Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2010, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 12. febrúar 2010 FRÉTTIR
Valinn hópur stórra lántakenda hjá bönkunum hefur fengið skuldir sínar afskrifaðar. Þær
nema mörg hundruð milljörðum króna. Enginn hefur enn náð að toppa Ólaf Ólafsson með
88 milljarða króna afskriftir en Baugsfeðgar hafa fengið um 30 milljarða afskrifaða.
AFSKRIFTIR
AUÐMANNA
Katrín Pálsdóttir Katrín, sem er forstjóri Lýsis, á eignarhaldsfélagið
Hnotskurn ásamt Gunnlaugi Sævari Gunnlaugssyni, fjárhaldsmanni
Guðbjargar Matthíasdóttur í Vestmannaeyjum. Félagið er nú að
semja um skuldir sínar sem nema 2.800 milljónum króna. Eignir
félagsins eru hins vegar innan við 10 prósent af skuldum þess eða
um 244 milljónir króna sem eru fasteignir og lóðir. Skuldirnar eru
til komnar vegna misheppnaðra fjárfestinga í FL Group. Lögmaður
félagsins hefur ekki viljað staðfesta að afskriftir hafi átt sér stað en
það liggi í hlutarins eðli að einhverjar afskriftir fari fram hjá félaginu.
Katrín þurfti að víkja úr stjórn Glitnis í febrúar 2008, samkvæmt
heimildum DV, þar sem Hnotskurn var komið í vanskil.
Magnús Kristinsson Útgerðarmaðurinn í Vestmannaeyjum
fékk stóran hluta af tæplega 50 milljarða króna skuld eignar-
haldsfélaga hans afskrifaðan eftir að hann samdi við skilanefnd
Landsbankans. Nákvæmar upplýsingar um upphæðir afskrif-
anna liggja ekki fyrir. Skilanefndin leysti ekki til sín kvóta Magn-
úsar, sem var ekki í persónulegum ábyrgðum fyrir langmestum
hluta skulda sinna.
Bjarni Ármansson Fjárfestirinn og fyrrverandi forstjóri Glitnis
komst að samkomulagi við skilanefnd Glitnis um afskriftir á
rúmlega 800 milljóna króna skuldum eignarhaldsfélagsins
Imagine Investment sem er í eigu hans, við bankann. Bjarni
sagði í samtali við DV að lánið hefði verið tekið hjá Glitni í lok
2007 til að fjármagna kaup félagsins á 12 prósenta hlut í Glitni
Property Holding. „Til að gera langa sögu stutta þá gekk þetta
bara illa og tekjurnar hrundu,“ útskýrði Bjarni. Það kom þó ekki
að sök því hann þurfti ekki að borga.
Baugsfeðgar Jón Ásgeir Jóhannesson og Jóhannes Jónsson
stofnuðu til tugmilljarða króna skulda í tengslum við Haga,
Gaum, Baug og 1998 ehf. Þegar 30 milljarða lán sem 1998
ehf. tók hjá Kaupþingi sumarið 2008 var fært frá skilanefnd
Kaupþings yfir til Nýja Kaupþings og nú Arion banka, var lánið
metið á 17 milljarða. Það var sem fyrr segir 30 milljarðar króna
þegar það var tekið, en miðað við vísitöluþróun stóð það í 48
milljörðum í lok síðastliðins árs. Munurinn er því um 30 milljarðar
króna, bæði feðgarnir og Arion banki neituðu því að að skuldir
1998 ehf. yrðu afskrifaðar.
Lárus Welding Slitastjórn Glitnis gaf eftir 122 milljónir króna
af 211 milljóna króna láni sem Glitnir veitti Lárusi. Gegn greiðslu
á 89 milljónum króna féllu 124 milljónir króna niður. Lögmaður
Lárusar útskýrði þennan gjörning sem skuldajöfun og fullnaðar-
uppgjör bankastjórans fyrrverandi við Glitni.
Wernersbræður Glitnir þarf að afskrifa hluta 45 milljarða króna
skuldar eignarhaldsfélagsins Svartháfs sem er í eigu Werners
Rasmusen, föður Karls og Steingríms Wernarsona við bankann.
Werner veitti starfsmanni Milestone síðan umboð til þess að
stýra félaginu og því líklegt að hann hafi leppað eignarhaldið
á félaginu fyrir bræðurna. Glitnir var með veð í bréfum sænska
félagsins Moderna, sem var móðurfélag fjármálastarfsemi. Þegar
veðkall kom frá Glitni gátu þeir ekki staðið undir skuldunum og
því leysti bankinn félagið til sín. Erfitt er að áætla hversu miklar
afskriftirnar verða en þær munu hlaupa á milljörðum króna.
Björgólfur Guðmundsson Björgólfur átti stærstan hlut í Ár-
vakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins sem var skuldum vafið þegar
hann missti félagið í hendur bankans. Talið er að skilanefnd
Glitnis og Íslandsbanki hafi afskrifað rúmlega þrjá milljarða
króna af um það bil fimm milljarða skuldum félagsins áður en
nýr eigendahópur keypti Árvakur.
Ólafur Ólafsson Viðskiptablaðið sagði frá því á fimmtudag
að skuldir Kjalars sem námu 88 milljörðum króna við gamla
Kaupþing hafi nánast verið afskrifaðar að fullu. Í lánabók
Kaupþings sem lak á netið kom fram að skuldir Kjalars námu
um 115 milljörðum króna í september 2008. Arion banki náði
nú nýverið samningi við Ólaf um að hann haldi Samskipum en
hann og stjórnendur Samskipa eiga nú skipafélagið að fullu í
gegnum hollenska félagið SMT Partners BV.
Björn Þorri og Karl Georg Lögmennirnir Björn Þorri
Viktorsson og Karl Georg Sigurbjörnsson fengu um mitt ár 2006
fjögurra milljóna evra lán eða um 400 milljónir íslenskra króna
hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar (SPH) til að kaupa fasteign í borginni
Riga í Lettlandi. Björn Þorri og Karl Georg áttu félagið Adminu
iela 4 SIA ásamt lettneska lögmanninum Marcis Mikelsons. Í
tilfelli viðskipta Björns Þorra og Karls Georgs í Lettlandi er talið
að Byr hafi þurft að afskrifa hátt í einn milljarð króna.
800 milljónir
122 milljónir
30 milljarðar
80 milljarðar3,5 milljarðar