis er skip-
uð doktor Páli Hreinssyni hæsta-
réttardómara, sem er formaður
nefndarinnar, Tryggva Gunnarssyni,
umboðsmanni Alþingis, og Sigríði
Benediktsdóttur, hagfræðiprófessor
frá Yale-háskóla í Bandaríkjunum.
Hæfi Sigríðar til setu í nefndinni
var vefengt af Jónasi Fr. Jónssyni,
fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftir-
litsins, snemma sumars eftir að upp-
lýst var að hún hefði farið orðum um
ábyrgð embættismanna í skólablaði
Yale-háskóla.
Málið fór fyrir forsætisnefnd Al-
þingis. „Ég hef lesið mikið efni, verið
viðstödd margar yfirheyrslur og safn-
að miklum tölulegum gögnum. Mér
þætti því mjög miður að þurfa að yf-
irgefa þetta starf. Ég geri mér ljóst
að hafi ég stofnað til vanhæfis míns
sé ekki önnur leið fær en að ég segi
af mér,“ sagði Sigríður í bréfi til for-
sætisnefndar 18. maí síðastliðinn.
Mál Sigríðar var á endanum gert
upp af Páli Hreinssyni innan nefnd-
arinnar sem í greinargerð taldi Sig-
ríði ekki hafa bakað sér vanhæfi; orð
hennar í skólablaðinu hefðu verið al-
menns eðlis.
Mikilvirkur sérfræðingur
Hæfi Páls, formanns nefndarinnar,
hefur síður verið vefengt. Í ljósi at-
hugasemda sem Þorvaldur Gylfason
og fleiri hafa sett fram um að rann-
sakendur kunni að standa of nærri
atburðunum sem urðu til þess að
bankakerfið féll má vísa til starfa
hans fyrir stjórnvöld á undanförnum
árum. Viðskipta- og starfstengsl við
stjórnarherra sem nú eru hugsanlega
til rannsóknar gætu í það minnsta
verið óþægileg ef þakkarskuld eða
skuldbindandi sambandi við stjórn-
arherra er til að dreifa frá fyrri tíð.
Páll hef-
ur frá
byrj-
un
tí-
unda áratugarins starfað umtalsvert
fyrir stjórnvöld sem ráðgjafi og sér-
fræðingur við lagasmíð, nefndarstörf
og fleira.
Hann starfaði ekki síst fyrir forsæt-
isráðuneytið í tíð Davíðs Oddssonar
sem forsætisráðherra en síðar í for-
sætisráðherratíð Halldórs Ásgríms-
sonar og Geirs H. Haarde eins og
meðfylgjandi listi gefur til kynna.
Gögn um störf hans fyrir árið
1998 eru vistuð í Þjóðskjalasafni, en
þar kemur til dæmis við sögu smíði
frumvarpa um stjórnsýslulög og
upplýsingalög sem lögð voru fram af
Davíð Oddssyni.
DV hefur aflað upplýsinga úr
málaskrá forsætisráðuneytisins um
störf Páls fyrir ráðuneytið frá og með
árinu 1998. Alls kemur nafn hans
fyrir í 34 mismunandi málum allar
götur til ársins 2008. Meira en helm-
ingur þeirra er unninn í tíð Davíðs
Oddssonar sem forsætisráðherra.
Málin eru misjafnlega veigamikil
eins og listinn ber með sér.
Tekið skal fram að með birtingu
lista yfir störf Páls fyrir forsætis-
ráðuneytið er enginn dómur lagð-
ur á hæfi hans til þess að gegna
starfi formanns rannsóknarnefnd-
ar Alþingis. Listinn er lesendum til
upplýsingar og er til þess fallinn að
auka gagnsæi.
Skýrslan tefst
Litlar upplýsingar er að hafa um
störf rannsóknarnefndar Alþing-
is, en hún á að skila skýrslu sinni
1. nóvember næstkomandi eins og
áður segir. Heimildir eru fyrir því
að það kunni að dragast að minnsta
kosti fram í miðjan nóvember. Jafn-
framt er vitað að yfirheyrslur hafa
staðið linnulítið til skamms tíma.
