Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Qupperneq 46
Margrét Edda Jónsdóttir, dóttir
Jóns Gnarr og fyrrverandi með-
limur Merzedes Club, er í viðtali
við vefmiðilinn Wicked Local í
Massachusetts-fylki í Bandríkj-
unum. Frá þessu greinir á moni-
tor.is. Í viðtalinu talar Margrét
meðal annars um þátttöku sína
í Idol-Stjörnuleit og draum sinn
um að verða fræg söngkona. „Ég
fæ mikinn sviðsskrekk og Idol
virtist vera góð leið til að horfast
í augu við óttann. Það var sárt
að detta út, en ég veit að ég þarf
ekki Idol til þess að meika það í
tónlistarbransanum,“ segir Mar-
grét Edda en hún datt út í tut-
tugu manna úrslitum. Í viðtalinu
segir einnig að Margréti Eddu
dreymi um að verða heims-
fræg tónlistarkona eins og Björk
og Emilíana Torrini sem séu
einmitt á meðal hennar helstu
áhrifavalda.
DrekaDjókið
„Nú, þegar byljir berja á mér vegna
þeirra aðstæðna sem eru uppi í mínu
lífi, hefur hann hlaupið í skarðið fyr-
ir mig,“ segir Gunnar Þorsteinsson í
Krossinum í tilkynningu á heimasíðu
trúfélagsins. Þar talar hann um suð-
urafríska predikarann Ron Botha sem
kominn er hingað til lands ásamt fjöl-
skyldu sinni til að hlaupa undir bagga
með Gunnari við trúboðið hjá Kross-
inum.
Gunnar og kona hans, Ingibjörg
Guðnadóttir, tilkynntu nýverið að þau
hefðu tekið ákvörðun um að skilja
en þau stofnuðu Krossinn fyrir þrjá-
tíu árum. Í grein um Krossinn í þar-
síðasta helgarblaði DV sögðust sum-
ir meðlima Krossins nokkuð slegnir
yfir tíðindunum. Og að mati sumra á
Gunnar að víkja sem leiðtogi safnað-
arins, að minnsta kosti tímabundið,
vegna skilnaðarins. Í ljósi tilkynning-
arinnar um komu Botha til landsins
er engu líkara en Gunnar hafi orðið
við þeirri óbeinu ósk.
Gunnar segir einnig í tilkynning-
unni að hann hafi strax síðasta vet-
ur verið farinn að berjast fyrir land-
vistarleyfi fyrir Botha, en þá ekki gert
sér í hugarlund hversu þýðingarmik-
il koma hans og vera hér sé fyrir ríki
Guðs. Nú þegar hann sé fluttur fái
Gunnar tækifæri til að draga sig til
hliðar, „...sleikja sárin og meta stöðu
mína frammi fyrir Guði,“ eins og segir
orðrétt í tilkynningunni.
Botha kynntist Gunnar í trúboðs-
starfi í Afríku fyrir nokkrum árum.
Hann flytur til Íslands ásamt eigin-
konu sinni og tveimur af börnum
þeirra þremur.
kristjanh@dv.is
Þarf ekki
iDolið
Jón Gnarr:
Útvarpskonan Sigríður Arnar-
dóttir sem er með þáttinn Sirrý
á sunnudagsmorgnum á Rás
2 ætlar að taka upp nýjan lið á
næstunni. Hún mun verða með
símatíma í heila klukkustund
frá 11 til 12 þar sem fólk getur
sagt skoðanir sínar á málefn-
um líðandi stundar. Eins konar
endurvaking á gömlu þjóðarsál-
inni sem var gríðarlega vinsæl á
Rás 2 á sínum tíma. Stefán Jón
Hafstein stýrði þættinum lengst
af en öll þjóðin lagði við hlustir
þegar fólk sagði skoðun sína og
jós oftar en ekki úr skálum reið-
innar.
Gefur
Þjóðinni
orðið
46 miðvikuDaGur 30. september 2009 fólkið
Gunnar í Krossinum dregur sig í hlé vegna skilnaðarins:
afrískur preDikari í stað Gunnars
Gunnar í Krossinum Fær
íhlaupapredikara á meðan
hann „sleikir sárin“. mYnD
Gunnar Gunnarsson
bítur jón í rassinn
„Þetta var meira svona að ég hætti,“
segir hinn þjóðþekkti leikari og grín-
isti Jón Gnarr sem hættur er störfum
hjá auglýsingastofunni Ennemm,
spurður út í þann orðróm sem
barst DV til eyrna að honum
hefði verið sagt upp störf-
um þar á dögunum. „Það
hefur náttúrlega verið
samdráttur og minna að
gera á þessum auglýs-
ingastofum og það varð
að samkomulagi að ég
léti af störfum. Þetta var
allt í mikilli vinsemd.“
Jón lætur af störfum
núna um mánaðamótin
en hann hefur starf-
að hjá Ennemm í um
tvö ár. „Og ég hef bara
gert góða hluti,“ seg-
ir Jón í léttum dúr.
