Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2009, Page 16
Miðvikudagur 18. nóvember 200916 suðurland
„Ég er maður áskorana. Mér fannst ég
þurfa að minnsta kosti eina áskorun
í viðbót áður en ferlinum lyki. Ég hef
lengi vitað af áhuga ÍBV og það hefur
lengi blundað í mér að koma heim og
loka hringnum,“ segir markaskorar-
inn og knattspyrnumaðurinn Tryggvi
Guðmundsson.
Tryggvi skrifaði fyrir skemmstu
undir þriggja ára samning við ÍBV en
hann hefur undanfarin fimm ár ver-
ið lykilmaður í meistaraliði FH, sem
hefur borið höfuð og herðar yfir önn-
ur lið. Fyrir FH lék Tryggvi 111 leiki
og skoraði heil 60 mörk.
„Geymt en ekki Gleymt“
Tryggvi segir ástæðurnar fyrir því
að hann hafi yfirgefið FH á þessum
tímapunkti margar. „Ég er búinn að
vera í fimm ár í FH. Þetta hafa ver-
ið frábær fimm ár,“ segir Tryggvi en
á miðju sumri fékk hann það hlut-
skipti að verma varamannabekk-
inn. Tryggvi er mikill keppnismaður
og kunni því illa að fá ekki að spila.
Hann viðurkennir að þetta hafi setið
í sér. „Ég er í þessu til að spila. Á þess-
um aldri gerir maður ekkert gagn
með því að sitja á bekknum og gefa
„five“. Þetta voru einhverjir fimm eða
sex leikir en svo vann ég mig inn í lið-
ið aftur,“ segir Tryggvi og bætir við að
honum finnist hann vera of góður til
að sitja á bekknum. „Þetta var geymt
en ekki gleymt,“ segir hann. Tryggvi
segist þó síður en svo skilja ósáttur
eða bitur við FH. Hann hafi skilið við
alla í fyllsta bróðerni.
Fjölskyldumaður á
FaraldsFæti
Tryggvi bjó í Vestmannaeyjum og
ólst þar upp frá níu ára aldri. Hann
lék með ÍBV þar til hann fór í at-
vinnumennsku, 22 ára gamall. Hann
segir tilhugsunina um að spila aftur
með Eyjamönnum góða. Tilfinningin
muni þó vafalítið koma sterkari fram
þegar nær dregur sumri. „Ég verð hér
í Reykjavík í vetur og æfi með þeim
strákum sem hér eru,“ segir hann.
Tryggvi, sem á eiginkonu og fjög-
ur börn, segir að í sumar verði hann á
faraldsfæti. Hann verði auðvitað með
annan fótinn í Eyjum en fjölskyldan
muni áfram búa á höfuðborgarsvæð-
inu. Hann kvíðir ferðalögunum ekki
og sér ekki fram á að þau muni bitna
á fótboltanum.
Hann hlakkar til að vinna með
þjálfaranum, Heimi Hallgrímssyni.
„Ég átti gott spjall við hann og það
hafði mikið að segja. Ég hef á til-
finningunni að það eigi að rífa þetta
upp eftir frekar dapurt gengi,“ seg-
ir Tryggvi en langt er um liðið síðan
þeir unnu síðast saman. „Við vorum
samherjar fyrir löngu síðan, þegar ég
var að byrja. Þá var hann í vörninni
og ég var sóknarkjúlli,“ segir Tryggvi
léttur.
kann leikinn betur
Tólf ár eru liðin frá því hann lék síð-
ast með ÍBV, árið 1997. Spurður hvort
hann sé sami leikmaðurinn í dag seg-
ir Tryggvi að því fari fjarri. „Ég var al-
gjör fluga þegar ég fór. Ég held ég hafi
verið um 55 kíló,“ segir hann léttur í
bragði. „Ég hef þroskast mikið sem
leikmaður. Ég bý yfir betri sending-
argetu, meiri yfirsýn og kann leikinn
betur. Hraðinn er auðvitað eitthvað
minni en hann var sem betur fer
aldrei aðalsmerki mitt,“ segir hann
og bætir við: „Hárið er það eina sem
er farið.“
Í FÍnu Formi
Tryggvi er orðinn 35 ára gamall.
Hann segist þó vera í fínu formi þrátt
fyrir að farið sé að síga á seinni hluta
ferilsins. „Ég finn að ég þarf að hugsa
aðeins meira um mig. Maður þarf að
vera á tánum þegar maður er kom-
inn á þennan aldur. Ég sé samt að
margir bestur bitarnir í deildinni eru
á svipuðum aldri og ég,“ segir hann
og nefnir að Arnar Grétarsson hafi
nýverið framlengt samning sinn við
Breiðablik. Arnar er 37 ára og er lyk-
ilmaður í efnilegu liði Breiðabliks.
„Þetta er alltaf spurningin um það
hvernig menn fara með sjálfa sig,“
segir Tryggvi sem reiknar með því
að spila framarlega á miðjunni eða
á vinstri kantinum með nýju félagi.
Hann segist vel geta skorað mörk
þaðan líka, eins og með FH. „Við
erum búnir að spila einn æfingaleik.
Þar unnum við Þrótt 5-4 og ég setti
eitt. Þetta byrjar vel,“ segir Tryggvi að
lokum. baldur@dv.is
Genginn til liðs við sitt gamla félag
Tryggvi segist hafa þroskast mikið sem
leikmaður; hafa betri yfirsýn og kunna
leikinn betur en þegar hann lék síðast
fyrir ÍBV. H&N-myNd RóbeRt ReyNissoN
Markahrókurinn Tryggvi Guðmundsson skrifaði á dögunum undir samning við sitt gamla félag, ÍBV. Tryggvi
hlakkar til að takast á við nýja áskorun og segist ekki gefinn fyrir að sitja á bekknum. Hann segir endurkomuna
lengi hafa blundað í sér og segist vera í fínu formi, þrátt fyrir aldurinn. Hann skoraði mark fyrir ÍBV í fyrsta æf-
ingaleiknum, í fyrsta sinn í 12 ár.
„Hárið er það eina
sem er Farið“ „Ég var algjör fluga þegar ég fór. Ég held ég hafi verið um 55 kíló.“
T I L V A L I N J Ó L A G J Ö F !
S : 4 8 2 - 1 6 6 0
2 4 4 7 3 - 0 0 1 2 5 3 6 6 - 0 0 1 2 5 3 7 7 - 0 0 1 2 5 8 4 7 - 0 0 1
12.990 kr,- 15.990 kr,- 13.990 kr,- 13.990 kr,-
stærðir: 36-41 stærðir: 36-41 stærðir: 36-41 stærðir: 36-41
20% afsl. af skóm fimmtudaginn 19.nóv opið til kl 22