Enginn opinber listi er til yfir þá
sem nefndin hefur tekið til yfir-
heyrslu. Vitað er um ýmsa sem
vitnað hafa frammi fyrir nefndinni.
Davíð Oddsson, seðlabankastjóri
til skamms tíma, hefur verið yfir-
heyrður eins og fram kom í spjall-
þætti á Skjá einum fyrir helgina. Aft-
ur á móti hefur til dæmis Valgerður
Sverrisdóttir, sem var viðskiptaráð-
herra til ársins 2006, ekki verið köll-
uð fyrir nefndina.
Störf Páls frá 1998
- fyrir forsætisráðuneytið
1998 EB-tilskipun um persónuupplýs-
ingar
1998 Frumvarp til laga um þjóðlendur
1998 Þingsályktunartillaga um bætt
siðferði í opinberum rekstri
1998 Nefnd um endurskoðun kjör-
dæmaskipunar og kosningalöggjafar
1998 Nefnd um könnun á starfsskilyrð-
um stjórnvalda o.fl.
1999 Stjórnarráðslög - staðsetning
ríkisstofnana - frumvarp til breytinga á
lögum
1999 Gjaldeyrisumsóknir - starfsmenn
1999
1999 Málþing um þróun norrænu
stjórnsýslulaganna í nóvember 1999
2000 Staða forstöðumanna ríkisstofn-
ana (trúnaðarmál)
2000 Nefnd um rafræna stjórnsýslu
2001 Samningar forsætisráðuneytis
(tengt stjórnsýslulögum )
2002 Frumvarp til laga um breytingu
á stjórnsýslulögum (undirmannavan-
hæfi)
2002 Meðferð gagna ríkisstjórnar með
tilliti til upplýsingalaga
2003 Breytingar á starfsmannalögum
2004 Fyrirspurn Jóhönnu Sigurðar-
dóttur um nefndir, ráð og stjórnir á
vegum ríkisins (svar samantekt)
2004 Minnisblað til ráðherra vegna
umhverfislöggjafar
2004 Skipun nefndar um viðurlög við
efnahagsbrotum
2004 Stjórnarskrárnefnd – gögn
nefndar
2004 Úrskurðarnefnd um upplýsinga-
mál - Skipun 2005
2005 Endurprentun á ritinu Upplýs-
ingalög: Kennslurit
2005 Nefnd um verðlagningu og
aðgengi opinberra upplýsinga – gögn
nefndar
2005 Nefnd um viðurlög við efnahags-
brotum
2005 Endurprentun á ritinu Stjórn-
sýslulög: Skýringarrit
2006 Beiðni um styrk – Páll Hreins-
son – Rannsóknir meistaranema í
stjórnsýslurétti
2006 Frumvarp til laga um breytingu á
upplýsingalögum
2006 Skipun – Nefnd um aðgang að
gögnum um öryggismál 1945 - 1991
(hlerunarmál)
2006 Nefnd um aðgang að gögnum
um öryggismál
2006 Óskað eftir gögnum er snerta
innri og ytri öryggismál Íslands 1945
– 1991
2006 Ýmsir eldri nefndarlistar
2007 Nefnd um aðgang að gögnum
um öryggismál – Skilaskýrsla og
þóknun
2007 Frumvarp til breytinga á
stjórnsýslulögum
2007 Innleiðing á tilskipun um
endurnot opinberra upplýsinga
2008 Frumvarp til laga um stjórnsýslu-
viðurlög
2008 Fjórða prentun á ritinu: Stjórn-
sýslulögin – skýringarrit
JóHann HaukSSon
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Skortur á trúverðugleika Þorvaldur
Gylfason hagfræðiprófessor telur tortryggni
og skort á trúverðugleika standa rannsókn-
um á bankahruninu fyrir þrifum.
Mikilvirkur þjónn stjórnvalda Páll
Hreinsson, formaður rannsóknarnefndar
Alþingis, hefur unnið margvísleg
sérfræðistörf í þágu forsætisáðuneytisins í
nær tvo áratugi. Mynd RóSa JóHannSdóttiR