Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2010, Side 36
UMSJÓN: KJARTAN GUNNAR KJARTANSSON, kgk@dv.is
Páll Þorleifsson
FYRRVERANDI HÚSVÖRÐUR VIÐ FLENSBORG
Páll fæddist að Kaganesi við Reyð-
arfjörð en ólst upp í foreldrahúsum
að Kömbum til 1918. Þá drukknaði
faðir hans og varð móðir hans þá
að leysa upp heimilið. Páll fór þá,
ásamt þremur systkinum sínum, til
móðurbróður síns, Páls Þorsteins-
sonar og k.h., Elínborgar Stefáns-
dóttur, að Tungu í Fáskrúðsfirði.
Páll flutti suður er hann var um
tvítugt og stundaði nám við Hér-
aðsskólann á Laugarvatni 1931-33.
Hann settist síðan að í Hafnarfirði
og hefur verið búsettur þar síðan.
Páll stundaði fyrst almenna
verkamannavinnu. Hann starf-
aði svo í hálfan annan áratug í raf-
tækjaverksmiðjunni Rafha en 1961
varð hann húsvörður við Flens-
borgarskólann og gegndi því starfi
í tuttugu ár, eða þar til hann var sjö-
tíu og eins árs. Þann tíma bjuggu
hann og fjölskylda hans í skól-
anum. Þá kenndi hann jafnframt
bókband við Flensborgarskólann
um skeið. Eftir að Páll hætti störf-
um við Flensborgarskólann starf-
aði hann í fimm ár hjá Flúrlömp-
um sf.
Páll söng og starfaði með Karla-
kórnum Þröstum í Hafnarfirði í
sextíu og fimm ár. Hefur kórinn oft
flutt lög eftir Pál en hann hefur gert
töluvert af því að semja lög og ljóð.
Þá var hann einn af einsöngvur-
um kórsins um árabil. Hann söng
jafnframt í kirkjukórum í Hafn-
arfirði og í ýmsum kvartettum og
sönghópum. Lætur hann sig aldrei
vanta þegar sungið er á Hrafnistu
en hann syngur enn fyrsta tenór.
Á yngri árum æfði Páll fimleika
með FH og var í sýningarflokki
undir stjórn Hallsteins Hinriks-
sonar.
Eftir Pál hafa komið út 18 söng-
lög fyrir karlakóra, útg. 1988, og
Kveðja frá Páli í bundnu máli, ljóð
og stökur útg. 1996. Hann er nú
búsettur á Hrafnistu og syngur enn
með Hrafnistukórnum í Hafnar-
firði.
Fjölskylda
Páll kvæntist 23.10.1937 Guðfinnu
Ólafíu Sigurbjörgu Einarsdóttur
(Lóu), f. 26.2. 1913, d. 5.12. 1999,
húsmóður. Hún var dóttir Einars
Jónssonar, f. í Vola í Flóa 5.5. 1866,
d. 1947, og Kristínar Guðmunds-
dóttur, f. á Skógstjörn í Garða-
hreppi 13.11. 1873, d. 1955.
Dætur Páls og Ólafíu eru Krist-
ín Ína, f. 5.3. 1938, kennari og
bókasafnsfræðingur við bókasafn
Hrafn istu í Hafnarfirði, gift Magn-
úsi R. Aadnegard, f. 9.5. 1942, vél-
virkjameistara og atvinnurekanda;
Þóra Gréta, f. 21.11. 1945, starfs-
maður við bókasafn Hrafnistu í
Hafnarfirði, gift Magnúsi Jóni Sig-
björnssyni, f. 27.5. 1944, vélvirkja-
meistara.
Börn Kristínar og Magnúsar
eru Páll Heiðar, f. 31.1.1964, vél-
fræðingur, en sambýliskona hans
er Kolbrún Pálína Hafþórsdóttir
en dóttir hans er Olga Karin, f. 7.8.
1983 og á hún tvö börn; Lóa María,
f. 29.4. 1966, kennari og lyfjafræð-
ingur, en maður hennar er Sigurð-
ur Hannesson, kerfisfræðingur og
rafeindavirki, og eru börn þeirra
Bjarki Dagur, f. 3.7.1993, Sævar
Andri, f. 4.1.1996 og Eydís Anna, f.
15.7.1999.
