Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Blaðsíða 25
suðurland Miðvikudagur 30. september 2009 25 Fatnaður er okkar fag Tökum á móti hópum. Einnig fyrir utan venjulegan opnunartíma. Við bjóðum þig velkomna til okkar FALLEGUR FATNAÐUR Á ALLAR KONUR Eyrarvegi 29 - Selfossi - Sími 482 1800 E-mail: lindin-selfossi@simnet.is VERTU VELKOMIN! þurft að auglýsa starfsemina, enda hafa kannanir leitt í ljós að þeir sem til okkar leita hafa verið mjög ánægðir og gott orðspor er fljótt að breiðast út. Hér er einfaldlega nóg að gera,“ segir Ólaf- ur. Til viðbótar við hina hefðbundnu starfsemi stendur fólki til boða að panta sér tíma í leirböð, sjúkranudd og aðra sérhæfða þjónustu án þess að hafa samráð við lækni. LífstíLssjúkdómar aLgengari Ólafur tekur fram að kannski sé ekki al- mennt þekkt að fólk geti leitað sér að- stoðar í kjölfar áfalla eða streitu. „Það er hins vegar mjög mikilvægt að fólk láti vita af sér og leiti sér sérfræðimeð- ferðar í stað þess að sitja heima þar sem vandamálin geta tekið upp á því að ágerast ef ekkert er að gert,“ segir Ólafur. Hann segir að sífellt fleiri leiti sér meðferðar vegna vandamála sem teng- ist streitu á einn eða annan hátt. „Þarna sjáum við streitu sem stund- um hefur þróast út í þunglyndi. Offita er jafnframt algengara vandamál en áður. Þetta eru svonefndir lífstílssjúk- dómar og fólk kemur þá gjarnan til þess að rjúfa einhvers konar vítahring.“ stækka og bæta Enda þótt Heilsustofnun Náttúrulækn- ingafélagsins sé í rauninni einkarekin heilbrigðisstofnun bendir Ólafur á að ekki sé gerð hefðbundin krafa um arð- semi. „Hér eru ekki hluthafar sem fara fram á arðgreiðslur. Auðvitað reynum við að sýna ráðdeildarsemi í rekstr- inum. Allur rekstrarafgangur fer hins vegar beint til frekari uppbyggingar á stofnuninni. Við reynum að stækka við okkur og bæta aðstöðuna, alltaf þegar tækifæri er til þess,“ segir hann. Þetta sé sífellt algengara rekstrar- form á heilbrigðisstofnunum í Evrópu og Bandaríkjunum. „Þetta hefur reynst þessari stofnun farsælt fyrirkomulag.“ sigtryggur@dv.is „Ég hef verið á miklu heilsustriki síðan, hef lést um 25 kíló og er um það bil að verða gegnsær.“ Sundlaugin Hjá NLFÍ í Hveragerði er bæði inni- og útisundlaug. Slökunarherbergi Hér mega vistmenn ná djúpri slökun fyrir leirbað. Í matsal Í Hveragerði er lögð áhersla á lífrænt ræktað grænmetisfæði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.