Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2010, Síða 24
RÓTARI ÚTRÁSARINNAR
T ryggvi Þór Herbertsson er talandi dæmi um Íslending sem alltaf skýst á toppinn. Ungur að aldri var hann
rótari einnar vinsælustu hljóm-
sveitar landsins sem söng og spilaði
sig inn í hjörtu allra landsmanna.
Tryggvi sá um að stilla græjurnar
svo hvergi yrði falskur tónn. Eftir að
hafa baðað sig í ljóma frægðar um-
bjóðenda sinna lagðist hann í nám
og krækti sér í meistaragráðu í hag-
fræði. Svo skaust hann á toppinn
sem vitringur á því sviði og lagði lín-
urnar fyrir íslenskt fjármálakerfi til
framtíðar. Í framhaldinu varð hann
prófessor í hagfræði við Háskóla
Íslands. Þar komst hann fljótt að
þeirri niðurstöðu að sú stétt manna
sem trónir á hæsta tindi skólakerf-
isins er afar lágt launuð. Hann hitti
því Björgólf Guðmundsson, þá auð-
ugasta mann landsins, og bauðst til
að bæta hans nafni við starfsheiti
sitt, gegn gjaldi. Á nafnspjaldinu
stæði þá Björgólfur Guðmundsson,
prófessor í hagfræði, Tryggvi Þór
Herbertsson. Þarna er að baki sama
hugmyndafræði og hjá íþrótta-
mönnum sem hlaupa um með
vörumerki í bak og fyrir. Áður en til
þess kæmi að Tryggvi fengi að heita
Björgólfur komst hann að þeirri nið-
urstöðu að farsælast væri fyrir hann
að verða Björgólfur. Hann hætti því
í Háskólanum og varð bankastjóri
Askar Capital og eins konar rótari
útrásarvíkinganna.
Það er auðvitað þekkt að rótarar
eru gjarnan einstaklingar sem þrá
það eitt að verða poppstjörnur en
hafa ekki hæfileikana sem þarf. En
það er alltaf möguleiki og það veit
Tryggvi. Hann komst aldrei í hljóm-
sveitina forðum en þá opnaðist sá
möguleiki að verða hluti af stórsveit
útrásarinnar. Hann sá því um að
tengja söngkerfi og hljóðfæri Wern-
ersbræðra. En eitthvað bar út af
því rótarinn var fljótlega rekinn en
slapp þó við að borga kúlulánið sitt.
Þá voru góð ráð dýr. Ísland ramb-
aði á barmi kreppu. Tryggvi bauð
forsætisráðherra krafta sína sem
hann þáði. Svo hrundi Ísland og rót-
ari forsætisráðherra var látinn fara.
Tryggvi hafði áttað sig á því að þeir
Íslendingar sem boðuðu heiðar-
leika og gagnsæi voru í tísku. Hann
lyfti merki sínu hátt á loft og krafðist
uppgjörs. Í framhaldinu var hann
kosinn á Alþingi Íslendinga. Þar
situr hann nú með kúlulánafortíð
sína og dæmir þá sem framkölluðu
hrunið. Hann er einn mesti snilling-
ur Íslands, með níu líf eins og kött-
urinn. Hann er rótari Íslands.
SANDKORN
n Einn djúpsigldasti lögmaður
landsins er huldumaðurinn
Gunnar Gunnarsson, sem meðal
annars hefur starfað náið með
Karli og Steingrími Wernersson-
um. Á gull-
öld útrásar-
tímans þótti
skynsamlegt
að nýta þjón-
ustu Gunn-
ars til þess
að fé rýrnaði
ekki óþarf-
lega eða yrði
fyrir hnýsni. Gunnar mun kunna
öll trixin í bókinni og hefur fjöldi
útrásarvíkinga notið handleiðslu.
