Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2010, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2010, Blaðsíða 26
UM HELGINA ÍSLENSKT VEÐURFAR STEYPT Í MÓT Nú stendur yfir sýning finnsku listakonunnar Sari Maarit Cedergren í Artóteki í Tryggvagötu. Þar er íslenskt veðurfar í aðalhlutverki en Sari sýnir lágmyndir úr steypu og gifsi og endurspeglar íslenska veðrið. Sari, sem hefur búið hér á Íslandi síðan 1986, hefur hlotið ýmsar viðurkenningar í Finnlandi, Svíþjóð og hér á Íslandi fyrir verk sín. Hún starfar nú sem kennari í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Sýningin stendur út janúar og er opin alla daga. STEINUNN SIGURÐ- ARDÓTTIR MEÐ FYRIRLESTUR Fatahönnuðurinn Steinunn Sig- urðardóttir verður með fyrirlestur næstkomandi sunnudag í Lista- safni Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum. Þar mun hún fjalla um feril sinn og hönnunarferlið og skýra frá þeim þáttum í náttúru okkar og þjóðlegri hefð sem hefur haft áhrif á hönnun hennar í gegnum tíðina. Einnig um mikilvægi umhverfis okkar í sköpun- arferlinu. Fyrirlesturinn hefst klukk- an 15 stundvíslega. FYRIRLESTUR Í LJÓSMYNDA- SAFNI REYKJA- VÍKUR Max Houghton, ritstjóri tímarits- ins Foto8 í London, heldur fyrir- lestur í Ljósmyndasafni Reykja- víkur á laugardaginn en hann er hér á landi í tilefni árlegrar keppni Blaðaljósmyndarafélags Íslands. Fyrirlesturinn ber heitið „Hard Times - Photography and renewal“ og fjallar um breytingar á fréttaljósmyndun í Bandaríkj- unum í kringum síðustu heims- kreppu. Einnig koma fram Brynj- ar Gunnarsson og Árni Torfason. Fyrirlesturinn hefst klukkan 13.30. TVÆR SÝNINGAR Í DALÍ GALLERÍ Tvær sýningar verða opnaðar í DaLí Gallerí á laugardaginn. Annars vegar er það listakonan Margrét Buhl en hún er nýútskrifuð frá Myndlista- skólanum á Akureyri. Hún vinnur innsetningu í salinn með umfjöll- unarefnið minningar, tímabil og tónlistartengsl með persónulegri nálgun hennar. Hin er söng- og leik- konan Jana María Guðmundsdóttir sem einnig verður með innsetningu og fjallar um skynfærin. Sýningin er opnuð klukkan 14 og stendur til 24. janúar. BÍÓMYND Kex með beikonosti 26 FÖSTUDAGUR 8. janúar 2010 FÓKUS „Ég er ekki mikið fyrir smáverk,“ seg- ir Garðar Eymundsson, 83 ára list- málari og húsasmíðameistari, sem lauk nýverið við að teikna upp fjöllin í kringum heimabæ sinn, Seyðisfjörð. Þau eru tignarleg fjöllin sem vaka yfir bænum litla á alla kanta og hafa þau verið mörgum listamönnum innblást- ur í hinum ýmsu verkum í gegnum tíðina. Núna síðast Garðari sem lýsir upp skammdegið á Seyðisfirði með sýningu sinni í listamiðstöðinni Skaft- felli. Og ekki veitir af því þessi sömu fjöll sjá til þess að sólin sést ekki í bæn- um svo mánuðum skiptir yfir dimm- asta part vetrarins. Garðar tengist hinu mikla menn- ingarlífi sem er á Seyðisfirði sterkum böndum og ekki síst fyrir þær sakir að hann gaf einmitt húsið, Skaftfell, und- ir þá fyrirmyndarstarfsemi sem þar er rekin. Garðar hugsaði sig ekki tvisvar um að gefa húsið þegar sú hugmynd kom upp á 100 ára afmæli bæjarins árið 1995 að breyta Skaftfelli í menn- ingarmiðstöð. Síðan þá hefur Skaft- fell fest sig í sessi sem ein af virtustu og virkustu menningarmiðstöðvum landsins. Bæjarlistaverkið kveikjan „Ég fékk þessa hugmynd eiginlega þegar ég var að velta fyrir mér verk- inu hans Kristjáns Guðmundssonar sem stendur hér í hjarta bæjarins,“ en Garðar á þar við listaverkið sem Krist- ján gerði í tilefni af 100 afmæli Seyð- isfjarðar og er stálskúlptúr af útlínum fjarðarins. „Það væri ekki vitlaust fyrst þetta var komið að bæta þá fjöllunum við.