Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Qupperneq 39
Sex dómara teymið frumSýnir Fremsti knattspyrnudómari landsins, Kristinn Jak-
obsson, dæmir á fimmtudagskvöldið leik belgíska liðsins Anderlecht gegn hollenska
risanum Ajax í hinni nýju Evrópudeild sem er afsprengi Evrópukeppni félagsliða. Í Evr-
ópudeildinni í ár er notast við nýtt dómarakerfi þar sem heilir sex dómarar hafa völd á
leiknum. Kristinn dæmir og honum til aðstoðar verða Sigurður Óli Þorleifsson og Ólafur
Ingvar Guðfinnsson en fjórði dómari er Jóhannes Valgeirsson. Hið nýja í deildinni eru
aukadómararnir sem standa fyrir aftan mörkin og hjálpa dómaranum við að sjá
brot inni í teig. Þeir fyrstu af okkar dómurum sem fá að prófa það verða Magn-
ús Þórisson og nýjasti milliríkjadómari landsins, Þorvaldur Árnason.
Styrktarleikur
Stjörnunnar
Á fimmtudagskvöldið heldur
Stjarnan úr Garðabæ söfnunarleik
fyrir mikinn Stjörnumann að nafni
Þórarinn Sigurðsson sem er
fyrrverandi leikmaður, þjálfari,
stjórnarmaður og formaður
handknattleiksdeildarinnar. Þórarinn
greindist með krabbamein í lifur en
hefur fundið þýskan lækni sem
starfar við háskólasjúkrahúsið í
Frankfurt. Sá hefur beitt annarri og
beinskeittari tækni en hér heima og
aukið lífslíkur hans til muna. En
þetta er dýrt og því mun meistara-
flokkur kvenna hjá Stjörnunni leika
gegn Haukum klukkan 18.15 en
bæði þau lið gerði Þórarinn að
Íslandsmeisturum á sínum tíma.
Karlaliðið etur svo kappi við FH
klukkan 20.00. Eitt þúsund krónur
kostar inn en hægt er að sjá meira
um leikinn og söfnunarreikningin
inni á heimasíðu Stjörnunnar,
stjarnan.is
Button
paSSar Sig
Forystusauðurinn í Formúlu 1,
Jenson Button á Brawn GP, ætlar sér
ekki að taka neina áhættu það sem
eftir er heimsmeistaramótsins.
Aðeins þrjár keppnir eru eftir og
hefur hann fimmtán stiga forskot á
samherja sinn hjá Brawn, Rubens
Barrichello. Hann verður því
heimsmeistari í næstu keppni í Japan
raki hann inn fimm fleiri stigum en
Brasilíumaðurinn. „Ég þarf ekki nema
fimm stig til þess að verða heims-
meistari. Ég mun passa mig mikið og
ekki taka neina óþarfa áhættu.
Markmið mitt er að verða heims-
meistari og það skal takast,“ segir
Button sem vann sex af fyrstu sjö
keppnum ársins en hefur lítið gert
síðan. Vinni hann heimsmeistaratitil-
inn verður það í fyrsta skiptið hjá
honum og annar Bretinn í röð sem
tekst það afrek.
Cahill fer hvergi
Gary Megson, knattspyrnustjóri
Bolton í ensku úrvalsdeildinni, segir
það ekki koma til greina að selja
unga miðvörðinn Gary Cahill í janúar.
Cahill er orðinn einn af betri
miðvörðum úrvalsdeildarinnar og
var kallaður í enska landsliðið um
daginn. Tottenham er sagt afar
áhugasamt um að landa stráknum
en stjóri hans er á öðru máli. „Það
væri knattspyrnulegt sjálfsmorð að
selja Cahill í janúar,“ segir Megson.
„Hann klárar alltaf tímabilið með
okkur. Hvað gerist eftir það verður að
ráðast síðar.“
UMSJÓn: TÓMAS ÞÓR ÞÓRðARSon, tomas@dv.is
Sport 30. september 2009 miðvikudagur 39
Færasta bardagaíþróttamanni lands-
ins, Gunnari Nelson, halda eng-
in bönd á þessu ári. Árangur hans í
brasilísku jiu-jitsu hefur verið hreint
með ólíkindum sem endaði með
silfurverðlaunum á heimsmeistara-
mótinu í júní. Árangur hans varð til
þess að honum var boðið á ADCC-
mótið um helgina sem er talið erf-
iðasta uppgjafarglímumót í heimi.