Þrátt fyrir að vera eins konar
miðlægur gagnagrunnur hvað
skattatilþrif varðar hefur hann
enn ekki verið yfirheyrður af sak-
sóknara.
n Eitt stærsta mál efnahags-
hrunsins er það hvernig Karli
Wernerssyni og samferðamönn-
um hans tókst að koma höndum
yfir bótasjóð Sjóvár. Sjálfur mun
Karl hafa
verið sem
þrumulost-
inn þegar
hann komst
í bókhald
trygginga-
félagsins og
sá alla millj-
arðana sem
þar lágu óhreyfðir og engum til
gagns. Hermt er að Karl hafi haft
á því orð að nauðsynlegt væri að
koma þessum peningum í vinnu.
Eftirleikurinn er síðan þekktur
en ríkið þurfti að leggja Sjóvá til á
annan tug milljarða.
n Eftir að sannleiksnefnd Páls
Hreinssonar hefur sent út bréf til
hinna grunuðu varðandi hrunið
hefur vaknað spurning um það
hvenær langþráð skýrsla lítur
dagsins ljós.
Í bréfum til
hinna grun-
uðu kemur
fram að þeir
hafi 10 daga
frest til and-
mæla. Ein-
hverjir telja
víst að Davíð Oddsson og fleiri
meintir höfuðpaurar hrunsins
muni krefjast lengri frests. Vís-
bending er uppi um það þegar
litið er á blogg Sigurðar G. Guð-
jónssonar hæstaréttarlögmanns
sem dregur í efa að það dugi
minna en mánuður til andmæla.
Sigurður og Björgvin G. Sigurðs-
son, fyrrverandi bankamálaráð-
herra, eru samherjar.
n Skrif Heiðu Bjargar Heimis-
dóttir á Facebook til varnar
eiginmanni sínum, Hrannari
B. Arnarssyni, aðstoðarmanni
forsætisráðherra, halda áfram.
Heiða krafðist skýringa vegna
þess að nafngreindur aðili lýsti
því í athugasemd á DV.is að mað-
ur hennar væri smásál. Í nýju
skeyti segir hún að Hrannar sé á
vakt allan sólarhringinn og hafi
tekið á sig launalækkun til að út-
færa og framkvæma hugsjónir Jó-
hönnu. Þá lýsir hún þeirri fórn að
hafa „lánað fjölskyldupabbann“
í því skyni að reisa Ísland úr rúst-
unum.
LYNGHÁLS 5, 110 REYKJAVÍK
ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Sverrir Arngrímsson
RITSTJÓRAR:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
FRÉTTASTJÓRI:
Brynjólfur Þór Guðmundsson, brynjolfur@dv.is
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Elísabet Austmann, elisabet@birtingur.is
DV Á NETINU: DV.IS
AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010,
ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050.
SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Móri er gangandi
sönnun þess að
kannabisefni eru
ekki skaðlaus.“
n Erpur Eyvindarson er ekki á því að það eigi að
lögleiða kannabisefni. - Fréttablaðið
„Ég var ekkert sérstaklega
að leita eftir því að fara út.“
n Bjarni Ólafur Eiríksson samdi til þrigga ára við
Stabæk eftir vonbrigðatímabil með Val.
