Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2010, Síða 6
SANDKORN
n Þingmaðurinn Tryggvi Þór
Herbertsson er sem á ber-
angri í eigin flokki vegna allra
þeirra synda sem komið hafa
upp á yfirborðið. Menn velta
fyrir sér hvort Bjarni Bene-
diktsson
formaður
taki af skar-
ið og segi
honum að
víkja. Það
er þó hæpið
í því ljósi að
Bjarni sjálf-
ur er með
lík í lestinni. Ef Tryggvi hættir
þingmennsku mun Arnbjörg
Sveinsdóttir, fyrrverandi
þingmaður, snúa aftur.
n Hannes Hólmsteinn Gissur-
arson, helsti hugmyndafræð-
ingurinn að íslenska fjármála-
kerfinu,
vill að þrír
ráðherr-
ar víki úr
ríkisstjórn
vegna klúð-
urs í björg-
unarstarf-
inu vegna
Ice save. Þar
nefnir hann Jóhönnu Sigurð-
ardóttur sem fær einkunnina
„mállaus mannafæla“ sem
ekki sé starfi sínu vaxin. Þá
segir Hannes á Pressubloggi
sínu ljóst að Össur Skarp-
héðinsson utanríkisráðherra
hljóti að sæta opinberri rann-
sókn vegna sölu á stofnfjár-
hlut sínum í SPRON. Loks
vill hann að Steingrímur víki
vegna „hroka“, vanþekking-
ar og fljótfærni. Ráðherrarnir
þrír hljóta nú að hugsa sinn
gang.
n Björn Bjarnason, fyrrver-
andi alþingismaður, hefur,
líkt og Hannes Hólmsteinn,
reifað þau
sjónarmið
að Stein-
grímur J.
Sigfússon
fjármála-
ráðherra
sé vanhæf-
ur vegna
hroka. Þetta
má lesa á heimasíðu hans en
einnig á AMX. Þrálátar kenn-
ingar eru einmitt uppi um að
Björn skrifi stóran hluta af
svokölluðu fuglahvísli sem
einkennist af þeirri gerð grárr-
ar kímnigáfu sem Björn er
þekktur fyrir. Nú síðast varð
heilsufrömuðurinn Jónína
Benediktsdóttir fyrir barð-
inu á fuglahvíslinu þegar því
var haldið fram að hún keypti
auglýsingar í fjölmiðlum til að
fá skjól frá umfjöllun.
n Einn sólargeisli hefur nú
brotist fram í Útvarpshúsinu í
Efstaleiti. Rás 2 hefur gengið í
gegnum þá niðurlægingu um
langa hríð að vera undir Bylgj-
unni í hlustun. Í síðastliðnum
mánuði varð svo viðsnúning-
ur þegar Bylgjan laut í gras.
Pressan segir frá því að sam-
kvæmt mælingu janúarmán-
aðar hafi verið meiri
hlustun á Rás 2,
eða 39 prósent,
en Bylgjan að-
eins verið með
32 prósent.
Ætla má að Sig-
rúnu Stefáns-
dóttur dagskrár-
stjóra sé létt þegar
hlé hefur orðið
á þrauta-
göng-
unni.
6 FÖSTUDAGUR 12. febrúar 2010 FRÉTTIR
SAMI EIGANDI FYRIR
OG EFTIR GJALDÞROT
Fyrrverandi eigandi Kraftvéla, Ævar Björn Þorsteinsson, tengist kaupum á fyrirtæk-
inu út úr þrotabúi þess. Fyrir liggur gjaldþrot upp á rúma tvo milljarða króna en heim-
ildir DV herma að fyrirtækið hafi verið keypt fyrir brot af þeirri upphæð. Kaupendur
geta nú haldið áfram rekstri undir nafni Kraftvéla.
Fyrrverandi eigandi gjaldþrota fyrir-
tækisins Kraftvéla, Ævar Björn Þor-
steinsson, er einn eigenda nýs rekstr-
arfélags fyrirtækisins, Kraftvéla ehf.,
sem hefur hafið rekstur á nýjan leik
undir sama nafni. Samkvæmt heim-
ildum DV voru greiddar 60 milljónir
króna í beinhörðum peningum fyr-
ir fyrirtækið en það var félagi Ævars
sem keypti það úr þrotabúinu. Þeir
hafa nú stofnað saman fyrirtæki utan
um Kraftvélar og Ævar verður við
stjórnvölinn.
Gjaldþrot Kraftvéla er talið nema
rúmum tveimur milljörðum króna
en kröfur í þrotabúið eru byrjaðar að
streyma inn til skiptastjóra. Skipta-
stjórinn, Jón Ármann Guðjónsson,
seldi nýlega úr búinu þær eignir
sem ekki voru veðsettar. Hátt í þrjá-
tíu fyrirspurnir bárust honum en á
endanum komu tvö tilboð í fyrirtæk-
ið. Hærra tilboðið var frá fyrirtæk-
inu Mistra ehf. og var því tekið með
hagsmuni þrotabúsins og kröfuhafa
í huga.
Besta tilboðið
Jón Ármann, skiptastjóri þrotabús
Kraftvéla, staðfestir að fyrirtækið hafi
verið selt út úr þrotabúinu en bendir
á að vörumerkjasamningar fylgi ekki
með í kaupunum. Hann telur líklegt
að fyrri eigandi fyrirtækisins standi
að baki kaupunum. „Það er búið að
ganga frá sölu á ákveðnum eignum
fyrirtækisins sem ekki eru veðsettar.
Þessi sala var einfaldlega besta til-
boðið og mesti peningurinn í henni.
