Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Síða 13
fréttir 30. september 2009 miðvikudagur 13
Herskáir Íranar
Ahmad Vahidi, varnarmálaráð-
herra Írans, var herskár í tali í
yfirlýsingu sem send var út í rík-
issjónvarpi landsins. Vahidi var-
aði við því að Ísrael stæði frammi
fyrir mikilli eyðileggingu ef það
réðist gegn Íran. Yfirlýsingin var
send út aðeins örfáum klukku-
stundum eftir að írönsk stjórn-
völd prófuðu flugskeyti sem geta
hitt fjarlæg skotmörk í Miðaustur-
löndum.
Vahidi sagði að ef um árás af
hálfu Ísraels yrði að ræða, „sem,
að sjálfsögðu, við sjáum ekki fram
á ylli það óhjákvæmilega því að
stjórn síonista tæki fyrr en ella
sinn síðasta andardrátt“.
Sumum er ekki viðbjargandi og leiða
má líkur að því að Silvio Berlusconi,
forsætisráðherra Ítalíu, fylli þann
flokk. Mönnum er í fersku minni þeg-
ar hann talaði um hve sólbrúnn og
myndarlegur Barack Obama væri og
flestir hefðu hugsað að hann léti kyrrt
liggja eftir það.
Nú hefur Berlusconi ýjað að sól-
brúnku forseta Bandaríkjanna að nýju
og forsetafrúarinnar.
Þegar Berlusconi kom heim eft-
ir ráðstefnu G20-ríkjanna í Pittsburg
sagði hann á fundi íhaldssamra stuðn-
ingsmanna að hann flytti kveðjur frá
einhverjum í Bandaríkjunum.
„Hvað heitir hann aftur? Einhver
sólbrúnn náungi. Alveg rétt, Barack
Obama,“ sagði Berlusconi og uppskar
góðar undirtektir.
Síðan bætti Berlusconi við: „Þið
munið ekki trúa þessu, en þau sóla sig
saman, því eiginkonan er einnig sól-
brún.“
Heilsað á annan veg
Ekki er loku fyrir það skotið að Berlusc-
oni hafi viljað launa forsetahjónun-
um lambið gráa því Michelle Obama
heilsaði Berlusconi aðeins með form-
legu handtaki í stað faðmlags sem hún
annars bauð flestum öðrum. Og eigin-
maður hennar horfði alvarlegur á þeg-
ar Berlusconi og Michelle heilsuðust,
eflaust minnugur ummæla forsætis-
ráðherrans um hinn sólbrúna forseta
Bandaríkjanna.
Það var engu líkara en Michelle
Obama forðaðist að koma of nálægt
Silvio Berlusconi sem hefur staðið í
orrahríð heima fyrir vegna uppljóstr-
ana úr einkalífi hans undanfarna sex
mánuði þar sem meðal annars komið
hafa við sögu ásakanir um að hann hafi
eytt nótt forsetakosninganna í Banda-
ríkjunum í örmum vændiskonu.
Sem fyrr segir bar verulega í milli
hvernig Michelle Obama heilsaði Silv-
io Berlusconi annars vegar og öðrum
þjóðarleiðtogum hins vegar. Nicolas
Sarkozy og frú var heilsað með faðm-
lagi og kossi. Sömu sögu var að segja af
Dmitry Medvedev, forseta Rússlands,
og frú og Angelu Merkel og bresku for-
sætisráðherrahjónunum.
Sigurreifur heima fyrir
Ekkert af þessu kom þó í veg fyrir
að Silvio Berlusconi sneri sigurreif-
ur heim til Ítalíu og á áðurnefnd-
um fundi með stuðningsmönnum
á sunnudaginn fór Berlusconi mik-
inn.
Auk þess sem hann hafði orð á
„sólbrúnku“ bandarísku forseta-
hjónanna gat hann ekki stillt sig um
að daðra við konu sem fagnaði mik-
ið í salnum og bað hana bíða sín úti.
Grínið vakti mikla kátínu hjá stuðn-
ingsmönnunum sem sungu „Guði sé
lof að Silvio er til“.
Silvio Berlusconi fagnaði 73 ára
afmæli sínu í gær, en á sunnudag-
inn gantaðist hann með væntanleg-
an afmælisdag. „Á þriðjudag held ég
upp á 27. afmælisdag minn, nei 37.
afmælisdag minn. Þið vitið að ég er
ekki góður í reikningi,“ sagði Berlus-
coni við mikil fagnaðarlæti.
opnar Höllina
fyrir fátækum
Silvio Berlusconi heldur viðteknum hætti og gerir grín að Barack Obama, forseta
Bandaríkjanna, og Michelle, eiginkonu hans. Berlusconi launaði Michelle Obama
frekar snautlegar kveðjur á ráðstefnu G20-ríkjanna í Pittsburg og gerði litarhaft for-
setahjónanna að umræðuefni þegar hann kom heim til Ítalíu.