“ Það var svo í september árið 2008 sem Garðar hófst handa við að teikna fjöllin og lauk því nýverið eftir 15 mán- aða vinnu. „Þetta er nú ekki mikið af- rek að mínu mati,“ segir Garðar ákveð- inn þótt ekki sé víst að allir séu honum sammála um það. „Þetta var aðallega mikil vinna,“ bætir hann svo við en Garðar lagði ríka áherslu á að birtu- skilyrðin væru sem allra best þegar hann teiknaði myndir sínar og þurfti hann því oft að sýna verkinu mikla þolinmæði. „Þegar ég byrjaði í sept- ember var birtan tilvalin. Haustbirt- an dró fram formið og lagið á fjöllun- um en flata birtan í sumar var aftur á móti mjög erfið. Hún gerir fjöllin svo einsleit og eyðir öllu formi. Best var þó þegar kom föl í fjöllin. Þá sést formið hvað best og ég nýtti mér það mikið.“ Garðar bjó sér til kerfi og vann all- ar teikningarnar 25 sem mynda fjalla- hringinn eftir því. Hver teikning er metri á lengd og Garðar segir hverja mynd sýna sirka fjóra kílómetra af fjalllendi. Hann teiknaði því hverja mynd í fjórum pörtum þar sem hann reiknaði það út að hann hefði teikn- að í kringum kílómetra í einu. Þessi nákvæmnisvinna og allar pælingar tengdar henni voru Garðari einfaldar því hann er eins og áður segir húsa- smíðameistari og öllu vanur. Haugur af blýöntum EKKI MIKIÐ FYRIR smáverk Garðar Eymundsson listmálari lauk nýver- ið við að teikna fjallahringinn sem umlyk- ur Seyðisfjörð. Verkið samanstendur af 50 teikningum sem hver er einn metri á lengd en alls eru á þeim um 50 kílómetrar af fjall- lendi. Garðar opnaði sýningu sína í lista- miðstöðunni Skaftfelli í lok nóvember en hann gaf einmitt húsið til starfsem- innar á sínum tíma. Woodstock-hátíðin er einn af merkilegustu menningarviðburð- um 20. aldarinnar. Tákn hippakyn- slóðarinnar, flower power, frjálsar ástir, sýra og hvað eina.  Það væri í besta falli mjög hall- ærislegt að gera leikna kvikmynd um tónleikana sjálfa, Ang Lee velur sér því frekar að segja sögu Elliots Tiber, sem var einn þeirra  sem stóðu að hátíðinni. Elliot stendur á tímamótum í lífinu, veit ekkert hvað honum finnst um hitt og þetta, sér- stalega hvert kynhneigð hans hall- ar. Veröld hans opnast svo upp á gátt þegar hann kynnist framandi fólki í tónleikastandinu og úr verður falleg saga. Á meðan sturlast móð- ir hans og faðir úr peningagræðgi. Það er grínistinn Demetri Martin sem leikur hlutverk Elliots, eitt af hans fyrstu skiptum á hvíta tjald- inu. Taking Woodstock er langt í frá önnur skrautfjöður í hatt Ang Lee. Þó myndin sé í sjálfu sér ekkert leið- inleg, og meira að segja vönduð og vel leikin, þá er hún ómerkileg. Sag- an er óáhugaverð og aðalpersónan kraftlaus, og úr sögusviði eins og Woodstock býður upp á þá hlýtur að vera hægt að kreista meiri safa úr berjunum. Þetta er algjör froða. Ang Lee sem oftast eldar steikur, býður hér upp á kex með smurosti, og því nennum við ekki.   Dóri DNA Taking Woodstock „Ang Lee sem oftast eldar steikur, býður hér upp á kex með smurosti, og því nennum við ekki.“ TAKING WOODSTOCK Leikstjóri: Ang Lee Aðalhlutverk: Demetri Martin, Emile Hirsch, Lieb Schreiver,  KVIKMYNDIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.