Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2010, Page 38
38 8. janúar 2010 FÖSTUDAGUR VERÖLD
VAMPÍRUSMOKKUR FRÁ HELVÍTI
Lífveran er líffræðingar nefna vampyroteuthis infernalis á
latínu, sem myndi útleggjast sem vampírusmokkurinn frá
helvíti á íslensku, er smár smokkfiskur sem býr í hlýjum höf-
um jarðar. Hann lifir á 800-900 metra dýpi þar sem myrkur
ríkir. Augun skynja dökkar útlínur annarra dýra sem sveima
í hafdjúpinu. Þegar vampírusmokkurinn skynjar hreyfingu
í grennd getur hann synt í burtu á flótta á miklum hraða.
Griparmar smokksins eru alsettir litlum tönnum.
UMSJÓN: HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON, helgihrafn@dv.is
Hugrakkur læknir á suðurpólnum skar sjálfan sig upp:
Leonid Rogozov herlækn-ir í leiðangri Sovétmanna á suðurpólnum vissi að babb væri komið í bátinn
hinn 29. ágúst árið 1961. Hann
fann fyrir slæmum verkjum hægra
megin í kviðnum og var kom-
inn með hita. Rogozov þreifaði á
maganum á sér. Þetta gat ekki þýtt
nema eitt: Hann var kominn með
botnlangabólgu.
Hann var eini læknirinn í
Novolazarevskaya-stöðinni, um
hávetur á Suðurskautslandinu.
Það var engin leið til að kalla á
flugvél eða annan lækni. Næsta
rannsóknarstöð var í um 1.500
kílómetra fjarlægð. Eina leið-
in til að bjarga manni með botn-
langabólgu á suðurpólnum var að
skera hann upp sem fyrst. Rogoz-
ov neyddist því til að hefja botn-
langaskurð á sjálfum sér.
Skar sig upp
Tveir félagar Rogozovs aðstoð-
uðu hann við aðgerðina. Annar
var verkfræðingur en hinn veð-
urfræðingur svo þeir höfðu enga
reynslu af skurðaðgerðum. Þeir
komu öllu fyrir og komu upp
heimagerðri skurðstofu sam-
kvæmt fyrirmælum læknisins.
Rogozov kom sér fyrir og lá hálf-
beygður á vinstri hlið líkamans og
notaðist við lítinn spegil á magan-
um á sér.
Dr. Rogozov deyfði sig með
sprautu. Hann skar svo 12 sentí-
metra langan skurð við hægri
mjaðmarblaðið með skurðhnífn-
um. Með
því að horfa
með speglinum eða þreifa með
fingrunum fann hann stökkbólg-
inn botnlangann, fjarlægði hann
og sprautaði sýklalyfjum í kviðar-
holið.
Heillaði þjóðina
Aðgerðin gekk hratt fyrir sig fyrsta
hálftímann en eftir það þurfti
læknirinn að hvíla sig um stund
áður en hann hélt áfram. Botn-
langaskurðinum var lokið eftir
klukkustund og þrjú kortér. Að-
gerðin hafði heppnast vel. Rog-
ozov hvíldi sig vel á eftir og var
hinn hressasti að nokkrum dög-
um liðnum. Hann hóf störf aftur
að tveimur vikum loknum.
Rogozov heillaði sovésku þjóð-
ina með hetjudáð sinni. Hann
hlaut eina æðstu orðu Sovétríkj-
anna við heimkomuna frá suð-
urpólnum 1961. Hann lést árið
2000.
DÝPSTA
VATN HEIMS
nBaikalvatn í Síberíu er dýpsta vatn
heims. Það er einnig næstvatnsmesta
stöðuvatn heims, á eftir hinu salta Kaspía-
hafi. Í Baikalvatni eru um 20% af öllu
ferskvatni jarðar. Baikal er um 1.600 metra
djúpt þar sem það er dýpst. Vatnið er enn
fremur elsta vatn heims, um 25 milljóna
ára gamalt. Það liggur í sigdal á svæði þar
sem jarðskorpuflekar færast í sundur. Fjöll
umkringja Baikalvatn en landkönnuður-
inn Kurbat Ivanov var fyrsti Rússinn sem
komst að vatninu árið 1643, en áður vissu
Evrópumenn ekki af tilvist þess.
DOLLARASEÐLAR
FYRIR DAUÐA
n Kínverjar
hafa lengi
haft að sið
að brenna
pappír við
jarðarfarir
ættingja.
