Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2010, Side 12
12 MÁNUDAGUR 8. febrúar 2010 FRÉTTIR
„Ég segi allt dásamlegt. Síðan ég var
sex ára, syngjandi í hárburstann uppi
í sófa, er ég búin að stefna að því að
vinna þessa keppni þannig að tilfinn-
ingin núna er dásamleg,“ segir Hera
Björk Þórhallsdóttir, söngkona og sig-
urvegari í Söngvakeppni Sjónvarps-
ins í ár.
Hera Björk verður fulltrúi Íslands
í Eurovision-kepninni sem fram fer í
Noregi í vor eftir að hafa sigrað með
laginu Je ne sais quoi. Með sigrinum
er langþráður draumur að rætast og
ætlar hún sér ekkert annað en sigur
í lokakeppninni. Þrátt fyrir deilur við
aðra lagahöfunda undankeppninnar,
meðal annars við Bubba Morthens,
segist hún vera með flott sigurlag í
höndunum.
Naumur sigur
Aðspurð segir Hera Björk sigurinn
um helgina ákaflega sætan þó að
mjótt hafi verið á mununum. Hún
hvetur Bubba til að halda áfram
þátttöku í Eurovision. „Við þóttum
greinilega sigurstranglegust og þá
rísa oft upp deilur. Við Jógvan vor-
um ekkert að bítast en þetta er auð-
vitað fyrsta keppnin hans Bubba og
hann er auðvitað kóngurinn á Ís-
landi. Ég er hins vegar mjög stolt af
honum að éta ofan í sig stóru orðin
og koma með okkur í keppnina því
þetta er ekki fyrir neina aukvisa að
taka þátt. Þetta er heljarinnar skóli
og erfið keppni og ég hvet Bubba til
að taka aftur þátt á næsta ári,“ segir
Hera Björk.
„Ég hef heyrt að það hafi ver-
ið mjög mjótt á mununum og þetta
var því ekkert rúst. Sigurinn var því
mjög naumur en ákaflega sætur,“ seg-
ir Hera.
Læddist út að næturlagi
Aðspurð segist Hera Björk hafa ver-
ið á köflum uppreisnargjarn ungl-
ingur. Hún gerði eiginlega það sem
henni hentaði hverju sinni án þess
þó að hafa verið vandræðaungling-
ur. „Ég var mjög ákveðinn unglingur
og hlustaði eiginlega bara á röddina í
hausnum á mér. Það kom í mig mikil
uppreisn og það má segja að gelgjan
hafi skollið hart á mér. Hins vegar á ég
mjög skilningsríka foreldra sem náðu
að taka á mér. Innst inni er ég með
mjög góða skynsemisrödd og hún
kom í veg fyrir að ég fór ekki fram úr
mér,“ segir Hera Björk.
„Ég hlustaði alls ekki alltaf á
mömmu og pabba, þannig kom ég
iðulega heim þegar mér hentaði. Aft-
ur á móti kom ég alltaf heim þegar
þau sögðu mér að koma, brosti fallega
til þeirra og læddist svo út um kjallar-
ann og kom heim einhvern tímann
um nóttina. Ég hef nú sagt þeim frá
þessu og þau hlæja mikið að þessu í
dag og stríða mér.“
Barðist með bakkaklíku
Hera Björk ólst upp í Breiðholtinu
og það segir hún hafa verið æðislega
lífsreynslu. Eitt sinn varð hún fyrir
því óláni að henda hamri í hausinn
á strák í hverfinu. „Það var mikil bar-
átta í Bakkahverfinu og ég var í einni
slíkri. Inn á okkar reit mátti enginn
koma nema með okkar leyfi en ég
viðurkenni að ég var eiginlega skít-
hrædd við strákagengi úr nágrenn-
inu. Ég náði hins vegar alltaf að hóta
strákunum bara með eldri systur
minni því hún var öflug,“ segir Hera
Björk.
„Þetta voru nú engir alvarlegir bar-
dagar en einu sinni lenti ég í því að
kasta hamri í hausinn á strák. Greyið
var bara á röngum stað á röngum tíma
og fékk hamarinn í hausinn en hlaut
sem betur fer engan skaða af. Þetta er
það ofbeldisfyllsta sem ég man eftir.
Það var hins vegar algjörlega óvart og
við erum miklir vinir í dag.“
Stríddi skólastjórasyni
Söngkonan Hera Björk gekk í Öldu-
selsskóla og var þar í aðalklíkunni í
skólanum. Aðspurð segist hún aldrei
hafa verið lögð í einelti en viðurkenn-
ir að hún hafi átt það til að stríða öðr-
um. „Ég var nú svo heppin þá að vera
í aðalklíkunni og lenti aldrei í eineltis-
málum. Auðvitað varð ég vitni að alls
konar slíkum tilvikum og lenti fyrir
ekki svo löngu í miklu sjokki. Þá kom
til mín maður sem sagði mig hafa lagt
sig í einelti í skólanum og það tók á
mig því þetta sat í honum greinilega
og sagðist hafa verið logandi hræddur
við mig. Það vildi svo illa til að hann
er sonur skólastjórans og ég baðst fyr-
irgefningar. Ef það eru fleiri þarna úti
sem telja mig hafa lagt þá í einelti hvet
ég alla til að koma bara út með það,“
segir Hera Björk.