- Fréttablaðið
„Við viljum sýna eigendum
íbúðanna að það er hægt
að mótmæla, við viljum
blása þeim kjark í brjóst svo
að þeir geti staðið á rétti sín-
um og láti ekki kúga sig.“
n Þorvaldur Óttar Guðlaugsson, baráttu-
maður og mótmælandi, sem undanfarið hefur mætt
á uppboð sýslumanna á húsnæði og mótmælt. - DV
„Ég var í stóra kastalanum
og henti mér niður renni-
brautina.“
n Guðrún Lára Alfredsdóttir,
betur þekkt sem Nana, liggur
heima hjá sér eftir slys í
leikskólanum Aðalþingi í
Kópavogi þar sem hún vinnur. Nana
var að renna sér niður rennibraut þegar hún sleit
magavöðva. - DV
„Ég er hér í einkaerindum.“
n Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, en hann dvelur þessa dagana í borginni
sem aldrei sefur, New York í Bandaríkjunum. - DV
Sakborningar tala
LEIÐARI
Með hverjum deginum sem líð-ur verða misgjörðir ríkisstjórn-ar Geirs Haarde og Ingibjargar Sólrúnar ljósari. Niðurstaðan
talar fyrir sig. Hvert barn sem kemst ekki til
tannlæknis, hver maður sem missir vinnuna
og hver fjölskylda sem berst við að borga
af stökkbreyttu láni er afleiðing af störfum
Geirs, Ingibjargar og annarra sem var treyst
fyrir æðstu valdastöðum. En nú er í ofaná-
lag að verða ljóst að þegar þau sögðust vera
í björgunarleiðangri héldu þau áfram að
vinna þjóðinni skaða.
Það segir sína sögu að meinti innherja-
svikarinn Baldur Guðlaugsson var valinn af
ríkisstjórninni til að vera í samninganefnd
um Icesave-málið. Geir og Ingibjörg reyndu
á sama tíma að sannfæra okkur um að ekki
ætti að ganga til kosninga eftir hrunið, því að
þau væru í björgunarleiðangri. Leiðangur-
inn snerist um það að hin seku og hin grun-
uðu í stærsta glæpnum gegn íslenskri þjóð á
síðari árum reyndu að sannfæra þjóðina um
að þau sjálf væru saklaus fórnarlömb eða
jafnvel hetjulegir velgjörðarmenn þjóðar-
innar.
Í miðri búsáhaldabyltingunni, þar sem
fólk veifaði spjöldum með nafni og andliti
Geirs Haarde, sagðist Geir ekki telja að mót-
mælunum væri beint gegn sér sérstaklega.
Hann fullyrti að ef þjóðin fengi að kjósa,
fengi hún ekki lán frá Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum, enda hefði hann séð um samskipti
við sjóðinn. Ingibjörg Sólrún sagði gagn-
rýnendum sínum að þeir væru ekki þjóðin.
Í umræðunni er nauðsynlegt að taka tillit til
mannlega þáttarins, ekki síður en þess mál-
efnalega. Þau eru manneskjur sem réttlæta
eigin gjörðir fyrir sjálfum sér og sannfæra
sig um að þau hafi gert lítil eða engin mistök,
heldur hafi mistökin verið annarra og orðið
til af utanaðkomandi ástæðum. Byggjandi á
íslenskri stjórnmálahefð réttlæta þau gjörð-
ir sínar og forðast ábyrgðina fram í rauðan
dauðann.
Nú skammast hinn grunaði Björgvin G.
Sigurðsson, viðskiptaráðherra hrunsins, út
í seðlabankastjóra Hollands, fyrir að segja
að Íslendingar hafi logið. Og hinn grunaði
Davíð Oddsson hossar sér á því að hafa sagt
seðlabankastjóra Hollands frá því að hann
hafi varað ríkisstjórnina við hruninu með
sex mánaða fyrirvara árið 2008. Hinn grun-
aði Davíð er styrktur af hagsmunaöflum til
að skrifa hverja greinina á fætur annarri um
mistök núverandi ríkisstjórnar, sem reyn-
ir að hreinsa upp eftir meintar misgjörðir
hans. Hin grunaða Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir stekkur inn í þjóðfélagsumræðuna
með þær yfirlýsingar að ekki skipti máli að
ríkisstjórn hennar hafi rissað upp Icesave-
samning með miklu verri kjörum en sá sem
nú er rakkaður niður.
Tilfelli hinna grunuðu í íslenska efna-
hagshruninu sýnir hversu erfitt það er fyrir
einu og sömu manneskjuna að vera brennu-
vargur, slökkviliðsmaður, lögregla og dóm-
ari í sama málinu. Hin grunuðu eru ekki
jafnmarktæk í umræðunni og aðrir. Þau eru
ekki betri heimildarmenn um hlutina, þótt
þau þekki málin vel. Þau eru ekki hlutlaus
vitni að glæpnum. Þau eru sakborningar.