Þar er hópað saman bestu glímu-
mönnum heims úr öllum íþróttum
á borð við grappling, júdó, jiu-jitsu
og grísk-rómverska glímu svo eitt-
hvað sé nefnt, allt undir sömu regl-
um. Gunnar þurfti reyndar að keppa
einum þyngdarflokki ofar á mótinu
og féll úr leik á mjög umdeildri dóm-
araákvörðun í fyrstu glímu. En í opna
flokknum gerði Gunnar allt vitlaust í
húsinu með sigri á Jeff Monson, tröll-
vöxnum reynslubolta frá Bandaríkj-
unum.
Allir stóðu upp og klöppuðu
Faðir Gunnars, Haraldur Nelson,
fylgdi stráknum á mótið. „Þegar
Gunni var að skora síðustu stigin
í glímunni og tryggja sér sigurinn
stóðu allir í salnum upp og klöpp-
uðu. Monson var búinn að ná hon-
um niður í glímunni meira að segja
en Gunna tókst einhvern veginn að
losa sig úr því,“ segir Haraldur. Eins
og sést á myndunum er Jeff Mon-
son ekkert barn að vexti en hversu
þungur er hann? „Það var haldið
fram að hann væri 24 kg þyngri en
ég trúi því seint. Ég held að hann sé
ekki undir svona 130 kg,“ segir Har-
aldur en Monson er ekki bara stór.
Hann er tvöfaldur gullverðlauna-
og tvöfaldur silfurverðlaunahafi frá
þessu sterka móti þannig að það var
mjög eðlilegt að salnum væri brugð-
ið þegar yngsti og léttasti keppandi
mótsins, Gunnar Nelson, hafði af
honum sigur.
Sigurvegari þyngdarflokks Gunn-
ars og opna flokksins, sem hlýtur því
titilinn besti glímumaður heims, gekk
að Gunnari eftir glímuna. „Hann
sagði við okkur að hann hefði aldrei
séð annað eins á ferlinum. Og ekki
er hann stuttur. Það var mál manna
að þetta væri glíma mótsins og ég er
náttúrlega alveg sammála því enda
langt því frá hlutlaus í þeim efnum,“
segir Haraldur og hlær við.
Sækir og sækir
Gunnar varð á endanum í fjórða
sæti í opnum flokki sem telst meira
en viðunandi árangur þó hann hafi
ætlað sér stærri hluti. „Ég ætla mér
bara að vinna þetta. Sá sem vinn-
ur þetta er bestur að glíma í heim-
inum og það er fínn titill að hafa,“
sagði Gunnar í helgarviðtali við
DV fyrr í sumar. Gunnar hefur sér-
staklega vakið athygli fyrir stíl sinn
þegar hann glímir. Margir kappar
spila mikla vörn og passa að gefa
engin færi á sér. Gunnar aftur á
móti gerir ekkert nema sækja og
tapaði meðal annars heimsmeist-
aratitilinum í jiu-jitsu vegna þess í
júní.
„Ég lagði titilinn meðvitandi
undir til þess að vinna mótið með
stæl. Á þessu lærði ég miklu meira
heldur en að sitja bara á rassinum
og þjálfarinn minn var ánægður
með mig. Næst mun ég gera ná-
kvæmlega það sama. Ég geri þetta
bara betur þá og klára manninn,“
sagði Gunnar í helgarviðtalinu en
þjálfarinn sem um ræðir er Renzo
Gracie, ein mesta goðsögn í brasil-
ísku jiu-jitsu frá upphafi.
Gunnar hefur engan tíma til að
slaka á því um helgina keppir hann
á sterku móti í uppgjafarglímu, Pan
American NoGi, þar sem hann get-
ur haldið draumaári sínu áfram.
gunnar
lagði tröll
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Bardagaíþróttamaðurinn
Gunnar Nelson sló í gegn
á erfiðasta uppgjafar-
glímumóti heims um síð-
astliðna helgi, ADCC-mót-
inu. Hann féll úr snemma
í sínum þyngdarflokki
en í opna flokknum lagði
hann stærsta keppanda
mótsins, algjört vöðvafjall
sem enginn taldi Íslend-
inginn eiga möguleika í.
Leit illa út Monson náði Gunnari í gott tak sem honum tókst að komast út úr.
MyNd JON ShOTTeR/eFNSpORTS.cOM
Frábær staða Gunnar náði Monson í eina bestu stöðu sem hægt er að komast í.
MyNd JON ShOTTeR/eFNSpORTS.cOM
hengdur Gunnar kominn með tröllið í armana. Ótrúlegt. MyNd JON ShOTTeR/eFNSpORTS.cOM