Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2010, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2010, Blaðsíða 4
SANDKORN n Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er í sviðsljósinu þessa dagana. Forsetinn hefur eignast fjölda nýrra vina en tapað fæstum þeim gömlu. Sú saga er rifjuð upp í bók Samú- els Ein- arssonar, Rakarinn minn þagði, þegar Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráð- herra, var á kosninga- ferðalagi á Ísafirði og var ekið fram hjá Túngötu 3, öðru nafni Gríms- bý, þar sem rakarasonurinn Ólafur Ragnar ólst upp. Upp- lýsti heimamaður Davíð um að Ólafur hefði gjarnan verið bundinn í garðinum vegna út- rásarþarfar. Davíð þagði stund- arkorn og setti síðan upp undr- unarsvip og spurði með þjósti: „Hver leysti hann?“ n Fáir virtust hafa átt á því von að Ólafur Ragnar Gríms- son myndi að morgni þriðju- dagsins hafna því að undirrita lögin um Icesave. En þar voru þó undan- tekningar á. Náinn bandamað- ur forset- ans, Karl Th. Birgis- son, setti inn færslu á vef sinn, Herðubreið, tveimur tímum áður en blaða- mannafundur forsetans hófst. „Klukkan ellefu í dag grein- ir forseti Íslands frá rangri ákvörðun sinni varðandi ríkis- ábyrgð á láni til tryggingasjóðs innistæðueigenda. Það er samt alveg ástæðulaust að hrökkva af hjörunum vegna þess,“ bloggaði Karl og segir svo að forsetinn sé hvorki vitlaus né óábyrgur. n Fjölmiðlamaðurinn Helgi Seljan fagnar nú sigri eftir að umboðsmaður Alþingis snupr- aði stjórnvöld fyrir að vanrækja að breyta tölvukerfi Þjóðskrá- ar þannig að fólk með löng nöfn geti skráð þau rétt og sé það ekki í samræmi við lög. Dóttir Helga heitir því langa nafni Indíana Karítas Seljan Helgadóttir og sprengdi hún skala Þjóðskrár sem gerir ráð fyrir takmörkuðun stafafjölda. Nú liggur fyrir að bregðast þarf við. Sjálfur er Helgi alsæll með niðurstöðuna en hann fagnar einnig þeim tímamótum í lífi sínu að vera fluttur til Akur- eyrar með fjölskyldu sinni þar sem hann starfar fyrir Ríkisút- varpið. n Í tengslum við fall á hlustun Rásar 2 er rétt að taka fram að Sigrún Stefánsdóttir, dagskrár- stjóri stöðvarinnar, ber ekki beina ábyrgð á Morgunútvarp- inu sem heyrir undir frétta- svið og þar með Óðin Jónsson og hans fólk. Sigrún ber þó að sjálfsögðu ábyrgð á þeirri af- komu stöðvarinnar sem snýr að hlustun í heild. 4 FÖSTUDAGUR 8. janúar 2010 FRÉTTIR LEIÐRÉTTING Villa læddist inn í frétt DV á miðvikudag um unglingagengi á Þórshöfn. Þórshöfn var þar rang- lega sögð á Langasandi en er á Langanesi. „Lögreglan hefur greinilega bara steingleymt þessu. Þeir komu að minnsta kosti aldrei,“ segir Grafar- vogsbúinn Ellert Markússon, sem kom í veg fyrir að þjófagengi næði að brjótast inn á heimili hans skömmu fyrir jól. Í viðtali í DV sagði Ellert frá því að snemma morguns hefði hann séð hóp manna af erlendum upp- runa sitja í bíl fyrir utan heimili sitt. Skömmu síðar var knúið dyra heima hjá Ellert, en þegar hann kom til dyra tók einn maðurinn á rás að bílnum aftur. Hann hljóp í veg fyrir bílinn og náði niður bílnúmerinu á steingrárri Opel Corsa, sem mennirnir óku. Hann segist ekki í vafa um að menn- irnir hafi