Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2010, Side 20
20 MÁNUDAGUR 8. febrúar 2010 FÓKUS
Á M ÁN U D E G I
200 UMSÆKJENDUR
Rétt tæplega 200 umsækjendur sóttu um styrk úr tónlistarsjóðnum
Kraumi fyrir árið 2010. Umsókn um styrki var kynnt á Degi íslenskrar
tónlistar þann 11. desember síðastliðinn. Umsóknarfresturinn rann út
í vikunni, mánudaginn 1. febrúar. Alls bárust 193 umsóknir. Flestar eru
umsóknirnar frá hljómsveitum og listamönnum, sem sækja um stuðn-
ing og samstarf fyrir margvísleg verkefni sín á árinu.
LISTMUNAUPPBOÐ
Í GALLERÍ FOLD
Listmunauppboð verður hald-
ið í Gallerí Fold við Rauðarárstíg á
mánudaginn. Boðin verða upp tvö
málverk eftir Jóhannes S. Kjarval auk
verka eftir marga af helstu myndlist-
armönnum Íslands. Má þar nefna
Gunnlaug Blöndal, Karl Kvaran,
Snorra Arinbjarnar, Ásgrím Jónsson
og Mugg. Enn fremur verða verk
eftir Eirík Smith, Braga Ásgeirsson,
Tryggva Ólafsson, Karólínu Lárus-
dóttur, Kristján Davíðsson og Kjart-
an Guðjónsson og fleiri mætti nefna.
Uppboðið hefst klukkan 18:15.
ÚTGÁFUTÓN-
LEIKAR ELÍZU
Söngkonan geðþekka Elíza New-
man ætlar að halda útgáfutón-
leika á Café Rósenberg næsta
þriðjudag. Platan hennar, Pie in
the Sky, hefur fengið frábærar
viðtökur hér og er fyrsta upplag
uppselt á Íslandi. Elíza, sem var í
hljómsveitinni Kolrössu krókríð-
andi hér á árum áður, stundar
nám í Englandi og kemur því ein-
ungis til landsins til að gefa aðdá-
endum færi á að sjá hana spila.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21
og kostar 1.500 kr. inn.
KVIKMYND ÁRSINS
n Bjarnfreðarson
n Desember
n Mamma Gógó
LEIKIÐ SJÓNVARPSEFNI ÁRSINS
n Áramótaskaup Sjónvarpsins 2009
n Ástríður
n Fangavaktin
n Hamarinn
n Réttur
STUTTMYND ÁRSINS
n Epik Feil
n Far Away War
n Góða ferð
n Njálsgata
n Reyndu aftur
BARNAEFNI ÁRSINS
n Algjör Sveppi og leitin að Villa
n Á uppleið
n Latibær
n Skoppa og Skrítla í bíó
n Stundin okkar
SKEMMTIÞÁTTUR ÁRSINS
n Gettu betur
n Logi í beinni
n Popppunktur
n Söngvakeppni Sjónvarpsins 2009
n Útsvar
FRÉTTA- EÐA
VIÐTALSÞÁTTUR ÁRSINS
n Fréttaaukinn
n Silfur Egils
n Sjálfstætt Fólk
n Spjallið með Sölva
n Út og suður
MENNINGAR- EÐA
LÍFSTÍLSÞÁTTUR ÁRSINS
n Atvinnumennirnir okkar
n Kiljan
n Monitor
n Nýtt útlit
n Persónur og leikendur
SJÓNVARPSMAÐUR ÁRSINS
n Bogi Ágústsson
n Egill Helgason
n Eva María Jónsdóttir
n Sölvi Tryggvason
n Þóra Arnórsdóttir
HEIMILDAMYND ÁRSINS
n Alfreð Elíasson og Loftleiðir
n Draumalandið
n Hrunið
n Kraftur - Síðasti spretturinn
n Sólskinsdrengurinn
LEIKKONA ÁRSINS
Í AÐALHLUTVERKI
n Ilmur Kristjánsdóttir - Ástríður
n Jóhanna Vigdís Arnardóttir - Réttur
n Kristbjörg Kjeld - Mamma Gógó
n Laufey Elíasdóttir - Desember
n Margrét Helga Jóhannsdóttir - Bjarn-
freðarson og Fangavaktin
LEIKARI ÁRSINS
Í AÐALHLUTVERKI
n Björn Hlynur Haraldsson - Hamarinn
n Jón Gnarr - Bjarnfreðarson og Fanga-
vaktin
n Jörundur Ragnarsson - Bjarnfreðarson og
Fangavaktin
n Magnús Jónsson - Réttur
n Pétur Jóhann Sigfússon - Bjarnfreðarson
og Fangavaktin
MEÐLEIKKONA ÁRSINS
n Guðrún Gísladóttir - Desember
n Herdís Þorvaldsdóttir - Hamarinn
n Tinna Gunnlaugsdóttir - Réttur
n Tinna Hrafnsdóttir - Hamarinn
n Þóra Karitas Árnadóttir - Ástríður
MEÐLEIKARI ÁRSINS
n Björn Thors - Fangavaktin
n Gunnar Hansson - Fangavaktin
n Ólafur Darri Ólafsson - Fangavaktin
n Rúnar Freyr Gíslason - Ástríður
n Stefán Hallur Stefánsson - Desember
HANDRIT ÁRSINS
n Bjarnfreðarson
n Fangavaktin
n Ástríður
LEIKSTJÓRI ÁRSINS
n Friðrik Þór Friðriksson - Mamma Gógó
n Ragnar Bragason - Bjarnfreðarson og
Fangavaktin
n Þorfinnur Guðnason og Andri Snær
Magnason - Draumalandið
Fangavaktin og Bjarnfreðarson með lang flestar tilnefningar til Edduverðlauna:
Vaktirnar allsráðandi
Eftir gróðærisógleðina sem fór úr
böndunum erum við stödd í eftir-
partíi. En veislustjórarnir eru allt
aðrir, öllum er boðið og það er ann-
að á diskunum. „Guð blessi Ísland“
var frábær forréttur í þessu borð-
haldi og nú er kominn nýr réttur á
borðið. Meðan „Guð Blessi Ísland“
tók púlsinn á almennum borgur-
um kafar „Maybe I should have“ eft-
ir svörum þar sem ábyrgðin liggur.