BÓKSTAFLEGA
Vinavernd
Þegar tímabili einkavinavæðingar og
helmingaskipta lauk formlega með
Búsáhaldabyltingunni þá hélt bolur-
inn að birta myndi til á Íslandi – að
svartnætti misréttis lyki. En raunin
hefur því miður orðið önnur. Fólkið
sem við kusum til að bæta hag hefur
fyrst og fremst bætt gráu ofaná svart.
Nánast öllu sem fólki var lofað hef-
ur verið slegið á frest en reddinga-
þjónusta ríkisins hefur aldeilis stað-
ið vaktina við að styrkja brauðfætur
fjárglæframanna og auðmagnseig-
enda. Lappadráttur hefur einkennt
fát framkvæmdavaldsins þegar
komið hefur að skjaldborg um heim-
ilin í landinu en fumlaus vinnubrögð
höfð í frammi við að rétta hlut þeirra
sem þekktastir eru fyrir bankahrun
og efnahagskreppu.
Er trú okkar á heiðarleikann bara
einsog hver önnur hégilja?
Við erum að leyfa það leynt og
ljóst að við séum höfð að fíflum.
Stjórnmálamenn koma núna úr
skápunum, hver um annan þver-
an, hlaðnir bitlingum, kúlulánum,
afskriftum, innherjaupplýsingum,
stofnbréfasölu og öllu sem nöfnum
tjáir að nefna í tali um gróðafíkn og
græðgi. Það virðist ekki skipta neinu
máli hvar í flokki menn eru – nóg er
að þeir séu stjórnmálamenn og þá
lafir aftur úr þeim púkahali svika og
sóðaskapar. Í dag eru þeir ekki marg-
ir stjórnmálamennirnir með hreina
skjöldinn, því upp til hópa er þetta
hjörð skítverkamanna og siðblindra
svikara – svikara við málstað heiðar-
leika og réttlætis.
Við heyrum sögur af ráðherfu
sem hringir út rógburð og hjálpar til
við svindl í þágu vinavæðingar. Við
heyrum af fólki níða skóinn af þeim
örfáu heiðarlegu stjórnmálamönn-
um sem enn finnast hjá okkar guð-
svoluðu þjóð. Í dag eru ráðamenn
ötulir við að rægja hetjurnar fimm
í VG sem þorðu að mótmæla flýti-
meðferð æseifsamnings á þingi. Og
við fáum ótrúlegt magn upplýsinga
um baktjaldamakk, leynisamninga
og margt það sem stjórnmálamönn-
um er í nöp við að nái til almennings.
Það er nánast sama hvert litið er, alls
staðar eru á ferð stjórnmálamenn að
bjarga vinum og velunnurum undan
fallöxi réttvísinnar. Menn fara fram
með fögrum loforðum um heiðar-
leika en fagurgalinn er allur hjóm,
því tilgangurinn er einn: Að þyrla
upp ryki og blása í augu þeirra sem
eru að reyna að átta sig.
Aðgöngumiðasalan að dansinum
í kringum gullkálfinn er enn þá opin,
eina breytingin frá tíð helminga-
skipta er sú að núna eru ný andlit í
miðasölunni.
Þjóðarhjartað heimtar grið
svo hérna von það finni
en burgeisarnir bisa við
að bjarga eigin skinni.
KRISTJÁN HREINSSON
skáld skrifar
„Fólkið sem við
kusum til að bæta
hag hefur fyrst og
fremst bætt gráu
ofaná svart.“
SKÁLDIÐ SKRIFAR
24 FÖSTUDAGUR 12. febrúar 2010 UMRÆÐA
JÓN TRAUSTI REYNISSON RITSTJÓRI SKRIFAR. Þau eru ekki hlutlaus vitni að glæpnum.