Búið seldi ekki beint til fyrri eiganda
en ég hef nú grun um að hann sé
þarna í samkrulli. Þessi ákvörðun
var tekin með hagsmuni búsins og
stærsta kröfuhafans að leiðarljósi,“
segir Jón Ármann.
„Kaupendur taka yfir rekstrar- og
launasamninga. Viðkomandi tek-
ur yfir starfsfólkið, aðstöðu fyrirtæk-
isins og nafn þess, þannig að kaup-
endur geta haldið áfram undir nafni
Kraftvéla. Hins vegar er ekki verið að
selja þau vörumerki sem fyrirtækið
hafði. Það er ekkert sem bannar að
selja fyrirtækið fyrri eiganda en mér
vitanlega er hann ekki inni í fyrirtæk-
inu sem kaupir. Ég hef aftur á móti
grun um að hann sé þarna einhvers
staðar nálægt.“
Milljarða gjaldþrot
Kraftvélar, og tengd fyrirtæki, var
lýst gjaldþrota en fyrirtækið hefur
um árabil verið eitt öflugasta fyrir-
tækið í innflutningi og þjónustu við
vinnuvélar og verktaka. Undir hatti
Kraftvéla voru einnig fyrirtækin
Kraftvélaleigan og KFD, systurfélag
Kraftvéla í Danmörku. Ævar rak og
átti fyrirtækið frá 2005 og lýsti hann
yfir miklum vonbrigðum þegar fyr-
irtækið fór á hausinn eftir að veru-
lega dró úr verklegum framkvæmd-
um í landinu. Miðað við þær kröfur
sem liggja fyrir er ljóst að gjaldþrot-
ið nemur að lágmarki tveimur millj-
örðum króna.
Aðspurður staðfestir Ævar Björn
að hann sé aftur kominn í eigenda-
hóp Kraftvéla. Hann er ánægður
með að vera aftur við stjórnvölinn
hjá fyrirtækinu og segir gjaldþrotið
nú að baki. „Það er gott að fara aft-
ur af stað en það var kunningi minn
sem keypti úr þrotabúinu og hann
fór af stað með það eftir samkomu-
lag við mig um að ég kæmi þarna
inn aftur að reka félagið áfram. Ég á
í nýja félaginu og mun stýra þessu.
Gjaldþrotið er búið og gert. Vonandi
lifnar eitthvað yfir bisnessnum því
annars rætist ekkert úr þessu barni,“
segir Ævar Björn.
Gjaldþrotið er búið og gert.
Vonandi lifnar eitt-
hvað yfir bisnessnum
því annars rætist ekk-
ert úr þessu barni.
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Aftur af stað Fyrri eigandi
Kraftvéla er í eigendahópi nýs
rekstrarfélags fyrirtækisins.
Hann segir gjaldþrotið að baki
og vonast til þess að viðskiptin
glæðist á nýjan leik.
Lögreglumaðurinn Garðar Helgi
Magnússon sem ákærður var fyrir
brot í opinberu starfi og líkamsárás
var sýknaður í Héraðsdómi Reykja-
víkur á fimmtudaginn.
Garðari var gefið að sök að hafa
sem stjórnandi lögregluaðgerðar fyr-
irskipað öðrum lögreglumanni að aka
með handtekinn mann, fæddan 1987,
frá Austurstræti út á Granda í Reykja-
vík þar sem hann var skilinn eftir.
Þá átti Garðar að hafa á leiðinni út á
Granda þrýst hné sínu á háls manns-
ins þar sem hann lá handjárnaður á
maganum á gólfi lögreglubifreiðar
þannig að maðurinn hlaut af áverka.
Forsaga málsins er sú að þann
18. janúar í fyrra voru lögreglumenn
sem voru við eftirlit á bíl í miðbæn-
um kvaddir að veitingastaðnum Ap-
ótekinu í Austurstræti vegna þess að
þar inni hafði sést til manns munda
hníf. Þar var þá einnig staddur mað-
ur, fæddur 1987, sem hafði komið
út af veitingastaðnum og var drukk-
inn. Hóf hann að ausa svívirðingum
af kynferðislegum toga yfir lögreglu-
mennina og þegar annan lögreglubíl
bar að fór hann að þeim bíl og þvæld-
ist þar fyrir lögreglunni. Var hann þá
tekinn og snúinn niður, handjárnað-
ur og settur inn í þann lögreglubílinn
sem hafði komið fyrr á vettvang. Að
því loknu var ekið með hann út á
Granda þar sem honum var sleppt
lausum.
Ekki þótti sannað að Garðar Helgi
hafi farið offari í starfi sínu og ekki
gætt lögmætra aðferða þegar hann
fyrirskipaði öðrum lögreglumanni
að aka með piltinn út á Granda og
skilja hann þar eftir. Aukinheldur var
ekki vísað til ákvæða í lögreglulögum
í ákæru eða öðrum reglum sem þetta
var talið brjóta í bága við. Garðar við-
urkenndi að hafa sett hnéð á háls
mannsins en dómari mat það svo að
aðferðin hafi verið lögmæt þar sem
pilturinn hafði brotist um og sparkað
frá sér í ökuferðinni. Málskostnaður,
450 þúsund krónur, greiðist úr ríkis-
sjóði. einar@dv.is
Lögregluþjónninn Garðar Helgi Magnússon fór ekki offari í starfi sínu:
Sýknaður af ákæru um líkamsárás
Sýknaður Garðar Helgi
Magnússon var sýknaður
í Héraðsdómi á fimmtu-
daginn.