Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2009, Síða 26
Miðvikudagur 18. nóvember 200926 suðurland
Nýr grunnskóli verður vígður og tek-
inn í notkun á Stokkseyri þann 18.
desember næstkomandi og hefst
starfsemin í nýja húsinu á jólaballi,
og svo jólafríi. „Þetta verður auðvit-
að mikil bylting fyrir allt starf hjá okk-
ur,“ segir Arndís Harpa Einarsdóttir
skólastjóri.
Hún tekur engu að síður fram
að sá hluti skólans sem er á Eyrar-
bakka muni áfram búa við nokk-
ur þrengsli. „Þar stendur líka til að
byggja nýtt hús og vonandi verður af
þeim áformum innan næstu þriggja
ára,“ segir hún. Skólarnir á Stokkseyri
og Eyrarbakka voru sameinaðir árið
1997. Yngri bekkirnir sitja á bekkn-
um á Stokkseyri á meðan unglinga-
deildirnar nema á Eyrarbakka.
Spurð hvort ekki hefði verið ráð
að vinna úr plássleysinu með því að
hafa skólann allan á einum stað í
stærra húsi segir Arndís að talsvert
hafi verið rætt um þessa kosti áður en
lagt hafi verið út í bygginguna. Þetta
hafi einfaldlega orðið niðurstaðan.
„Það er auðvitað skólabíll á ferðinni
hérna á milli Stokkseyrar og Eyrar-
bakka alla daga og hefði verið það
hvar svo sem menn hefðu ákveðið að
hafa skólann,“ bætir hún við.
Til stóð að rífa gamla skólahúsið,
en í kjölfar efnahagshruns var ákveð-
ið að fresta því að rífa gamla hús-
ið og verður það nýtt að einhverju
leyti, enn um sinn. Þar verða kennd-
ar smíðar, heimilisfræði og hannyrð-
ir. Heildarkostnaður við nýju skóla-
bygginguna verður rétt ríflega 560
milljónir króna.
„Þetta er heilmikið hús,“ segir
Guðgeir Gunnarsson verkstjóri. „Við
höfum verið hér við smíðar núna
í rúmlega ár. Það er ágætt að vígja
húsið og byrja á jólaballinu. Þá höf-
um við smá tíma upp á að hlaupa
ef eitthvað þarf að snurfusa,“ heldur
hann áfram. „Þetta er rúmgott hús.
hér verða upp undir eitt hundrað
nemendur.“
sigtryggur@dv.is
Herdís Egilsdóttir Herdís kom og
miðlaði af reynslu sinni á málþingi um
alþýðumenntun á Eyrarbakka í síðustu
viku. H&N-myNd SIGTRyGGUR
Nýtt skólahús á
Stokkseyri verður
vígt á aðventunni.
Byrjum á jólaballinu
Skólahúsið Nýja
skólahúsið verður vígt
þann 18. desember.
Allt á áætlun Guðgeir Gunnarsson verkstjóri er ánægður með bygginguna, sem
tekið hefur ríflega ár að reisa.
Austurvegi 69 · Selfossi · s. 482 2555
Verið velkomin