Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2010, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2010, Qupperneq 40
40 FÖSTUDAGUR 8. janúar 2010 NAFN OG ALDUR? „Sævar Sigurgeirsson, 40 ára.“ ATVINNA? „Texta- og hugmyndasmiður hjá Pipar TBWA, hand- ritshöfundur og Ljótur hálfviti í hjáverkum.“ HJÚSKAPARSTAÐA? „Afskaplega vel giftur.“ FJÖLDI BARNA? „Þrjú.“ HVAÐA TÓNLEIKA FÓRST ÞÚ Á SÍÐAST? „Hið dásamlega en vel geymda leyndarmál Ármanns, vinar míns, og Söru Blandon, Band on stage á Café Rosenberg.“ HEFUR ÞÚ KOMIST Í KAST VIÐ LÖGIN? „Ja… hvað kallarðu kast? Ég var mjög kurteis!“ HVER ER UPPÁHALDSFLÍKIN ÞÍN OG AF HVERJU? „Má segja tvennt? Það eru nefnilega hlýir og notalegir innisokkaskór hvor upp á sína löppina, þar sem ég er fótkaldur með afbrigðum.“ HEFUR ÞÚ TEKIÐ ÞÁTT Í SKIPULÖGÐUM MÓTMÆLUM? „Nei. Ég er svo jákvæður að eðlisfari. Eða bara svona mikil undirlægja og aumingi. Annað hvort.“ TRÚIR ÞÚ Á FRAMHALDSLÍF? „Ef það hentar. Ég er ekki viss um að framhaldslíf sé góð hugmynd fyrir alla sko.“ HVAÐA LAG SKAMMAST ÞÚ ÞÍN MEST FYRIR AÐ HAFA HALDIÐ UPP Á? „Ætli það sé ekki Susanna með Art Company sem tröllreið öllu þegar ég var svona 14–15 ára. Ég leyfi mér að efast um framhaldslíf útvarpstækisins ef ég myndi heyra lagið í dag.“ HVAÐA LAG KVEIKIR Í ÞÉR? „Held stundum að það vanti í mig kveikjuþráðinn þegar kemur að tónlist. En ef blandaður kór myndi birtast við rúmgaflinn hjá mér og syngja Land míns föður fjórraddað, þá get ég fullyrt að ég myndi fara að hágrenja.“ TIL HVERS HLAKKAR ÞÚ NÚNA? „Kvöldsins. Og bara framtíðar. Það er tilgangslaust að hlakka til fortíðarinnar. Hún verður ekkert spes.“ AFREK VIKUNNAR? „Ég mætti á réttum tíma í vinnuna á miðvikudaginn.“ HEFUR ÞÚ LÁTIÐ SPÁ FYRIR ÞÉR? „Nei. En ég er að spá í það.“ SPILAR ÞÚ Á HLJÓÐFÆRI? „Það er mjög á mörkunum. Hef samið nokkur lög á gítar en spila lítið. Er skástur á það sem við í Hálfvit- unum köllum sprekán, sem er tilfallandi tréverk og hristur ýmiss konar.“ VILTU AÐ ÍSLAND GANGI Í EVRÓPUSAMBANDIÐ? „Alveg eins. Því ekki? Samt soldið efins líka. Og þó. Ef það er almenn stemning fyrir því, þá er ég svo sem alveg til.“ HVAÐ ER MIKILVÆGAST Í LÍFINU? „Heiðarleiki. Nei annars, ég er að ljúga. Jú, ég ætla að segja það.“ HVAÐA ÍSLENSKA RÁÐAMANN MUNDIR ÞÚ VILJA HELLA FULLAN OG FARA Á TRÚNÓ MEÐ? „Mér leiðist fullt fólk á trúnó jafnvel meira en pólitík, svo þetta er snúin spurning. En það væri óneitanlega áskorun að koma víni ofan í forsetann og fá hann til að opna sig um aðdragandann að synjuninni.“ HVAÐA FRÆGA EINSTAKLING MYNDIR ÞÚ HELST VILJA HITTA OG AF HVERJU? „Sigmund Erni. Bara til að þakka honum fyrir inn- blásturinn og lánið á karakternum.“ NÝLEGT PRAKKARASTRIK? „Áramótaskaupið. Held ég hafi aldrei hrekkt eins marga í einu.“ HVAÐA FRÆGA EINSTAKLING LÍKIST ÞÚ MEST? „Nicole Kidman. Nei, hva… ekki hugmynd. Aldrei spáð í það. En eðlilega talar fólk um Sigmund Erni núna og sonur minn vill meina að ég sé sláandi líkur hollenska markverðinum Edwin Van der Sar.“ ERTU MEÐ EINHVERJA LEYNDA HÆFILEIKA? „Alveg fullt af þeim. Ég er til dæmis mjög fljótur að gleyma. Svo kann ég… bíddu hver var aftur spurning- in? Jú, ég get hreyft annað eyrað í einu.“ Á AÐ LEYFA ÖNNUR VÍMUEFNI EN ÁFENGI? „Ómögulega takk. Og þá meina ég nei, ómögulega.“ HVAÐ ER ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ GERIR ÁÐUR EN ÞÚ FERÐ AÐ SOFA? „Tek niður gleraugun og slekk veggljósið.“ HVER ER LEIÐ ÍSLANDS ÚT ÚR KREPPUNNI? „Vonandi upp.“ Sævar Sigurgeirsson er fjölhæfur maður. Hann er áhugaleik- ari, auglýsingasmiður, leikskáld og meðlimur í Ljótu hálfvit- unum. Sævar vakti mikla athygli í síðasta Áramótaskaupi þegar hann brá sér í gervi Sigmundar Ernis Rúnarssonar. LANGAR AÐ HITTA SIGMUND ERNI Betulic birkilaufstöflurnar innihalda 98% birkilaufsduft og eru framleiddar af natni með aðferð sem varðveitir upprunalega eiginleika birkilaufs sem allra best. Það er mikil og gömul hefð fyrir því að nota birkilauf sem fæðubótarefni til að hraða efnaskiptum og losa vatn úr líkamanum, draga úr bólgum og afeitra líkamann (detox). Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, auk þess sem það örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Ráðlagður dagskammtur 2 til 4 töflur er samsvarar 980 - 1960 mg. af birkilaufi. Betulic inniheldur hvorki laktósa, glúten, sætuefni né ger. BETULIC - BIRKILAUF www.birkiaska.is Umboðs- og söluaðili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is Birkilauf Umbo›s- og sölua›ili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi Minnistöflur NICOLAI Véla- og hjólastillingar Tímareimar - Viðgerðir BIFREIÐASTILLINGAR Faxafeni 12 Sími 588-2455 OXYTARM Endurnærir og hreinsar ristilinn Allir dásama OXYTARM Í boði eru 60-150 töflu skammtar 30days& Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is. Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman -120 töflu skammtur - DETOX

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.