Þessi mynd er gott dæmi um það
hvernig Michael Moore hefur haft
gríðarleg áhrif á heimildamynda-
gerð í heiminum.
Annar leikstjóranna fer í hlut-
verk sögumanns í mynd um hrun
íslensks kapítalisma. Fyrir vikið
verður myndin mun persónulegri
og skiljanlegri. Gunnar Sigurðs-
son er þar að auki fyndinn, skýr og
skýrmæltur, enda með reynslu úr
leikhúsi. Það dugar reyndar stund-
um ekki til, því tónlistin yfirgnæfir
stöku sinnum talið sem er hrikalegt í
mynd af þessu tagi. Gunnar saumar
kannski ekki jafnmikið að syndasel-
unum og Moore hefði gert en engu
að síður er hér hamrað á hlutum.
Gunnar dregur menn til ábyrgðar og
það er markvisst og rökstutt.
Þrátt fyrir nauðsynlega statist-
ík og mikið magn upplýsinga er
tempó ið gott. Rétt eins og hjá Mich-
ael Moore er það gert með sniðugri
grafík og myndskreyttum viðtölum
sem þannig halda manni við efnið.
Frábærar teikningar Halldórs Bald-
urssonar gera þar klárlega sitt.
Gunnar flakkar heimshornanna
á milli í leit að svörum, til Nýju Jór-
víkur, Washington, London og að
sjálfsögðu í magnaða heimsókn til
Tortóla. Gunnar gerir vel með því
að taka upp hanskann og sýna hlið
íbúa Guernsey. Þeirra inneign-
ir eru hvorki tryggðar af íslenskum
né breskum stjórnvöldum og tapið
því algert. Í einni heimsókn Gunn-
ars fær Transparency Int. fyrir ferð-
ina enda greinilega misheppnað
apparat sem sýndi Ísland alltaf sem
minnst spillta ríkið í heimi. Þeir
byggðu sínar kannanir eingöngu á
„sérfræðingum“ og sniðgengu al-
menning. Og eins og myndin sýnir
eru álit og skoðanir „sérfræðinga“
oft til sölu og þeim mun dýrari eftir
því sem gráðan er íburðarmeiri.
Björgólfur fer enn og aftur á kost-
um sem hinn gjörsamlega veru-
leikafirrti viðskiptamógúll. Hag-
fræðiþvælan í honum fær mann
til að hlæja ofan í maga og sjaldan
hefur viðmælandi yfirgefið viðtal
jafn hratt og hann gerir hér. Davíð
Oddsson og Björgvín G. Sigurðsson
neituðu að mæta en auk viðtala við
aðra stjórnmálamenn er hér notast
við mikið og vel unnið magn frétta
úr sjónvarpi. Ýmsir fjölmiðlamenn
segja sína hlið og borgarafundirn-
ir frá sínum tíma sýna fulltrúa al-
mennings í hita leiksins. Jón Gnarr
kemur á örlítið annan hátt inn sem
fulltrúi almennings og er skemmti-
legur að vanda.
Myndin sýnir að hrunið er ekki
eitthvert séríslenskt vandamál held-
ur er það móðurborð efnahagsmód-
elsins sjálfs sem hrynur út af græðg-
isvírusnum sem keyrir það fram af
bjarginu. „Maybe I should have“ er
persónuleg saga sem gerir það auð-
veldara fyrir fólk að tengja sig við
hana en beinaberar tölur og stat-
istík. Hún setur flókna hluti í ein-
falt samhengi svo fleiri en doktorar
í hagfræði skilja hvað fór úrskeiðis.
Hún gerir nákvæmlega það sem Eva
Joly talar um í einum af hápunkt-
um myndarinnar. Við verðum að
dæma hina seku fyrst og láta þá taka
ábyrgð. Þá fyrst og ekki sekúndu fyrr
getum við fyrirgefið hinum seku.
Erpur Eyvindarson
GLÆPIR
BORGA SIG?
Maybe I should have „Persónu-
leg saga sem gerir það auðveldara
fyrir fólk að tengja sig við hana en
beinaberar tölur og statistík.“
MAYBE I
SHOULD HAVE
Leikstjórn: Gunnar Sigurðsson og
Herbert Sveinbjörnsson
KVIKMYNDIR
Það eru þættirnir Fangavaktin og
kvikmyndin Bjarnfreðarson sem
eru tilnefnd til langflestra Eddu-
verðlauna fyrir árið 2009. DV tók
saman tilnefningarnar í nokkrum
af helstu flokkunum.
Bjarnfreðarson Fær fjölmargar
tilnefningar.