Pappírinn
á að tákna
peninga-
seðla sem
hinir látnu
taka með sér
í eftirlífið,
svo þeir lifi
ekki skort
þar hinum
megin.
Nútímaleg
útgáfa
pappírsins
er prentaðir
seðlar sem
kallaðir eru
„heljarpen-
ingar“. Á
seðlana eru
prentaðar
himinháar
peningaupp-
hæðir í dollur-
um, til dæmis
tíu þúsund,
hundrað
þúsund,
milljón eða
milljarður doll-
ara. Í Singapúr
er algengt að sjá 10 milljarða dollara
seðla til sölu í verslunum. Á seðlunum
er gjarnan höfð teikning af hinum
himneska keisara taóismans. Á
bakhlið seðilsins er þá teikning af
bankanum í hel.
STEYPA Á
TUNGLINU
n Lunarcrete eða mánasteypa er efni
sem vísindamenn frá nokkrum háskólum
í Bandaríkjunum hafa hugsað sér að not-
að verði við mannvirkjagerð á tunglinu.
Það er steypa sem á auðveldan hátt má
hræra úr efnum í jarðvegi tunglsins og
hentar aðstæðum þar. Myndi steypan
þola ólíkt hitastig á yfirborðinu, allt frá
120°C hita í -120°C frost. Notkun mána-
steypunnar myndi draga úr kostnaði við
húsbyggingar á tunglinu.
Skrifóður prestur skrifaði um allt sem fyrir hann kom í dagbók sína:
37,5 milljóna orða dagbók
Robert Shields, prestur og kennari í Washington-ríki í Bandaríkjun-
um, skildi eftir sig 37,5 milljóna orða dagbók þegar hann lést árið
2007. Hann er talinn hafa þjáðst af svokölluðu skrifæði og skráði öll
atriði ævi sinnar í dagbókina. „Ef ég hætti að skrifa myndi mér líða
eins og einhver hefði slökkt á lífi mínu,“ sagði presturinn. Hann skrif-
aði í fjórar klukkustundir á dag á pallinum fyrir aftan húsið sitt og
skráði eigin blóðþrýsting, líkamshita, lyfjagjöf, lýsti lit þvagsins og
öllu því sem hann sá á hverjum degi. Presturinn svaf aðeins í tvo tíma
í senn svo hann gæti skrifað niður draumfarir sínar.
Robert Shields taldi að skrif sín myndu síðar gagnast fræðimönn-
um. „Það verður kannski hægt að komast að einhverju um mannlega
hegðun með því að skoða líf einhvers með þessari nákvæmni, hverja
mínútu á hverjum degi.“
Robert Shields gaf Ríkisháskólanum í Washington dagbækur sín-
ar. Þar eru þær geymdar í 94 kössum. Presturinn orðlangi setti sem
skilyrði að þær yrðu ekki lesnar fyrr en eftir 50 ár. Þrátt fyrir það hafa
örfá dæmi birst almenningi.
helgihrafn@dv.is
25.júlí 1993
Kl. 7: Ég þreif baðkarið og klóraði
fætinum með nöglunum til að
fjarlægja dauða húð.
Kl. 7:05: Ég losaði stórar, harðar
hægðir og hálfan lítra af þvagi.
Notaði fimm klósettpappírsarkir.
18. apríl 1994
Kl. 18:30-18:35: Ég setti tvo
Stouffer‘s Macaroni-rétti í ofninn og
setti á 350° hita.
Kl. 18:35-18:50: Ég sat við IBM-rit-
vélina og skráði færslur í dagbókina.
Kl. 18:50-19:30: Ég borðaði
Stouffer‘s Macaroni-réttinn og
Cornelia borðaði hinn. Grace langaði
ekki að borða.
Kl. 19:30-19:35: Ég skipti um peru
á pallinum því hin ljósaperan hafði
brunnið út.
13. ágúst 1995
Kl. 8:45: Ég rakaði mig tvisvar með
Gilette Sensor-rakvél og rakaði á
mér hálsinn á bak við bæði eyrun og
einnig kinnarnar þvert.
SKAR ÚR SÉRbotnlangann
Erfið aðgerð Rogo-
zov þurfti að skera
sig upp, hálfdeyfður
og í óþægilegri
líkamsstellingu.
Notaði spegil Samstarfs-
maður hins þjáða læknis hélt
á speglinum fyrir hann.
Hetja Sovéska þjóðin fagnaði Leonid
Rogozov ákaft við heimkomuna.