Kemst enn í splitt
Frá unga aldri æfði Hera Björk bæði
fimleika og handbolta, annars vegar
hjá Ármanni og hins vegar Fram, en
á unglingsárunum hætti hún iðkun.
Hún segist enn komast í splitt. „Þótt
ég segi sjálf frá var ég ansi liðtæk í
þessum íþróttum. Ég kemst meira að
segja ennþá í splittið og það er ekk-
ert minna en stórkostlegt,“ segir Hera
Björk.
Eftir gagnfræðiskóla lá leið Heru
Bjarka í Fjölbrautaskólann í Breið-
holti þar sem hún tók þátt í félagslíf-
inu af krafti. „Ég á mjög auðvelt með
að læra en hef sjaldan setið mikið yfir
bókunum. Það má lýsa þessu þannig
að ég hef lesið undir prófin og munað
hlutina nógu lengi þangað til prófið
er búið. Hins vegar er hausinn á mér
fullur af einskis nýtum upplýsingum
og man ég því ótrúlegustu hluti, til að
mynda í hvaða fötum vinkona mín
var í eitthvert kvöld árið 1984. Árin
í FB voru stórkostleg og útskrifaðist
með láði af því sem ég kalla félagslífs-
braut því ég tróð mér hreinlega í allt
sem tengdist félagslífinu,“ segir Hera
Björk dreymin.
„Vorum hætt að dansa“
Hera Björk á tvö börn, 6 ára strák og 12
ára stelpu, sem hún á með fyrrverandi
eiginmanni sínum. Með núverandi
sambýlismanni finnst henni gaman
að elda en hún þolir illa heimilisverk-
in. „Eftir tíu ára hjónaband ákváðum
við að skilja og sá skilnaður var ein-
staklega ljúfur. Við sáum það bæði
að við vorum hætt að dansa saman
og þá var ekkert annað í stöðunni en
að leggja dansskónum og snúa sér að
einhverju öðru. Við erum hins vegar
góðir vinir í dag og við getum öll verið
saman í barnaafmælum í dag. Það er
mjög gott,“ segir Hera Björk.
„Ég er mjög heimakær og mikil
hreiðurkona. Ég hef mjög gaman af
því að elda, get alveg skipt um dekk á
bíl en mér finnst ekki gaman að þrífa.
Að brjóta saman þvott finnst mér öm-
urlegt og veit eiginlega ekki hver fann
það eiginlega upp. Að flokka sokka er
ekki mitt helsta áhugamál.“
Fram til þessa segir Hera Björk að
þátttaka sín í undankeppni Eurov-
ision-keppninnar í Danmörku á síð-
asta ári hafi verið eftirminnilegust
á söngferlinum. Hún segir það hafa
verið í senn skrítna en skemmtilega
reynslu. „Upplifun mín úr danska
Eurovision-ævintýrinu er sennilega
eftirminnilegust á ferlinum. Það var
mjög skrítið að syngja fyrir aðra þjóð
en jafnframt mjög skemmtilegt. Þar
vissi enginn hvað ég gat en nú er ég
ekki lengur óþekkt og þarf að standa
mig hressilega í hvert sinn sem ég
opna munninn,“ segir Hera Björk.
Biðlar til Bjarkar?
Hera Björk er sigurviss fyrir aðal-
keppni Eurovision í Ósló. Hún seg-
ir aðeins tilhlökkun og engan kvíða í
brjósti sér. „Ég vinn best undir pressu
og því er ég ekkert kvíðin fyrir þessu
stóra verkefni sem er fram undan. Ég
er líka búin að bíða eftir þessu lengi
þannig að það er bara tilhlökkun í
mínum huga. Við ætlum að taka gull-
ið í Ósló og stefnum á ekkert annað.
Það er eiginlega það eina sem kemur
til greina og ætlum að halda keppn-
ina í Hörpunni á næsta ári,“ segir Hera
Björk ákveðin.
„Við erum alveg klár á því að við
séum með vinningslag í höndunum.
Ef við erum ekki klár á því er enginn
annar klár á því. Við munum breyta
þessu eitthvað en ætlum ekkert að
umturna atriðinu. Við erum að kasta
á milli okkar skemmtilegum hug-
myndum og ein þeirra er að fá fræga
með okkur í að gera eitthvað rosalega
flott. Kannski hringi ég í Björk og bið
hana að vera með. Fyrst Bubbi gat
tekið þátt hlýtur hún að vera til í þetta
en okkur finnst hún allavega frábær
og skemmtileg. Kannski fæ ég bara
svanakjólinn lánaðan.“
ÁKVAÐ
SEX ÁRA
AÐ SIGRA Í
EUROVISION
Hera Björk Þórhallsdóttir keppir fyrir Íslands hönd í Eurovision. Söngur tók hug hennar allan og hef-
ur hún nú þegar átt farsælan söngferil. Hún er ekkert kvíðin fyrir hinu risavaxna verkefni að keppa í
Eurovision og ætlar að sigra í keppninni. Hera Björk var ákveðinn og óhlýðinn unglingur en segist eiga
skilningsríka foreldra sem flestir öfunduðu hana af.
Ljúf díva
Þrátt fyrir að hafa verið
ákveðinn og óhlýðinn
unglingur segist Hera
Björk ljúf og jákvæð
söngdíva. Hana dreymir
um leikferil og ætlar sér
að sigra í Ósló í vor.
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Ég hlustaði alls ekki alltaf
á mömmu og pabba,
þannig kom ég iðulega
heim þegar mér
hentaði.