Allavega má fullyrða
að Jón hafi komið að
gerð auglýsinga sem
vöktu meiri athygli og
umtal en flestar aðrar
á síðustu árum sem
hlýtur að teljast aug-
lýsingum til
tekna. Þar
á meðal er
símaaug-
lýsing-
in þar
sem síðasta kvöldmáltíð Jesú með
lærisveinunum var endursköpuð
á spaugilegan hátt og Kaupþings-
auglýsingarnar með háðfuglinum
heimsfræga John Cleese.
Starf Jóns hjá Ennemm var á
sviði hugmynda- og textavinnu, eða
„creative vinna“ eins og hann orð-
ar það. „Þetta var auðvitað
lúxusstarf. Að hugsa og
svona,“ segir Jón. Spurð-
ur hvort gert hafi verið
samkomulag við fleiri
á auglýsingastofunni
um að láta af störf-
um segir Jón að sér
hafi skilist það. „Aug-
lýsingabransinn var
mjög skemmtilegur á
meðan allt lék í lyndi. Þá
gastu gert mjög flippaða
hluti og fengið pening í
það. Til dæmis farið til
Portúgal og gert Jesúgrín.
Það er ekki alveg stemn-
ing fyrir því núna. Það eru
minni peningar og ekki
„politically correct“ að
berast mikið á.“
Jón lék mann sem var
rekinn úr vinnunni í þekkt-
um Fóstbræðraskets á sín-
um tíma. „Pönslænið“ var
að yfirmaðurinn sagði „Þú ert
rekinn“ en karakter Jóns skildi
það sem „Þú ert drekinn“, furðaði
sig á hegðun yfirmannsins og hélt
bara áfram að vinna. Jón jánkar því
í léttum dúr að það grín sé að ein-
hverju leyti að rætast núna. „Jú, „the
joke is on me“ núna. Svona hefnist
manni fyrir að gera grín. Það kemur
alltaf að því að það bíti mann í rass-
gatið.“
Jón spaugar líka þegar hann er
spurður hvernig tilfinning það sé
að vera kominn í ákveðna fjárhags-
lega óvissu, verandi ekki lengur í
fastri vinnu. „Núna bíð ég bara eft-
ir aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar
fyrir heimilin. Svo fer ég kannski að
skemmta í barnaafmælum. Ég held
að það væri mjög fyndið ef ég færi
að mæta í barnaafmæli sem Georg
Bjarnfreðarson,“ segir Jón og tekur
tóndæmi í afar höstugum tóni í anda
Georgs í Vaktarþáttunum sem Stöð 2
hefur sýnt undanfarin misseri.
Jón byrjaði að nýju með útvarps-
þáttinn Tvíhöfða ásamt Sigurjóni
Kjartanssyni á útvarpsstöðinni Kan-
anum fyrir stuttu. Þátturinn hefur
einungis verið á laugardögum en
Jóni finnst þjóðráð að hafa hann á
dagskrá alla virka daga.
„Mér hefur fundist óhemju
skemmtilegt að vera með þessa þætti
síðustu vikur. Og mér finnst að Tví-
höfði eigi að vera í loftinu alla virka
morgna og vera þannig hluti af ís-
lenskum raunveruleika. Ég væri til
í að gera það á Kananum, Lindinni
eða „wherever“. Kannski að ég byrji á
að tékka á Lindinni því það eru víst
svakalegir peningar í þessum kristi-
legu fjölmiðlum. Ef þau eru að bjóða
okkur einhvern svaka pening get ég
notað það á Einar og sagt: „Þeir eru
að bjóða okkar tíu milljónir á mán-
uði á Lindinni. Hvernig ætlar þú að
toppa það?““
kristjanh@dv.is
Jón Gnarr er hættur hjá auglýsingastofunni ennemm þar sem hann hefur starfað síð-
ustu tvö ár. hann segir ekki um uppsögn að ræða heldur samkomulag vegna samdrátt-
ar. að leika Georg Bjarnfreðarson í barnaafmælum er nokkuð sem kemur til greina
til að draga björg í bú.
Jón Gnarr Hættur í auglýsingun-
um en sér sóknarfæri í barnaaf-
mælum. mYnD stefán Karlsson
umdeild Jón í hlutverki Júdasar í Símaauglýsingunni umtöluðu.