Börn Þóru Grétu og Magnúsar
eru Pálmar Óli, f. 15.5. 1966, véla-
verkfræðingur og framkvæmda-
stjóri, en kona hans er Hildur Karls-
dóttir kennari og eru börn þeirra
Smári, f. 22.2. 1988, og á hann eina
dóttur, Þóra Gréta, f. 16.12. 1992,
og Rakel, f. 15.11. 1994; Bjarki Þór,
f. 11.4. 1973, rafeindavirki, en sam-
býliskona hans er Bára Hilmars-
dóttir og eru börn þeirra Eva Rós, f.
4.9. 1991, og Lena Rut, f. 30.8. 1994
og Daníel Máni, f. 29.3. 2004; Ívar
Smári, f. 24.3. 1976, rafvirki og eru
börn hans Anton Freyr, f. 8.7. 1996,
og Heiða Lóa, f. 19.10. 2005; Alma
Björk, f. 30.3. 1980, viðskiptafræð-
ingur en hennar maður er Guð-
mundur Jón Viggósson og eru dæt-
ur þeirra Thelma Ýr, f. 15.12. 2005,
og Karen Eir, f. 10.7. 2009.
Systkini Páls: Sigurbjörg, f.
10.7. 1906, d. 1999, húsmóðir og
saumakona, en maður hennar
var Markús Jónsson sem einnig
er látinn; Sigurður, f. 10.7. 1906, d.
1926; Þórir, f. 18.11. 1908, d. 1991,
húsgagnabólstrari, var kvæntur
Guðrúnu Þ. Sturludóttur; Stefán,
f. 27.9. 1911, d. 7.8. 2001, leigu-
bílstjóri og hljómsveitarstjóri, var
kvæntur Halldóru G. Hallgríms-
dóttur sem er látin; Eiríkur, f. 23.5.
1913, d. 1993, rafvirkjameistari,
var kvæntur Sigríði Sigurðardótt-
ur; Magnús, f. 19.9. 1914, d. 1999,
viðskiptafræðingur, var kvæntur
Ídu S. Daníelsdóttur.
Foreldrar Páls voru Þorleifur
Stefánsson, f. á Reyðarfirði 13.9.
1876, d. 1918, og Margrét Þor-
steinsdóttir, f. í Víðivallagerði á
Fljótsdalshéraði 25.6. 1874, d. 29.7.
1949, húsmóðir.
70 ÁRA Á SUNNUDAG
Jóhanna Kristjónsdóttir
RITHÖFUNDUR
Jóhanna fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hún lauk stúdentsprófi frá
MR 1959, stundaði nám í guðfræði
við HÍ 1962-64 og lauk prófi í hebr-
esku 1962, stundaði nám í arabísku
í Kaíró 1995-96, í Damaskus 1998-
2000, í Jemen 2001 og aftur í Sýrlandi
2002-2003.
Jóhanna var blaðamaður við
Vikuna 1958-59, við Tímann 1962-
66, stundaði jafnframt smábarna-
kennslu 1962-64, og þýðingar, var
í síldarvinnu, við afgreiðslustörf,
blaðaútburð og fleira, og var búsett
í Grikklandi 1966-67. Hún var blaða-
maður við Morgunblaðið 1967-95 en
hefur síðan stundað ritstörf. Þá hef-
ur hún haldið fjölda námskeiða hjá
Mími símenntun í arabísku og arab-
ískum menningarheimi og fyrirlestra
hjá félögum, fyrirtækjum, skólum og
víðar.
Meðal bóka Jóhönnu: Ást á rauðu
ljósi, skáldsaga 1960, endurútg. 2002;
Segðu engum, skáldsaga 1963; Mið-
arnir voru þrír, skáldsaga 1967; Fíla-
dans og framandi fólk – á ferð með
augnablikinu um framandi lönd,
ferðaminningar 1988; Dulmál dódó-
fuglsins – á ferð með augnablikinu
um framandi lönd, ferðaminning-
ar, 1989; Flugleiðin til Bagdag, 1991;
Perlur og steinar – árin með Jökli,
endurminningar 1993; Á leið til Tim-
búktú, ferðaljóð, 1996; Kæri Keith,
1997; Insjallah – á slóðum araba,
2001; Arabíukonur, 2004. Þá hefur
hún þýtt ýmsar bækur.
Jóhanna var formaður Félags ein-
stæðra foreldra 1969-87 og formað-
ur húsnefndar félagsins í nokkur ár.