„Hvað Heitir Hann aftur?“
Síðan bætti Berlusconi
við: „Þið munið ekki
trúa þessu, en þau sóla
sig saman, því eiginkon-
an er einnig sólbrún.“
KOlBeinn þOrSteinSSOn
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Silvio Berlusconi
og forsetahjón
Bandaríkjanna
Berlusconi fékk
ekki faðmlag eins
og aðrir þjóðar-
leiðtogar. Mynd AFP
Nú er útlit fyrir að enn eitt vígi karla
innan bandaríska hersins geti fallið.
Háttsettir embættismenn í varnar-
málaráðuneyti Bandaríkjanna vilja
nú binda enda á bann við því að
konur sinni herskyldu í kafbátaflota
landsins.
„Mér finnst að við eigum að
halda áfram að auka möguleika fyr-
ir kvenmenn. Eitt af því sem ég vildi
sjá breytast er bann við herþjónustu
[kvenna] í kafbátum,“ er haft eft-
ir Mike Mullen aðmíráli, formanni
starfsmannahalds hersins.
Gary Roughead, aðmíráll og yfir-
maður aðgerða sjóhersins, tók í sama
streng og sagðist fagna því ef kvenfólk
bættist í raðir kafbátaáhafna hersins.
Konur eru um fimmtán prósent
liðlega 336.000 meðlima bandaríska
sjóhersins og hefur verið kleift að
sinna herskyldu á herskipum öðr-
um en kafbátum. Gagnrýnendur til-
lagna Mullens aðmíráls hafa bent á
að ólíku sé saman að jafna kafbát-
um og öðrum herskipum; kafbátar
einkennist af miklum þrengslum og
áhafnarmeðlimir deili gjarna sama
fleti á milli vakta.
Að mati Nancy Duff Campell,
talsmanns fyrir auknu vægi kvenna
í bandaríska hernum, fellur rök-
semdafærsla gagnrýnenda um sjálfa
sig og bendir á að aðskilin híbýli séu
nú þegar til staðar í kafbátum með
tilliti til undir- og yfirmanna, „svo
það er ekki eins og það sé ekki hægt“.
Nancy Duff Campell virðist hafa
eitthvað til síns máls því Roughead
aðmíráll sagði að það væri ekki óyf-
irstíganlegt vandamál að breyta hí-
býlatilhögun í kafbátaflota Banda-
ríkjanna, sem í er 71 kafbátur.
Frami kvenna í bandaríska hern-
um hefur verið hægfara ferli og í
fyrsta skipti í sögu hersins náði, á síð-
asta ári, kona þeim áfanga að verða
fjögurra stjörnu hershöfðingi.
Leið kvenna til frama í bandaríska hernum löng og seinfarin:
Vilja konur í kafbátana
USS los Angeles Konur
og kafbátar hafa ekki átt
samleið í her Bandaríkjanna.
fórnarlamb
réttarkerfisins
Samantha Geimer, fórnarlamb
leikstjórans Romans Polanski árið
1977, óskar einskis heitar en málið
hverfi og heyri sögunni til. Geimer
er 45 ára og enn á ný er hún komin
í sviðsljósið sem hún vill forðast,
nú vegna handtöku Polanskis í
Zurich í Sviss.
Litlar líkur eru á að henni verði
að ósk sinni, en Samantha, sem
var upprennandi leikkona í eina
tíð, höfðaði mál gegn Polanski og
var samið um málið utan dóm-
stóla. Í janúar lét Samantha í sér
heyra enn á ný í tilraun til að losna
við málið í eitt skipti fyrir öll og fór
þess á leit við dómara í Los Ang-
eles að láta málið niður falla. Þær
umleitanir enduðu þegar dómar-
inn krafðist þess að Polanski mætti
í vitnaleiðslur.
Enginn vafi lék á því að mati
saksóknara að Roman Polanski
yrði handtekinn um leið og hann
stigi fæti á bandaríska jörð, ef hann
kæmi. Polanski hélt sig heima.
Að sögn Samönthu Geimer hef-
ur réttarkerfið valdið henni meiri
skaða en Roman Polanski gerði á
sínum tíma. „Ég er orðin fórnar-
lamb aðgerða svæðissaksóknara,“
sagði Samantha í janúar.
Samantha sagði einnig að fjöl-
miðlar hefðu gert líf hennar að hel-
víti á jörðu árið 1977 og hún hafi
reynt síðan þá að loka þeim kafla
ævi sinnar.