ætlað að brjótast inn heima hjá honum. Ellert hringdi strax í 112 og óskaði eftir því að lögreglan kæmi. Síðan leið og beið, en lögreglan kom aldrei. Eftir að DV fjallaði um málið hafði rannsóknarlögreglan hins vegar samband við Ellert til þess að spyrj- ast fyrir um málið. Talið er að hópur- inn hafi sést í sömu erindagjörðum í Mosfellsbæ. Rannsóknarlögreglan spurði Ell- ert nákvæmlega út í það klukkan hvað hann hefði hringt, en í ljós kom að nákvæmlega ekkert var til á skrá hjá lögreglunni um að hann hefði hringt inn, þennan dag. Svo virðist sem tilkynning hans hafi einfaldlega ekki komist til skila. „Þetta gæti hafa stoppað hjá 112, ég hringdi fyrst í þá. Það er eins og lögreglumaðurinn hafi bara lesið um þetta í DV. Hann fann ekkert sem tengdist þessu hjá lög- reglunni,“ segir Ellert. Hann segist hissa á lögreglunni, enda hafi hann nokkrum sinnum áður þurft að hringja á lögregluna út af skemmdarverkum sem unnin voru á flutningabíl hans og þá hafi varla lið- ið fimm mínútur þar til lögrelgumenn voru komnir á staðinn. valgeir@dv.is Ellert Markússon, íbúi í Grafarvogi, kom í veg fyrir innbrot Hann tilkynnti málið til lögreglu sem kom aldrei og frétti fyrst af málinu í DV. Hringdi í neyðarlínuna eftir innbrotstilraun en lögreglan kom aldrei: Lögregla sinnti ekki útkalli Frá lýðveldisstofnun 1944 hef- ur ekki farið fram þjóðaratkvæða- greiðsla á Íslandi. Þá fór fram at- kvæðagreiðsla þar sem þjóðin kaus í einu lagi um tvennt, annars vegar afnám svokallaðra sambandslaga við Dani og hins vegar um íslensku stjórnarskrána. Í rúm 65 ár hefur íslenska þjóð- in því ekki kosið í þjóðaratkvæða- greiðslu um nokkurt mál fyrr en nú þar sem útlit er fyrir að þjóðin fái að kjósa um samþykkt eða synjun laga Alþingis um ríkisábyrgð á Icesave. Undanfarin ár hefur krafa um þjóð- aratkvæðagreiðslu orðið meira áber- andi í umræðunni og þær raddir heyrst inni á þingi um ýmis mál, til að mynda hin umdeildu fjölmiðla- lög, inngöngu í Evrópusambandið og kvótakerfið. Sú hefur hins vegar aldrei orðið raunin og þingið hefur fram til þessa ekki skotið stórum og umdeildum málum til þjóðarinn- ar til afgreiðslu. DV leitaði til valin- kunnra einstaklinga og bar undir þá hvort þeir teldu að nýta ætti tæki- færið og láta þjóðina kjósa um fleiri umdeild mál í þjóðaratkvæðagreiðsl- unni sem fram undan er. Alveg nógu stórt Vilhjálmur Egilsson, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins, seg- ir Icesave alveg nógu stórt mál til að ekki sé farið að flækja atkvæða- greiðsluna með öðrum umdeildum málum. Hann segist reyndar þeirr- ar skoðunar að ekki eigi að koma til atkvæðagreiðslu heldur eigi rík- isstjórnin að draga lögin til baka. „Nei, mér finnst ekki að spyrja eigi um fleiri mál, þessi atkvæðagreiðsla ætti eingöngu að snúast um Ice save. Nóg verður nú samt þrætuefnið. Ég tel reyndar að ríkisstjórnin hefði átt að draga lögin til baka og reyna að semja upp á nýtt strax þar sem að kæmu þeir sem eru hvað óánægð- astir með núverandi samning. Leyfa þeim að bera ábyrgð á málinu,“ segir Vilhjálmur. Gunnar Helgi Kristinsson, próf- essor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, bendir