Hún stofnaði Vináttu- og menning-
arfélag Mið-Austurlanda 2004 með
það að markmiði að auka skilning og
þekkingu á löndum múslima. Hún
hefur einnig haldið úti ferðaklúbbi
félagsins og farið með hópa á slóðir
araba og víðar. Hún stofnaði Fatimu-
sjóðinn 2005 til að styðja fátæk börn í
Jemen til náms.
Jóhanna hlaut viðurkenningu
Hagþenkis 2005 fyrir skrif sín um
menningarheim Mið-Austurlanda,
var valin kona ársins af Nýju lífi, árið
2008, fyrir skrif sín um mannlíf í Mið-
Austurlöndum og fyrir mannúðar-
störf og fékk heiðursverðlaun Sam-
félagsverðlauna Fréttablaðsins 2008
fyrir að kynna menningu Mið-Aust-
urlanda á Íslandi og fyrir hjálparstarf
í Jemen.
Fjölskylda
Jóhanna giftist 31.8. 1957, Jökli Jak-
obssyni rithöfundi, f. 14.9. 1933, d.
25.4. 1978, leikritaskáldi og dagskrár-
gerðarmanni, syni Þóru Einarsdóttur
húsmóður og séra Jakobs Jónssonar,
rithöfundar og lengst af sóknarprests
við Hallgrímskirkju í Reykjavík. Jó-
hanna og Jökull skildu 1969.
Börn Jóhönnu og Jökuls eru Elísa-
bet Kristín Jökulsdóttir, f. 16.4. 1958,
rithöfundur í Reykjavík, og á hún tví-
burana Garp og Jökul með fyrv. sam-
býlismanni sínum Inga Bæringssyni
auk þess sem sonur Elísabetar og
Guðjóns Kristinssonar er Kristjón
Kormákur, f. 1976; Illugi Jökulsson,
f. 13.4. 1960, rithöfundur í Reykjavík
en kona hans er Guðrún Snæfríður
Gísladóttir og eiga þau börnin Veru
Sóleyju, f. 1989, og Ísleif Eld, f. 1999,
en fóstursonur Illuga er Gísli Gald-
ur Þorgeirsson f. 14.12. 1982; Hrafn
Jökulsson, f. 1.11. 1965, blaðamaður
og rithöfundur í Trékyllisvík, kona
hans er Elín Agla Briem og eiga þau
dótturina Jóhönnu Engilráð f. 19.5.
2009, en sonur Hrafns og Elísabet-
ar Ó. Ronaldsdóttur er Þorsteinn
Máni, f. 1984, sonur Hrafns og Anitu
Jónsdóttur er Örnólfur, f. 13.7. 1996,
og dóttir Hrafns og Ingibjargar Þór-
isdóttur er Þórhildur Helga, f. 28.3.
1999.
Dóttir Jóhönnu og Höskulds
Skarphéðinssonar skipherra er Kol-
brá Höskuldsdóttir, f. 20.10. 1971,
kennari, búfræðingur og bók-
menntafræðingur í Borgarfirði, en
dóttir hennar er Magdalena Sigurð-
ardóttir f 23.2. 1999. Sambýlismaður
Kolbrár er Ólafur Jóhannesson.
Bróðir Jóhönnu er Bragi Krist-
jónsson, f. 17.7. 1938, fornbókasali
í Reykjavík, var kvæntur Nínu Björk
Árnadóttur skáldkonu sem er látin
en synir þeirra eru Ari Gísli, Valgarð-
ur og Ragnar Ísleifur. Systir Jóhönnu
er Valgerður Kristjónsdóttir, f. 12.11.
1945, húsmóðir í Reykjavík, gift Birni
Theódórssyni og dóttir þeirra er
Kristín Elísabet.
Foreldrar Jóhönnu: Kristjón
Kristjónsson, f. 8.10. 1908, d. 6.1.
1984, framkvæmdastjóri í Reykja-
vík, og k.h., Elísabet Ísleifsdóttir, f.
18.9.1910, d. 16.11 2001, gjaldkeri í
Reykjavík.
Jóhanna á sex langömmubörn,
tvíburana Jóhönnu Líf og Alexíu Sól,
Helenu Mánadís, Emblu Karen, Ron-
ald Bjarka og Bríet Eyju.
