Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Page 27
suðurland Miðvikudagur 30. september 2009 27
Full búð af nýjum
vetrarvörum
Skór, fatnaður, metravara
o.m.fl. á frábærum verðum
Opið 10 - 18 alla daga
Breiðumörk 2 - Hveragerði - 483 4517
Álnavörubúðin Breiðamörk
Í bakhúsi við Eyrargötu á Eyrarbakka
er að finna galleríið Regínu. Þar hefur
Regína Guðjónsdóttir listakona kom-
ið sér upp sýningaraðstöðu fyrir hand-
verk, fyrst og fremst flíkur sem hún
hannar og prjónar. „Þetta er mín eig-
in hönnun og mynstrin þróa ég út frá
mynstri sem þegar er til,“ segir Regína.
„Flíkurnar eru unnar bæði úr tvöföld-
um hespulopa og eins úr léttlopa.“
Í bílskúrnum í húsinu Ásheimum,
sem er heimili Regínu, er svo gallerí
með málverkum, glerlist og fleiri list-
munum sem Regína býr til af kost-
gæfni. „Þetta er vinnan mín. Ég hef
verið heimavinnandi, og nú er vinnan
hreinlega komin heim til mín. Hér er
alltaf eitthvað að gera og einkum hef-
ur verið mikið að gera í sumar,“ seg-
ir hún. Á Eyrarbakka hafi síðsumars
verið haldin svokölluð aldamótahá-
tíð. Aðsóknin hafi farið fram úr björt-
ustu vonum. „Fyrri daginn komu í
bæinn á bilinu fimm til sex þúsund
manns. Seinni daginn er svo áætlað
að þrjú þúsund manns hafi lagt leið
sína hingað. Við klæddum okkur upp í
aldamótabúninga. Þetta var reglulega
gaman og tókst vel til.“
Regína hefur verið með galleríið í
bakgarðinum í eitt ár, en listaverkin í
bílskúrnum hafa verið þar síðustu sex
árin.
Regína hefur farið út fyrir Eyrar-
bakka með verk sín og haldið sýningar
austur á Vopnafirði ásamt því sem hún
hélt sýningu í gamla Kaupfélagshús-
inu á Eyrarbakka í vor, bókasafninu á
Selfossi og víðar.
Eiginmaður Regínu, Siggeir Ing-
ólfsson, kemur aðvífandi með tvo
smáa græna ávexti í lófanum sem helst
líkjast berjum. „Sjáðu þessi epli. Þetta
vex hér í garðinum,“ segir Siggeir sem
er garðyrkjustjóri í Árborg og plantaði
eplatrénu í garðinum á Eyrarbakka
fyrir níu árum. „Þá var þetta pínulítil
hrísla sem átti erfitt uppdráttar fram-
an af. En í sumar blómstraði tréð og
epli tóku að vaxa. Þau verða bara ekki
stærri, því miður. Til þess þyrfti sumar-
ið að vera tvöfalt lengra.“ sigtryggur@dv.is
DV0909284650_18.jpg (regína)
DV0909284650_17.jpg (gallerí regína)
DV0909284650_19.jpg (eplin)
Eplatré hjá rEgínu á
Eyrarbakka
Regína Guðjónsdóttir heldur úti galleríi á meðan bóndinn ræktar epli:
Regína Regína Guðjónsdóttir heldur
hér á flíkum sem hún hefur hannað
og framleitt. myndiR siGtRyGGuR
Gallerí Regína Í þessu litla húsi
eru vörur Regínu til sýnis og sölu.
Málverkin eru í bílskúrnum.
Eplin á Eyrarbakka Það vex vissulega
eitt eplatré á Eyrarbakka. Ávextirnir láta
ekki á sér standa en þyrftu lengra sumar.