á að víða erlendis sé það gert að kjósa um fleiri en eitt atriði samtímis í þjóðaratkvæða- greiðslu. Hann telur það þó varhuga- vert eins og sakir standa hér á landi. „Vandinn við að kjósa um margt í einu er að umræðan mun líða fyr- ir slíkt, þetta verður flóknara og nær síður athygli kjósenda. Hins vegar hygg ég að þetta sé oft gert þannig í Sviss. En miðað við þann litla tíma sem er til stefnu held ég að það væri mjög óráðlegt að reyna þetta núna,“ segir Gunnar Helgi. Freistandi Bjarni Jónsson, varaformaður Sið- menntar, segir það freistandi að kos- ið yrði einnig um aðskilnað ríkis og kirkju í þeirri atkvæðagreiðslu sem blasir við. Hann óttast hins vegar að Icesave-málið sé fullflókið til að blanda öðrum málum inn og ósk- ar því eftir annarri þjóðaratkvæða- greiðslu sem fyrst um ríkiskirkjuna. „Í fljótu bragði myndi ég vilja kjósa um aðskilnaðinn í leiðinni því nýj- ustu kannanir sýna að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar vill það. Ég hefði ekki á móti því en það er spurn- ing hvort þessi tímapunktur sé rétt- ur því Icesave-málið er nógu flókið. Ég bið því um aðra þjóðaratkvæða- greiðslu, frekar fyrr en seinna,“ segir Bjarni. Eiríkur Bergmann, doktor í stjórn- málafræði, tekur undir að það geti verið freistandi að kjósa um önnur mál í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Líkt og hinir bendir hann á að slíkt gæti truflað þjóðina. „Þetta er ef til vill freistandi en mögulega gætu öll slík viðhengi truflað kosninguna. Vand- inn liggur einnig í því hvaða tilhögun eigi að hafa á atkvæðagreiðslunni. Á til að mynda að krefast einhverrar tiltekinnar lágmarksþátttöku? Þarf jafnvel meirihluti atkvæðisbærra manna að kjósa á tiltekinn veg til að synjunin haldi? Þannig að það er að ýmsu að hyggja í þessu – og kannski að æra óstöðugan að bæta nýjum at- riðum við. Hvernig á til að mynda að velja þau?“ segir Eiríkur. Íslenska þjóðin hefur ekki tekið þátt í þjóðaratkvæðagreiðslu frá lýðveldisstofnun en kaus þá um tvennt. Nú stefnir í slíka atkvæðagreiðslu vegna Icesave. Álitsgjafar DV telja óráðlegt að nota tækifærið og kjósa um önnur umdeild mál í leiðinni. ICESAVE OF STÓRT FYRIR ÖNNUR MÁL TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Langt síðan Það eru rúm 65 ár frá því að Íslendingar tóku síðast þátt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá kusum við annars vegar um sambandslögin við Dani og hins vegar um íslensku stjórnarskrána. Bjarni Jónsson „Í fljótu bragði myndi ég vilja kjósa um aðskilnað ríkis og kirkju í leiðinni en það er spurning hvort þessi tímapunktur sé réttur því Icesave-málið er nógu flókið. Freistandi Eiríkur segir að mörgu að huga fyrir þjóðarat- kvæðagreiðslu og óttast að fleiri atriði gætu truflað þjóðina fyrir kosningu. Of stórt Gunnar Helgi bendir á að aðrar þjóðir hafi nýtt tæki- færi og kosið um fleiri mál í þjóðaratkvæða- greiðslu. Hann telur þó of lítinn tíma til stefnu að þessu sinni. Vill ekki atkvæða- greiðslu Vilhjálmur vill að ríkisstjórnin dragi lögin til baka og því komi ekki til þjóðaratkvæða- greiðslu um Icesave.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.