Ætt
Kristjón var sonur Kristjóns, b. í Útey
í Laugardal Ásmundssonar, b. á Apa-
vatni efra Eiríkssonar, b. á Gjábakka
í Þingvallasveit, bróður Jóns, lang-
afa Ólafs Ragnars Grímssonar for-
seta. Eiríkur var sonur Gríms, b. á
Nesjavöllum Þorleifssonar, ættföður
Nesjavallaættar Guðmundssonar, b.
í Norðurkoti Brandssonar, b. á Krossi
í Ölfusi Eysteinssonar, bróður Jóns,
föður Guðna í Reykjakoti, ættföður
Reykjakotsættar, langafa Halldórs,
afa Halldórs Laxness, og langafa
Guðna, langafa Vigdísar Finnboga-
dóttur. Móðir Ásmundar var Guðrún
Ásmundsdóttir, b. á Vallá á Kjalar-
nesi Þórhallssonar, og Helgu Alex-
íusdóttur, af Fremra-Hálsætt þeirra
Styrmis Gunnarssonar, Össurar
Skarphéðinssonar, Þráins Bertels-
sonar og Marðar Árnasonar.
Móðir Kristjóns Kristjónssonar
var Sigríður, ljósmóðir Bergsteins-
dóttir, b. á Torfastöðum í Fljótshlíð
Vigfússonar, b. á Grund í Skorradal
Gunnarssonar. Móðir Vigfúsar var
Kristín Jónsdóttir, af Víkingslækja-
rætt Jóns Helgasonar skálds og próf-
essors og Davíðs Oddssonar Morg-
unblaðsritstjóra. Móðir Bergsteins
var Vigdís Auðunsdóttir, pr. á Stóru-
völlum Jónssonar, langafa Jóns, föð-
ur Auðar Auðuns og bróður Arnórs,
langafa Hannibals Valdimarsson-
ar, föður Jóns Baldvins. Móðir Sig-
ríðar var Kristín Þorsteinsdóttir, b. á
Norður-Hvoli í Mýrdal Magnússon-
ar. Móðir Þorsteins var Sigríður Þor-
steinsdóttir, systir Bjarna amtmanns,
föður Steingríms Thorsteinsson-
ar skálds. Móðir Sigríðar var Krist-
ín Hjartardóttir, b. á Norður-Hvoli
Loftssonar, bróður Ólafs, langafa
Ingigerðar, langömmu Páls, föður
Þorsteins, fyrrv. ritstjóra Fréttablaðs-
ins.
Elísabet er dóttir Ísleifs, kaup-
manns og gamanvísnaskálds á Sauð-
árkróki Gíslasonar, b. á Ráðagerði
í Leiru Halldórssonar, b. í Skeiðhá-
holti á Skeiðum Magnússonar. Móðir
Halldórs var Guðrún Árnadóttir, pr. í
Steinsholti Högnasonar prestaföður
Sigurðssonar. Móðir Ísleifs var Elsa
Jónsdóttir, b. í Hvammi undir Eyja-
fjöllum Sveinssonar og Ólafar Þórð-
ardóttur, systur Hlaðgerðar, ömmu
Jóns Laxdal tónskálds, afa Ragnars
Arnalds, fyrrv. ráðherra og fyrrv. for-
manns Heimssýnar.
Móðir Elísabetar var Valgerður
Jónasdóttir, b. í Keldudal í Hegra-
nesi Halldórssonar og Helgu Steins-
dóttur, systur Kristínar, ömmu Jóns
skjalavarðar.
Jóhanna tekur fagnandi á móti
gestum í Félagsheimili Neskirkju,
sunnud. 14.2. milli kl. 15 og 18.
Hún biðst eindregið undan blóm-
um og gjöfum en óskar eftir því
að þeir sem vilja gauka að henni
glaðningi leggi það í Fatimusjóð-
inn: 342-13-551212, kt. 140240-
3979 eða/og gerist áskrifendur
að bókinni sem börn hennar hafa
gert úr garði vegna tímamótanna.
Þar skrifa ættingjar, vinir og sam-
ferðarmenn pistla um kynni sín
af afmælisbarninu og Jóhanna
skrifar um tilurð og starfsemi Fat-
imusjóðsins. Allur ágóði af bókinni
rennur í sjóðinn.
KJARTAN GUNNAR KJARTANSSON rekur
ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma
viðburði liðinna ára og minnist horfinna
merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn
tilkynningar um stórafmæli á netfangið
kgk@dv.is
36 FÖSTUDAGUR 12. febrúar 2010 ÆTTFRÆÐI
100 ÁRA Á LAUGARDAG